Tíminn - 07.01.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.01.1961, Blaðsíða 9
T í M I N N, laugardaginn 7. janúar 1961. 9 Þarna er riddaraliðsforinginn, skólastjóri járningaskólans, að kenna ungum nemendum sínum handtökin á járningaskólanum í Voss. Norðmenn hafa þann sið, að járningamaðurinn heldur sjátfur fæti' við verkið. Hesturinn hefur lengi verið þarfasti þjónn Norðmanna alveg eins og með íslending- um, og ses's hans meðal norskra húsdýra er í sam- ræmi við það. Allt frá þeim tíma, er Skinfaxi og Hrim- faxi stikluðu hér á jörð, hinn fyrri fyrir vagni sólarinnar en hinn síðari fyrir vagni tunglsins og Sleipnir _ tróð tunglakrapa með vagn Óðins, hefur hesturinn verið virðing armesta húsdýrið á norskum bóndahæjum. Kýrin, kindin og geitin voru hin óæðri hús- dýr, en hesturinn nálgaðist það meira að vera meðlimur fjölskyldunnar, félagi hús- bóndans, sem stal hylli hans frá húsfreyjunni. í raun og veru er þetta ekki mikið breytt, þó að vélvæð- ingin hafi þokað hestinum nokkuð um set. Hann heldur enn virðingarstöðu sinni i Noregi. Hrossfjöldinn hefir meira að segja fullkomlega haldizt, þrátt fyrir tilkomu bíia og dráttarvéla, og jafn- vel aukizt, og þykir þetta töluvert kjmlegt. Um aldamótin voru taldir 166 þús. hestar í Noregi en árið 1930 er talan 177 þús. og fimm árum síðar 182 hús. — í stríðsbyrjun er talan 238 þús. en eftir það fer hestum heldur fækkandi og er talan nú svipuð og 1940, en þá hefst vélvæðingin í norskum land- búnaði fyrir alvöru og hefði mátt ætla, að þá fækkaði hestum mjög. En sú hefur ekki orðið raunin. Ástæðar. til þess, að hestur inn hefur haidið svo velli í Noregi er talin sú, að bifreið ar eða dráttarvélar verða varla notaðar að gagni á fjöl mörgum norskum fiallabýl- um, og er einkum svo háttað vestan fjalls í Noregi, þar sem býlið er oft og einatt eins og arnarhreiður á einhverri syllu í snarbrattri fiajllshlíð. og eina leiðin þangað upp eru geitagötur. Þar verður meira að segja enn í dag að flytja líkin á kviktrjám til kirkju á litlum og fótvissum fjarða- hestum. Og það er eins og það sé ógerlegt að fá fólk til þess að flytja brott úr þessum fjallbýlum. Fjallbændalífið er svo sterkt í mönnnm, að menn geta alls ekki hugsað sér að flytja niður í fjörðinn. Það er geitaræktin, sem gefur bændum á slíkum jörðum arðinn. Þeir selja geitaostinn háu verði. Sumir þessara bóndabæja eru meira að segja svo „hátt settir“, að hesti verður ekki við komið. Þar verður bóttdinn að vera sinn eigin hestur og bera hundrað punda bagga upp krákustígana, og deyi afi eða Edvard Welle-Strand: og fótasjúkdómar sækja á hesta vegna lélegrar fótasnyrt ingar og járnleysis. Þess vegna er nú talið, að margur norsk- ur hestur sé leiddur fyrir tím ann í sláturhúsið. Að vísu er meira en öld síð- an farið var að efna til járn- inganámskeiða og jafnvel starfrækja járningaskóla í Noregi, en nú hafa slíkir skól ar verið lagðir niður vegna YegSeg minningargjöf um dr. Björn Sigurðsson Nýlega afhentu eftirtalin fyrir- tæki, Mjólkursamsalan í Reykja- vík, Samband ísl. samvinnuféiaga, S'áturfélag Suðurlands, Fram- le'ðsluráð landbúnaðarins og Stétt arsamband bænda ekkju dr. Björns Sigurðssonar, frú Unu Jó- hannepdóttur, rausnarlega peninga gjöf í minningu um dr. Björn sem vott þakklætis fyrir vísindastörf hans í þágu íslenzks landbúnaðar. Það er mjög vel til fallið, að stofnanir landbúnaðarins skuli hafa undið bug að því að safna í nokkurn sjóð í þakklæíisskyni fyrir hin mórgu og þýðingarmiklu vísindastörf, sem dr. Björn Sig- urðsson vann í þágu íslenzks land búnaðar. Hann var mikill og stór- virkur vísindamaður, sem átti vís- indaafrek að baki og enn meiri vonir voru tengdar við, en hann féll fyrir aldur fram. Dr. Björn Sigurösson lögreglán, sem enn nota hesta töluvert. Skólinn nýtur því bæði styrks hersins og landbúnaðarstofnana. Það er þó ýmislegt fleira kennt í skóla þessum en járn- ingar, t.d. tamningar og með- Járningaraaðurinn fer milli bæja í bíl í Noregi amma, verður hann að leggja kistuna á bakið og bera hana til kirkju, en þeir bæir eru sem betur fer fáir. Hitt er tíðara, að hesturinn sé enn bíll og dráttarvéí þessara bænda, og verður það vafa- Laust meðan þeir hokra þama. Þótt tæknin virðist ekki fækka hestum að ráði í Noregi er önnur hætta honum nær- gengari — það er vöntun á járningamönnum. í flest- um norskum byggðum og sveitum var orðið mjög erfitt að finna mann, sem kann að járna hesta, smíða skeifur eða er fagmaður í þeirri iðn, Hestum fækkar ekki í Noregi þrátt fyrir mikla vélvæðingu í landbúnaðinum. jskorts á nemendum — menn Ivildu ekki leggja þetta fyrir jsig á slíkri vélaöld. En nú bregður svo við, að stofnsettur hefur verið nýr járningaskóli í Noregi. Það var gert 1946 og er hann í Voss og skólastjórinn er major Aamoth, riddaraliðsforingi að nafnbót. Þetta var talin mik- il nauðsyn, því að haldið er, að alls þurfi helzt um 800 lærða járningamenn í Noregi, og jnokkra þeirra þarf herinn og ferð hesta, jafnvei smávegis dýralæknishjálp og umbúnað ur ýmis um fætur hesta. Og nú bregður svo við, að skól- ann skortir ekki nemendur. Það tekur 6 mánuði aö verða útlærður járningsmaður, en skólastjórinn er ekki ánægð- ur, hann vill að skólatíminn verði 18 mánuðir, og hann vill hafa þrj á slíka skóla, einn vestan fjalls I Noregi, annan norðan fjalls og hinn þriðja í dölunum. Inni í smiðju járningaskólans eru skeifurnar slegnar, og þar standa nemendurnir við aflinn. Aamoth riddaraliðsforingi álítur, að hesturinn eigi enn miklu hlutverki að gegna, einkum í hernaði í Noregi, þar sem hann sé eina farar- tækið, sem her geti notað til flutninga í erfiðu fjallalands lagi, sem ekki einu sinni skrið drékar komist um. Norski fj arðahesturinn er afar fótviss og slyngur í bratt lendi, en hann þarfnast góðr ar hófahirðu, eigi hann að njóta sín, og skeifurnar verða að vera góðar. Áður var það venja, að bændur komu til smiðsins með hesta sína til járninga, en nú vill Aamoth breyta til og spara bændum ó- makið, þannig að járninga- maðurinn ferðist um með tæki sín og járni hestana heima. Þetta þykir norskum bænd- um hin mesta búbót. Það er talið einkennilegt, að margir nemendur járninga skólans koma frá Norður-Nor egi þar sem hestar eru fæst- ir, og þeir verða líka beztu járningamennirnir. Skólinn hefur nú í allt þennan rúma áratug útskrifað 80 fullnuma járningamenn, og þetta er að verða sérstök iðngrein í land inu. Þeir eru nú dreifðir um allt land og hafa meira en nóg að gera. Járningamennirnir „snyrta“ einnig hófana á margvíslegan hátt. Þeir skera burt ofvöxt og ágalla og setja á þá alls kyns spengur svo að þeir vaxi rétt og hóflagið haldist sem vera ber. En í þessari grein bregður svo kynlega við, að bíllinn er kominn I þjónustu hestsins. Járningamaðurinn, sem ferð ast milli bæja hefur bíl, oft- ast jeppa, til umráða og ber sig um í honum. Bíllinn er þannig búinn, að hann er eiginlega svolítil smiðja um leið, og járningamaðurinn get ur lagað skeifur — minnkað þær og stækkað eftir vild, eft ir því sem þörf krefur, og hann hefur í smiðju sinni ým is tæki og tól önnur og kem- ur fyrir að hann gerist við- gerðarmaður á heimilinu og hjálpar upp á bóndann eða húsfreyjuna í fleiri efnum en I að reka undir heimilishestinn. Svona hafa þeir það í Nor- eei.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.