Tíminn - 27.06.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 27.06.1961, Blaðsíða 6
 X 1 win is, prrojudagjnn 27. júní 196L INGÓLFUR DAVIÐSSON GRÓÐUR og GARÐAR Norsk alfræði- bók um garðyrkju Komin er út Jijá Aschehoug- forlagi í Ósló mikil garðyrkju- alfræðabók í tveimur bindum, nærri 1100 bls., prentaðar með fremur smáu letri, með um 8 þúsund uppsláttarorðum, 1500 ljósmyndum og teikningum og 64 heilsíðu litmyndum. Bindin kosta — fallega bundin — 165 kr. norskar, hvort, og munu fást með mánaðar afborgu'n- um. Ritstjórar eru: Oddvar Lund, Arne Thorsrud og K. S. Castberg. Hátt á annað hundr- að sérfræðingar hafa lagt til efni. — í þessu stórmerki er fræðsla um flest sem nöfnum tjáir að nefna í garðyrkju: Blómrækt úti og inni, matjurtarækt, trjá- rækt, ræktun grasbletta, með- ferð afskorinna blóma, ræktun ávaxtatrjáa og berjaranna, geymsla grænmetis, ræktun í gróðurhúsum, fræðsla um jurta sjúkdóma, plöntulyf og illgresis eyðingarlyf o. s. frv. Lýst er geysilegum fjölda plöntuteg- unda og sagt hvernig og hvar í Noregi þær þrífast. Ættu ís- lendingar að geta haft mikil hagnýt not af þessari miklu garðyrkjuhandbók, jafnt áhuga- menn og lærðir garðjrrkjumenn. — Stuttar yfirlitsgreinar eru um garðyrkju í Danmörku, Finnlandi, íslandi og Svíþjóð; greinar um jarðveg, jurtakyn- bætur c. fl., o. fl. Margar eða flestar myndanna eru nýjar, norskar myndir og teikningar, sem ekki hafa birzt annars staðar. Norsk hagebruksleksikon er nýjasta stórverk af þessu tagi á Norðurlöndum. Má óska Norð mönnum til hamingju með bók- ina. Ingólfur Davíðsson Minningarorð: Jón Egílsson, bifreiðastjóri „Þú varst alinn upp við svala andrúmssala loftið nóg, þar, sem Daladís við smala draumblíð hjalar vors í ró“. Jón Egilsson var fæddur og alinn upp í hinum breiðu byggð- um Borgarfjarðar, tign og fegurð. Hann var fæddur að Neðranesi í Stafholtstungum, sonur Egils Jó- hannessonar og Ingibjargar Jóns- dóttur, og voru þau bæði af borg- firzkum ættum. Er Jón var tveggja ára að aldri, hófu foreldrar hans búskap að Uppsölum í Norðurár- dal, og bjuggu þar um 10 ára skeið, en hættu þá búsýslu og voru í húsmennsku eftir það. Móð- ir Jóns dó 1930, en faðir hans nú fyrir nokkrum árum. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum til ferming- araldurs, og fór þá að vinna hjá vandalausum í þessum sveitum, bæði Norðurárdal, Þverárhlíð og Stafholtstungum, en foreldrar hans voru lengst af að Síðumúla- veggjum, og mun Jón alltaf hafa litið til með þeim, eftir að hann komst á þroskaaldur. Jón var íþróttamaður ágætur, sérstaklega lagði hann fyrir sig glímu og sund. Árin 1925—’27 var hann við nám í Laugaskóla. Eftir skólanámið tók hann upp sömu störf og fyrr í sveitinni. Á Stein- um var hann lengi, bæði fyrir skólagöngu sína og eftir. Þau hjón Kristján Björnsson og Rannveig Oddsdóttir, voru honum alltaf góð, og minntist Jón þeirÝa með virð- ingu og þökk. á Að eðlisfari var Jón sál. fremur MINNING Árni Guðmundsson (Árni úr Eyjum) Farinn ertu, frændi, feðranna stigu. Horfinn úr heimi, harður er var þér. Hnípinn ég horfi hljóður f mistrið Spurning, án svara, syerfur í hugann. Harður var heimur, hugprúði drengur. Grátt þér að gjalda gat hann þó ekki. SkLr var þinn skjöldur, skammlaus og rammur. Hetjan þó hnígi, helzt merki uppi. Girátt þér að gjal'da getur ei nokkur. Lffsglaður, ljúfur, laginn til sátta. Göfugur, góður gömlum sem ungum. Látinn þig lifa ljóðin þín .góðu. Lífsglaðuir, ljúfur lékstu þér forðum. hraustur og heitur hélzt út f lífið. Eyjunum okkar unnirðu mikið. Sakna þær sonar, söngljúfa drengsins. Hraustur og heitur hnepptur í fjötra. Hel og hvítidauði hremma þig reyndu. — Farinn ertu, frændi. Fengu þig bugað grimm og grálynd örlög. Guð veri með þér! 18/3 — '61. T. E. Skærinaur. hlédrægur, þó var hann jafnan ( hress og glaður við það fólk, sem : hann umgekkst. Árið 1929 flutti Jón til Reykja víkur og átti þar heima síðan. Vann þá alla algenga vinnu, eink um við húsbyggingar, en réðst fyrir allmörgum árum til Mjólk- ursamsölunnar og vann þar að útkeyrslu mjólkur. Þótti hann þar hinn ágætasti starfsmaður. Þess var áður getið, að Jón hefði sótt nám í Laugaskóla, en hann sótti þangað meira, því þar fann hann sinn ástkæra lífsföru- naut, sem var Guðrún Jónsdóttir bónda í Reykjahlíð, Einarssonar. Þau giftust í Reykjavík 20. febrú- ar 1930. Guðrún reyndist manni sínum hin ástríkasta eiginkona, og var honum stærst er mest reyndi á. Var heimili þeirra rómað fyrir gestrisni og myndarskap. Þau hjón eignuðust tvo syni: Snæbjörn Inga, kvæntan Þórunni Andrésdóttur Kerúlf frá Reykholti, og Egil Þór, kvæntan Regínu Ingólfsdóttur frá Siglufirði. f dag er gerð útför Jóns Egils- sonar vinar míns. Eiga þessi fátæk legu orð mín að vera hinzta kveðja mín til hans. Bið ég honum allr- ar farsældar í ókunna landinu. Við. kona mín og börn, sendum ástvinum hans og öðru vandafólki, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Jóhann Eiríksson. Bændur Tvær 15 ára stúlkur óska að komast á gott sveita- heimili. (Aðallega við úti- vinnu). Upplýsingar í síma 50846 milli kl. 4 og 5. • V • VV.W. Sveit Vantar að koma dreng ) sveit í 5—6 vikur. —_Upp- lýsingar í síma 18889. Húseígendur Standsetjum og girðum lóð- ir. Leggjum gangstéttir. Leitið tilboða. Sími 37434. í sumarfríið Tjöld 2—6 manna með föstum og lausum botni. Verð frá 835.— Sólskýli kr. 637.— Barnatjöld kr. 379.— ’ Sólruggustólar- Svefnpokar kr. 460.— Bakpokar Vindsængur frá kr'. 321.— Tjaldbotnar og hælar Ferðatöskur Prímusar Pottasett Mataráhöld í töskum Silva áttavitar PÓSTSENDUM. Sími 13508. Kjörgarði, Laugavegi 59. Austurstræti 1. ÞAKKARÁVÖRP Hjartans þakkir fyrir heimsóknir, gjafir og skeyti á sjötugsafmæli mínu 19. júni. Guðrún Jónsdóttir, Bræðraparti v/ Engjaveg. vw.x.x.v.vv.v.v.v.wvv.wv.x.w.v.v.v*- Innilegar þakkir til vandamanna og vina, sem færðu mér gjafir, heimsóttu mig eða á annan hátt sýndu mér vináttu og virðíngu á sjötugsafmælinu þann 23. þ. m. Ólafur Þorsteinsson, Hlaðhamri. Þakka innilega vinarhug og samúðarkveðjur vegrra andláts og iarðarfarar konu minnar Margrétar Þorsteinsdóttur, frá Kaldrananesi. Fyrir mína hönd o'g annarra vandamanna. Matthías Helgason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.