Tíminn - 27.06.1961, Síða 9

Tíminn - 27.06.1961, Síða 9
TlMINN, þriðjudaginn a7. júní 1961. 9 f dag eru liðin 10 ár síðan Krabbameinsfélag íslands var stofnað. Það er ekki langur starfstími, en eigi að síður er það sammæli flestra þeirra, sem skil kunná á þessum málum, að félagið hafi leyst af hendi mikilsvert starf og lagt traustan grunn að enn meira starfi, enda hafa hinir beztu menn þarna að unnið með Níels Dungal prófessor í fylk- ingarbr jósti. f tilefni af afmælinu er nýút- komið tlmarit félagsins, Frétta- bréf um heilbrigðismál, með ýms- um þáttum frá starfsemi félags- ins og um framtiðarverkefni þess. Fyrst var stofnað Krabbameins félag Reykjavíkur 8. marz 1949 en síðar félög í öðrum kaupstöð- um, en hinn 27. júní 1951 var stofnað samband félaganna — 1 Krabbameinsfélag íslands. Formað ur þess var kjörinn Níels Dungal, en meðstjórne-ndur Bjarni Snæ- bjömsson, læknir, Magnús Joch- umsson póstfulltrúi, Gunnar Guð- jónsSon, framfærslufulltrúi, Sig- ríður J Magnússon frú, Hallgrím ur Benediktsson, stórkaupmaður, Gunnar Möller lögfræðingur og Alfreð Gíslason, læknir. Tilgangur félagsins frá upphafi hefur verið, að berjast fyrir aukn , um krabbameinsvömum með því að fræða almenning um byrjun- areinkenni krabbameins, st.uðla að aukinni menntun lækna í þessari sérgrein, útvega lækningatæki og hjálpa krabbameinssjúklingum til að fá sem bezta og fullkomnasta læknishjálp, stuðla að krabba- meinstannsóknum o. fl. Félagið gekk síðan í alþjóðasamtök krabba meinsfélaga. Starfið hefur verið margþætt. Fjársöfnunardag eða merkjasöiu- dag hefur félagið haft 12. apríl. Fræðslustarfsemin hefur verið með ýmsu móti. Fræðslubækling ar gefnir út, kvikmyndir sýndar, skrásetning krabbameinssjúklinga. safnað skýrslum um reykingar á íslandi, opnuð skrifstofa á vegum félagsins, og 150 þúsund krónur lagði félagið fram til stækkun- ar Landsspítalans með tilliti til þess, að krabbameinssjúklingar fengju þar betra og aukið sjúkra- rými. \ v I Leitarstöðin Þó er ótalið mesta átakið í starfi félagsins, en það er stofnun krabbameinsleitarstöðvar árið ’56. Hefur hún starfað síðan og verið efld að tækjum og læknakosti. I Félagið hefur hlotið margvislegar j styrktargjafir, og ríkið hefur styrkt starfsemina í æ rikari mæli. Fyrstu þrjú árin rannsakaði leitarstöðin 1500 manns og fannst krabbamein í 1% þeirra. Þá hef- ur Níels Dungal staðið fyrir • all miklum rannsóknum um áhrif mataræðis til krabbameinsmynd- unar, og hafa fyrstu niðurstöður þeirrar rannsóknar nýlega verið birtar. Núverandi stjórn Krabbameins- félags íslands skipa, Níels Dung- al, formaður, Bjarni Bjarnason, læknir, Hjörtur Hjartar, framkv,- stjóri, Gunnar Möller, hrl„ Frið- rik Einarsson, læknir, Bjarni Snæ björnsson, læknir og Ingibjörg Ögmundsdóttir, símstöðvarstjóri. Síðast í Fréttabréfi um heil- brigðismál er grein, sem heitir: Hvað er framundan? Ræðir Níels Dungal þar þau verkefni, sem við blasa, og hvernig snúizt verði við þeim að fenginni reynslu. Þykir rétt að birta þá grein, og fer hún hér á eftir: „Til þess að auðvelda innsýn í framtíðina er þekking á fortíðinni nauðsynleg. Þegar við nú höfum litið yfir 10 ára starf K.F.f. er ekki óeðli- Starfsfólk leitarstcSvar Krabbameinsfélagsins — RíkharS Thórs, iæknir, Guðrún Bjarnadóttir, rannsóknarstofu- stúlka, Halldóra Thóroddsen, skrifstofustúlka og Gunnlaugur Snædal, læknir. Baráttan við mannskæðasta sjúkdóminn er hörð Krabbameinsfélag íslands 10 ára Prófessor Niels Dungal, formaður Krabbameinsfélags íslands. legt að spurt sé: „Hefur þessi strf semi þá fært okkur nær markinu langþráða, sigri á hinum mikla óvini, krabbameininu?" Eg segi hiklaust já, því að þótt aðeins einum sé bjargað, þá er það nokkur árangur. En það er svo erfitt að mæla árangur af starfi eins og þessu í tölum, ekki sízt þegar um svo margþætt starf er að ræða, sem raun ber vitni. Við skulum snöggvast rifja upp aðalþættina; þeir eru fjórir, og á þeim verður byggt framvegis: 1. Heilsuverndarstarf á 1. stigi. Þar á ég við hvers konar fræðslu- starfsemi, svo sem fyrirlestra, blaðagreina, bæklinga og mynda- sýningar, sem leitast við að út- skýra helztu orsakir til krabba- meins. f því sambandi hefur verið sérstaklega brýnd fyrir mönnum hættan af sígarettureykingum, sem ekki leikur nokkur vafi á, að er raunveruleg. Af slíkum ráðstöf- unum, sem þessum, sézt árangur sjaldan fyrr en löngu eftir á. 2. Heilsuverndarstarf á 2. stigi. Þar er átt við leit að krabba- meini á byrjunarstigi þegar lækn ing er auðveldust. Þetta er hið mikla starf leitarstöðvarinnar, sem þegar hefur gefið ótvíræðan árangur, eða um einn af hundr- aði, 1%, og er þar um að ræða 10—20 manns, sem annaðhvort hefur verið bjargað, eða fengið mikla hjálp. Góð röntgenskyggningartæki, hvar sem er á landsbyggðinni, stuðla Igð sjúkdþmsgreiningu á byrjunarstigi, ög hafa því krabba meinsfélögin stutt fjárhagslega kaup á slíkum tækjum. 3. Bætt aðstaða til lækninga getur gefið skjótan og góðan ár- angur í tilteknum tilfellum. Þess vegna var það eitt af fyrstu verk- um krabbameinsfélaganna að gefa röntgendeild Landspítalans hin fullkomnustu geislalækningatæki, sem kostuðu um 250 þús.und krón- ur. Einnig hefur verið gefið fé til stækkunar á Landspítalanum, til að auðvelda vistun krabba- meinssjúklinga til rannsókna og lækninga. 4. Grundvallandi vísindarannsóknir Þar er átt við hina víðtæku krabba meinsskráningu, sem hér hefur farið fram, bæði með tilliti til kyns, aldursflokka, sérstakra líf-1 færa svo og útbreiðslu eftir lands- hlutum. Árangur af slíku starfi sem þessu er hvað erfiðast að mæla, en hann er einn liður í rannsókn- arkeðju, sem nær um alla jarðar- kringluna, og þar er vegið að rót- um meinsins. Þessi íslenzki hlekkur kann að verða mjög mikilvægur, sé hann vel unninn, vegna sérstaklega hag stæðrar aðstöðu hér, þar sgm rann sóknarsviðið er tiltölulega vel af- markað, fólkið vel uppfrætt, og læknar og vísindamenn með lif- andi áhuga og starfi sínu vaxnir Alla þessa fjóra þætti verður að halda áfram að byggja ofan á í framtíðinni, því að varla verðu^ um að ræða neina eina ráðstöfun eða eitt undralyf, sem ráði niður lögum krabbameinsins frekar en átti sér stað með berklana, þótt sigur ynnist að lokum. Það verður • að halda áfram fræðslustarfsemi. Með henni einni saman mætti gera sér vonir um að sigrast á sígarettukrabbanum Það þarf að auka leitarstarfsem ina væri ekki til of mikils æt! allir. sem komnir eru ugt gengju undir til- tekna’* rannsóknir árlega, eða annað hvort ár, : heiisuverndar- skyni. Það þykir ekki nema sjálfsagt þegar í hlut eiga bifreiðavélar eða bátavélar, að láta fara fram ár- lega skoðun. Hin geislavirku efni kjarnorku- aldarinnar, hinar svokölluðu ísó- topur, lofa miklu, sem árangursrík lækninga- og rannsóknartæki og skurlækningatækninni hefur fleygt fram á síðustu árum. Lækn ar hér á landi fylgjast vel með í þessari þróun og standa vonir til, að lísskiiyrði batni að miklum mun við stækkun Landspítalans. Rannsóknarstofa Háskólans þarf einnig á auknu húsrými að halda fyrir hina mikilvægu rannsóknar- og vísindastarfsemi, sem þar er rekin undir handleiðslu prófess- ors Dungals. Þetta eru rannsókn- ir, sem nú hafa vakið athygli víðá utan landssteinanna í hópi vísinda manna, og standa vonir til að hr~ verði að byggja á þeim víð- tækari rannsóknir á grundvallar- orsökum krabbameinsins Það gætir vaxandi bjartsýni á meðal vísindamanna, sérstaklega eftir að tekizt hefur að sanna, að veirur valdi krabbameini í mjög BJarni Bjarnason, læknir, furmaður Krabbameinsfélags Reykja víkur og Laeknafélags Reykjavíkur. ’ mörgum tilfellum, þ.e.a.s. að veir ur komi til sögunnar, eða nái tök um, þegar sérstök skilyrði hafa skapazt — þegar mótstöðuafl til- tekinna frumuhópa, eða alls lík- amans hafi lamazt meira eða minna. Þetta hefur sérstaklega beint athygli manna að möguleikum á ónæmisaðgerðum eins og við aðra bakteríu eða veirusjúkdóma og eftir þeim leiðum er nú unnið af kappi á rannsóknarstofnunum víða um heim, undir handleiðslu hinna frægustu manna. Þess má geta, að dr. Salk, sem frægur varð fyrir uppgötvun lömunarveikis- bóluefnis, er einmitt kominn í þessar rannsóknir. Á sínum tima skaut upp þeirri hugmynd, að tímabært væri að setja á fót hér í bæ stofnun, þar sem fólki væri gefinn kostur á nákvæmri læknisskoðun í heilsu- verndarskyni, en þó aðallega mið uð við leit að krabbameini. Slíkar stöðvar höfðu þá um skei.ð verið reknar sums staðar erlendis, m.a. í Bandaríkjunum. Aalhvatamaður að hugm^ndinni mun hafa verið Alfreð Gíslason, læknir. Ekki var þó málið rætt sérstaklega á vegum l krabbameinsfélaganna fyrr en á stjórnarfundi hjá Krabbameins- i félagi ísl. 6. nóvember 1954. Þá voru kosnir í undirbúningsnefnd þeir próf. N. Dungal, dr. med. Friðrik Einarsson, læknir og Al- freð Gíslason, læknir. Var þá þeg ar undirbúningur hafinn, en „leit arstöðin“ var ekki opnuð fyrr en 14. maí 1957, og var það þá Krabbameinsfélag Reykjavíkur, sem samkv. tilmælum K.F.f tók að sér rekstur stöðvarinnar. Hlutverk „leitarstöðvarinnar11 er fyrst og fremst að finna krabba mein á frumstigi, eða áður en sá, sem ber það, verður sjálfur nokk urra einkenna var, en þá eru lækn isaðgerðir taldar miklum mun auð veldari og batahorfur að sama skapi meiri. En þótt krabbameins leitin sé þannig aðalverkefni stöðv arinnar, verða aðrir sjúkdómar, er kunna að finnast, ekki „forsóm aðir“, Sú nákvæma læknisskoðun, sem þar fer fram, getur leitt ým- islegt í ljós, og er það einnig mik- ilsvert heilsu og lífi, að þeir kvill ar greinist líka á byrjunarstigi. Það er mikið öryggi í því fólgið að láta rannsaka heilsufarið öðru hvoru, þótt sjúkdóms hafi ekki orðið vart. Krabbameinsfél. Reykjavíkur rak leitarstöðina í eitt ár, en sök- um fjárskorts hafði félagið ekki bolmagn til þess lengur óstutt, og varð það úr, að Krabbameinsfélag íslands hljóp undir bagga og tók við rekstri stöðvarinnar og hefur haft hann síðan. Richard Thors læknir, var fyrsti maður, sem ráð inn var hjá stöðinni, ásamt aðstoð arstúlku, og litlu síðar byrjaði Gunnlaugur Snædal, læknir, og starfa þeir báðir enn þá. Ólafur Bjarnason, læknir, vann fyrsta ár- ið hjá stöðinni við frumurannsókn ir með hjálp áðstoðarstúlku, Sig- ríðar Pétursdótt.ur, sem send var á vegum félagsins til Ameríku til að kynna sér þessar rannsóknir. Um tíma vann einnig Ólafur Jens son, læknir, sem mun vera eini læknirinn á fslandi, sem stárfar nú að þessum rannsóknum, en þeg ar Krabbameinsfélag Reykjavíkur hætti að annast rekstur stöðvar- innar, voru þessar rannsóknir lagð ar niður hér á landi á vegurn krabbameinsfélaganna og eru nú framkvæmdar í Osló. Aðsókn hefur verið mikil allan þennan tíma. Til að byrja með var ekki hægt að anna eftirspurn og var þá fólk á biðlista marga mánuði fram í tímann. Þá var skoðanatímum fjölgað um helming og hefur biðtími síðan ekki verið teljandi. Erfitt er að segja um árangur, því aðeins rúmlega 2 þús. manns hafa verið skoðaðir. Eftir því sem næst verður komizt mun 1% af 'Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.