Tíminn - 18.05.1961, Side 12
12
TfMINN, fimmtudaginn 18. maí 1961.
TSrom '
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
METAREGN I SUNDHÖLLINNI
- Stórglæsilegt Norðurlandamet Karin Grubb í 100 m.
skriðsundi og f jögur Islandsmet voru sett í gærkvöldi
Það var sannkallað metaregn á sundmeistaramóti Reykja-
víkur í Sundhöllinni í gærkvöldi. Hin 15 ára gamla Karin
Grubb setti stórglæsilegt NorSurlandamet í 100 m skrið-
sundi kvenna, synti á 1:03,6 mín. Guðmundur Gíslason setti
bezta met íslendings í 200 m skriðsundi, Ágústa Þorsteins-
dóttir bezta met íslenzkrar sundkonu í 100 m skriðsundi,
og auk þess íslandsmet í 50 m skriðsundi, og Einar Krist-
insson setti íslandsmet í 100 m bringuundi og sigraði Sví-
ann Roland Sjöberg.
Fyrsta greinin á meistaramót-
in-j í gærkvöldi var 200 m skrið-
sund karla, og það var sannar-
lega forsmekkur að því, sem á
eftir átti að koma. Guðmundur
.Gíslason, ÍR, sigraði með yfirburð
um í sundinu, og synti frábærlega
vel. Tími hans var 2:08,6 mín. —
og er það bezta íslenzka metið í
sundi. Guðmundur átti sjálfur
eldra metið 2:10,5 mín.
f 100 m bringusundi karla
kepptu í sama riðli Sjöberg, Ein-
ar, Hörður Finnsson, og Sigurður
Sigurðsson, Akranesi, og var
hörkukeppni milli þeirra. Einar
var þó öruggur sigurvegari og
bætti met sitt . talsvert, synti á
1:14,1 mín. — en eldra metið var
1:14,6 mín. og átti Einar það met
ásamt Þorgeiri Ólafssyni. Roland
Sjöberg varð annar í sundinu á
1:14,6 mín., sem er hans lang-
bezti tími. Hörður synti á 1:15,4
og Sigurður á 1:16,7 mín.
Bezta keppnisgrein kvöldsins
var 100 m skriðsundið, en þar
kepptu Grubb og Ágústa. Grubb,
sem er 15 ára, synti stórglæsi-
lega. Hún var þó nokkuð á eftir
Ágústu í viðbragðinu, en vann
þann mun vel upp í snúningnum,
og eftir 50 m var hún komin að-
cins á undan. Keppni þeirra var
þó mjög skemmtileg — en sú
sænska var lengd sinni á undan
í mark. Tíminn á Grubb var
1:03,6 mín. — hálfri sekúndu
betra en eldra Norðurlandamet-
ið, sem hún átti sjálf. Ágústa
synti á 1:05,4 mín. — 1/10 betra
en íslandsmetið, sem hún setti
í fyrrakvöld.
Bezta sundhöllin
Báðar sundkonurnar voru mjög
ánægðar eftir sundið. Karin
Grubb sagði, að sundhöllin hér
„væri sú bezta í heimi“ og þegar
Ágústa frétti tíma sinn, var hún
alveg hissa. „Það getur ekki ver-
ið“ sagði hún, „ég, sem fór alveg
upp á bakkann í þriðja snúningn
um“ — og það var áreiðanlegt,
að þar missti Ágústa hátt í hálfa
sekúndu.
Og þær stöllurnar létu ekki
þar við sitja. í 50 m. skriðsundi
nokkru á eftir synti Karin á
28,9 sek. — bezti tími sænskrar
sundkonu, en sænsk met eru
ekki skráð á þeirri vegalengd.
Ágústa synti á 29,3 sek. — sem
er nýtt íslandsmet, 1/10 úr sek.
betra en eldra met hennar.
Þeir Hörður Finnsson og Einar
Kristinsson sigruðu Sjöberg í
50 m. bringusundi. Hörður var
sjónarmun á undan Einari 'en
tími þeirra sá sami, 34,0 sek. —
aðeins lakara en íslandsmetið. —
Sjöberg synti á 34,2 sek. og Guð
mundur Gíslason á 34,4 sek. —
mjög skemmtilegt sund.
Þessari heimsókn sænska
sundfólksins er nú lokið, en hún
hefur sannarlega verið viðburð
arrík, og óvenju glæsilegur ár-
angur náðst í Sundhöllinni. —
Norðurlandametið ber þar hæst,
en íslenzku metin sex láta held
ur ekki að sér hæða. Fram-
kvæmdanefnd mótsins á miklar
þakkir skilið fyrir ánægjulegt
sundmeistaramót.
Hugleiðing um Jslandsglímuna 1961
A sundmeistaramóti Reykja-
víkur setti Guðmundur Gísla-
son, ÍR, nýtt íslansdmet í 100
m. baksundi, synti vegalendina
á 1:07.4 mín., sem er ágætur
árangur. Guðmundur átti sjálf-
ur eldra metið og var það
1:08.1 mín. — Þetta var þriðja
sundið, sem Guðmundur keppti
í um kvöldið, Hann hafði áður
sigrað í 1Ö0 m. og 400 m. skrið-
sundi á ágætum tíma. Hann
virðist nú í mjög góðri æfingu,
og er að ná sér verulega á strik
aftur eftir nokkra lægð undan-
farna mánuði.
Með þessari grein vil ég
koma aS leiSréttingu á frétt,
sem var hér í blaSinu, og
skýra frá keppninni um leiS.
í tímanum 9. þ. m. er sagt, aS
Ármann J. hafi unnið Grettis-
beltið í sjöunda sinn í röð, en '
á að vera ÁTTUNDA; en alls
hefur hann unnið beltið níu
sinnum.
f sömu grein er þess getið, að
mótið hafi ekki verið rismikið og
áhorfendur mjög fáir, og er þetta
rétt. En því miður má bæta við,
að á margt annað skorti. T. d.
mættu starfsmenn illa, og gögn
til keppninnar komu eftir að
keppni hófst, og stafaði þetta af
slæmum undirbúningi og ónógri
auglýsingu. Svo má og geta þess,
að glímudeild Glímufélagsins Ár-
-R-I-D-G-E
Eftir aðra umferð í Firma-
keppni Bridgesambands ís-
lands, er Trygging h.f. í fyrsta
sæti með 225 stig, spilari Ingi
björg Halldórsdóttir í öðru
sæti Fálkinn h.f. með 216 stig,
spilari Aðalheiður Magnús-
dóttir og í þriðja sæti Rekord
með 214 stig, spilari Hallur
Símonarson. Stig 20 efstu
fyrirtækjanna fara hér á eftir.
Trygging h.f. 225
Fálkinn h.f. 216
Rekord 214
Sparisj. Reykjavíkur og ngr. 213
Ora h.f. 213
Silli og Valdi, verzlun 209
Kr. Kristjánsson h.f. 209
Ölg. Egill Skallagrímsson h.f. 209
S. Árnason og Co. 207
Útvegsbanki íslands 206
Prjónastofan Malín 204
Efnagerðin Valur 204
Flugfélag íslands 204
Leiftur h.f. 204
Kr. Þorvaldsson og Co. 203
Akur h.f. 203
Almennar Tryggingar h.f. 203
Álafoss h.f. klæðaverksm. 202
Árni Jónsson, heildverzlun 202
Búnaðarbanki íslands 201
Síðasta umferðin verður spiluð
í kvöld, fimmtudag.
manns sá um mótið. (
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi var glímustjóri, og hefur
honum oft farizt vel að vera það,
þótt ekki sé hægt að segja það
sama, þegar hann hefur verið
glímudómari.
Yfirdómari var nú Ingimudur
Guðmundsson og með honum Þor-
steinn Kristjánsson og Hjörtur
Elíasson.
Það kom fram, sem áður hefur
sézt, að andlegir hæfileikar
sumra dómaranna geta komið fram
við vissa keppendur, og mætti nú
ætla ,að tímabært væri af að'il-
um glímunnar og keppninnar sem
íþróttar að gera andlega hreinsun
gagnvart slikum dómum.
Að lokinni keppni afhenti for-
seti Í.S.Í., Ben. G. Waage, verð-
laun. Hann sæmdi og Kjartan
Bergmann glímukennara þjón-
ustumerki Í.S.Í. fyrir störf hans,'
í tilefni þess, að hann varð fyrir
skömmu fimmtíu ára.
Þó áhorfendur og keppendur í
væru fáir, var mótið skemmti-.
legt og flestar glímurnar með á- í
gætum. Tólf keppendur voru skráð
ir, en sex mættu til keppni. Flest
ir þeirra, sem ekki mættu, boð-
uðu gild forföll.
Úrslit urðu þau, að Ármann J. i
Lárusson sigraði með fimm vinn-
ingum. Annar varð Kristján Heim
ir Lárusson með fjóra vinninga. ^
Þrír næstir urðu jafnir með tvo
vinninga hver, þeir Svein. Guð-
mundsson, Trausti Ólafsson og
Ilannes Þorkelsson. í úrslita-
keppni sigraði Sveinn báða, og,
varð þriðji.
Ármann J. Lárusson sigraði á'
fjölhæfan máta og felldi þessa
fimm keppinauta sína á jafnmörg
um brögðum og þeir voru. Úr-
slitabrögð hans voru fimm: vinstri
fótar sniðglíma á lofti. — hæl-
krókur hægri á vinstri, — utan-
fótarkrókur hægri á vinstri, —
mjaðmarhnykkur með hægri, —
og ’vinstrifótar klofbragð. I
Kristján Heimir hafði fjóra
vinninga og vann á fjórum brögð-
um. Úrslitabrögð hans voru fjög-
ur: vinstrifótar klofbragð með ut-
anfótar hægri á vinstri, — innan-
fótar hælkrókur, — vinstrifótar
klofbragð, — og hælkrókur hægri
á hægri.
Sveinn Guðmundsson hafði tvo
vinninga í aðalkeppninni og tvo í
úrslitum, og sigraði á tveimur
brögðum, en þau voru: hægri fót
ar klofbragð og vinstrifótar snið-
glíma á lofti.
Trausti Ólafsson hafði tvo vinn
inga í aðalkeppninni og einn í
úrslitum, og sigraði á tveimur
brögðum. Þau voru: vinstri fót-
ar klofbragð, og vinstri fótar hné
hnykkur. /
Hannes Þorkelsson hafði tvo
vinninga og sigraði á einu og
sama bragði í bæði sinn, en þau
voru: vinstri fótar klofbragð með
utanfótar krók hægri á vinstri.
Alir þessir menn glímdu að
mínu áliti vel.
Sjötti keppandinn, Hreinn
Bjarnason, er lítt reyndur í kapp
glímu og mátti sín ekki mikið,
enda var þarna við sérstaka úr-
valsmenn að eiga. En hann stóð
vel og lýtalaust að sínum glím-
um, þótt engan fengi hann vinn
inginn.
En eitt er vist, að það hefur
skeð að einn maður segði við ann
an: „Geturðu sagt mér hvað ég
sá?“ „Nei, ég sá það ekki,“ hefur
þá hinn svarað. — Það er gerð
krafa til keppenda, og keppend-
ur í hverri íþrótt sem er, verða
að leggja mikið á sig til að vera
keppnishæfir og fóma mörgum
stundum í æfingaskyni. En þess
á milli er ekki krafizt, að dóm-
arar æfi meira störf sín en að
dæma eina til fjórar — að engri
— glímu á ári; og samtímis missa
þeir viðbragðs- og eftirtökuflýti,
og sjón, ef þeir eru þá ekki sjón-
ar- og heyrnarsljóir fyrir. — Þeim
þykir og sárt, vegna fornrar
frægðar, áð vera með gleraugu
á dómaraandlitinu, en það er
misskilningur, enda myndu þau
hylja svipinn. Þ.V.E.
Frá Nemendasam-
bandi Kvenna-
skólans
Nemendasamband Kvennaskól-
ans í Reykjavík hélt aðalfund
sinn 13. marz s. 1. í Tjarnarkaffi.
Stjórnin var endurkosin, en hana
skipa: Ásta Björnsdóttir fonnaður,
Regína Birkis varaformaður, Guð-
rún Þorvaldsdóttir gjaldkeri, Mar-
grét Sveinsdóttir ritari og Sigríð-
ur Rögnvaldsdóttir meðstjórnandi.
| Samþykkt var að halda bazar
■ næst komandi haust. Vonar fé-
lagið, að sem flestir fyrrverandi
'nemendur sendi muni á bazarinn.
Forstöðu kona kvennaskólans,
frú Guðrún P. Helgadóttir, flutti
| fróðlegt og skemmtilegt erindi
um stofnun kvennaskólans og
stofnendur hans, þau hjónin frú
Þóru og Pál Melsted.
Nú hefur verið ákveðið að halda
skemmtifund miðvikudaginn 24.
maí kl. 7,30 e. h. í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Til skemmtunar verð
ur einsöngur: Kristinn Hallsson
óperusöngvari með undirleik Fr.
Weisshappel og listdans: Bryndís
; Schram. Spilað verður bingó. Góð
verðlaun verða veitt. Fluttar verða
gamlar skólaminningar.— Að-
göngumiðar verða afhentir í
Kvennaskólanum, þriðjudaginn 23.
maí kl. 5—7 e.h.
Stjórn Nemendasambandsins vill
eindregið hvetja eldri og yngri ár-
ganga skólans að fjölmenna á
fundinn, til að endurnýja kynni
skólaáranna og efla veg sambands-
ins.