Tíminn - 02.07.1961, Blaðsíða 14

Tíminn - 02.07.1961, Blaðsíða 14
14 T í MIN N, Iaugardaginn 1. júlí 1961. / boðið honum, fyrr en hann kom til tedrykkj unnar. Þú gerðir því skóna, að við vær- um gamlir vinir, af því ég skiptist á orðum við hann á stíghum. Og við vorum alls ekki vinir þá .... — En þú vissir að minnsta kosti, hver hann var? — Nei, ég vissi það alls ekki þá, sagði Shirley og reyndi að tala stillilega. — Hann kynnti sig fyrir mér sem Brown og ekki datt mér í hug að ve- fengja það. — En hvers vegna sagðirðu mér þá ekki frá því, eftir að þú uppgötvaðir hið rétta? — Mér fannst það engu máli skipta. , — Þú átt við, að þú hafir bara orðið ástfangin af þessu kvikmyndaleikaraútliti hans? — Ég varð hreint ekki ást- fangin af útliti hans, sagði hún rólega og það var hverju orði sannara, — það var svo margt annað í fari hans, sem auðvelt var að hrífast af. — Jæja, vinan, við skulum ekki fara að rífast, sízt af öllu um jafnleiðinlegan mann og John Jackman. Hann tók hönd hennar og þrýsti hana fast, og hún hafði mesta löngun til að slíta sig lausa. — Settir þú töskuna mína í geymsluhólf eins og ég bað þig um? — Já, Robert. — Það.^var falléga gert af þér. Heríri Reni er nefnilega dáinn. Ég var að frétta það. — Er hann dáinn? — Já, hann hefur verið heilsuveill lengi og hefur haft alltof mikið að gera, og þvi miður valdi hann létustu leið- ina út úr ógöngunum. — Áttu við, að hann hafi framið sjálfsmorð? spurði hún og bætti varfærnislega við: — Er það sannað — Ekki enn,en ég er sann- færður um að svo hefur verið. Hann reis upp og studdist við hækjurnar. — En dauði Renis er alvar- legt áfall fyrir mig. Við höfum átt saman áríðandi og þýðing- armikil viðskipti, en nú lítur út fyrr, að ég verði að ganga frá því einn og það strax. Gaston á frí í kvöld, faðir hans er veikur.’ Ein af kunn- ingjakonum mömmu, frú van Nestor, kemur til kvöldverðar, og ég hef hugsað mér að biðja hana að aka mér aftur til Nice. Ég verð hjá vinum mín- um í nótt, og á morgun get Jennifer Ames: Grímuklædd / hjörtu 27. ég gengið frá viðskiptamálum mínum, þó að sunnudagur sé. Gaston sækir mig á morgun. Þetta hafði hún heyrt Pierre segj a við greifynj una, en hann hafði einnig sagt, að Robert hefði sýnilega pakkaö niður til langrar ferðar. — Þú sagðir mér einu sinni, að þú þekktir ekki frú van Nestor, sagði Shirley eftir nokkra þögn. Hann leit hvasst á hana, þar sem hann stóð fyrir framan hana. — Ég geri það heldur ekki, hún er að minnsta kosti ekki persónuleg vinkona mín. Mamma þekkir hana og í gær hringdi hún og mamma bauð henni þá hingað. Shirley var ljóst, að hann var að ljúga eins og hann hafði logið um Henri Reni. — Fyrst ég fer sjálfur til Nice, þarf ég á töskunni minni ag halda. Viltu vera svo væn og láta mig fá lykilinn að hólfinu. — Já, en ég er ekki með hann. — Hvað segirðu? Er hann á herbergi þínu eða hjá hús- verðinum? — Nei, ég bað einn vina minna að geyma hann. Hann lofaði að gæta hans vel. Hann hreyfði sig svo snögg- lega, acJ hækjurnar duttu, en áður en hún hafði getað stokkið á fætur, hafði hann beygt sig eftir þeim af undra- verðri fimi. — Þú hlýtur að vera brjáluð, sagði hann. — Já, en ég hitti hann aft- ur á mánudaginn, og þá skilar | hann mér lyklinum, sagði hún og um hana fór hræðslu- hrollur. Aldrei hafði hún séð annan eins æðissvip á nokkr- um rnanni. — Á mánudaginn. Ég verð að nota hana í dag! Eg, sem treysti þér. — Mér þykir það leitt, Ro- bert, en ég vildi helzt ekki týna honum. — Hvaða vinur þinn er þetta? — Hann er blaðamaður. — Blaðamaður! Hann sér kannske .... Það er ekki hægt að treysta blaðamönnum. Þú ert vitlaus. Við verðum að hafa samband við hann strax .... Þau fóru inn og hringdu á • Hotel Angleterre og spurðu j eftir Paul Hurd, en hánn vár ekki við og ekki vitað, hvenær hans var von. • Robert lét liggja fyrir hön- um skilaboð og sneri sér að Shirley. — Þegar. hann hringir, verð ur þú að segja honum, að ég verði að fá töskuna mína sam- stundis. Biddu hann að skilja lykilinn eftir hjá dyraverðin- um.'Ég verð að fara upp og skipta um föt. John var enn ekki kominn. Hún gekk út á veröndina og hugleiddi, hvar John væri all- an þennan eilífðartíma. Allt í einu heyrði hún hvíslandi rödd: Shirley, gangið dálítinn spöl niður eftir veginum. Ég verð að tala við yður. Það var Paul Hurd. 16. kafli. Hún hitti hann nokkru neð- ar á veginum, þar sem trén byrgðu útsýnina. — Hvað hefur komið fyrir, Paul? Vonandi ekkert með John? — John? Já, hann fór niður stíginn til hengiflugsins og hann er ekki kominn aftur. — Eruð þér kvíðafullar? — Já, þér hefðuð ekki átt aö koma. Ég hef verið að reyna að hringja til yðar. — Hvers vegna? — Robert vill fá töskuna sína. Hann fer til Nice í kvöld til að ganga_ frá einhverjum viðskiptum. Ég sagði honum, að þér væruð meö lykilinn. — Hvernig tók hann því, að ég væri með lykilinn? — Hann var ekkert hrifinn. — Nei, því get ég trúað. Hann varð svo reiður, að ég varð hálfhrædd. — Eg vona að hann hafi ekki gert yður mein — Nei, en hann fór strax inn og pantaði samtal við yð- ur. Eg átti að segja yður að skilja lykilinn eftir hjá dyra verðinum. — Eg er ekki með lykilinn lengur, afhenti lögreglunni.. — En hvers vegna í ósköp- unum .... — Munið þér ekki, að ég sagði á hótelinu, að ég vildi ekki að þér yrður ákærðar fyr ir neitt, sem þér hafið ekki komið nálægt? Eg sagði lög- reglufulltrúanum söguna yð- ar og honum fannst hún af- skaplega forvitnileg, einkum eftir að Reni lögfræðingur 15,30 16,10 17,30 Sunnudagur 2. júlí: 8j30 Létt morgunlög. 9,00 Fréttir. 9,10 Morguntónleikar. 11,00' Messa í Laugarneskirkju (Prestur: Séra Garðar Svavars son; organleikari Kristinn Ing varsson). 12,15 Hádegisútvarp. 13,20 Útvarp frá opnun Matthíasar- safns á Akureyri. Ræður flytja Marteinn Sigurðsson form. Matthíasarfélagsins á Akur eyri, Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi, séra Sigurður Stefánsson vígsluhiskup á Möðruvöllum og dr, Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra. (Hljóðritað á Akureyri supnu- daginn 25. júní s. 1.). 14,00 Miðdegistónleikar: a) Carlo Bergonzi syngur óperuaríur. Hljómsveit Santa Cecilia tónlistarháskólans í Rómaborg leikur með. Gian- andrea Gavezzini stjórnar. b) „Svanavatn" — balletttón- list op. 20 eftir Tsjaikovski. — NBC-sinfóníuhljómsveitin leik ur. Leopold Stokowski stj.). Frá landsmóti Ungmennafé- lags íslands á Laugum. (Sig. Sigurðsson). Sunnudagslögin. Barnatími (Helga og Hulda Val’týsdætur): a) Visur úr sögunni: „Föram til Fiskalands" eftir Ingebrigt Davik (Höfundurinn syngur). b) Upplestur. c) Framhaldsleikritið: „Leyni- garðurinn", VII. þáttur. Leik- stjóri: Hildur Kalman. 18.30 Tónleikar: „Myndir frá ítaliu". Hollywood Bowlhijómsveitin leikur vinsæl lög. Carmen Dragon stjórnar. 19,00 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20,00 „Um lax og silung" — dag- skrá, sem Sveinn Skorri Höskuldsson magister tekur saman. 20,45 Kvöld í óperunni (Sveinn Ein arsson). 21.20 „Fréttapistlar úr fuglaparadís inni“ (Birgir Kjaran alþm.).. 21.40 Tónleikar: íslenzk sönglög við kvæði um fugla. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 3. júlí: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15,00 Miðdegisútvarp. 18.30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd- um. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20,00 Um daginn og veginn (Helgi Hjörvar rithöfundur). 20.20 Einsöngur: Einar Markan syngur (plötur). 20.40 Af vettvangi dómsmála (Há- kon Guðmundsson hæstaréttar ritari). 21,00 Tónleikar: Mansöngur fyrir strengjasveit op. 22 eftir Dvorák, Fílharmoníska hljóm- sveitin í Leningrad leikur. — Khaikin stjórnar). 21.30 Útvarpssagan: „Vítahringur" eftir Sigurd Hoel'; XVI, lestur (Arnheiður Sigurðardóttir). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Búnaðarþáttur: í sláttarbycjun (Kristján Karlsson erindreki). 22,25 Kammertónieikar: Konsert í D-dúr op. 21 fyrir fiðlu, píanó og strengjasveit eftir Chaus son. Yehudi Menuhin leikur á fiðlu, Louis Kentncr á píanó ásamt Pascal-kvartettinum. 23,05 Dagskrárlok, EIRÍKUR VÍÐFFÖRLI Hvíti h r a f n i n n 127 Hávaðinn, sém hafði aðvarað Kálf, reyndist stafa frá tveimur af mönnum Morkars. Án þess að þeir yrðu þess varir, læddist Eiríkur nær til þess að heyra, hvað þeir ræddu um, en þegar hann græddi ekkert á því, gaf hann hinum merki og þeir komu fram. Þessir tveir menn voru meira en fúsir að gefa allar þær upplýsingar, sem Eiríkur óskaði að fá. Hvíti hrafn- inn hafði komið nauðugur til kast- alans með Ragnari og mönnum hans, og var strax járnaður ásamt þeim mönnum, sem reynzt höfðu Elínu trúir. — Við komumst und- an eftir leynigöngum hennar, sagði annar hiannanna, — en við sáum, hvar Bryan var færður til klefa síns, og Morkar sagði, að maðurinn væri veikur. — Þið verðið að komast til Seathwyns og segja honum tíðindin, sagði Eirík- ur. Ég fer til kastalans og reyni að frelsa þessa fimmtíu og eitt- hvað menn, sem eru þar í dýflyssu en fyrir alla muni komið Seath- wyn í skilning um, að vilji hann finna son sinn lifandi, verði hann að koma til kastalans og berjast við hlið mina.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.