Tíminn - 01.07.1960, Page 12
12
TÍMINN, föstudagmn 1. júlí 1960.
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Drengjabúðir Höskuldar og Vil-
hjálms gáfu mjög góða raun
Héldu tvö námskeíð í Hveragerði og var full-
skipaÖ á báÖum eÖa 67 þátttakendur
Blaðamenn ræddu í gær
við þá Höskuld Karlsson, í-
þróttakennara í Keflavík, og
Vilhjálm Einarsson, hinn
kunna íþróttamann, og var til-
efnið það, að þeir stóðu fyrir
Drengjabúðum í Hveragerði.
Héldu þeir tvö námskeið nú í
þessum mánuði, og var full-
skipað á báðum. Síðara nám-
skeiðinu lauk nú fyrir þrem-
ur dögum.
Þeir Höskuldur og Vil-
hjálmur sögðu, að Drengja-
búðírnar hefðu gefið mjög
góða raun, enda Hveragerði
ednn heppilegsusti staöur á
landihu, bæði hvað íþrótta-
aðstöðu og náttúrufegurð
snertir, til að halda
slik námskeið. 67 drengir
víðs vegar að af landinu
sóttu námskeiðin, sem stóðu
í ÍQ' 'cíaga hvort. Verði 'vár
mjög í hóf stillt, svo telja
má næsta ótrúlegt, en það
var 500 kr. fyrir dreng, eða
50 krónur á dag — og var þar
innifalin kennsla, matur og
húsnæði. Drengimir sváfu í
garðyrkjuskólanum og sýndi
Unnsteinn Ólafsson, skóla-
stjóri, málefninu mikla vin-
semd, en hann lánaði skól-
ann endurgjaldslaust. Einnig
fengu þátttakendur að fara
í laugina að Laugaskarði án
endurgjalds, og hjálpaði
þetta mjög við að stilla verð
inu í hóf.
11—17 ára
Fyrra námskeiðið hófst 4.
júní og stóð til 14. sama mán
! aðar og voru þátttakendur
36, þar af fjórir frá Hvera-
gerði. Síöara námskeiðið var
frá 18.—28. þessa mánaðar og
i þá voru 31 drengur. Þátttak-
1 endur voru á .aldrinum 11—17
ára, meðalaldur á hinu fyrra
14 ár, en hinu síðara 11 ár.
Þátttakendur voru frá Akur
1 eyri, Akranesi, Siglufirði, Mos
fellssveit, Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnaxfirði, Njarðvik-
um, Keflavík, Árnessýslu og
Vestmannaeyj um. — Töldu
stjórnendurnir mjög heppi-
legt að drengimir væm sem
i viðast að, þar sem þeir
kynna heimabyggð sína hver
j fyrir öðrum.
. Einn þátttökudagur
! Við skulum dvelja í hug-
anum með drengjunum einn
dag og sjá hvernig þeir eyða
honum í leik og starf. Klukk-
árt átta er farið á fætur, og
eftir 10 mín. eru allir komn-
ir út í leikfimi stutta stund,
en síðan er farið inn aftur
og búið um rúmin og tekið
til í svefnskálunum. Klukkan
níu er morgunmatur, og
eftir hann farið niður á
íþróttavöll og æfð knattmeð-
ferð, bæði knattspyrna og
handknattleikur. Klukkan 11
er haldið heim aftur og þá
er íþróttafræðsla og þá m.a.
sýndar skuggamyndir og kvik
rnvndir. Klukkan 12,30 er létt
máltíð og síðan haldið aftur
á völlinn og þá eru frjásar
íþróttir og æft til rúmlega
þrjú. Þá er frjáls stund fyrir
drenq'ina — sumir lesa, aðrir
tefla, sumir fara í fjallgöng-
ur og aðrir æfa íþróttir þar
á Islandi
Frétt í danska blaðinu Aktu-
elt síðast liðinn sunnudag: Á
ráðstefnu handknattleiksleið-
toga Noiðurlanda í gær fóru
íslendingar fram á, að fá að
halda næsta Norðurlandamót í
handknattleik kveftina, s»m á
að fara fram 1964. Hinir
dönsku, norsku og sænsku leið-
togar urðu mjög hugsandi yfir
þessu, þar sem ferðir til ís-
lands eru mjög dýrar, en þar
sem fslendingar hafa nú hvað
eftir annað fórnað fjármunum
til að taka þátt í mótum utan
fslands og þar að auki staðið
sig mjög vel á mótinu í ár,
urðu hinir dönsku, norsku og
sænsku leiðtogar einhuga um,
að tilkynna íslandi, að allt
myndi verða gert ti! að skapa
fjárhagslegan grundvöll ti! að
uppfylla óskir fslendinga um
að fá að halda Norðurlanda-
mótið.
til klukkan .fimm, en þá er
aðalmáltíð dagsins. Eftir
hana er farið í laugina, og
klukkan átta er komið heim.
Þá er kvöldhressing, og síðan
kvöldvaka. Þá eru málfundir,
þar sem drengirnir eru virkir
þátttakendur og stiga sumir
í „pontuna“, einnig kvikmynd
ir með kunnum íþróttamönn-
um, söngur og fleira. Á góð-
viðriskvöldum er farið í fjall
göngur um nágrennið.
íþróttamenn í heimsókn
Meðan námskeiðin stóðu
Þátttakendor að leik. HveragerSi í baksýn.
Þátttakendur á öðro námskeiðino ásamt Höskuldi Karlssyni, íþróttakennara, til vinstri.
yfir komu íþróttamenn og
flokkar í heimsókn. Rússneski
knattspyrnuflokkurinn Dyna
mo kom þama og horfðu liðs
menn á drengina leika knatt
spyrnu. Guðmundur Gíslason
og Ágústa Þorsteinsdóttir
æfðu sund í Hveragerði á
þessum tíma og fannst drengj
unum mjög til þeirra koma,
og hinn kunni frjálsíþrótba-
maður Björgvin Hólm, dvaldi
um vikutíma í Drengjabúö-
unum við þjálfun, og á kvöld
vökum var hann mjög vin-
sæll, er hann dró gítarinn
sinn fram. ? ;
.1 ;. ’v ", ‘ , ■' ,
Aðeins einn diskur brotnaði
Matráðskona á staðnum
var Ólafía Auðunsdóttir úr
Reykjavík og sögðu Höskuld
ur og Yilhjálmur að þeir ættu
henni mikið að þakka í sam
bandi við námskeiðin — enda
fylgdist hún með öllu af lífi
og sál. Hún var afar vinsæl
meðal drengjanna, en sá
háttur var hafður á, að þátt-
takendum var skipt í flokka
— þrír í hverjum — og að-
stoðuðu þeir ráðskonuna á
hverjum degi, ræstu húsið,
báru á borð og vöskuðu upp.
Sumir höfðu reyndar aldrei
gert þetta áður — en vel var
unnið, því aðeins einn diskur
brotnaði á báðum námskeið-
unum. En með því að dreng-
imir voru svo virkir þátttak
endur í starfinu, þurfti ekki
að kaupa fleiri Starfskrafta,
og það hafði sitt að segja.
Höskuldur og \ilhjálmur
t-öldu, að þessi námskeið
hefðu sannað að þau œttu
fullan} rétt á sér — og þeir
hefðu hug á þvi að reyna
að efna til Drengjabúða
einnig nœsta sumar, og þá
jafnvel á breiðari grund-
velli. Þessi tvö voru aðeins
tilraun, sem tókst vel, enda
hefur Hveragerði einstaka
möguleika upp á að bjóða.
Fleiri geta námskeiðin ekki
orðið í sumar vegna anna
Munið að
synda
200 metrana
þeirra félaga — en sem sagt
nœsta sumar hfa þeir full-
an hug að reyna að nýju —
ofif þá mun ekki standa á
þátttakendum, þ\i ánœgðir
foreldrar munu áreiðanlega
senda drengina. sína. aftur,
og hvetja aðra til þess.
—hsim.
Tvö heims-
met í sundi
Á sundmóti í Los Angeles á
laugardaginn setti Len Burke
nýtt heimsmet í 200 m bringu-
sundi, synti á 2:36,3 mín. og
bætti mef Japanans S. Tanak-
as frá 1959. Það var 2:37,1
mín. Á sama móti setti George
Harrison einnig nýtt heimsmet,
þegar hann synti 400 m fjór-
sund — það er baksund, bringu
sund, skriðsund og flugsund —
Chris von Saltza
á 5:07,8 mín. Eldra metið átti
Gary Hendrich 5:13.3 mín. sett
í fyrra.
Mesta athygli á mótinu vakti
þó skriðsund Chris von Saltza,
en þessi 16 ára stúlka setti
nýtt, bandarískt met í 100 m
skriðsundi, synti á 1:01,8 mín.
— en cldra metið var 1:02,0
mín. Tvö önnur bandarísk ■
met voru sett á mótinu. Joe I
Alkirk synti 100 m skriðsund 1
á 55.1 sek. — og fyrr í riðli
hafði Lancc Larson synt á 55.5
sek., en það er hvort tveggja
betra en eldra metið 55.7 sek.
— Heimsmet Ástralíumannsins
Hendrichs er 54.7 sek. — f 200
m bringusundi kvenna synti
Anne Warner á 2:51.4 mín. —
en eldra met hennar var 2:56.4
mín. svo framförin er stórkost-
leg. Mótíð fór fram í Ólympíu-
sundlauginni í borginni.