Tíminn - 28.05.1960, Qupperneq 1
Áusa járni úr
sjó og sandi
Vík, 25. maí. — Nú gengur
allþolaniega hjá vinnuflokk
Bergs Lárussonar, sem vinnur
að björgun hrájárnsins á
Kerlingardalssandi — Dyn-
skógaf jöru. Hefur nú tekizt að
ná um 30 tonnum úr sandin-
um.
Járnið er síðan flutt á bílum út
fyrir Kerlingardalsá, út að Fagra-
dal. Fært er flestum bílum alveg
niður að járnastaðnum.
Bezt aÓ hafa sjóinn
Niðri við fjöruna er komin all-
myndarleg gryfja, full af sjó. Þyk-
ít bezt, að hún sé sem fyllzt, því
sjói'inn í henni spornax þá á móti
sandinum, sem annars vill hrynja
inn í hana. Þess vegna er mest
unnið á flóði. Járninu er lyft upp
með skurðgröfukjafti.
Erfitt a'ð fóíra
Öll gryfjan er nú fóðruð innan
með járnþili, og var það mikið
verk og erfitt að koma því fyrir í
gryfjunni, en síðan.er aðstaða til
björgunar allt önnur, þótt enn
vilji hrynja sandur inn í. Ekki
verður sagt með vissu um hve
langan tíma verkið muni taka, en
nú eru sem sagt komin um 30 tonn
af járni í dagsljósið, en munu
hafa verið 4—5 þús. tonn alls.
ÓJ—s—
Sprenging í
púöurverk-
smiðju
NTB—Toulouse, 27. maí. Mikil >
sprengiin varð í púðurverksmiðju
skammt frá Toulouse í morgun. i
Þrír menn fórust, en tíu meiddust.
Orsökin til slyssins er ekki upp-
lýst og hefur rannsóknarnefnd
tetoið til starfa.
Innhrot í togara
Síðastliðna fimmtudagsnótt ■,
var brotizt inn í klefa 1. vél- I
stjóra á togaranum Ágúst, |
sem stendur nú í slippnum í.
Eeykjavík. Stolið var 198 pökk |
um af Camel-vindlingum. j
Klefahurðin mun hafa ver
ið mölvuð upp. —b—.
Menderes
fallinn
Menderes forsætisráðherra og
einvaldi Tyrklands siðan 1950 var
handtekinn af tyrkneskum her-
mönnum í gærmorgun eftir að
ytirmenn hersins höfðu gerf bylt
ingu. Menderes er fæddur 1899.
Hann var valinn á þing 1930 ^em
fylgismaður Kemals Ataturks höf
undar hins nýja Tyrklands. Er
Inonu forseti, eftirmaður Ata-
turks, hafði verið forseti í nokk-
ur ár, leyfði hann myndun stjórn
arandstöðuflokks í landinu. Varð
Menderes einn af stofnendum
hans. í kosningum 1950 náðu
Demokratar meirihluta. Varð
Menderes forsætisráðherra og
hefur verið það síðan og lengst
af sfjórnað sem einræðisherra
með tilstyrk lögreglu og hers.
Óreiða og sukk hefur alla tið
þótt einkenna fjármál og atvinnu
líf landsins i valdatið hans, þótt
framkvæmdir væru nokkrar. Rit-
frelsi og sko'öanafrelsi hefur löng
um verið lítið. Flestir atkvæða-
miklir blaðamenn hafa á þessu
tímabili verið með annan fótinn
i fangelsinu. í vor sauð upp úr
og beittu stúdentar sér mest fyr-
ir andstöðunni. Loks brást her-
inn. Sjá nánar á bls. 3.
Friðrik kóngur og Ingiríður drottning í Danmörku héldu upp á silfurbrúðkaup sitt á mið-
vikudaginn og voru bá m. a. við hátíðasýningu í Konunglega leikhúsinu. Myndin er tekin
af þeim hjónum og Önnu-Maríu, yngstu dóttur þeirra á silfurbrúðkaupsdaginn.
Norskir sjómenn fá allt að 5
sinnum meira fyrir fiskinn
Blaðinu hefur borizt skrá
frá Alþýðusambandi íslands
um gildandi lögbundið fisk-
verð til hlutarsjómanna og
það fiskverð, sem nýskeð var
gert samkomulag um milli
L.Í.Ú. og Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Samlags
skreiðarframleiðenda; einnig
hefur borizt skýrsla um fislt-
verð til sjómanna í Noregi.
Af þessum skýrslum kemur
fram, að norskir sjómenn fá
sem svarar 4,21-4,80 ísl. kr.
fyrir kíló af þorski, sem fer til
frystingar eða söltunar, en
skiptiverð til ísl. sjómanna
er kr. 1,66 og frystihúsin
greiða útgerðarmönnum kr.
2,63.
Fiskverð í Noregi er nokk-
uð misjafnt eftir verðlags-
svæðum og verkunaraðferð-
um, en þegar á allt er litið,
kemur í ljós, að norskir sjó-
menn fá tvisvar til fimm
sinnum meira fyrir afla sin
en sjómenn hér. Fyrir átta
algengustu fisktegundirnar
að steinbít undanskildum,
er lægsta verð til sjómanna
fyrir fisk til frystingar og sölt
unar tvöfalt til fjórfalt hærra
en hér. Greiðslur fiskverk-
unarstöðva til útvegsmanna
í Noregi eru og miklu hærri.
ÞorskverÖ í Noregi er 154 —
j189% hærra en hér og sama er
! að segja um flestar aðrar teg
! undir, að þar er verðmunur-
; inn geysimikill.
Hvað veldur?
I ' Þessar upplýsingar eru1
harla athyglisverðar og hljóta
i Framhald á 3. síðu.
Fundur Alþýðu-
sambandsins
hefst í dag
í dag eftir hádegi hefst full-
trúafundur Alþýðusambands ís-
lands í Iðnó í Reykjavík. Þessi
ráðstefna er haldin um ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum, og hvemig verka-
lýðsfélögin í landinu eigi að
bregðast við þeim. Fundinn sitja
fulltrúar frá öllum verkalýðsfé-
lögum laudsius, einn frá hverju,
en þau munu vera um hálft ann-
að hundrað talsins. Reiknað er
með að fundurinn standi laugar-
dag og sunnudag.
Hannibal Valdemarsson, for-
seti A.S.Í. mun flytja framsögu-
ræðuna á ráðstefnunni.
Stjórn L.I.U. hótaði að segja af sér-bls. 3
' í-
J