Tíminn - 16.06.1960, Síða 3
' TjLMHS N,^flmmtadaginn 16. jání 1960.
3
Kýstúdentar
(Framh. aÆ 16. sí&u).
ið, nægir að óska honum til ham-
diigju með afrekið.
— Og þú fékkst öll verðlaunin,
Þorsteinn?
— Nci, segir Þorsteinn og brosir
við. Það var vist eitthvað talsvert
afgamgs.
— En hvað æflarðu þér að
le.ggja stund á eftirleiðis?
— Ég fer væntanlega utan í
haust. Er helzt að hugsa um að
lesa eðlisfræði, trúlega í Dan-
möi'ku.
Síaukin húsnæðisvandræði
Við skólaslitin drap rektor
mokkuð á húsnæðismál skólans,
sem hafa farið síversnandi undan-
farin ár. í upphafi þessa skólaárs
voru nemendur 574 talsins, og er
það langmesti nemendafjöldi frá
upphafi skólans, en skólahúsið
var upprunalega aðeins ætlað 100
—120 nemendum. Kvað rektor
fyrirsjáanlegt að innan skamms
verði allt húsið fullskipað allan
daginn og dugi þó ekki til. Áður
en svo langt er gengið verður rík-
isstjórnin að hafa gert einhverjar
róttækar úrbætur í húsnæðismál-
um skólans. Er þess að vænta að
rikisstjórn, þing og þjóð sjái sóma
sinn í að gera ekki verr við elzta
skóla landsins en danska konungs-
valdið gerði á sínum tíma, sagði
rektor. — Þá hefur kennurum
skólans farið sífjölgandi, og voru
þeir alls 50 í vetur. Kvað rektor
léieg launakjör menntaskólakenn-
ara valda því að stöðugt yrði erfið-
ara að afla hæfra kennara að skól-
anum, en kjör kennaranna eru
mun lélegri en í nágrannalöndun-
vm.
Próf og einkunnir
Þá skýrði rektor frá prófum.
Ilndir stúdentspróf gengu 114
nemendur, 97 innan skóla og 17
utan skóla, 68 í máladeild og 46
í stærðfræðideild. 109 luku prófi
og stóðusf. Hæstu einkunn hlaut
Þorsteinn Vilhjálmsson 6.X, ágæt-
iseinkunn 9.33, en næst honum
komu Brynjólfur Ingvarsson 6.X,
8.63., Selma Vígbergsdóttir 6.A,
3.62, Jón Gunnarsson, 6.B, 8.61
og Þorsteinn Gunnarsson 6.X, 8.60.
— Undir árspróf skólans gengu
475 nemendur, en 445 luku og
stóðust 400. Fengu 3 ágætiseink-
unn, 85 I. einkunn, 216 II. eink-
unn og 93 III. einkunn.
Að lokum afhenti rektor verð-
laun, þeim sem til þeirra höfðu
unnið og þakkaði síðan nemend-
vm sínum samstarfið á liðnum
vetri. —Ó
Kostar milljónir
(Framh. af 1. síðu).
Fjöldi aSkomubáta mun leggja
upp síldarafla á Raufarhöfn í
sumar ef að vanda lætur, og
er undirbúningi síldarverk-
smiðjanna á staðnum langt
komið. Þá er tekið að undir-
búa söltunarstöðvarnar, en
margt er þar enn óunnið.
— H.H.
Vilja Eich-
mann aftur
Argentína lagði í gær fram
frumvarp fyrir Öryggisráð
S.Þ., þar sem ísraelsmenn eru
harðlega víttir fyrir ránið á
Eichmann, og þess krafizt að
þeir skili honum aftur heilum
á húfi til Argentínu. Stjórn
Argentínu kveðst að vísu
skilja sjónarmið og beiskan
hug ísraelsmanna, en hér sé
um svo freklegt brot á alþjóöa
lögum að ræða, að ekki sé
hægt að láta það viðgangast.
Tvenn innhroí
í Reykjavik
í fyrrinótt og í gærdag var
brotizt inn á tveimur stöðum í
Reykjavík og var talsverðum
f járupphæðum stolið á báðum
stöðunum. Rannsóknarlögregl
an hefur bæði málin til með-
ierðar, en í gær var enn ekk-
ert uppvíst er bent gæti til
þjófanna
Innbrotið í fvrrinótt var framið
í skrifstofu Hraðfrystistöðvarinnar
fc.f. að Bakkastíg 9, og náði þjóf-
urinn þar 4800 krónum úr skrif-
borðss'kúffu. Peningarnir voru eft-
irstöðvar launa er ekki hafði verið
vitjað. — Þá var í hádeginu í gær
brotizt inn í skrifstofu Þ. Þor-
grímsson & Co. í Borgartúni 7, á
matartíma þegar skrifstofan var
mannlaus. Þaðan var rænt pen-
ingakassa með hátt á fjórða þús-
und krónum í peningum auk nokk-
urs af ávísunum. Þess utan voru í
kassanum ýmis verðmæt skjöl fyr-
irtækisins. ó—
Tillaga Kristilegs Dagbla<Ss um nýja skipan
Grænlandsmála
Vegna geysilegrar eftirspurnar hef-
ur veriS ákveðiS aS sýna óperuna
Rigóletto nokkrum slnnum enn,
eftir aS „ListahátíSlnnl" lýkur, og
verSa sýningar á henni á laugar-
dag og sunnudag. Sven Erik Vik-
ström syngur nú hlutverk hertog-
ans og tók hann viS hlutverkinu
af Nicolai Gedda. Vikström hefur
glæsilega tenórrödd og hreif alla
meS á fyrstu sýningu. Myndin er
af Vikström í hlutverki hertogans.
Einkaskeyti frá Kaupmanna
höfn —- Danska Grænlands-
nefndin sem skipuð var 1960
og telur 25 meðlimi er nú
lögð upp i hringferð til allra
kauptúna og sveita á vestur-
strönd Grænlands
Kristeligt Dagblad hefur í sam-
bandi við þessa för varpað fram
þeirri hugmynd, að skipaður verði
Menntaskólanum
að Laugar-
vatni, slitið
sérstakur Grænlandsmálaráðherra
og yrði jafnvel innfæddur Græn-
lendingur skipaður í st'' ina. Blað
ið stingur upp á tveim mönnum
í stöðuna, sem báðir eru fulltrúar
Grænlendinga á danska þinginu,
þeim Elias Laue og Nicolaj Ros-
ing. Information ræðir einnig
þessa tillögu og íSegir í því sam-
bandi að ekki verði búizt við þvi,
að uppástunga um að skipa Græn-
lending danskan ráðherra, hljóti
stuðning grænlenzka landsráðsins.
í stað þess að auka og ; Ha stjórn
Grænlandsmála í Kaupmannahöfn,
vill ráðið að sem mestur hluti
stjórnarstarfanna flytjist til Græn-
lands sjálfs og völd ráðsins verði
aukin, jafnvel svo það fái I'ággjaf-
arvald. — Aðils.
Fatlaðir efna
til happdrættis
til þess að koma
félaga sífia
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra, hélt annað þing sitt
í hinu nýja félagsheimili
Sjálfsbjargar á Akureyri,
Bjargi við Hvannavelli 10,
dágana 10.—11. júní s.l. Til
þings voru mættir 23 fulltrú-
ar frá 7 félögum, en Sjálfs-
bjargarfélögin eru alls 8 í
landinu með um 400 félaga. Á
þmginu voru rædd helztu
hagsmunamál öryrkja, svo
sem atvinnumál, tryggingar
og fleira.
Sjálfsbjargarfélögin eru ung,
hið elzta aðeins röskr.. tveggja ára,
og öll tnjög fjárvana. Hefur því
verið ráðizt í að fara af stað með
Hljóp í gegn
um glervegg
í gær vildi svo illa til, að
lítil stúlka, Áslaug Jóhanns-
dóttir, til heimilis á Eiríks-
götu 23, hljóp i gegnum gler
vegg í Fiskifélagshúsinu nýja
við Skúlagötu, þar sem út-
varpið hefur bækistöð sina,
og skarst þó nokkuð. Hurðir
og veggir umhverfis þær í því
húsi eru af gleri gerðar, og
mun stúlkan hafa ætlað, að
þar væri opið út. Rakst hún
allharkalega á glerið, svo að
það brotnaði, þrátt fyrir að
það mun vera vel þykkt.
Hlaut hún ljótan skurð á úln-
lið cg hné, en var flutt heim
að lokinni aðgerð á Slysa-
varðstofunni. —s—
á fót vinnustöðum fyrir
happdrætti í þeirri von að al-
menningur í landinu vildi veita
félögunum brautargengi.
6 vinningar
Vinnmgarnir eru Volkswagen-
bifreið, kæliskápur, strauvél, hræri
vél og bónvél. Ágóða af 'happdrætt
inu á að nota til þess að styrkja
prjónastofu, sem Sjálfsbjörg á ísa-
firði 'hefur nýlega starfsett. Hefur
það staðið þeirri prjónastofu mjög
fyrir þrifum, að ekki hefur verið
nægilegt fjármagn fyrir hend til
þess að kaupa svo mikið hráefni,
að það næði saman. Að öðru leyti
á að nota ágóðann til þess að full-
gera félagsheimilið Bjarg á Akur-
eyri, en þar hefur aðeins^ verið
komið upp sal og eldhúsi. í saln-
um er hægt að hafa létt föndur,
en í framtíðinni eiga að rísa þar
vinnustofur fyrir ýmsan iðnað.
Stjórn
Núverandi stjórn Sjálfsbjargar,
Landssambands fatlaðra, skipa
Theodór Jónsson, Reykjavík, for-
maður, gjaldkeri, Eiríkur Einar.s-
son, Reykjavík, ritari Ólöf Rík-
harðsdóttir, Reykjavík, varafor-
maður Zophonías Benediktsson,
Reykjavík, og meðstjórnendur þeir
Trausti Sigurlaugsson, ísafirði,
Sveinn Þorsteinsson, Akureyri,
Hulda Steinsdóttir, Siglufirði,
Helgi Eggertsson, Reykjavík og
Valgerður Hauksdóttir, Hvera-
gerði. — s —
Sláttur horfinn
í Dölum
Hjarðarfelli í Dölum, 14. júní.
Sláttur er nú hafinn á mörgum
bæjum hér, en það er algjört
einsdæmi að sláttur hefjist hér
svo snemma. Yfirleitt hefur
sláttur ekki hafizt fyrr en eftir
Jónsmessu. Miðað við árstíma er
spretta mjög góð.
Menntaskólanum að Laug-
arvatni var slitið í fyrradag,
og brautskráðust að þessu
sinni 20 stúdentar, 8 stúlkur
og 12 piltar, níu úr máladeild,
ellefu úr stærðfræðideild. í
stærðfræðideild varð hæstur
Eysteinn Pétursson með ágæt
iseinkunn 9,07, en í máladeild
Magnús Pétursson með 8,94.
Jóhann Hannesson skóla-
meistari brautskráði hiha
nýju stúdenta, ávarpaði þá í
kveðjuskyni og sleit að lok-
um skólanum.
Dauði eða
tukthús
Réttarhöld í máli banda-
ríska nj ósnaflugmannsins
Francis Garry Powers, sem
féll í hendur Rússa hinn 1.
maí s. 1., mun hefjast í
Moskvu upp úr næstu mán-
aðamótum. Erlendum stjórn-
arerindrekum og blaðamönn-
um hefur verið boðið að vera
við réttarhöldin. F. G. Pow-
ers hefur ritaö konu sinni
bréf, þar sem hann segir, að
yfir sér muni verða krafizt
dauðadóms, eða ef bezt lætur
ævilangs fangelsisdóms. Fað-
ir Powers er á förum til
Moskvu og mun verða við rétt
arhöldin, og hefur Krustjoff
heitið honum stuðningi til
þess ferðalags.______
Allar ieiðir
reyndar
í gær hélt forseti Philips-
eyja Eisenhower veizlu mikla,
þar sem Eisenhower hélt
ræðu um sambúð þjóðanna.
Sagði hann að kqmmúnistar
hefðu reynt með öllu móti að
ná heiminum undir sína
stefnu, en nú þegar þeir sæju
að það hefðist ekki með góðu,
freistuðu þeir þess að beita
valdi. Skoraði hann á komm-
! únistaþj óðir að fara með friði
. og stofna ekki heimsfriðinum
lí hættu.
Síldarskip á miðin
Nokkur skip eru þegar kom
in á síldveiðar fyrir Norður-
landi, en búast má við að síld
arbátarnir flykkist á miðin
næstu daga. Aðkomufólk er
væntanlegt til Sigluf j arðar
næstu dagana, en varla kem-
ur skriður á það fyrr en síld-
arsöltun er hafin. Varðskipið
Óðinn var að síldarleit á vest
. ursvæðinu í gær, en varð engr
ar síldar var. Á norðursvæð-
inu var norska rannsóknar-
skipið G.O. Sars, og mun það
hafa orðið var ofurlítillar sild
ar. — B.J.
Fréttir frá póst- og
símamálast jórn
Rafn Júlíusson fulltrúi á
póstmálastofunni hefur verið
skipaður póstmálafulltrúi frá
1. júní þ. á.
Talsímarásum milli Hafnar
fjarðar og Reykjavíkur hefur
nýlega verið f jölgað úr 40 í 60.
Einni talsimarás var 10.
þ. m. bætt við til ísafjarðar,
og bætir það nokkuð samband
ið milli Reykjavíkur og ísa-
fjarðar, sem hefur verið mjög
örðugt undanfarið vegna ó-
nógra talsímarása.
Stúdentar falla
og særast
í Tokíó
Japanir eru nú mjög ugg-
andi vegna þess atburðar, er
20—30 þús. manns réðust með
aðsúg að þinghúsinu í Tokíó.
Sló í brýnu milli þeirra^og
lögreglunnar, og lyktaði við-
ureigninni þannig, að 3 stúd
entar féllu, 56 voru handtekn
ir og 300 særðust hættulega.
Út af þessum atburðum kall-
aði Kishi forsætisráðherra
saman fund embættismanna
til þess að ræða málið, auk
þess sem hann hefur gefið fyr
irskipun um aukna löggæzlu