Tíminn - 20.04.1960, Blaðsíða 16
Líkiegt að ekkert
samkomulag verði
Drengur varð
fyrir lang-
ferðabifreið
í fyrradag var 10 ára gam-
all drengur, Sumarliði Boga-
son, til heimilis aS Árbæjar-
bletti 38 fyrir langferðabif-
reið og meiddist alvarlega á
nöfði. Siysíð varð á fimmta
tímanum, á mótum Suður-
iandsbrautar og Reykjavegar.
Drengurinn var að fara út
úr strætisvagni og aftur með
honum, þegar hann varð fyrir
langferðabifreiðinni á leið til
Reykjavikur. Hann hlaut mik
ið höfuðhögg og var fluttur
á slysavarðsstofuna, en síðan
á Landsspítalann. Meiðslin
voru þó ekki talin lífshættu-
leg.
BLÓÐUGIR BARDAGAR
GEYSA í S-KÓREU
Þessi valt í Svínahrauni, neíian-
við Sandskeið, á skírdag. Myndin
þarfnast ekki skýringa gagnvart
bifreiðinni: niðurkiesst þakið, vél-
arhlífin af sér gengin, hurðirnar
frá og rúður maskaðar. Hitt sést
þó ekki á myndinni, að þrjár
manneskjur slösuðust við veltuna.
Grunur var um ölvun við akstur.
----------------------------------f
| Nú er hafín síðasta vika
hafréttarráðstefnunnar í Genf
og atkvæðagreiðslur verða
innan tíðar. Allt útlit er fyrir,
að þessan ráðstefnu ljúki
eins og beirri fyrri, án sam-
komtrlags. Flestra álit er, að
engin tillaga nái nauðsynleg-
um meirihluta við atkvæða-
greiðslu í allsherjarnefnd-
inni og virðast þau málalok
vera okkur bezt úr þvi sem
lomið er Eigi að síður bera
Rretar, Bandaríkjamenn og
Kanadamenn sig borginmann-
, lega, en þeir hafa haldið uppi
' látlausum áróðri yfir alla
páskana. En hvað sem verð-
ur er auðsætt nú, að ráðstefn-
an er komin í algera sjálf-
heldu.
í einkaskeyti til ríkisút-
varpsins í gærkvöldi sagði, að
, í gær hefði aðeins verið röskr
ar mínútu fundur, engar
ræöur fluttar, enda enginn
á mælendaskrá.
Wan Prins, sem var í for-
sæti las skýrslu heildarnefnd
ar og frestaði síðan fundi til
morguns.
Fyrir fundinum liggja nú
tvær tillögur til atkvæða-
(Framhald á 15. síðu).
NTB—Seoul, 19. apríl. •—
Seinni partmn í dag streymdu
langar raðir stríðsvagna og
skriðdreka inn 1 höfuðborg
Suður-Kóreu, Seoul, þar sem
síðustu daga hefur komið til
blóðugra átaka milli lögreglu
og þúsunda æskumanna, aðal-
lega stúdenta, sem mótmæla
forsetakjöri Syngmans Rhee
13. marz s.l. A.m.k 65 menn
hafa látið lífið og hundruð
særzt. Fjöldi bygginga hefur
orðið fyrir stórspjöllum eða
gjöreyðilagzt.
Öllum ungiingaskólum og
háskólum í landinu hefur ver
ið lokað og lýst hernaöar-
ástandi um gjörvalla Suður
Kóreu. Lögreglumenn og her
menn eru búnir vélbyssum og
táragasi, sem þeir hafa feng
ið skipun um að beita, komi
nokkurs staðar til fjölmennra
útifunda.
Hámarki náðu óeirðirnar
er um 5 þúsund stúdentar
gerðu tilraun til skyndiá-
hlaups á forsetabygginguna.
Margar þúsundir lögreglu-
manna gættu byggingarinnar
og tókst að hrinda áhlaup-
inu með vélbyssuskothríð,
sem felldi a.m.k. 15 stúdenta-
Fregnin um manndrápin jók
aðeins á æsinguna og nýtt
áhlaup var undirbúið frá að
setrum uppreisnarmanna í
(P'-amhald á L5 síðu).
Kaldi
( nótt var norSan kaldL,
en um hádegi ! dag má
búast við áttabarnlngi hér
í grennd, sennilegast að
suðaustan eða austanáttin
verði ofan á. Sumarið er
ekki komið nema á alman-
aklnu enn.
Ragnheiður Jónasdóttir
í nýrri brezkri kvikmynd
Ragnheiður, dóttir Jónasar
Jæknis Sveinssonar og Ragn-
heiðar Havsteen, kom heim
í’rá London fyrir skömmu og
fer aftur til London á mánu-
daginn kemur. Ragnheiður,
eða „Miss Adria“ eins og við
hér sem ítalir höfum stund
um kallað hana, kom heim
með óvenjulegt plagg með-
íerðis, samning við kvik-
myndafélagið „Border Film
Production" um leik í nýrri
mynd, sem félagið hefur á
prjónunum, en Ragnheiður
mun fara þar með aðalkven-
hlutverkið.
Fréttamönnum gafst færi á
að ræða við Ragnheiði á heimili
hennar í gær og sjá samninginn
við kvikmyndafélagið, sem hún
hefur samþykkt og undirritað.
Það orkar ekki tvímælis, að
Ragnheiður hefur aflað sér
óvenjulegs frama á þeim stutta
tíma, sem hún hefur eytt við
leiklistarnám i Englandi, eða
síðan hún réðist til Miss Fried-
man, eftir að hún kom fram í
sjónvarpsþætti ABC, „The Sun-
day Break“, fyrst allra ungra
kvenna erlendra, en það varð
skömmu eftir að hún hafði unn-
ið titilinn „Miss Adria“.
1 Englandi sem viðar er nú
mergð ungra stúlkna, sem slást
um samninga við Kvikmynda-
félögin, erlendra sem innlendra.
Ragnheiður hefur þó haft
nokkra sérstöðu í þeim hópi, þar
sem hún hefur ekki þurft að
slást við stallsystur sínar um
samningana, heldur hafa kvik-
myndafélögin slegizt um hana,
en „The King Brothers" buðu
henni sjö ára samning um leik
í kvikmyndum, en Ragnheiður
afþakkaði.
Hvað kemur til? kynnu menn
að spyrja. Jú, þaö kemur til, að
verðandi stjarna sem gerir slík-
an samning við kvikmyndafélag,
verður að sitja og standa eins og
viðkomandi félagi þóknast, svo
lengi sem samningar endast, og
Ragnheiður er alls ekki ráðin i
því að gera kvikmyndaleik að
ævistarfi sínu þótt henni hafi á
svo skömmum tíma orðið meira
ágengt á þvi sviði en margar
stúlkur, vel af guði gerðar, verða
að sætta sig við.
En nú hefur Ragnheiður gert
samning, meir að hennar skapi,
sem er í hæsta máta óvenjuleg-
ur hvað snertir 19 ára stúlku i
framandi landi, þar sem barizt
er af heimafólki um hvert bein
að naga: Hún hefur gert samn-
(Framhald á 15 síðu)
Lík í höfninni
I gærmorgun fannst lík á floti
í höfninni. Ekki er vitað um
þann, sem um er að ræða, annað
en það, að liann mun hafa verið
við vinnu um borð í togara i fyrri
nótt, og er talið, að hann hafi
fallið niður milli togarans og
bryggjunnar.