Tíminn - 20.04.1960, Side 12
12
T f MI N N, miðvikudaginn 20. apríl 1960, .
.
/,s,.
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Stórsigur siglfirzkra skíðamanna á
landsmótinu í Siglufirði um páskana
Skíðalandsmótið, sem háð ffi . f i f • . ni'l* ii , í«/
var í Siglufirði um páskana, Hlutu sjo Islandsmeistara - Keykvikmgar hlutu tjora
var mikill sigur fyrir sigl- f f f . . í f* *>• ,
firzka skiðamenn og konur. Islandsmeistara - Istiroingar tvo og rljotamenn emn.
Alls hlutu Siglfirðingar sjö _ . . , n. ^ . f .
isiandsmeistara - þar af - Goö iramkvæmd ðkiöalandsmotsins.
varð Kristín Þorgeirsdóttir i
fjórfaldur meistari — og var
það meira en öll önnur héraðs
sambönd hlutu samanlagt.
Reykvíkingar fengu fjóra ís-
landsmeistara — Eysteinn
Þórðarson sigraði í þremur
greinum, og varð einnig ís-
landsmeistari í fjórðu grein-
inni, sveitakeppni í svigi, og
sannaði því enn einu sinni
yfirburði sína yfir aðra ís-
lenzka skíðamenn í alpagrein
um. Eysteinn varð einnig
þriðji í stökkkeppninni.
Skíðalandsmótið hófst s.l.
miðvikudag og má segja, að
síðan hafi allt snúizt um
skíðafólk og skíðakeppni í
Siglufirði. Veðurguðirnir
voru heldur óhagstæðir fram-
kvæmdaneíndinni í upphafi
mótsins og varð því að breyta
nokkuð niðurröðun keppnis-
greina, frá því sem upphaf-
lega var ákveðið. Síðustu dag-
ana var hins vegar sæmilegt
veður. Mótið fór vel fram
í alla staði og var fram-
kvæmdanefndinni til hins
mesta sóma Talsvert var um
aðkomufólk sem fylgdist með
keppninni — og Siglfirðing-
ar fjölmenntu á keppnisstað-
ina. Allar alpagreinarnar voru
háðar á Ráeyrardal, en skíða-
stökkið við Litla bola Stökk-
keppnin átti að fara fram í
stærri braut, sem leyfir 60
metra stökk en sökum snjó-
ieysis varð að breyta til
Keppni á miðvikudag
Eins og áður segir hófst
landsmótið á miðvikud. fyrir'
páska með keppni í 15 km.
göngu og flokkakeppni í
svigi.
Göngukeppnin fór fram við
Skíðafell og voru keppendur
18. Sveinn Sveinsson, Siglu-
firði, sigraði í göngunni og
varð því fyrsti íslandsmeist
arinn að þessu sinni. Sigri
hans var að vonum fagnað
mjög af áhorfendum — og
má segja, að Svéinn hafi
með sigri sínum lagt 'horxí-'
steininn að hinum miklu
sigrum Siglfirðinga á mót-
inu. Úrslit í göngunni urðu
þessi:
1. Sveinn Sveinsson, S 1:06,33
2. Matthías Sveinss. í 1:07,52
3. Sigurjón Hallgr.s. F 1:08,31
4. Gunnar Pétursson f 1:08,46
5. Sigurður Jónsson í 1:09,02
6. Helgi V. Helgas. Þ 1:10,16
Þegar keppendur höfðu
lokið fyrri hring hófst
keppni i skíðagöngu 17—19
ára og voru keppendur þrir.
Skarphéðinn Guðmundsson, Siglufirði,
— yfirburðasigurvegari í skíðastokki
Gengu þeir einnig 15 km. og
vakti það mikla athygli, að
allir þrír náðu betri tima
en íslandsmeistarinn i 15
km. göngunni. Vakti þetta
að vonum miklar umrœður
meðal áhorfenda og kepp-
enda — og var einna helzt
fallizt á þá skýringu, að fceri
hafi verið eitthvað betra,
þegar á leið, og pilt-arnir
notið góðs af þvi. Úrslit urðu
þessi:
1. Birgir Guðlaugss. S 1:05,25
2. Stefán Jónsson Ak 1:05,49
3. Atli Dagbjartsson Þ 1:05,57
Þá fór einnig fram keppni
drengja 15—16 ára og var
brautin 10 km. Úrslit urðu
þessi:
1. Kristján R. Guðm. í 38.37
2. Gunnar Guðm.son S 41.01
3. Þórhallur Sveinss. S 44.16
Öryggisútbúnaðurinn brást
Þennan sama dag var
einnig keppt í flokkakeppni
í svigi. Fyrirfram þótti sveit
Reykjavíkur sigurstrangleg-
ust — og kom það því mjög
á óvart, að þeyar hinir
f j órir keppendur hverrar
sveitar höfðu lokið fyrri um
ferðinni, en auk Reykvíkinga j
kepptu Siglfirðingar og ís-1
firðingar, hafði siglfirzka j
sveitin um 20 sekúndum1
betri tíma en sveit Reykja-
víkur. En keppninni var ekki
lokið — og þar átti sér stað
mesta óheppni mótsins.
Þegar þrír fyrstu menn í
sveit Siglfirðinga höfðu far
ið brautina var tími Siglfirð
inga orðin 26 sek. betri en
nœstu sveitar — og allt virt
ist benda til öruggs sigurs
sveitarinnar. Bogi Nilsson
var siðasti keppandi Sigl-
firðinga — og hann fór
brautina af miklu öryggi til
að byrja með. En skyndilega
varð breyting á. Bogi stanz-
aðix þvl öryggisútbúnaður-
inn á bindingunum hafði
bilað. Boga tókst þó nokk-
uð fljótt að laga bindingarn
ar og hélt áfram ferðinni.
En hann hafði aðeins farið
skammt, þegar öryggisútbún
aðurinn brást aftur — og
varð Bogi þá að ■lokum að
hœtta keppni, enda aðstaða
hans orðin alveg vonlaus. —
Þarna breyttist að þvi er virt
ist öruggur sigur i tap á
skammri stundu. Sveit Rvlk
Eysteinn Þórðarson
sannaði enn yfirburði sína
ur sigráði þvi, og ísfirðingar
urðu í öðru sœti. Beztan
brautartima áUi Árni Sig-
urðsson, ísafirði, 64,1 sek.
Úrslit urðu þessi:
1. Sveit Reykjavikur: 453 sek.
Ólafur Nílsson 108,4
(54,2+54,2)
Guðni Sigfússon 130,7
(64,0+66,7)
Svanb. Þórðarson 106,9
(52,4+54,5)
Eysteinn Þórðarson 107,0
(52,2+54,8)
2. Sveit ísfirðinga 466,2 sek.
Óli G. Guðmundss. 137,7
(75,7+62,0)
Árni Sigurðsson 104,1
(51,3+52,8)
Samúel Gústafss. 117,9
(58,8+59,1)
Kristinn Benediktss. 106,5
(50,5+56,0)
3. Sveit Siglfirðinga sek.
Gunnl. Sigurðsson 109,2
(54,7+54,5)
Hákon Ólafsson 106,3
(52,0+54,3)
I Jóhann Vilbergsson 105,7
(51,4+54,3)
Bogi Nílson (54,4) Úr leik.
Kristinn sigraði Eystein
Næsta dag, fimmtudag, fór
fram keppni í svigi karla og
kvenna. Þar bar einkum til
tíðinda, að Eysteinn Þórðar-
son varð að láta sér nægja
annað sætið — en svigið hef
ur einmitt verið hans bezta
grein. Kristinn Benediktsson
frá ísafirði bar sigur úr být
um — og náði hann tveimur
tíundu úr sek. betri tíma en
Eysteinn. Þessir tveir Olymp
íufarar skáru sig nokkuð úr.
í fyrri umferðinni náði Krist
inn beztum tíma, 67 sek. —
Eysteinn fór brautina á 68,8
sek. og Hákon Ólafsson Siglu
firði náði sama tíma. í síðari
umferðinni náði Eysteinn
beztum tíma 68,7 sek. — eða
aðeins betri tíma en í fyrri
umferðinni. Kristinn fór
brautina á 70,3 sek. — sem
nægði til sigurs, en Hákon á
71,0 sek. Úrslit í greininni
urðu þessi:
1. Kristinn Bened. ís. 137,3
2. Eysteinn Þórðars. R 137,5
3. Hákon Ólafsson S 139,8
4. Árni Sigurðsson, ís. 143,0
5. Leifur Gíslason, R 144,8
6. Gunnl. Sigurðss. s 148,3
7. Svanb. Þórðarson R 149,3
8. Bjarni Einarsson R 152,7
9. Ólafur Nílsson R 152,9
10. Bogi Nílsson, S. 153,7
32 keppendur luku keppni.
í svigi kvenna luku þrjár
keppni. Þar sigraði Kristín
Þorgeirsdóttir, Siglufirði á
84,5 sek. aðeins 2/10 úr sek.
á undan Karólínu Guðmunds
dóttur, Reykjavík. Þriðja
varð Sjöfn Stefánsdóttir,
Siglufirði, á 100,6 sek. Litlu
munaði að Kristín, sem síð-
ar sannaði yfirburöi sína í
öðrum keppnisgreinum
kvenna á mótinu, yrði af ís-
landsmeistaratitlinum. Hún
féll í brautinni og tafðist
mjög við það.
Á föstudaginn langa var
ekki keppt, en keppendur
Myndir frá skíðalands-
mótinu, sem birtast áttu
meft þessari grein, kom-
ust ekkí ti! blatisins í gær
vegtna emhverra mistaka
flugafgreröslu á Akureyri.