Tíminn - 27.10.1960, Blaðsíða 16

Tíminn - 27.10.1960, Blaðsíða 16
Los Paraguayos koma í Framsdknarhúsið « VélsmiSian HÉÐINN. Tékknesk vélsýn- ing opnuð í gær Vélsmiíjan Hé'ðinn gengst fyrir umfangsmikilli sýningu tékkneskra járnsmíða- og iínatfarvéla I gær opnaði VélsmiSjan Héðinn sýningu á tékkneskum járnsmíða- og iðnaðarvélum í húsakynnum sínum að Selja- vegi 2. Sýning }>essi er hin f jöl- breyttasta og gefur gott yfirlit um framleiðslu Tékka á slik- um vélum hin síðari árin. Tékkneskii véifræðingar og arkitektar settu sýninguna upp. Ein borvélanna á sýningunni. (Franihald á 2. síðu) Við opnun sýningarinnar í gær sagði Sveinn Guðmundsson, að vélsmiðjan Héðinn hefði tekið að sér umboð fyrir tékkneskar járn- smíðavélar og aðrar iðnvélar frá því landi fyrir fjórum árum. Vél- smiðjan hefði þekkt til framleiðslu Tékka áður, þar sem árin 1945—46 hefðu tvær stærstu vélar Héðins verið fluttar inn þaðan. Þeir fengu No belsverðlaunin Svo sem kunnugt er af frétt- um var tilkynnt í Stokkhólmi s. I. fimmtudag. að ástralski prófessorinn Sir Frank Mc Farlane Burnet og brezki prófessorírsn Pefer Bryan Madawar hefðu hiotið Nobels- verðlaunin í lækris- og líteðl- ísfræði að þessu sinni í sam- bandi við rannsóknir sinar á ónæmi. Verðlaunin nema 225.986 sænskum krónum og er þeim skipt milli vísinda- mannanna tveggja. Mikið hafði verið um það rætt, hverjir hljóta myhdu verðlaunin að þessu sinni. Nefndir höfðu ver- ið m. a. Jonas Salk, sem fann upp bóluefnið gegn mænusótt og Wolf- gang R. Bergmann frá Kiel, sem gert hefur mikilvægar uppgötvanir ' sambandi við hormónaframleiðslu heiladinguKins. Sir Burnet og Madawar eru ekki í þeim hópi vísindamanna, sem næstum daglega sjá nöfn sín á siöum dagblaðanna en þeir eru vel þekktir innan stéttar sinnar og njóta þar mikils álits Vettvangur þeirra hefur verið ónæmisrann- sóknir. Sir Burnet er 61 árs að aidri og er prófessor við háskól- ann í Melbourne. Maaawar er hins vegar aðeins 45 ára gamall próf- essor í liffærafræði í Lundúnum. Vísindameonirnir nafa stundað þessar rannsóknir saman um ára- fcil. Á þriðjudaginn í næstu viku i koma hingað til lands frægir | fjórmennirgar, sem nefna sig I Luis Alberto del Parana y su trio Los Paraguayes. Þetta er suðuramensk hljómsveit, sem hefur getið sér svo mikla frægð, að heimaland hennar hefur látið alla meðlimina fá diplomata vegabréf, þar sem þeir eru nefndir „músík- ambassadorar". í sumar voru þcir á hinum fræga danska skemmtistað Kyst- ens Perle, og vöktu þar óskipta athygli. íslendingur nokkur, sem sá þá og heyrði þar, ljómaði allur* í framan í gær, er hann heyrði að þeir væru væntanlegir hingað til lands, og sagðist aldrei hafa notið betri skemmtunar af þessu tagi en hjá þeim á Kystens Perle. Harpa og 3 gítarar Los Paraguayos er skipuð fjór- um mönnum, þremur gítarleikur- um og einum sem leikur á hörpu. t’tvarpið mun eiga nokkur lög leik in af Los Paraguayos á plötum, og hefur leikið þau nokkuð að undan- förnu við miklar vinsældir. Víða um heirn Luis Alberto del Parana y su tno Los Paraguayos hafa farið vítt um heim og alls staðar vakið feikna hrifningu tilheyrenda. f síðasta mánuði voru þeir í Finn- iandi og fóru þaðan til Parísar, og hinn 30. okt. munu þeir koma fram í sjónvarpi í London. Daginn eftir koma þeir hingað. Á hverju kvöldi Hér munu þeir skemmta í Stork- klúbbnum, (Framsóknarhúsinu) á hverju kvöldi í eina viku — nema á miðvikudagskvöldið. Þá munu sennilega verða haldnir konsertar r.ieð Los Paraguayos en það hefur ekki verið skipulagt til fulls. Los Faraguayos munu koma fram tvisvar á kvöldi, en fyiir, í milli cg á eftir munu innlendir skemmti kraftar koma ,fram Aðgangur verður seldur, 45—50 krónur fyrir manninn, en ef gestir vilja fá sér mat verður aðgangseyririnn dreg- irn frá matarverðinu Aldrei dauð hlé Storkklúbburinn hefur nú starf- að í Framsóknarhúsinu í rúmar þrjár vikur, og hefur starfsemin gengið vel. Búdó sextett hefur leik ið fyrir dansi, og í hléum hafa ýinsir þekktir íslenzkir skemmti- kraftar komið fram. Storkklúbbur- inn mun kappkosta að hafa ein- urgis góða skemmtikrafta, bæði mnlenda og erlenda. Los Paraguayos eru hinir fyrstu erlendu, sem hingað koma en í fcbrúar koma þrjár indverskar dansmeyjar og sýna austurlenzkan nijaðmadans (ekki ncktardans). Munu þær hefja danssýningar í vinstúku hússins, sem þá verður fullgerð eftir gagngerðar breyt- ir.gar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.