Tíminn - 07.01.1961, Page 12
12
TÍMINN, iaugardaginn 7. janúar 1961.
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
Frjálsíþróttamenn K. R. settu 10
Islandsmet á síðastliðnu sumri
Aðalfundur K.R. 1960 yar
haldinn 5. desember s.l. í húsi
félagsins við Kaplaskjólsveg.
Formaður félagsins. Einar Sæ-
mundsson, setti fundinn og
minntist í upphafi 2 látinna fé-
laga, Guðmundar Þórðarson-
ar frá Hól og Trausta Har-
aldssonar, sem létust á s. I.
ári. Fundarstjóri var Gísli
Halldórsson og fundarritari
Sigurgeir Guðmannsson.
Ritari félagsstjórnar, Gunnar
Sigurðsson, gaf yfirlit yfir störf
félagsins á s.l. starfsári Lokið var
við viðbyggingu við íþróttahús fé-
lagsins í Kaplaskjóli og var hún
tekin í notkun í byrjun janúar.
Er það 180 m2 bygging, þar sem
eru ??? búnmgsherbergi, geymsla
og dómaraherbergi. Bætir hún úr
brýnni þörf vegna þess hve að-
sókn að æfingum í húsinu og á
svæðinu hafa aukizt síðustu ái'in.
Unnið var við að koma upp 2
handknattleiks- og körfuknattleiks
völlum á svæðinu og liggja þeir
vestan við íþróttahúsið og með-
fram Ægissíðunni. Þá vann flokk-
ur frá Unglingavinnu Reykjavík-
urbæjar að xagfæringum og snyrt-
ir.gu á íþróttasvæði félagsins og
gróðursetti um 150 m skjólbelti,
4 föld i'öð meðfram Kaplaskjóls-
vegi.
í Skálafelli vair haldið áfram
framkvæmdum við skíðaskála fé-
lagsins, sem vígður var á 60 ára
afmæli félagsins í marz 1959, var
unnið við gufubað í kjallaranum
og unnið að lagfæringum og jöfn-
un á svæðinu umhverfis skálann.
Er þar nú kominn fullstór hand-
knattleiksvöllur. Þá var ráðizt í
það stórvirki að koma upp 500 m
skíðalyftu við skíðaskálann og er
henni senn lokið. Er þetta ein full
komnasta skíðalyfta landsins.
Skíðamenn félagsins unnu mjög
mikið sjálfboðaliðastarf við bygg-
ingu lyftunnar, eða alls 1860 klst.
auk aðkeyptrar vinnu.
Félagið s'tarfar í 7 íþróttadeild-
um og munu hafa verið starfandi
um 1350 íþróttamenn og konur í
félaginu á síðasta ári.
— Og knattspyrnumenn félagsins unnu 15 mót af
29 — Eiinar Sæmundsson endurkjörinn form. KR
lék þar 4 leiki. Auk þess fóru
fjölmargiir leikmenn félagsilns í
meis'taraflokki utan með landslið-
inu til Noregs og írlands, af 16
leikmönnum, sem fóru til Noregs,
voru 9 frá K.R.
Á árinu var fyrirliði meistara-
fmkks, Gunnar Guðmannsson,
heiðraður fyrir að leika 200 kapp-
leiki fyrir félagið. Afreksbikar 2.
flokks hlaut Gísli Þorkelsson.
Knattspyrnuþjálfarar félagsins
voru:
Meistara-, 1. og 2. fl. fl. Óli B.
Jónsson.
3. flokkur: Örn S'teinsen.
4. flokkur: Guðbjörn Jónsson,
Gunnar Jónsson og Örn Jónsson.
5. flokkur: Kristinn Jónsson og
Gunnar Felixson.
Knattþrautir annaðist Gunnar
Felixson.
Formaður knattspyrnudeildar er
Sigurður Halidórsson.
Frjálsar ífiróttir
Á árinu settu KR-ingar 10 ís-
liindsmet í karlagreinum af 11,
sem sett voru. Á íslandsmeistara-
raótinu hlaut KR 12 meis'tarastig
og 7 unglingameistarastig. Frjáls-
íþióttamót K.R. var haldið á Laug
ardalsvellinum og bauð félagið til
þess hinum heimsþekkta millivega
lengdahlaupara Roger Moens frá
Belgíu, heimsmethafa í 800 m
hlaupi. Erlendis kepptu 13 KR-
ingar s.l. sumar og tóku þátt í 13
raótum í 5 londum.
Þjálfari frjálsíþróttamanna var
Benedikt Jakobsson. Unglinga-
þjálfari var Svavar Markússon.
Formaður frjálsíþróttadeildar
var Sigurður Björnsson.
Handknattleikur
Á Reykjavíkurmótinu varð KR
Reykjavíkurmeistari bæði í meist-
arafl. karla og kvenna. Var þetta
4 árið í röð, sem félagið verður
Eeykjavíkurmeistari í karlaflokki
Meistarafl. kvenna varð íslands-
meistari í útihandknattleik. Þá
sigraði félagið í fyrsta handknatt-
leiksmótinu, sem haldið er í 4
f'.okki.
Báðir meistaraflokkarnir fóru
ulan til keppni, og var það á veg-,
i m Helsingör I. F. Lék hvor flokk
ur 3 leiki.
Handknattleiksþjálfarar félags
ins voru:
Meistai'aflokkur kvenna: Heinz
Steinmann. 2. flokkur kvenna:
Pára Guðmannsdóttir. Meistara--
og 2. fl.: Reynir Ólafsson. 3 og
4. fl. Pétur Stefánsson og Sig-
urður Óskarsson.
Formaður handknat'tleiksdeiidar
var Sigurgeir Guðmannsson.
Skííadeíld
Vegna snjóleysis var lítið um
Meistaraflokkur KR í knattspyrnu sigraSi í fyrstu Bikarkeppninni, sem
háð var hér á iandi. Hér sést formaður KSÍ, Björgvin Schram, afhenda
fyrirliða KR, Gunnari Guðmannssyni, bikar þann, sem gefinn var til keppn
innar.
■skíðamót og skíðaferðir og einnig en þetta mót var hið éirta, 'sem
tóku bygglnaarframkvæmdirnar í
Skálafeili upp mikinn tíma frá
s'kíðaæfingum. Á Reykjavíkurmót-
tókst að ljúka hér í nágrenni ,bæj-
haidið
arins. Islandsmótið var haxaið a
Siglufirði og náði Karólína Guð-
inu átti K.R. nokkra sigurvegara' mundsdót'tir beztum árangri KR-
inga, varð nr. 2 í 4 greinum. 5
skíðamenn félagsins dvöldu er-
lendis við æfingar, og keppni s.l.
vetur, 1 í Bandaríkjunum og 4 í
Austur-Þýzkalandi.
Formaður skíðadeildar var Þór-
ir Jónsson.
(Framhald á 7. síðu).
Knattspyrnan:
Félagið tók þátt í 29 knattspyrnu
mótum á sumrinu ogafþeimvann
félagið 15 mót. Af 108 mótaleikj-
um vann K.R 74 liki og gerði 9
jafntefli og tapaði 25 leikjum,
jafngildir þessi árangur 73,7% og
er það bezti árangur, sem félagið
hefur náð í knattspyrnumótunum
síðan skipt var í deildir 1948.
Nægði þessi árangur til þess að
vinna Reykjavíkurstyttuna, sem
veitt er því félagi í Reykjavík,
sem flest stig fær samanlagt út
úi' knattspyrnumótunum. en stytt-
una gaf Þráinn Sigurðsson, fyrrv
form. Fram Meðal móta, sem K.R.
vann á árinu, var Reykjavíkur-
mótið, sem félagið vann nú í 3
sinn í röð, og Bikarkeppni K S.Í.,
sem nú var haldin í fyrsfa sinn.
Alls vann félagið 7 flokka í Reykja
víkurmótunum, en þar er keppt
i 10 flokkum
Send voru 3 kapplið úr 3. og 4.
fiokki til Skotlands og voru þátt-
takendur alls 45 og er þetta fjöl-
rnennasta utanför, sem farin hef-
ur verið. Tókst ferðin mjög vel.
Þá fór 1. flokkur til Færeyja og
Fimieikaflokkur KR hefur um mörg undanfarin ár verið glæsilegasti fimleikaflokkur landsins.
Hér sjást nokkrir fimleikamenn félagsins í erfiðri æfingu. Myndin er tekin á Meiavellinum
17. júní sl. Til hægri er stjórnandi flokksinsBenedikt Jakobsson.
Akureyri
Ska-utamót Islands 1961
verður haldði á Akureyri
28. jan. n.k. Keppt verður á
þessum vegalengdum:
Skautahlaup karla:
500, 1500, 3000 og 5000 m.
Skautahlaup kvenna er
áformað ef næg þátttaka fæst
og þá keppt í þessum vega-
lengdum:
500, 1000, 1500 og 3000 m.
Skautahlaup ungli'nga, 16
ára og yngri. Keppt verður i
þessum vegalengdum:
500 og 1500 metrum.
Skautafélag Akureyrar sér
um mótið og ber að senda
þátttökutilkynningar til þess
fyrir 20. janúar n.k.
FRETT frá ÍSt