Tíminn - 28.02.1961, Blaðsíða 13
. ■;•>/*/ •■ r“r,0,“ ' ■: ■ '■•"■..Pf' P
Atlnsgasemd frá
Sig. Sigurðssyni
Ég fæ fremur kaldar
kveðjur frá Ármenningum á
þessum stað s.l. sunnudag.
Greinin er hnitmiðuð — og
snertir hvergi það mál, sem
um var rætt í upphafi.
Með því að lima í sundur setn-
ingar og túlka einstök orð sér í
hag komast höfundar að þeirri nið-
urstöðu, að ég hafi kveðið upp
dóm um glímukeppnina sem slíka
cg undrast ófyrirleitni mína að
dæma um það, sem ég ekki sá með
eigin augum. Gott og vel, látum
stm svo hafi verið. Ég get glatt
Ármenningana með því, að ég
| hafði traustar heimildir um þetta
íí'.ót og tel mér fullkomlega leyfi-
legt að hafa mitt álit í þessu efni,
hvort sem það er á sama veg og;
áiit mótsstjórnarinnar eða ekki.'
Ihnn íþróttafréttaritari útvarps
eða blaðs hefur enga möguleika til
að vera viðstaddur öll íþróttamót,
sem gerð eru að umtalsefni og
hlýtur því oft að byggja álit sitt
á dómi' annarra, sem hann treystir.
Að lokum þetta. Ég ætla ekki
að elta ólar við persónulegan skæt-
ing og stóryrði í minn garð. Einu
ættu þó greinarhöfundar að finna
stað, viljl þeir ekki sjálfir liljóta
ósannindastimpilinn, sem þeir
eigna mér, en það er þessi setn-
ing:
„Málflutningur Sigurðar er með
þeim hætti, að ekki verður við
unað, enda ekki vanzalaust að
áróðurstæki í eigu ríkisins skuli af
íbróttafréttaritara þess vera notuð
til beinna ósanninda um íþrótta-
menn.“
Hver eru þessi ósannindi um
íþróttamenn og hvar er þau að
finna?
Sig. Sigurðsson.
Leikur Víkings og Þróttar í meistaraflokki karla var oft mjög grófur eins og þessi mynd sýnir vel. Einn Vík-
ingurinn er kominn { skotfærl, en Þróttarar gera sér Ittið fyrir og grípa i báða handleggi hans. Lítið var þó
dæmt á þessi stóru brot, enda stóð dómarinn í leiknum illa í stöðu sinni. |
F.H. sigraði K.R. í meisíara-
flokki kvenna í handknattleik
— og er nú nær öruggt mefi fitJ hljóta íslands-
meistaratitilinn í þeim flokki
Handknattleiksmeistaramót
íslands hélt áfram um helgina
Einvígi í
hástökki
Meisfcaramót íslands í frjáls
um íþróttum innanhúss fer
fram lau-gardaginTi 4. og
sunnudaginn 5. marz, í
íþróttahú'Si Háskólans og
hefst báða dagana kl. 15,30.
Á laugardag verður keppt í
langstökki án atrennu, kúlu-
varpi, hástökki með atrennu,
og aukagrein verður í há-
stökki meö atrennu fyrir kon
ur.
Á sunnudag verður keppt
í stangarstökki, hástökki án
atrennu, þrístökki án atrennu
og aukagrein verður þrístökk
án atrennu fyrir drengi. —
Þátttökutilkynningar /j'.ga að
hafa borizt í pósthólf 10991
eigi síðar en fimmtudaginn'
2 .marz.
Mót þetta getur orðið mjögi
skemmtilegt, einkum ætti há
stökk með atrennu að verðaj
speilnandi, en þar keppa nafn t
amir Jón Ólafsson og Péturs
son, sem báðir hafa stokkið^
tvo metra.
og voru ieiknir 14 leikir. Aðal-
leikurinn var í meistaraflokki
kvenna milli F.H. og K.R. —
cg er seonilegt, að það hafi
verið úrslitaleikurinn í þeim
flokki. Leikar fóru þannig að
hinar unqu F.H.-stúlkur sigr-
uðu með tíu mörkum gegn
níu, og má nú telja nokkuð ör-
uggt, að þær hljóti íslands-
meistaratitilinn í þeim flokki.
Leikurinn var mjög ekemmti
legur eins og úrslitin gefa til
kynna. KR-stúlkunum gekk
betur til að byrja með og um
tíma í fyrri hálfleik náðu þær
þriggja marka forskoti, 5—2.
En PH tókst að- minnka bilið
fyrir hálfleik, en þær skoruðu
tvö síðustu möxkin í fyrri hálf
leiknum. Staðan 5—4.
í byrjun siðari hálfleiksins
léku FH-stúlkumar mjög vel
og þær skoruðu fjögur mörk,
án þess að KR tækist að svara
— eða sex mörk alls í röð.
Þessi leikkafli þeirra gerði út
um leikinn, og var FH nú
skyndilega korrtið þrem mörk
um yfir. KR-stúlkumar fyllt
ust nú miklum baráttuhug,
en það var of seint. Að vísu
tókst þeim að minnka marka
munin um tvö mörk, en sigur
FH var öruggur. Þó var ríð-
asta mínútan mjög æsandi
fyrir áhorfendur. Eins marks
munur var þá á liðunum, og
Gerða Jónsdóttir, skotharð-
asta konan hér, komst ein
inn fyrir vörn FH, en dómar- j
inn dæmdi aukakast á KR, og
r'étt á eftir flautaði hann af.
Sigur FH var að mörgu
leyti verðskuldaður, og byggð
ist einkum á því, að þeim
tókst að halda Gerðu að
; mestu niðri. Hún var undir
mjög ströngu eftirliti allan
j leikinn, og má segja, að ein
FH-stúlkan hafi aldrei vikið
i frá henni. Virtist þetta setja
' KR-liðið úr sambandi, en þó
fer varla á milli mála, þrátt
fyrir þessi úrslit, að KR hefur
betra liði á að skipa.
Á sunnudagskvöldið fór einn
ig fram annar leikur í meist-
araflokki kvenna, milli Vals
og íslandsmeistara Ármanns.
Úrslit urðu þau, .að Valur sigr
aði nokkuð örugglega með sjö
mörkum gegn fjórum.
VÍKINGUR VANN ÞRÓTT
í meistaraflokki karla 2.
deild, tryggði Víkingur enn
forustu sína í deildinni með
því að sigra Þrótt örugglega
með 25 mörkum gegn 18. —
Víkingar skoruðu 13 mörk í
fyrri hálfleik gegn níu, og
voru aldrei í hættu með leik
inn. Þeir gáfu varamark-
manni sínum tækifæri til að
reyna sig í síðari hálfleik og
kostaði það nokkur mörk.
YNGRI FLOKKARNIR
Á laugardag og sunnudag
fóru fram 11 leikir í yngri
flokkunum. Á sunnudag var
leikið í KR-húsinu. Flestir
þessir leilcir voru heldur til-
þrifalitlir, nema leikur Kefl
víkinga og Víkings í 3. flokki
A. Leikmenn Keflavíkur í
Dráttur hefur faríð fram f
Happdrætti U.M.F.
Biskupstungna
komu þessi númer upp:
Nr. 3686 Góðhestur
— 5729 Flugferð til London
— 3231 Hrærivél
— 6338 Ryksuga
— 3810 Veiðistöng
— 3398 Kuldaúlpa
— 2676 Kaffistell
— 5768 Folald
Upplýsingar gefur
Eiríkur Sæland,
Espiflöt, Biskupstungum.
Hún brá sér í sólbatJ
j (Framhald af 11. síðu).
j óhúlt þar í landi. Ég var alltaf
i með lífið í lúkunum á götunum í
1 Santiago, þótt Agla væri með mér.
i — Ástandið mun jþó vera batnandi.
I Komin er skólaskylda og núvera-
j ndi for'seti er sagður vilja^ reyna
koma á ýmsum umbótum. Ástand-
ið í Ohile mun þó vera betra en
I t.d. í Perú og Bolívíu.
Lítil saga, sem mér var sögð þar
syðra, varpar ef til vill nokkru
ljósi á menningarástand fólksins,
og satt að segja virðist kaþólska
kir'kjan ekki gera sitt bezta til að
koma fólkinu á hærra stig. Robert
og María hafa tvær vinnukonur.
Önnur þeirra er sérvitur nokkuð
en dugleg. Hún fékk þær grillur,
að garðyrkjumaðurinn og hin
vinnukonan værú sífellt að tala
illa um, sig. Hún fór til síns ka-
þólska skriftaföður og sagði hon-
um frá þessum ímynduðu ofsókn-
um. í stað þess að reyna að hafa
hana ofan af þessari vitleysu, fékk
hann henni verndargr'ip, sem hún
skyldi bera um hálsinn og' bægja
átti frá hinurn illu ofsóknum.
— Það eru tíðir jarðskjálftar í
þessum flokki eru mjög stórj
ir og sterkir, en þeir réðu þó
ekki við hinn frábæra sam-
leik Víkings-liðsins, sem lék
oft á tíðum stórglæsilegan
handknattleik af svo ungum!
drengjum að vera. Víkingurj
sigraði í leiknum með 6—3. — I
Nánar verður skýrt frá úrslit
um i yngri flokkunum á morg'
un. I
Chde, þú hefur eki orðið vör við
neinar jarðliræriugar?
— Jú, ég er nú hrædd um það.
Einn morguninn vaknaði ég í Al-
garroba við það, að rúmið mitt var
komið á ferð, skalf og nötraði. Ég
vissi ekki hvaðan á mig stóð veðr-
ið og ég neita því ekki að mér vaið
ekki um sel. Jarðskjálftakippirnir
voru 5 og ég verð að segja að mér
fannst iþeir ansi snarpir. — En
Chilebúar eiu vanir smá ýfingum
og kippa sér víst ekki upp við
slíka smámuni. — Hinir hroðalegu
jarðskjálftar í fyrra virðasf þó eiga
sterk ítök í hugum íbúanna enn,
en þá fórust tugir' þúsunda manna
í Cuður-Chile. Það hafa ekki vérið
nein smáræði, sem þá hafa gengið
á. T.d. færðist skóglendi nokkurt
úr stað sem svarar 40 metrum, og
nú eru risin upp málaferli milji
landeigenda um það, hver eigi
skóginn, og er það mál víst all
flókið.
— Myndir þú vilja setjast að
þarna í Chile?
— Ég held varla, meðan ástand-:
ið er eins og það er. Landið hefur
mjög marga .kosti. Náttúra þess er
ótrúlega gjöful og fegurð tignar-
leg. Loftslagið getur ekki verið
betra, aldrei kalt og heldur ekki
of 'heitt. En Norðurlandabúar, sem
þékkja ekki og geta ekki fellt sig
við slíkan stóttamun og ranglæti,
er áreiCanlega erfitt að festa
þarna tr,*astar rætur.
Nú, og svo er hún ætíð stei'k
þessi taug, sem dregur mann heim
í;l föðurtúna, og þegar allt kemur
til alls, þá'held ég að ég vilji hfrtd-
ur búa á íslandi en í Chile.