Tíminn - 01.07.1960, Síða 1
143,- tWr — 44. árgangur.
Föstudagur 1: júlí 1960.
Aðalfundur norrænu samvinnufélaganna í Reykjavík í gær:
42 fulltrúar frá hinum
Norðurlöndunum fjdrúm
Aðalfundur sambands sam-
A’innuféla.<janna á Norðurlönd
um, Nordisk Andelsforbund
og Nordisk Andels-Export, var
baldinn í Reykjavík í gærdag.
Fundir þessir eru haldnir til
skiptis í hinum ýmsu Norður-
íöndum. Árið 1955 var fund-
urinn síðast haldinn hér á
landi, en á næsta ári verður
hann haldinn í Noregi.
Fundinn sóttu að þessu sinni
42 fulltrúar frá Svíþjóð, Dan-
nörku, Noregi og Finnlandi auk
forystumanna íslenzku samvinnu-
samtakanna.
Stjórn samtakanna skipa nú Sví-
arnir Carl Albert Anderson, for-
maður, Harry Hjalmarsson og Carl
I.indskog, Finnarnir Uuno Takki
og Paavo Viding, Norðmaðurinn
Rolf Semmingsén, Danirnir Poul
Nyboe Andersen og Ebbe Gx’oes'
eg Erlendur Einarsson, forstjóri
S.Í.S.
Framkvæmdastjóri er Daninn
Mogens Efholm, en aðalskrifstofu
hefur sambandið í Kaupmanna-
l'.öfn. Auk þess hefur það skrif-
Framihald á 3. síðu.
Kartöfluleysi
yfirvofandi
Fljúga tvær prinsessur
með Flugfél. íslands?
Tvær prinsessur, þær Kristín Svíaprinsessa og Bene-
dikta Danaprinsessa hafa pantað far með einni af flug-
vélum Flugfélags íslands frá Kaupmannahöfn til Glasg-
ow í Skotlandi, þann 12. júlí næst komandi. Ekki er
blaðinu kunnugt um á hvaða ferð prinsessurnar eru, en
þetta er að srálfsögðu mikill virðingarauki fyrir Flug-
félagið, og verður vafalaust víða eftir þessu tekið.
Með Drangajökli sem fórst
í Pentlandsfirði á þriðjudags-
kvöld fóru í sjóinn 350 lestir
af nýjum belgískum kartöfl-
um. Drangajökull átti að koma
tii landsins í dag, og hefðu þá
verið fyrir hendi kartöflu-
birgðir fyrir allt landið til
þriggja vikna.
Nú er kartöfluleysi hins
vegar fyrirsjáanlegt, birgðir
Grænmetissölu landbúnaðar-
ins eru þegar þrotnar og kart
öflur munu vera á þrotum í
verzlunum. — Blaðið sneri
sér þess vegna til Jóhanns
Jónassonar forstjóra og spurð
(Framh. á 15. síðu.)
Þessi mynd var tekin á aðalfundi sambands samvinnufélaganna í Reykjavík í gær. Talið frá vinstri: Mogens Ef-
holin, Erlendur Einarsson, Carl Albert Anderson og Ebbe Groes.
Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, heilsar Carj Aibert Andersen við komu
hans til Reykjavíkur í fyrradag.
Síld austur af
Glettinganesi
Löndun langt komiÖ á austurhöfnum
Síldin er nú horfin frá
Langanesi, og í fyrrinótt og
gær var helzt veiði austur af
Glettinganesi. Fengu nokkur
skip ágæt köst þar. Þá hefur
síldar orðið vart út af Sléttu,
á Skagagrunni og við Gríms-
ey.
Siðasta sólarhring lönduöu
22 skip hjá SR á Sigluffrði
9200 málum, en 3‘ skip hjá
Rauðku 1800 málum. Afla-
hæst voru Valafell SH, 714;
Fagriklettur Hf, 654; Hólma
nes SH, 600; Arnþór RE, 624;
Páll Pálsson ís, 642 og Draupn
ir ís, 628. — Sildarleitarflug
vélin sá um hádegisbil í gær
torfu vaða á Skagagrunni, en
engin skip voru þar og ekki
vitað hvort þar var síld eða
ufsi. Þá hefur lóðast allmikið
Framhald á 3. síðu.
Selflutt til
Kópaskers
f gær var mikið annríki lijá
Flugfélagi íslands og fóru til
dæmis 120 manns til Kópa-
skers, enda liggur mörgum mik-
ið á að komast til Raufarhafn-
ar í síldarvinnu. Þrjár Douglas
vélar flugu beint til Kópaskers.
, gær fullar af fólki, og auk
þess fór Skymaster eina ferð
til Akureyrar. Sú flugvél getur
ekki lent á Kópaskeri, og voru
farþegar því selfluttir frá Akur-
eyri með Douglasvélum_Stór
hópur manna mun þegar hafa
pantað far til Kópaskers n.k.
mánudag, og virðist lítið lát á
fólksflutninunum norður.
Ekki 12 mílur við Noreg fyrr en í árslok 1961 - bls. 3