Tíminn - 17.09.1960, Qupperneq 2
2
T Í M I‘N N, Iaugardaginn 17. sepíember 1960.;
Lumumba fyrir-
fannst hvergi
Síðdegis í gærdag kom Ör-
yggisráð SÞ saman til fram-
haldsfunder um ástandið í
Kongó. Fyrir ráðinu liggja nú
tvær tillögur. Önnur þeirra er
frá Banda? íkjastjórn þar sem
lýst er trausti á Hammar-
skjöld aðalframkvæmdastjóra
SÞ og aSgerðir hans í Kongó
en hin tillagan er borin fram
af sovézka fulltrúanum og er
herstjórn SÞ í Kongó þar vítt
harðlega.
Á fundi ráðsins í gær las Hamm
arskjöld upp tvö mótmælaskeyti,
sem honuro höfðu borizt frá
Kongó. Annað þeirra er frá Kasa-
vubu forsaía, þar sem hann er
reiður mjög yfir bví að hersveitir
SÞ hafi haldið hlífiskildi vfir Lum
umba forsætisráðherra. Hitt skeyt
ið er frá .Tshombe fylkisstjóra í
Batanga, þai sem hann mótmælir
afskiptum herliðs SÞ af málefnum
fyikisins og segir að SÞ muni
verða sóttar til saka og krafnar
um skaðabætur vegna lokunar flug
valla í Katanga.
Afskiptum mótmælt
Er Hammarskjöld hafði lesið
upp þessi skeyti spurði hann full-
trúa ráðsins, hvort þeim fyndist
st þeim sem hann hefði dregið
taum andstæðlnga Lumumba í
Kongó.
Fulltrúar Ceylon og Túnis í ráð-
inu lýstu yfir trausti sínu á Hamm
arskjöld og aðalfulltrúi Sovétríkj-
anna var hógværari í ásökuiium
sj'num en áður. Svo virðist sem
Cryggisráðið muni ná samkomu-
150. sýning á
Delerium Bubonis
Klukkan 11,30 á sunnudags-
kvöld hefur Leikfélag Reykjavík-
ur 150 sýningu sína á leiknum
Delerium Bubonis, og verður hún
í Austurbæjarbíói til ágóða fyrir
leikhúsbyggingu félagsins. Það
mun algert einsdæmi, að leikrit
hafi ver’ið sýnt 150 sinnum hér á
landi í svo að segja einni lotu.
lagi um það atriði, að meðlima-
ríki SÞ skuti ekki veita hernaðar-
aðstoð í Kongó nema með sam-
þykki SÞ.
l-umumba saknaS
Frá Leopoldville eru heldur
óljósar fregnir enda nú ekki ýkja-
gott að átta sig á gangi málanna
þar. I gær hafði verið boðað til
þingfundar en Maboko herforingi,
sem nú teiur sig ráða í landinu
kom í veg iyrir með hervaldi að
þingmenn gætu sótt fundinn. Þá
voru einmg sendir hermenn til
bækistöðva Lumumba og hand-
tóku þeir þar a. m. k. tuttugu sam
slarfsmenn hans. Annars hefur
ekkert heyrzt frá Lumumba frá
því 1 fyrradag, er trylltur múgur
réðst að honum og hugðist taka
h.mn af lífi án dóms og laga. Uppi
eru nú raddir um það, að Lum-
umba búi sig undir nýja valda-
töku í landinu.
Kasavubu forseti hefur lýst
I.umumba svikara og landráða-
mann og mótmælt harðlega við
SÞ að þær skyldu koma í veg fyrir
að Lumum’oa væri tekinn höndum
eg látinn svara til saka. Svo virð-
ist sem þelr Kasavubu og Maboko
séu á einu bandi og ekki að átta
sig á, hvorra skipunum herinn
hlýðir.
GagnfrætSaskólakeTtnarar
(Framh. af 1. síðu).
Fundurinn vekur athygli á
þeirri staðreynd, að með þess-
ari veitingv eru þverbrotnar
gildandi reglur um veitingu
skólastjóra og kennaracmbætta
bvo freklega, að einsdæmi mun
vera, þar sem sá umsækjandinn,
sem ekkcrt atkvæði fær í fræðslu
ráði, er settur skólastjóri, enn
fremur bendir fundurinn á, að
lítið tillit er tekið til menntunar
nmsækjenda, þar sem háskóla-
próf er trundsað, og ekki heldur
til ágæts árangurs í starfi né
hins langa starfsferils við skól-
ann.
Á grundvelli þessara stað-
reynda mótmælir fundurinn
’þessu einstæða gerræði mennta-
málaráðherra, þessari fáheyrðu
misbeitingu valds, svo og niður-
stöðunum í umsögn fræðslumála
Nýja kirkjan í Dalvík
Þing framhaldsskóla-
kennara hófst í gær
Áttunda þing Landssam-
bands framhaldsskólakennara
var sett í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar í gær. Þingið
sitja um 50 fulltrúar auk
gesta. Þingið heldur áfram í
stjóra, þar sem gengið er fram
hjá áðurnefndum staðreyndum."
Ingólfur A. Þorkelsson sat
ekki fundinn.
(Frá Féiagi gagnfræðaskóla-
kennara í Kópavogi.)
áag en gert er ráð fyrir að
því ljúki á sunnudaginn.
Forseti þingslns var kjörinn
Kristján Benediktsson, en ritarar
Ásmundur Kristjánsson og Gutt-
ormur Sigurbjarnarson. Helgi Þorí
láksson, forseti sambandsins, setti
þingið.
Aðalmál þingsins eru kjaramál
framhaldsskólakennara, en þau
eru nú orðin harla léleg, svo að
horfir til vandræða um að fá kenn-
ara til starfa, þótt ástandið sé ef
til vill ekki eins illt og við barna-
skóla landsins.
Togaramálií
(Framh. af 1. síðu).
kc. á þann veg að hann gerði það
af og til.
Skipstjóri neitar
Percy Allen Bedfor'd, skipstjóri,
kom aftur fyrir réttinn. Aðspurður
endurtók hann að hann hefði
aldrei veitt innan tólf, fjögurra
eða þriggja mílna markanna nema
þegar hann var neyddur til þess
undir herskipavernd. Þá sagðist
hann aldrei hafa veitt innan 12
mílna markanna eftir að brezkir
útgerðarmenn gáfu skipun um að
ekki yrði veitt fyrir innan land-
helgina.
Þá var athugað samkvæmt fyrir-
mælum bæjarfógeta um veiðarfæri
togarans og reyndust þau ný og
möskvastærð í lagi. Skipstjóra var
skýrt frá niðurstöðum þessara at-
hugana og sagðist hann þá hafa
notað a. m. k. þrenn veiðarfæri
síðan 7. júlí.
Dómur á morgun
Bæjarfógeti kvað vitnaleiðslu
lokið í málinu og mundi hann
senda úrdrátt um það til dóms-
málaráðuneytisins um kvöldið og
vænti hann þess að fá umsögn þess
fyrir hádegi í dag. —H.G. —h
Þorleifur Thorla-
cius deildarstjóri
utanríkisráðun.
Nýlega hefur Þorleifur Thorla-
cius tekið við starfi deildarstjóra
í utanríkisráðuneytinu. Þorleifur
hefur undanfarin ár starfað sem
sendiráðunautur í Oslo við sendi-
ráð íslands þar.
Bílaverð
lækkar
Viðskiptamálaráðuneytið hefur
ákveðið að lækka tolla á smábil-
um sem hingað eni fluttir inn.
Jafnframt hafa Rússar og Tókkar
ákveðið að lækka fob. verð á smá-
bílum þeim sem þeir selja hingað
til lands og verður því verðlækk-
unin mest á þeim bílum. Þannig
lækka Moskvitsjbílar úr 131 þús.
(Framh. á bls. 15.)
Héraðsmót Framsóknarmanna
í Rangárvallasýslu
Héraðshátíð Framsóknarmanna í Rangárvalíasýslu verð-
ur haldið í hinu nýja og glæsileg? félagsheimili Hvoli,
Hvolsvelli, í kvöld og hefst kl. 9 síðdegis.
Stutt ávörp flytja Björn Fr. Björnsson, alþm., Helgi
Bergs, verkfr. og Jón Skaftason, aiþm.
Þuríður Pálsdóttir óperusöngkona syngur með undirleik
Fritz Weisshappels. — Hjálmar Gíslason, gamanleikari
skemmtir. — Echo-kvintettinn leikur og syngur.
v •m
UTAif UR UEIMI
Vilja stríía
Vesturþýzk stjórnarvöld hafa
birt tilkynningu þess efnis, að
liðsforingi úr her Austur-Þýzka-
lands, sem flúið hefur til Vestur-
Þýzkalands hafi skýrt frá því, að
Austur-Þjóðverjar undirbúi árás á
Vestur-Þýzkaland.
Jafnframt segir i tilkynning-
unni, að liðsforingi þessi hafi haft
meðferðis ýms sönnunargögn máli
sínu til stuðnimgs m. a. dreifibréf,
sem dreifa á meðal íbúa Vestur-
Þýzkalands eftir að til átaka er
komið, þar sem allir eru hvattir til
að standa einhuga með Austur-
Þjóðverjum.
íþróttaroen’n heiftra'ðir
Fr'á því hefur verið skýrt í
Moskva, að 317 íþróttamenn og
konur hafi verið sæmd heiðurs-
merkjum vegna frammistöðu sinn-
ar á síðustu Olympíuleikum bæði í
Róm og í Squaw Valley en þar
fóru vetrarleikarnir fram.
Leninorðuna hlutu m. a. Tam-
ara Press en hún sigraði í kúlu-
varpi og kringlukasti kvenna í
Róm svo og Lakadse, sem vann
óvæntan sigur í hástökkskeppn-
inni í Róm.
Belgakóngur brátt
í það heilaga
Baldvin Belgíukonungur hefur
opinberað trúlofun sina með yng-
ismær einni frá Spáni og mun
brúðkaup þeirra að öllum líkind-
um verða gert í Brussel í næsta
mánuði. Hin tilvonandi drottning
Belga rekur ætt sina til konunga
í héraðinu Aragon á Spáni.
Fengu 2 ár
Fjórir brezkir sjóliðar, sem allir
eru 18 ára að aldri hafa verið
dæmdir í 2 ára fangelsi hver
vegna skemmdarverka, er þeir
frömdu á brezka tundurspillinum
Dainty í síðasta mánuði.
Dainty átti sem kunnugt er að
fara á íslandsmið til verndar
brezkum veiðiþjófum, er í ljós
kom, að skemmdarverk höfðu ver-
ið unnin í vélarrúmi skipsins og
seinkaði það brottför skipsins um
nokkra daga. Skemmdarverkin
munu þessir ungu menn hafa unn-
ið vegna löngunax til þess að
dvelja fremur meðal sinna heitt-
elskuðu heima en við úfinn sjó á
íslandsmiðum. Piltarnir voru allir
reknir úr flota Hennar hátignar.
Mótmæhr brottvísun
'uskups
Erkibiskup kaþólsku kirkjunnar
í Suður-Afiiku hefur fordæmt
harðlega þá áþvöiðun Suður-Afr-
íkustjórnar að vísa Ambros Reels
biskupi úr íandi en biskupinn
hefur gagnrýnt harðiega stefnu
sijórnar Suður-Afriku í kynþátta-
Ti&lunum.
Erkibiskup kaþólskra telur þetta
pólitíska ofsókn sem beri að for-
dæma. Gagnrýni eigi að svara með
rökum en ekki með valdi.
Framséknarmeim í Keflavík
Fundur verður haldinn í Ungmennafélagshúsinu í
Keflavik, uppi, mánudaginn 19. þ.m. kl. 9 e.h. Fundar-
efni: Kosning fulltrúa á kjördæmasambandsþing. Menn
eru beðnir að mæta vel og stundvíslega.
Framsóknarfélögin
Framsóknarfélag Kjósarsýslu
Framsóknarfélag Kjósarsýslu boðar til almenns félags-
fundar í Hlégarði annað kvöld, sunnudag, kl. 9. Aðal-
efni fundarins er að kjósa fulltrúa á kjördæmaþing
Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi. Einnig
verður ræt tum önnur mál eftir þvi sem fram koma.
Stjórnin
F.U.F. í Kópavogi
Fundur verður n. k fimmtudag 22. sept. 1960 i
Edduhúsinu kl. 8,30 e.h.
Kosning fulltrúa á kjördæmaþing Reykjaness-
kjördæmis,
Stjórnin