Tíminn - 07.07.1960, Síða 16

Tíminn - 07.07.1960, Síða 16
P*3S■ Fimmtndaginn 7. júlí 1960. 148. Wa». 2 menn drukknuðu við iandsteina eftir flugslys Stela líka vi5 Færeyjar Ein-kaskcyti frá Kaupmannahöfn. Tilkynnt er frá Þórshöfn í Fær- eyjum, að korvettan Ballona, sem nú heldur uppi landhelgisgæzlu við Færeyjar, hafi í gær haft hend ur í hári tveggja brezkra togara, sem ákærðir eru fyri. veiðar innan 6 sjómílna markanna við eyjarnar. Sá iþriðji slapp undan varðskipinu. Skipstjórar beggja togaranna þver neita að hafa verið innan 6 mílna markanna. Sem kunnugt er gerðu stjórnir Danmerkur og Bretlands með sér samning í fyrra, þar sem Bretar viðurkenna 6 mílna fisk- veiðmörk. — Aðils. Bevan lézt í Einn skeleggasti baráttumaður verkalýSs» hreyfingarinnar í ntannsaldur NTB—London, 6. júlí. — Aneurin Bevan lézt í dag. 62 éra aS aldri. í meira en manns aldur hefur hann veriS einn skeleggastí baráttumaður verkalýðshreyfingarinnar, ekki aðeins í Bretlandi held- ur um allan heim. Lengst af stjórnmálaferils síns var þessi vígreifi maður í andstöðu við sinn eigin flokk, en nú sein- ustu tvö árin tókst vopnahlé með honum og Gaitskell og var á allra vitorði, að Bevan átti að verða utanríkisráð- herra í næstu stjórn Verka- mannaflokksins. Strax eftir lát hans fóru að ber ast ummæli víða að úr heimi, þar sem lokið er lofsorði á Bevan og baráttu hans. Sjúkur síðan um jól Efcki hefur verið gefið upp hvert var banamein Bevans. Rétt fyrir jól gekk hann undir mikinn maga- uppskurð og var hætt kominn. Síð- an var hann talinn á batavegi, þótt hægt færi og fór heim fyrir nokkr- um mánuðum. Fyrir viku versnaði honum skyndilega og hefur síðustu daga v-erið meðvitundarlaus, undir sterkum áhrifum kvalastillandi lyfja. í opinberum tilkynningum Verkamannaflokksins hefur alltaf verið neitað að hann gengi með krahhamein, en í fréttum NTB fréttastofunnar er látið að því liggja, að gangur sjúkdómsins bendi til þess að svo hafi þó verið. Námumaður Bevan var fæddur í Wales 1897, sonur námuverkamanns og fór sjálfur í námurnar 13 ára gamall. Hann sýndi þegar kornungur mik inn pólitískan áhuga og var valinn í trúnaðarstöðu í félagi námu manna strax 1916. Hann neitaði að ganga í herinn í fyrri heims styrjöldinni af siðferðislegum ástæðum. Eftir .styrjöldina aflaði hann sér nokkurrar menntunar í skóla, sem verkamenn höfðu stofn að. Hann hóf skipulega tilraun til að fylkja námamönnum í órofa fylkingu gegn atvinr«~°kendum og afleiðingin varð sú, að hann fékk hvergi vinnu í kolanámum. Hann gekk því óskiptur inn í hina pólitísku baráttu og bakhjarl hans var verkalýðshreyfing'; % þá eink um samtök námumanna. P.ekinn úr flokknum 1925 er hann orðinn ritari sam bands námumanna og 1929 er thann kjörinn á þing fyrir kjör (Framh á 15. síðu.) Myndin sýnir hlufa af flaki flug- vélarinnar KZ-7, sem féll í sjóinn viS Skagen síðdegis á sunnudag og með henni fórust flugmaður- inn og einn farþegi. Froskmaður- inn E. Christiansen er hér að rannsaka flakið. Þetta er síðasta myndin, sem tekin var af Bevan ásamt konu hans, Jennie Lee. Léttskýjað Loksins kom blessuð sólin. í dag á að verða svipað veður og í gær. Norðan- eða norðaustan gola og léttskýjað. Það var komið mál til að bændur sunnan lands og vestan fengju þurrkinn. S.l. sunnudag varð hörmu- iegt flugslys við Skagens Gren é lótlandi. Þarna er baðstaður og lítil flugvél hefur lengi '■"-i-ið í förum með gesti í stutt um ferðum yfir ströndina. I ’'«íta sinn voru með flua- manninum eldri maður og tveir synir hans. Flugmaður- inn og gamli maðurinn fórst, en bræðurnir björguðust. Slysið var ekki sízt átakan legt vegna þess, að flugvélin steyptist í sjóinn rétt viS ströndina og stóð stélið upp úr. Allir mennirnir virðast hafa komizt lítt eða ekki meiddir úr vélinni, en straum ur er þarna mjög mikill og svo fór aö tveir drukknuðu fyrir augum fjölda manna, sem ekki fengu að gert. Stóðu hjálparvana Menn urðu nær samstundis varir við að vélin féll í hafið og björgunarmenn komu á vettvang, þar á meðal frosk- maður. Fyrst tókst að bjarga Í5 ára syni Rannes fulltrúa, sem var farþegi með vélinni. Hann náði að synda upp undir land og þar var honum bjargað, en hann var alveg að gefast upp. t»að eina, sem hann sagði, var: Pabbi og stóri bróð'ir eru þarna úti. Samtímis sást til flugmanns ins, sem synti frá flugvél- inni. Hann virtist mjög þrek aður, menn sáu hvernig hon um förlaðist sundið smátt og smátt og loks hvarf hann í straumröstina. Biarga föður sínum Rannes fulltrúi og sonur hans 22 ára þotuflugmaður, höfðu haldið sér í stélig á flug vélinni til þessa. Nú slepptu þeir takinu og sonurinn tók að synda baksund með föður sinn, sem hann reyndi að halda ofan við vatnsskorp- una. Froskmaðurinn reyndi hvað eftir annað að komast út til þeirra en varð frá að hverfa vegna straums. Bar- (Framhald a 15 síöui Hermaðurinn segir það hafa verið vilja hennar Rannsóknin á árásinni á Keflavíkurflugvelli hélt áfram s gær. Hermennirnir tveir, sem ákærðir eru voru' báðir yfirheyrðir og viðurkenndi annar þeirra að hann hefði haft mök við stúlkuna, en heldur því fram að þetta hafi gerzt með vilja stúlkunnar. Þá upplýstist nokkuð um önnur málsatvik. Stúlkan mun um kvöld- ið hafa verið í svonefndum E.M. klúbb þar á vellinum, en sá klúbb- ur er til handa óbreyttum her- mönnum þar. Mun stúlkan hafa látið til leiðast að fara í nætur-1 en hún vildi ekki þýðast hann og samkvæmi með öðrum manninum fór út. og farið með honum heim í ,,blokk“ Þegar út var komið, hitti hún þar sem hann býr. Þegar inn var annan hermann og lét til leiðast komið leitaði maðurinn á stúlkuna I (Framhald á 15 síðu i AÐ TJALDABAKI Chen Yun aðstoðarforsætisráðherra í Kína er sagður vera í stofufangelsi í Shanghai að því er fiugufregnir herma. Hann er æðsti ráðgjafi Pekingstjórnarinnar í efnahagsmáium, en gagnrýndi kommúnu-hugmynd Maos. Eigi að halda yfir honum réttarhöld og fleiri gagnrýnendum stjórnarinnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.