Tíminn - 13.01.1961, Blaðsíða 12
12
TÍMINN, föstudaginn 18.
's
RITSTJÓRI: HALLUR SIMONARSON
★
Nokkrir
tékkneskir
íþróttamenn
Teljast ekki stangaveiðar 'til íþrótta?
EitthvaS er talað um „sport" í sam
bandi við þær að minnsta kosti. Víga
legi veiðimaðurinn hérna á siðunni
er tékkneski rithöfundurinn Milan
Jaris og hefur hann hreppt væna
styrju og er kampakátur yfir veið-
inni. Skyidi hún ekki vera hrogna
full — kaviar.
Það átti raunar að standa í upp-
haH, að allnr myndirnar éru af
tékkneskum íþró'ttamönnum, og það
eru knáir karlar. Hérna er t.d. fyrr-
verandi heimsmeistari í kanó-róðri.
og sá kann að handleika árina. Hann
heitir Voknér.
Þá er loks tékkneskur meistari í
stangarstökki — Marcel Blazej.
Þrír Svíar fyrsfir í
Monolitt-skíðagöngunni
Hin árlega Monolitt-skíðaganga fór fram í Noregi um síð-i
ustu helgi. Þátttakendur voru allir beztu skíðamenn Norður-
landanna f jögurra Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerk-
ur. Gangan var mikill sigur fyrir Svía, sem áttu þrjá fyrstu
menn.
í göngunni tóku þátt fjöru'
tíu menn og sá, sem hafði síð
asta rásnúmer, bar sigur úr
býtum. Það var hinn nýi
göngugarpur Svía, Assar
Rönnlund frá Umeá, sem er
25 ára gamall.t Sigur hans
kom ekki sérlega á óvart, þar
sem hann hefur að undan-
förnu náð mjög góðum ár-
angri í heimalandi sínu, en
hins vegar bjuggust flestir
við því, að landi hans Sixten
Jernberg eða Finninn Hakul-
inen myndu reynast sigur-
stranglegastir.
Tveir og tveir göngumenn
voru ræstir í einu og gerði
það gönguna miklu skemmti
legri, þar sem mikið var um
einvígi Sá, sem fór fyrstur
af stað, var Daninn Svend
Carlsen, og hann kom síðast
ur í mark af öllum keopend-
unum, en þrátt fyrir það var.
honum sennilega fagnað
mest. Hann vildi ijúka göng- i
unni hvað sem á gengi — en j
margir frægir garpar höfðu
gefizt upp.
Þessi Monolitt-skíðaganga
er sú skemmtilegasta, sem
fram hefur farið, enda örfáar
sekúndur, sem skildu að
fyrstu mennina. Áhorfendur
skiptu mörgum þúsundum og
var mjög gott fyrir þá, sem
fylgjast með göngunni, enda
farnir fjórir hringir. Allt
hjálpaðist að, veður var hið
fegursta og færi gott:
Úrslit urðu þessi:
A. Rönnlund, S. 47.12
S. Jernberg S. 47.18
Sture Gran, S. 47 19
S. Steinsheim, N. 47.29
L. Larsson, S. 47.44
V. Hakulinen, F. 47.51
Einar Östby N. 47.51
Oddm. Jensen, N. 48.14
13. Hallg. Brenden, N. 48.28
19. H. Brusveen, N. 49.20 j
23. M. Stokken, N. 49.34 :
25. R. Andreasen, N. 49.47
Þekkt merki
meðal
skíðamanna
Toko skiðaáburður
Kneissl skíði með plast-
sólum >'æntanleg í vikunni
Tyrolia skíðabindingar
módel 1960. sterkar, d.ið-
veld stílling, gott verð
ÁVAU '! FREMSTIR
Sími 13508
Kjörgi'-ði Laugaveg 59
Austurstræti 1
Póstsendum