Tíminn - 18.12.1960, Page 3
T í MI N N, sunnudaginn 18. desember 1960.
3
T alstöðvar í
100 leigubíla
— Til hagræ'ðis fyrir almenning og bílstjóra
í fyrradag boðuðu sam-
vinnufélagið Hreyfill og bif-
reiðasföðin Bæjarleiðir blaða-
menn á sinn fund, vegna þess
að þann hinn sama dag tóku
þessar tvær bílastöðvar aukna
tækni í þjónustu sína: tal-
stöðvar í bílana.
Guðmundur Karlsson
— reynir talstöðina fyrir hönd
blaðamanna —
Enn sem komið er eru tæki
þessi þó ekki komin í alla
bíla á þesum stöðvum, heldur
í 86 bíla af Hreyfli og 24 af
Bæjarleiðum. Tækin eru frá
danska fyrirtækinu STORNO,
sem er dótturfyrirtæki Det
store nordiske Telegrafsel-
skab.
Upp í Bifröst
Tæki þessi eru all langdræg,
og má geta þess, að skýrt hef-
ur heyrzt milli bíla, þótt annar
væri staddur upp í Bifröst eða
Kerlingaskarði en hinn í bæn
um. — Hreyfill hefur þrjár að
alstöðvar, en Bæjarleiðir tvær
og eru þær staðsettar á hæstu
stöðum bæjarins.
1953
Framkvæmdastjóri Sam-
vinnufélagsins Hreyfils rakti
gang þesara mála fyrir blaða
menn f fyrradag. — Árið 1953
voru tveir forráðamenn Hreyf
ils í Kaupmannahöfn til að
kynna sér rekstur bílstöðva.
Þá töluðu þeir við forráða-
menn Taxa í Kaupmanna-
höfn, en þar ríkti þá ekki á-
hugi fyrir talstöðvum.
1958
Síðan lá talstöðvamálið
niðri til 1958. Þá fékk S.f.
Hreyfill væna lóð milli Miklu
brautar og Fellsmúla við
Grensásveg til bygginga fyrir
starfsemi sína, og þá fór Stef
án við þriðja mann til norður
landa til þes að kynnast
rekstri bílastöðva þar, til þess
að geta skipulagt starfsemina
hér sem bezt. Þá voru allar
helztu stöðvar á Norðurlönd-
um komnar með talstöðvar.
Það varð úr, að Stefán og fé-
lagar hans leituðu eftir tilboð
um tveggja fyrirtækja, og
reyndist tilboð Storno mun
hagstæðara.
Umboð fyrir Storno
Eftir heimkomuna hafði
Stefán bréfaviðskipti við
Stornó, og kom þar að hann
fékk ákveðið tilboð til að
leggja fram sem röksemd
handa innflutningsnefnd.
Hún veitti leyfið 25. apríl sl.,
og Hreyfill fékk bankaábyrgð
28. apríl, Bæjarleiðir 29. apr.
og hinn 30. apríl fóru þeir
Stefán og Þorkell Þorkelsson
framkv.stjóri Bæjarleiða ut-
an til þess að ganga frá samn
ingum. — Geta má þess, að
Bæjarleiðir hafa fengið tal-
stöðina fyrir milligöngu Hreyf
ils, sem hefur umboð hérlend
is fyrir Sorno.
Bpgeskov
Tækin komu hingað til
lands fyrir nokkrum mánuð
um, og hefur radioverkstæði
Landsímans unnið að upp-
setningu þeirra síðan. Sérfr.
frá Storno, Bögeskov að nafni
hefur aðstoðað við uppsetn-
inguna.
Ekki þorað upp í
•
Meö þessum nýju tækjum
geta stöðvarnar boðið mun
betri þjónustu en áður, og
eru dæmi þess að fólk hafi
ekki varað sig á því, hve fljótt
bílarnir eru komnir að hús-
dyrum þess, og jafnvel ekki
þorað að stíga upp í bíl hjá
slíkum ökugikkjum. Þess ut-
an gefur það auga leið, hve
vinnuskilyrði þeirra, sem tal
stöðvarnar hafa, eru til muna
betri en hinna.
— 7 dagar til jóla
Hurðaskellir kemu
Sjöundi var Hurðaskellir,
— sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr
Hann va< ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkaíega marraði
hjörunum í
(Hurðaskellir var sfundum
nefndur Faldafeykir).
f '
-dt=0
Skyrjarmur kemur á morgun
— 6 dögum fyrir jól —
Skyrjarmur. sá áttundi,
var skelfileg* naut.
Hann hlemminn o'n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz hann stóð á blístri
og stundi og hreín.
(Skyrjarmur var allt eins
oft kallaður Skyrgámur.
Teikning eftir Tryggva Magnússon.
Vísurnar gerði Jóhannes úr Kötlum.
lætta vekjara-
klukkustarfi
Nema þegar sá sem sefur þarf a<S nota bíl
Stefán Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samvinnufé-
lagsins Hreyfils, gat þess í við-
tali við blaðamenr í gær, að
með tilkomu talstöðvatækn-
innar í bílum stöðvarinnar,
myndi niður leggjast sá hátt-
ur, að afgreiðsluborð stöðvar-
innar starfaði sem vekjara-
klukka fyrir bæjarbúa.
Sá siður hefur tíðkast nú að
undanförnu, að bæjarbúar
hringdu í skiptiborð Hreyfils
og legðu þar inn beiðni um
það, að þeir yrðu vaktir að
morgni á ákveðnum tíma. í
upphafi komst þetta á, þegar
menn þurftu að taka bíl frá
stöðinni í bíti, þá var hringt
heim til þeirra um leið og bill
inn lagði af stað.
Oft í sama númer
Nú er svo komið að dæmi eru
til þess að hringt sé í sama
númerið þegar húsbóndinn fer
á fætur, þegar barnið fer í
skólann, og loks þegar hús-
freyjunni þóknast að fara á
fætur. Enginn þessara aðila
þarf á bíl að halda.
Þetta er náttúrlega geysileg
aukavinna fyrir stúlkurnar á
afgreiðsluborði Hreyfils, og
hefur komið fyrir, að þær
þyrftu að hringja í 400 númer
á morgni, og auðvitað þurftu
þær að taka á móti jafnmörg-
um símtölum um kvöldið.
Kaldi
Sjálfvirki maðurinn á veS-
urstofunni segir, aS í dag
verði norSvestan kaldi,
éljaveður og hlti um eða
undir frostmarki.
BtWBWBWWi 1
it'k'k Bandaríska Öryggisþjónustan telur sig hafa komiit að því,
aS Bandaríkjamennirnir tveir, Mitchell og Martin, sem
hurfu til Rússlands fyrir nokkru, hafi nú fengið velgamikil
störf í þágu rússneskra njósnahringa, sem aðsetur hafi á
Kúbu, Mexíkó og í Bandaríkjunum sjálfum.
'k'jcJt; Krustjoff hefur nú látið þaS boð út ganga til leiðtoga lepp-
ríkjanna að sýna Kennedy kurteisi og lipurð. Það á að vera
eitt ráðið til að ryðja Krustjoff á ný veginn til fundar æðstu
manna.
'k'k'k Kínverjar keppast við að sýna nýju Afríkuríkjunum sóma
með boðum og loforðum. Nýjasta boðið er fyrir nokkru
komið til Nkrumah í Ghana, sem fer til Peking innan
skamms.