Tíminn - 19.06.1960, Page 11
gnaaqéagbm t9. Jtní 1960.
11
Blái vasinn
(Framhald af 8. síðu).
skiltið. Þar stóð skýrt og greini
lega: B. Chon — fornsali. —
Anzkotinn, muldraði Peck
með sjálfum sér. — Ég hefði
getað dáið upp á að það væri
stafað með E. Hann hljóp aft-
ur til Palace hotel skipti meiri
peningum og tók aftur að
hrlngja. 8 B. Chonar voru í
San Francisco. 6 þeirra voru
ekki heima, sjöundi draugfull
ur og áttundi heyrnarlaus. Þá
byrjaði hann á ný að hringja
í nágrannahéruðin.
Við sjöttu hringingu utan-
bæjar náði hann sambandi
við heimili hins rétta B. Cohn.
Þar var honum sagt, að B.
Cohn væri í miðdegismat hjá
einhverjum Caslon í Mill Val-
ley. Þrír Caslonar í Mill Val-
ley. Við síðustu hringingu var
kannast við, að B. Cohn væri
þar staddur. Hver talaði?
William Peck? Hvað var það
fyrir mann? — Þögn um hríð,
og svo: Hr. Chon segist ekki
þekkja neinn William Peck.
— Segið honum þá í anzk-
otan s nafni, að búðin hans
standi í ljósum loga, æpti
Peck. Skjótar en hundur gæti
gelt var B. Cohn kominn í
símann:
— Hvað segið þér, er búðin
að brenna?
— Nei, verið bara rólegur,
hr. Cohn, ég neyddist bara til
þess að segja það til þess að
fá yður í símann. Ég þarf nefni
lega að fá bláan vasa, sem
stendur í glugganum yðar í
einum grænum hvelli.
— Hafið þér nokkra hug-
mynd um, hvað sá vasi kost-
. ar?
— Nei, og varðar ekki um
það. Ég verð bara að fá hann
í hvelli.
— Þá verðið þér að hringja
í verzlunarstjórann minn.
Hermann Joost heitir hann, í
síma 3249. Segið honum bara,
að ég hafi vísað á hann, þá
kemnr hann.
Peck hringdi í 3249. Fjör-
. gömul móðir Hermanns Joost
svaraði. Nei, Hermann var í
tennisklúbbunum. Hvað hann
héti? Það vissi hún bara ekki.
Þá var að hringja í klúbbana,
og þegar klukkan sló átta
hafði hann fengið þann fróð-
leik, að hr. Troost væri ekki
meðlimur, hr. Moost hefði
ekki komið, hr. Zoost væri ný-
farinn ,eða hr. Hoost hefði
ekki heyrzt nefndur.
— Nú er ekki um nema eitt
að ræða, sagði Peck við sjálf-
an sig. — Ég fer niður eftir og
mölva helvítis rúðuna. En
þegar þangað kom, stóð lög-
regluþjónn þar rétt hjá Úti-
lokað.
. . Myrkrið var lagzt á. Þreytt-
ur, bugaður og glorsoltinn
settist Peck á gangstéttar-
brúnina og hugsaði ráð sitt.
Skyndilega reis hann á fætur,
ákveðinn í fasi, fór til hótels-
ins og hringdi svo aftur í 3249.
í fyrsta sinn var heppnin með
honum, Hermann Joost var
■ að koma inn úr dyrunum.
Klukkan kortér yfir niu kom
Joost i fylgd með lögreglu-
manni. Þeir gengu inn, og
Joost sótti vasann út í glugg-
ann.
— Hvað kostar svona nokk-
”«? spurði Peck.
— 400 dollara.
ættið í Buenos Aires upp á 10
þúsund dollara á ári.
— Ha — hvað segið þér?
— Jú, ég veit hvað ég er
að segja. í hvert sinn, sem ég
þarf að útnefna einhvern til
mjög ábyrgðarmikilla starfa
fyrir fyrirtækið, legg ég þetta
þrælslega vasapróf fyrir hann.
Og í öll þessi ár eru það að-
eins tveir menn af fimmtán,
sem hafa útvegað mér bláa
vasann.
Tárin stóðu enn í augum
Pecks:
— Þakka yður fyrir Ricks.
Þakka yður kærlega fyrir. Ég
skal nokk standa mig þarna
niðri í Buenos Aires.
— Já, ég efast ekki um það.
En segðu mér nú — langaði
þig ekki mest til að vísa þessu
öllu frá þér, þegar þú sást
hvernig allt snerist á móti
þér?
— Jú, ekki get ég neitað
því. En skipun er skipun, |
hverníg sem landið leggst.
— Menntun þín sem sölu-
maður hefur hjálpað þér vel.
En það sem mestu máli skift-
ir er það, að þú ert af þeim j
flokki manna, sem alls ekki
lætur stöðva sig. Það er svo-
lítill töggur í þér, og það lík-
ar mér vel. En hvernig í
fjandanum náðuð þér í þessa
400 dollara?
— Ég á hring .erfðahring,
sem af sérstökum ástæðum er
mér meira en peningar. Það
er einasta verðmætið, sem ég
hef nokkurn tíma eignazt. Ég
setti hann sem tryggingu.
— Datt þér aldrei i hug, að
mér kynni að þykja vasinn
svo dýr, að ég vildi ekki sjá
hann?
— Nei. Þér sögðuð mér að
útvega vasann, og þá vissi ég
að þér vilduð fá hann.
— Gott. En þegar við för-
um á fætur í fyrramálið, get-
ið þér gefið lestarþjóninum
hann — ég keypti þetta vasa-
grey fyrir fimm dollara. En
nú skuluð þér drífa yður í
kojuna og sofna. Þér hafið
svo sannarlega unnið fyrir
því.
— En hvað með þessa brúð-
kaupsveizlu? En hún liður í
' prófinu?
— Já, hún er lygi eins og
allt annað. Sn ég hef gott af
að komast út úr borginni
endrum og spila svolítið golf,
— og reyndar alveg sérlega
mikilvægt eftir að einhver
hefur útvegað mér bláan vasa.
Nú komið þér til Santa Barb-
ara, og við skulum taka okk-
ur gott frí saman. Og svo —
beint til Buenos Aires. Þar er
nóg að gera, gamli minn!
Hornsteinn Háteigskirkju lagður
Peck gaf verði laganna hom j
auga og hætti við að ræna j
vasanum, áður en hann hefði
hugsað þá hugsun til enda. —
Takið þér ávísun? spurði
hann titrandi röddu.
— Ég þekki yður ekki, svar-
aði Joost.
Peck fór í símann í búðinni
og hringdi til Grey.
— Hvað segið þér?, spurði
Grey, mjúúkmáll. — Hafið
þér virkilega verið allan þenn
an tíma að þessu?
— Já. Viljið þér lána mér
400 dollara?
—Góði minn, ég hef ekki
svo mikið heima í reiðufé.
— Komið þá með mér á
aðalskrifstofuna til þess að
taka þessa upphæð út.
— Læsingin á skápnum þar
er svo flókin að ég hef aldrei
getað lært hana.
— Jæja, komið þá hingað og
gangið í ábyrgð fyrir mig. ■
— Er þá nokkur innstæða
fyrir ávísuninni?
— Snemma í fyrramálið
skal ég koma og berja sundur
hvert einasta bein í yðar bölv-
uðum skrokk. Peck var hás af
reiði. — Djöfullinn hengi yður
í yðar eigin görnum!
Ekki gekk betur með Port-
er. Þá var aðeins eftir að
reyna einn útveg. Hann gekk
til Joost aftur:
— Segið mér — kunnið þér
að meta demantshring?
Það var ekki laust við að
Joost þætti: — Það hefði ég
nú haldið.
— Bíðið þá hér. Ég ætla að
skíeppa heim og ná í hring.
Nokkrum mínútum síðar
kom Peck með hringinn, þétt-
setinn demöntum allt um
kring. Joost rannsakaði hann
vandlega, mat hann á 600
dollara, og féllst á að taka
hann sem tryggingu fyrir
ávísun Pecks.
■ Stundarfjórðungi síðar
jhafði Peck fengið vasann í
jöskju, og var setztur inn í
i leigubíl á leið til nærliggjandi
flugvallar. Þar náði hann sím-
, leiöis í vin sinn sem átti litla
sportflugvél, og um miðnæt-
urskeið stigu þeir Peck og blái
vasinn hans til himna móti
fölu skini tunglsins.
Hálftíma síðar lentu þeir á
ósléttum akri í Salinas Valley,
og eftir að hafa kvatt vin sinn
og þakkað honum fyrir flug-
ferðina, gekk Peck yfir að
járnbrautarteinunum og sett
ist við þá. Þegar Suðurhrað-
lestin kom öskrandi niður
gegnum dalinn, vafði Peck'
saman dagblaði og kveikti í
því. Síðan tók hann sér stöðu
á miðjum teinunum og veif-
aði logandi blaðinu fram og
aftur. Lestin stanzáði, og einn
lestarþjónanna opnaði vagn-
dyr. Peck snaraðist inn hjá
honum.
— Eruð þér vitlaus maður?,
spurði lestarþjónninn. — Hvað
meinið þér með þvi að stöðva
lestina svona milli stöðva? Um
leið gaf hann lestarstjóranum
merki um að halda áfram.
— Ég þarf að hitta mann í
klefa nr. 3 í svefnvagni nr. 6,
svarið Peck. — Ég myndi ráð-
leggja yður að hindra mig
ekki, því þá verður framið
morð hér í lestinni.
— Meinið þér gamla mann-
inn með hvíta yfirskeggið?
Lestarþjóninum varð ekki um
sel, er hann sá svipinn á Peck.
— Ég skal vísa yður til hans.
Eftir að hafa hamazt langa
stund á klefahurðinni, kom
Cappy gamli Ricks og opnaði.
— Mér þykir fyrir því að
þurfa að vekj a yður, hr. Ricks,
sagði Peck, — en mér var ó-
mögulegt að ná lestinni áður
en hún fór. En hér er vasinn.
Ricks starði á Peck eins og
hann sæi afturgöngu:
— Gpð á himnum hjálpi
oss, hrópaði hann upp yfir
sig. — Við skiptum um skilti,
við settum lögregluþjón til að
gæta búðarinnar, við sáum til
þess að þér urðuð að útvega
400 dollara á sunnudagskvöldi
í borg, þar sem þér eruð svo
til óþekktur — já, reyndum
allt sem við gátum til þess að
gera yður þetta sem erfiðast,
en anzkotinn eigl mig sem
þér ekki stanzið hraðlestina
um hánótt, miðja vega milli
stöðva og afhendið vasann. í
guðanna bænum komið inn og
setjizt, kæri vinur!
Peck lét fallast niður í eitt
sætið í klefanum.
— Nú, svo þið voruð að gera
grín að mér! — Rödd hans
titraði af reiði. — Þá það, hr.
Ricks. Þér eruð gamall maður,
og þér útveguðuð mér vinn-
una, svo ég skal reyna að fyr-
irgefa yður þetta svokallaða
gtín — en ég læt það samt
ekki viðgangast.
Tárin stóðu í augum hans,
hann ræskti sig ' og kingdi
nokkrum sinnum:
— Mér var í æsku kennt að
hlýða skipunum, þótt mér
þættu þær asnalegar, ,án þess
að koma með spurningar og
þras. Mér var kennt að vera
húsbónda mínum 100 prósent
trúr, og þess vegna særir það
mig, að húsbóndi minn skuli
gera sér gaman að því að spila
með mig. Ég var þó farinn að
vona, að ég væri loksins kom-
inn til fyrirtækis, sem------
— en héðan í frá getið þér
sjálfur selt yðar helvítis
spýtnarusl!
Capy gamli Rickps strauk
föðurlega yfir hár hans.
— Þetta var skítlegt, sonur
sæll, skammarlegt skítlegt. En
ég varð að reyna yður. Þess
vegna beitti ég þessu vasa-
prófi — þessu sérstaka vasa-
prófi. Þér haldið, að þér sitjið
þarna með vasaræksni, sem
kostar 400 dollara, en í raun-
inni er það útiþússtjóra emb-
í dag, 19. júní, verður stutt
helgiathöfn í Háteigskirkju.
Mikilvægum áfanga við bygg
ingu kirkjunnar er lokið, er
hún nú er komin undir þak.
Að sjálfsögðu er mikið verk
enn óunnið, en þess er að
vænta, að úr þessu líði ekki
langur tími þar til kirkjan
verður tekin í notkun. Til
þeirrar stundar horfa margir
með eftirvæntingu.
Athöfnin hefst kl. 2.30 sið-
degis. Mun þá biskup íslands,
herra Sigurbjörn Einarsson,
leggja hornstein kirkjunnar.
Stutt ávörp verða flutt og
kirkjukórinn syngur undir
stjórn organistans, Gunnars
Sigurgeirssonar.
Að lokinni athöfninni i
kirkjunni hefir Kvenfélag Há-
teigssóknar kaffiveitingar í
Sjómannaskólanum tl fjáröfl
unar.
Á hhverju ári hefir félagið
haft kaffisölu og er það vin-
sæll þéttur í fjölþættu starfi
þess. ' uð manna, bæði
safnaðui.*ólk og aðrir góðir
Reykvíkingar hafa hverju
sinni heimsótt konurnar, not-
ið þeirra viðurkenndu veitinga
og átt hjá þeini ánægjustund
um leið og þeir styrktu gott
málefni. Sannarlega verð-
skulda konurnar góðan stuðn
ing í miklu og fórnfúsu starfi
þeirra að málum safnaðarins.
Stærsta verkefni hans er að
leysa farsællega kirkjubygg-
ingarmálið. Það er að vísu mik
ið átak, en söfnuðurinn er
einn hinna fjölmennustu í
landinu og „margar hendur
vinna létt verk.“ -
Velkominn til athafnarinn-
ar 1 Háteigskirkju og í Sjó-
mannaskólann í dag.
Jón Þorvarðarsson.
STEYPUHRÆRIVELAR
150 fítra
vélarnar eru
á gúmmíhjólum
og mjög
þægilegar
í drætti.
Samband ísi samvinnufélaga
VÉLADEILD