Tíminn - 18.05.1961, Side 2

Tíminn - 18.05.1961, Side 2
m TÍ M;1'N*N^ fímmtudaginn 18. maM96^) Setjast herforingjarnir í ráðherrastóla S-Kóreu ? NB—Seoul, 17. maí. Síðan byltingarráð nokkurra hers- höfðingja undir forystu Dos Yongs Changs, herráðsfor- ingja, sem var náinn sam- starfsmaður Syngmans Rhees fyrrverandi einræðisherra í S. Kóreu, hrifsaði völdin í sínar hendur og steypti af stóli hinni löglegu stjórn dr. Johns Myuns Changs forsætisráð- herra, hefur herforingjaklíkan gert allt, sem ( hennar valdi stendur til þess að styrkja að- stöðu sína í landinu. Ástand er þó enn mjög óljóst í Suöur-Kóreu, og ekki á hreinu, hverjir fara með völdin né hvort mynduð verði iiý stjórn undir for ystu Dos Yongs Changs. Almenn- ingur í landinu virðist ekki al- mennt styðja herforingjaklíkuna, og eru uppreisnarmenn nú mjög uggandi um hag sinn ,og loft allt lævi blandið í Suður-Kóreu. Ráðherrar teknir höndum Fyrri »;art dags í dag voru sex rðherrar úr ráðuneyti dr. Changs, forsætisráðherra, teknir höndum, en sjálfur fer forsætisráðherrann enn hundu höfði. Þessir sex ráð- herrar, sem hermenn herforingja klíkunnar handtóku, höfðu verið þvingaðir til þess að sækja fund i þinghúsinu í Seoul, en jafnskjótt og þeir birtust þar, voru þeir handteknir. Reyndust því fyrri loforð herforingjaráðsins um, að þeir myndu ekki teknir höndum, ef þeir gæfu sig fram til við- ræðna, svikin ein. Dr. Chang lét ekki blekkjast, en herráðið held- ur áfram að útvarpa áskorunum til hans um að gefa sig fram. Hinir sex ráðherrar sem voru handteknir eru: innanríkisráðherr i ann, samgöngumálaráðherrann, flutningamálaráðherrann, mennta- málaráðherrann og varnarmálaráð herrann. Byltingarstjórn Samkvæmt stjórnlögum Suður- Kóreu getur forsætisráðherra einn slitig þinginu og sent þing'menn heim, þess vegna er byltingarráð- inu mikið í mun að ná forsætis- ráðherranum á sitt vald, því að þá gæti Kim Do Yun, forseti S- Kóreu, útnefnt nýjan forsætisráð- herra í stað dr. Changs og veitt stjórn byltingarráðsins brautar- gengi, en allt virðist benda til þess, að herforingjaklíkan viður- kenni Yun sem forseta landsins. Byltingarráðið hefur þegar skip að 12 háttsetta herforingja í ráðu neytisstjórastöður og sem deildar stjóra, til viðbótar þeim, sem áður höfðu \ærið settir svipaðar stöð- ur. Viroist því allt benda til þess, að þessir menn eigi að v /x stofn inn í nýrri stjórn herforingjaklík unnar, svo framarlega sem hún fær ekki stuðning pólitskra leið- toga í landinu. En ekki hefur enn þá verið skipað í þær sex ráð- Ferð á Snæfellsjökul Ferð um Snæfellsnes og á Snæ- fellsjökul verður farin um hvíta- sunnuna á vegum Ferðaklúbbs F.U.F. Eins og áður hefur fram komið mun farið frá Reykjavík eftir hádegi á laugardag og komið í bæinn aftur á mánudagskvöld. Bæði sunnudags- og mánudags- nætur verður gist í Ólafsvík en gengið á Snæfellsjökul á sunnu- dag, hvítasunnudag. Einnig verð- ur ferðazt um Nesið og skoðaðir merkustu staðir þar. Nú þegar er þátttaka orðin mikil og ættu menn því ekki að draga að panta miða í síma 12942 í Framsóknarhúsinu kl. 5—7 eftir hádegi. Þátttaka er öllum heimil. Farmiðar kosta að- eins kr. 390,00 og eru þrjár mál- tíðir innifaldar í verðinu. herrastöður, sem nú hafa losnað, og er sagt, að því valdi m.a. af- staða Bandaríkjamanna til ur>- reisnarinnar, skortur á stuðningi hinna almennu borgara og síðast en ekki sízt sundurlyndi meðal herforingjanna sjálfra. Óánægja fólksins Á meðan örlög herforingjanna í Suður-Kóreu virðast þannig mjög tvíræð, fara menn í engar grafgötur með það, að óánægja fólksins í landinu fer stöðugt vax andi, svo að ómögulegt er að segja um, hvenær sjóði upp úr. Verð- lag hefur allt hækkað í landinu og skortur er á nauðsynjum, og mikil ólga er í fólki vegna þeirr- ar ákvörðunar herfjffingjaráðsins ag loka einkginnistæðum manna í bönkum. Allar helztu flutninga leiðir eru stöðvaðar, og matvæla- skortur er farinn að gera vart við sig. Nýr stuðningur f gærkveldi tilkynnti útvarps- stöð uppreisnarmanna í Seoul, að byltingarráðinu hefði borizt orðsending frá Han Lim Lee, yfirhershöfðimgja hersins í Suð ur-Kóreu, þess efnis, að hann styddi uppreisnarmenö í land- inu. Áður hafði verið tilkymt, að her Suður-Kóreu, sem er einn fjölmennasti her 1 heimi, myndi verða hlutlaus gagnvart atburð- um þeim, sem skeðu í landinu. Byrjað að ýta snjó af veginum á Fjarðarheiði Seyðisfirði 17. maí. — í gær var byrjað að ryðja snjón um af Fjarðarheiði, og verð- ur hún vonandi orðin fær undir mánaðamótin, enda mál til komið. Fjarðarheiði er ó- fær og vegurinn undir vetrar- fargi lengst fram á sumar allra austfirzkra fjallvega. Eru þar enn engar ferðir yfir nema með snjóbíl, sem vissu- lega er enn í fullkominni notk un, enda þótt nú um hríð hafi verið sumarhiti og sólskin dag hvern. Aðalf. Sláturfélags Suðurlands Fulltrúafundur fyrir allar félagsdeildir Sláturfélags Suð- urlands var haldinn í Reykja- vík á mánudaginn. Fundinn sóttu 66 af 71 kjörnum full- trúum frá 42 deildum af fé- lagssvæðinu, en það nær aust- an frá Skeiðarársandi að Hvítá f Borgarfirði. Aðalfundur félagsins var síðan haldinn á þriðjudaginn. Fundar- stjóri var kjörinn Þorsteinn Sig- urðsson, formaður Búnaðarfélags íslands, og fundirritari Páll Björg vinsson, bóndi á Efra-Hvoli. For- stjóri félagsins, Jón H. Bergs, flutti skýrslu um helztu þætti fé- lagsstarfseminnar á liðnu ári. í fyrra haust var slátrað í 7 sláturhúsum félagsins nærri 122 þúsund fjár, sem er nokkru minna en árið 1959. Má rekja orsakir þess til góðs árferðis í fyrra og mikillar heyöflunar sumarið 1960. Meðalþungi dilka í sláturhúsun- um var um V2 kg hærra en árið 1959. Auk sauðfjárslátrunar var mikil stórgripaslátrun í sláturhús- um félagsins, og hefur svínaslátr- un aldrei verið meiri en í fyrra. Veruleg söluaukning varð í fyrra hjá pylsugerð og niðursuðu- Heildarvörusala allra starfs- greina félagsins var á árinu 1960 um 130 milljónir króna og hafði aukizt um 12 milljónir frá árinu 1959. Á aðalfundi áttu að ganga úr stjórn Ellert Eggertsson, bóndi á Meðalfelli og Sigurður Tómasson, bóndi á Barkarstöðum, og voru þeir endurkjörnir. Félagsstjórn- ina skipa: Pétur Ottesen, fyrrver- andi aiþingismaður, formaður, Ell Sigurður Tómasson á Barkarstöð- um og Siggeir Lárusson á Kirkju- bæjarklaustri. ert Eggertsson á Meðalfelli, Helgi Haraldsson á Hrafnkelsstöðum, Engir kafbátar (Framhald af 1. síðu). lausu lofti gripið, að slíkt væri í ráðum. Hann sagði einnig, að ekki kæmi til mála, að neins kon ar njósnaflug yrðu stunduð frá Keflavíkurflugvelli og ekki yrðu kafbátar hér við land búnir Polaris-eldflaugum. Flotaforinginn var spurður, hvað hann ætlaði að gerast myndi, ef ísland væri hlutlaust og styrj- öld skylli á. Hann svaraði því til, að hann vonaði, að friður héld- ist í heiminum. En kæmi til styrj aldar, kvaðst hann ekki hafa trú á því, að landinu reyndist unnt að vera hlutlaust, og minnti í því verksmiðju S.S. Ullarverksmiðjan! sambandi á það, sem gerðist 1941. Framtíðin, sem er eign S.S., starf; í för sinni hingað til land§, aði líkt og áður, aðallega að fram- j sagðist flotaforinginn hafa átt við leiðslu prjónavara, og bandfram-! ræður við forseta landsins; Guð- leiðsla til gólfteppa hefur aukizt. mund í. Guðmundsson, utanríkis- Félagið á 8 sölubúðir í Reykja- ráðherra og Bjarna Benediktsson vík og 1 á Akranesi. ' dómsmálaráðherra. (Framhald af 3. síðu). ríkisleiðtoga vestrænna stórvelda verði haldinn strax að afloknum fundinum í Vínarborg. Ráðgert er, að forystumenn Frakka, Breta og Bandaríkjamanna taki þátt í þessum fundi, sem yrði þá haldinn annað hvort í London eða París. Þá segir og, að vel geti svo farið, ag Konrad Adenauer, kanzl ara Vestur-Þýzkalands, verði boð ið að taka þátt í þessum funda- höldum, þar sem hlutverk þessa fundar verði að kryfja til mergj ar niðurstöður þær, sem fengust fundi þeirra Krustjoffs og . jaðeins á 20 faðma dýpi, svo þeir j Kennedys í Vín. ‘ bátar, sem voru með 59—60 faðma i Um þennan fund hefur engin Mikil síld (Framhaid af 3. nðu) Höfrungur II með 5—600. Var talið, að ekki væri enn útséð með afla dagsins, því reynsla síðustu daga hefði sýnt, að mesti aflinn V.’ði náðst síðla kvölds, en það var vitanlega komið undir duttl- ungum síldarinnar sjálfrar. Veðrið var indælt, logn og nokkur þoka, en þó ekki til tafa. Það sem einna mest háði veið- um í gær, var það, að síldin var i á Rússneskir letingjar (Framhald af 16. siðu). annast uppeldi þeirra. Karlmennirnir, Alexander Snork in og Peter Tsarev, voru báðir kærðir fyrir iðjuleysi. Snorkin hafði starfað á fimm stöðum á tveimur árum, en hvergi tollað, og síðustu tvo mánuði hafði hann alls ekkert starfað. Hann lifði á ellilaunum gamallar móður sinnar, og kona hans hafði farið frá hon- um vegna óreglu hans og drykkju- skapar. Tsarev • kvaðst vera óvinnufær, en læknar höfðu hvað eftir annað lýst hann fullfæran til vinnu. Hann á sjálfur hús, en vitnin sögðu, að hann hefði ekki annað fyrir stafni en drekka vodka og berja konu sína. Þess er getið, að hann hafi hagað sér ruddalega fyrir réttinum og enga iðran látið í Ijós. Rússnesk blöð geta þess, að á- heyrendur hafi verði hneykslaðir á ósvífinni framkomu sökudólg- anna og segja, að þessir dómar hafi verið réttíátir. Þeir ættu að verða lærdómsríkir fyrir þá, sem ástunda vinnusvik, segja blöðin. Norskur styrkur (Framhald af 16. síðu). fræði, dýra-, grasa og jarðfræði Noregs, kynna sér norskt atvÍQnu líf o.s.frv. Þeir, sem kynnu að hafa hug á að hljóta styrk þennan, sendi umsóknir til menntamálaráðu- neytisins fyrir 15. júní næstkom- andi, ásamt afriti af prófskírtein- um og meðmælum, ef til eru. Um sóknareyðublöð fást í ráðuneyt- inu og hjá sendiráðum íslands erlendis. Fundur K og K Skröksaga (Framhald aí 1. síðu). urinn hélt sínu máli fast fram og taldi útilokað að sér hefði missýnzt. Lögreglan fékk þá froskmann á staðinn. Kaf- aði hann og leitaði lengi án árangurs. Ætlaði að hræða manninn Þegar ekkert fannst, þrátt fyrir mikla leit, þótti íögreglumönnum einsýnt, að hér væri ekki allt með felldu. Drengurinn var síðan tekinn til yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglunni, og hélt hann í fyrstu fast við sögu sína, en þar kom, að hann viðurkenndi að hafa sagt ósatt. Sagðist hann hafa ætlað að narra mann þann, sem hann í fyrstu sagði söguna um slysið. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við höfnina á meðan froskmaðurinn leitaði þar og má heita, að vinna hafi legið niðri hjá hafnarverkamönn- um- á aðra klukkustund. Fjöldi lögreglumanna var og á staðnum, og má því telja víst, að skrök- saga drengsins hafi kostað drjúgan skilding, auk þess að valda mönnum miklum áhyggjum. nætur náðu ekki að kasta að j endanleg ákvörðun verið tekin, en gagni. Þeir voru því að reyna að | sagt er, að hann verði haldinn, snurpa hana og hálfsnurpa, en ef viðræður þeirra Kennedys og það mun ekki vænleg veiðiaðferð. I Krustjoffs gefi tilefni til hans. Bæjarkeppni / í kvöld, fimmtudag kl. 8,30, keppa á Melavelli úrvalslið REYKJAVÍK - AKRANES Dómari: Haukur Óskarsson Línuverðri: Baldur Þórðarson og Einar Hjartarson Verð: Stúka kr. 35,00, sæti kr. 25,00, stæði kr. 20,00, börn kr. 5,00.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.