Tíminn - 14.10.1960, Blaðsíða 8

Tíminn - 14.10.1960, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, föstudaginn 14. október 1960. Höfundur böka um háttvísi, látin Nýlega er látin i Bandaríkj- unum 86 ára gömul kona, Em- ily Post a8 nafni Hún skap- aði sér algera sérstöðu um Emily Post marga áratugi vegna þess mikla álits, sem bækur henn- ar, blaðagreinar og síðar út- varpsþættir um háttvísi nutu. Var nafn hennra eins konar dularfullur leiðarvísir um hvað þætti við eiga hverju sinni í framkomu manna. Emely Post gaf út fyrstu bók sínaum háttvísi árið 1922 og þótti nýmæli, að hún skrifaði þar um æskilega framkomu fólks við venju leg skilyrði daglegs lífs, ekki að- eins í samkvæmum og á tyllidög um. Góðir mannasiðir, sagði hún, byggjast á því að særa ekki aðra og ergja að óþörfu og vera blátt áfram og tilgerðarlaus. Háttvísi er undirstaða auðveldrar sambúðar’ allra manna. f áratugi svaraði Emely Post fyrirspurnum um háttvísi í 200 blöðum og tímaritum. Þar að auki ritaði hún skáldsögur, ferðasögur' og matreiðslubók. Eitt af síðustu viðfangsefnum hennar var að brýna háttvísi fyrir bílstjórum. Svartur frumbyggi hlýtur listverðlaun I Ástraliu var fyrir nokkru efnt til samkeppn: um mynzt- urteikningar handa vefnaðar- iðnaöinum. Sigurvegari varð einn af hinum svörtu frum- byggjum, Mawalan a3 nafni. maður um fimmtugt, bú- settur á trúboðsstöð fyrir austan Darwin Alls voru þátttakendur í keppninni um 500. Villtir fílar í, girðingu. Fílasmölun í síðasta sinn í desember næst komandi verður í síSasta sinn smalað villfum fílum í bambusskóg- unum í Mysore í Indlandi. Slík smölun hefur annars farið fram um það bil tíunda hvert ár, en nú á að byggja stórt orkuver í á, sem rennur þarna um, svo að stórt landssvæði mun hverfa undir vatn. Indversk blöð segja, að marga muni fýsa að horfa á þessa smölun, sem fer fram meg þeim hætti, ,að mörgum hundruðum manna, sem bú settir eru á þessu landssvæði, er stefnt saman, þar á meðal sporrekjendum, sem nánast eru enn villimenn, en eru þaulkunnugir lifnaðarhátcum fílanna. Sporrekjendurnir leita uppi fílana, gera síðan smölunum aðvart, þeir skipa sér í stóran hring umhverfis hjörðina og hefja skarkala mikinn, sem fælir fílana * hnapp. Dag og nótt halda smalamir vörg um hið á- kveðna svæði, kynda bál að næturlagi og sjá til þess að fílamir komizt hvergi bartu Yfirmenn veiðanna koma ríð Fílar reknir út i fliót. andi á tömdum fílum og smátt og smátt er' hjörðinni þröngvaö að vaði á ánni Kapini. Þar sitja áhorfendur á örugg/im stöðum handan ár innar og skemmta sér við að sjá hjörðina hrakta út í ána, en upp úr henni komast þeir hvergi nema inn í sterka girð ingu, sem lokast á eftir þeim. Næstu nætur eru fílamir lokkaðir með ilmandi grasi og sykurreir í smærri girðingar, sex eða átta í senn og að morgni fara fílatamninga- menn ríðandi á fílum inn i girðingarnar, hrekja einn fíl í senn út í horn og króa þá af þar til búið er að koma sterkum hamfjötrum um háls þeirra, búk og fætur. Þannig fjötraðir eru viltu filarnir reknir á tamningasvæðjð og þaðan fara þeir ekki fyrr en þeir hafa sætf sig við að lúta boði og banni mannanna, þessarar smáveru, sem er eins og fugl á baki þeirra. Fílasmölunin tekur að jafn aði fjóra til fimm sólarhringa. Kiæði með mynstri Mawien. Mawalan heldur enn þeim sið forfeðra sinna að „fara á ról“ svo sem tvo mánuði á ári og sleppir þá algerlega þeim fáu venjum hvítra manna, sem hann hefur til- einkað sér og lifir af lands- ins gæðum eins og forfeður J hans hafa gert frá alda öðli.! Kunnur ástralskur rithöf- J undur, Alan Marshall segir j um Mawlan: „Hann líkist um J flest frumstæðum villi-: manni og er tvímælalaust bezti frumstæði listmálarinn í norðurhluta landsins. Með aðstoð túlks sagði hann mér, að hann hefði málað margar myndir á hellisveggi í liéraði sínu. Seinna sýndi hann mér hvernig hinir frumstæðu lista menn fara að því að mála á trjábörk Hann fletti stórri barkarflís af tré og hélt henni yfir eldi á meðan hún var aö rétta sig. Svo lagði hann! fuglana í héraði Mawlans. — hana á jörðina og fergði með Eins og venjulega notaöi steinum í marga daga, þá J hann liti, sem hann vinnur var flísin flöt og hægt að sjálfur úr leir og fyrir pensil mála á hana“. j hafði hann trjábörk og mjóa .... . ! grein, sem hann batt á manns Mynstuiteiknmgm sem hár Einnig notaði hann krit verðlaunin fékk táknar viili arliti, sem forstjóri listasafns ins hafði látið útbýta meðal : listamannanna. Tuttugu frum byggjar tóku þátt í sam- j keppninni, en áhugi hefur ! farið vaxandi í Ástralíu fyrir j list frumbyggjanna og ýms mynstur, sem byggð eru á myndum þeirra eru afar vin sæl. Mawlan Tvær ár brúa^ar Hvammssveit, 11. okt. — Tvær ár hafa verið t/úaðar í Hvammssveit nú í haust, Hvammsá og Hafnará, og er vinnu að Ijúka við seinni brúna þessa dagana. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.