Tíminn - 13.01.1961, Blaðsíða 1
Áskriffarsíminn er
1 2323
10. tbl. — 45. árgangur.
Landhelgi Grænlands
— bls. 2.
L • vWwI
Ji
Föstudagur 13. janúar 1961.
Hreindýr drukkna
niður um ís
Ætluðu yfir Lagarfljót á veikum ísi.
Saurbæjarkirkja í Eyjafirði. Myndin tekin 1938 af bandaríska íslandsvininum Mark Watson.
Þjóöminjasafniö varðveitir
Saurbæjarkirkju í Eyjafirði
Sunnudaginn 22. janúar
næst komandi verður hátíðleg
guðsþjónusta haldin í gömlu
torfkirkjunni í Saurbæ í Eyja-
firði. Tilefni þessa er bæði
það, að kirkjan er nýlega
orðin 100 ára og að söfnuð-
urinn endurheimtir nú kirkju
sína til helgihalds, en það
hefur fallið þar niður í tvö
ár vegna viðgerðar á kirkj-
unni.
Fyrir tveimur árum var
tekið til við endurbyggingu
þessarar gömlu torfkirkju á
vegum þjóðminjasafnsins,
Einstakt óhapp
í vörugeymslu
Einkennileg atvikarás leiddi
af sér nokkurt tjón hjá fyrir-
tækinu yírnef h.f. í Borgar-
nesi, sem nú mun eitt fram-
leiða nagla á landi hér. Vatn
flæddi undir birgðir af fram-
leiðslu fyrirtækisins í vöru-
húsi og evðilögðust umbúð-
irnar.
Óhapp þetta vildi til í geymslu
fyrirtaekisins, sem er til húsa ann-
ars staðar en gamla verksmiðjan.
Þar voru hlaðar af pappakössum,
sem í voru naglapakkar.
Engin vatnsskaðatrygging
Vatnslaust varð í næsta húsi, og
var vandfundin orsök þess. Datt
húsráðendum helzt í hug, að vatn
myndi renna í húsinu, þar sem
naglageymslan er, en það stendur
ívið lægr'a. Var nú farið að rann-
saka þetta, og kom þá í ljós, að
stæða af naglakössum hafði hrun-
ið og lent á hurð, sem við þetta
hrökk frá og á vatnskrana með
þeim afleiðingum, að vatnið rann
óhindrað út. Gerði nú flóð undir
naglabirgðirnar, og blotnuðu stæð
ur neðanverðar. Blautar pappa-
umbúðirnar eru ónýtar og verður
að skipta um, auk þess sem sjá
verður um að framleiðsluvaran
ryðgi ekki.
Tjónið. er tilfinnanlegra vegna
þess, að eigendurnir höfðu ekki
vatnsskaðatryggt vöruna. Yfirleitt
eru þeir fáir, sem tryggja eigur
sínar gegn skaða af þessu tæi.
J.E.
sem tekið hefur við viðhaldi
hennar, en jafnframt gegnir
kirkjan áfram hlutverki sínu
sem safnaðarkirkja.
Verndun gamalla bygginga
Þjóðminjasafnið hefur á
sama hátt tekið að sér nokkr
ar gamlar byggingar, sem eru
þannig verndaðar og undir
yfirráðum þess. Svo er t. d.
um gömlu bæjarhúsin í
Glaumbæ, á Grenjaðarstað,
Burstarfelli og Keldum á
Rangárvöllum. Þannig er og
um Hólakirkju í Hjaltadal,
einnig nokkrar gamlar kirkj-
ur, og er ætlunin að láta þær
standa um ókomin ár sem sýn
ishorn og til minningar um
fornan, fagran og þjóðlegan
kirkjubyggingarstíl, sem að
öðru leyti er horfinn úr sög-
unni.
Kirkjurnar gegna áfram
hlutverkum sínum
Þannig hefur þjóðminja-
safnið og tekið undir sína
vernd hina frægu Víðimýrar
kirkju í Skagafirði, kirkju
eða bænhús að Gröf á Höfða
strönd, Hofskirkju í Öræfum
og bænhús á Núpsstað í
Fljótshverfi í Skaftafells-
sýslu og nú síðast Saurbæjar
kirkju í Eyjafirði.
(Framhald á 2. bíSu.)
Nýlega bar
svo til morg
un einn aust
ur á
að
fundu sex
hreindýr dauð í vök í Lagar-
fljóti, og hafði ísinn brostið
undir þeim, er þau voru á
leið yfir fljótið. Það mun ann-
ars koma mjög sjaldan fyrir,
að hreindýt fari sér að voða
á þennan hátt.
Það vir'ðist vera orðin venja dýr
anna á hverjum vetd, þegar fer
að harðna um, að leggja leið sína
út Fljótsdals'heiðina og í Hrúars-
tungu, og urðu menn fyrir nokkru
varir við, að dýrin voru komin á
þessar slóðir. Það er ennfremur
venja dýranna að fara austur yfir
Lagarfljót í Eiðaþinghá á veturna.
6 dauð í vök
Það var svo fyrir fáum dögum,
að menn fundu þessi 6 dýr dauð
í vök á svokölluðum Vífilsstaða-
flóa í fljótinu, en þar rennur það
á breiðu, en er samt nokkuð djúpt.
Ekki vi;ta menn, hvort fleiri dýr
hafa verið í flokki þeim, sem
Meraoi, | þarna hefur ætlað sér að renna
menn yfir. Ekki hefur enn orðið vart við
nein hreindýr í Eiðaþinghá.
Fældust.dýrin?
Fljótið var nýlagt og ísinn veik-
ur og hefur því svikið dýrin. Hrein
dýr renna jafnan hratt, erþaufara
yfir ís, og er það gáta manna, að
styggð hafi komið að þeim á ihlaup
unum, og hafi þau því stanzað í
hnapp þarna úti á miðju fljótinu.
Dýrin eru mjög stygg. Það hefur
því einnig getað verið af þeirri
ástæðu, sem þau fóru út á ísinn,
■að hundar á bæjum eiga það til
að elta dýrin o| styggja þau. Ekki
hafa menn enn getað komizt að
skrokkunum til að nýta þá, þar eð
fljótið er þarna djúpt og bátur
ekki fyrir hendi. — Ljómandi veð-
ur var á Héraði í gær, sólskin og
vorauð jörð en iítið frost. Fljótið
er ekki lagt nema á stöku stað og
hver'gi fyrir ofan Egilsstaði.
S.St.
Sótti giftingar-
hringinn í flakið
- Sjóprófum lokið í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum í gær —
frá fréttaritara Tímans. — Sjó
prófum vegna strands belg-
íska togarans lauk hér í dag.
Virðist niðurstaða þeirra vera
sú, að slysið hafi orsakazt
vegna of iítillar ferðar á tog-
aranum út úr höfninni' móti
veðri og sjó.
Þegar hafnsögumaðurinn yfir-
gaf skipið, var það á lítilli ferð,
og skipstjóri setti ekki á fulla ferð
fyrr en það var orðið um seinan
og skipið var komið fast upp í
bergið. Suðaustan 9 vindstig voru
á og mikil kvika. Vegna ónógrar
ferðar móti vindi og sjó hefur skiþ
ið ekki látið að stjórn.
Þegar afturendinn slóst upp í
bergið, lyftist stýrisvélin upp, og
imjög skjótum hætti — eða á
nokkrum mínútum.
Skipstjórinn gerði sér ferð út
í skipið í dag. Var erindi hans
aðallega að sækja giftingarhring
sinn, sem hann vissi vísan í brú
skipsins. Hafði hann upp á
hringnum og gekk greiðlega að
ná honum
Skipið er annars fullt af sjó og
olía rennur úr geymum þess. Það
er allmikið brotið, enda lemst það
við hafnargarðinn.
Skipbrotsmennirnir leggja af
stað til Reykjavíkur með Herjólfi
í kvöld, að skipstjóranum undan-
teknum, sem mun ætla að fylgjast
með örlögum skiþsins eitthvað
lengur. Vonlaust er talið að draga
skipið á flot, en hins vegar er ekki
ólíklegt, að það verði dr'egið eitt-
úr því er skipið algerlega stjórn-j hvað frá garðinum vegna hættu á
laust. — Allt gerðist þetta með I að það brjóti hann. S.K.
Ný barnadeiici á Landakoti — bls. 3