Tíminn - 12.08.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.08.1961, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, laugardaginn 12. ágúst 1961. M I N N I N G: Gústav A. Jónasson, ráöuneytisstjóri Hann varð bráðkvaddur hinn t 14 f.m. í Kaupimannahöfn. Hann hefði orðið 65 ára í dag. Hann var fæddur 12. ágúst 1896 að Sól- heimatungu í Stafholtstungum. Stúdent varð hann 1918 og varð cand. juris. vorið 1924. Að em- bættisprófi loknu stundaði hann lögfræðistörf í Reykjavík, þar til hann var skipaður fulltrúi lög- reglustjórans í Reykjavík árið 1927. Gegndi hann því starfi til ársins 1937, en þá var hann skip aður lögreglustjóri í Reykjavík.! Eftir rúmlega tveggja ára starf í embætti lögreglustjóra var hann skipaður skrifstofustjóri í dóms-. og kirkjumálaráðuneytinu. Því ambætti, síðár sem ráðuneytis- ! stjóri, gegndi hann síðan til dán-| ardags, eða rétt um aldarfjórð- ung. Auk embættisstarfanna' gegndi Gústav ýmsum trúnaðar-' störfum svo sem formennsku í nefndum, sem sömdu lagafrum- vörp o. fl. Gústav kvæntist eftirlifandi konu sinni, frú Steinunni Sigurðardótt- ur, Sivertsens, prófessors, hinni ágætustu konu, árið 1929. Þau eignuðust fjögur böm, tvær dæt- ur og tvo syni, sem öll eru upp-. komin. Hið yngsta þeirra, Jónas, tók stúdentspróf sl. vor. Eg átti þeirri gæfu að fagna að hafa meiri og minni samskipti við Gústav síðustu 25 árin. Sem sýslumaður þurfti ég oft til hans að leita og síðustu árin vorum við báðir starfsmenn í stjórnar- ráðinu og þá lágu leiðir okkar oft saman. Það var gott að reka er- indi sín við Gústav, hvort heldur að leita til hans ráða og leiðbein- inga eða annað. Hann var mjög glöggur og fljótur að setja sig inn í málin, og tillögur hans og ráð i voru holl og farsæl. Hann fjallaði ætíð um mál þau, sem til hans komu, án hlutdrægni, með rétt-j sýni og velvilja. Persónuleiki Gústavs var að ýmsu leyti sérstæður. Hann var skarpgáfaður, skáldmæltur og ! góðlátlega fyndinn og kíminn með | afar næma tilfinningu fyrir hin-| um broslegu fyrirbærum lífsins.! Hlýlegt viðmót hans, skemmtileg . tilsvör og athugasemdir, sem jafn j an voru á reiðum höndum, gleym1 j ast seint þeim, er þekktu hann bezt. Sem starfsbróðir reyndist hann mér ætíð tillitssamur og hjálpfús og á þau samskipti bar aldrei skugga. i Því miður átti Gústav við mikla : vanheilsu að stríða um áratugi. ’ Hin síðari árin var hann oft sár- þjáður. Þau örlög bar hann með , hetjuskap og rósemi og glataði | aldrei þeim léttleika í viðræðum, j sem var honum svo eiginlegur, þrátt fyrir allar þjáningar. Að lokum vil ég færa þessum látna vini og starfsbróður inni- legar þakkir fyrir ágæta viðkynn- ingu og ógleymanlega samfylgd. Ástvinum hans sendi ég mínar beztu samúðarkveðjur. I Reykjavík, 12. ágúst 1961, Hjálmar Vilhjálmsson. SJOTUGUR: Maríeinn Sigurðsson, bóndi á Hálsi í Kalda-Kinn Laugardaginn 22. júií s. 1. varð Marteinn Sigurðsson bóndi að Hálsi í Kaldakinn, sjötugur að aldri. Hann er fæddur að Bjarnarstöð- um í Bárðardal 22. júlí 1891, son- ur hjónanna Guðiúnar Marteins- dóttur og Sigurðar Jónssonar bú- fræðings, er þar bjuggu þá og voru gagnmerk og af landskunn- um kjarnaættum. Guðrún lifir enn, tæplega níræð. Hún var góð kona og vel metin og þótti á sín- um tíma framarlega í hópi glæsi legustu kvenna í héraði. Sigurður ■var gáfaður maður og fróðleiks- þyrstur. Hann er nú látinn fyrir noikkrum árum. Hann var víða kunnur um landið, vegna ferða sinna sem túlkur á dögum Mikle steds og fjárkláðans. Sigurður var tungumálamaður meiri en almennt gerðist í hópi bænda og að mestu vegna „sjálfsnáms" og varð frægt, er hann hóf þýzkunám sitt um sjötugsaldur. Var hann þá sinn eigin kennari og kominn ótrúlega langt, að fróðra manna sögn, er hann var af þeim, er deginum ræður, kallaður frá námi. Æskuárum sínum eyddi Mar- teinn að mestu í föðurgarði, eins og margir fleiri á þeim árum. Nam hann þar þau fræði, er mörg- um hafa drjúg orðið. Einn vetur var hann þó við nám á unglinga- skólanum á Ljósavatni og sund- nám stundaði hann hjá Lárusi Rist, með þeim árangri, að hann varð með beztu sundmönnum hér um slóðir og stundaði sundkennslu víða. Með framangreint nám að baki, hóf Marteinn á Hálsi að yrkja sína eigin sögu og finnast ekki rök fyrir því í dag, að honum hafi orðið menntunarskortur að fóta- kefli. Árið 1923 gekk Marteinn að eiga heitkonu sína, Aðalbdörgu Jakobsdóttur frá Skiiðulandi í Að- aldælahreppi. Keyptu þau jörðina Háls í Kinn og reistu þar bú. Árið 1953 varð Marteinn fyrir þeirri sorg að missa konu sína eftir 30 ára samfellda samvinnu og sigurgöngu í búskapnum. Aðal- björg var greind kona og háttvís og mörgum harmdauði. En lífið hlýtur að hafa smn gang. Þau hjónin áttu' 5 mannvænlega syni, suma fullvaxta, en hina á ung- lingsárum. Samvinna var ágæt á heimilinu og búskapurinn héit áfram, þótt lamaður væri um stund. Enn veitir Marteinn forystu hinu þróttmikla búi á Hálsi, með vasklegri aðstoð sona sinna tveggja, sem enn dvelja rótfastir í föðufgarði og munu taka við búi þar á sínum tíma. Marteinn hefur rekið arðsaman búskap á Hálsi, alla sína búskap- artíð. Á þingeyska vísu hefur hann stórbú. Hann er heyaflamað- ur mikill og fornbýll, fjárhagur traustur og úrræði nóg. Hann er gildur bóndi og virður vel. Hin síðari ár hefur hann breytt jörð sinni í fullkomið nútíma horf: 1 Byggingar miklar, túnin stór og vel gerð. Rafmagn til ljósa og hit-. unar, súgþurrkun í hlöðum og vot heysgerð og allur vélakostur í samræmi við húsabætur og ræktun. Það er mikils virði fyrir hverja sveit, að eiga í fórum sínum sem stærstan flokk hollráðra góð- bænda. í fámenni sveitanna eru þeir ávallt undirstaða hverrar nýrrar aldar. Sigur hverrar orr- ustu fer síður eftir mannfjölda en því, hvernig liðsmennirnir reyn- ast. Marteinn á Hálsi er ör í lund og ákafamaður í starfi. Hann er af- kastamaður, en kröfuharður um að verkin séu vel gerð. Hann segir hverjum meiningu sína í Ijósu máli, þegar eftir er leitað og fundvís á færar leiðir í málefnum, sem eru marghliða. Til viðbótar margþættum bú- störfum, 'munu fingraför Marteins sjást býsna víða i Kinn, því oft hefur hann komið þar við sögu, bæði í ungmennafélagi, íþrótta- málum, búnaðarmálum, samvinnu-j málum, söngmálum og kirkjumál- um og alls staðar til heilla. Enn' er hann sem ungur maður og vel tækur í ungmennahóp, þegar á þarf að halda. Enn ber hann hátt í röðum bændanna í Kinn.1 Enn gæti hann verið forystumaður í sláturhúsi K.Þ. þegar haustar,1 eins og áður fyrr. Enn gæti hann verið sundkennari í héraði og enn (Framhald á 13. síðu). » V‘*V»V*V'V*V»V Sitt af hvoru Með áuglýsingu þessari viljum við gefa mönnum kost á að eign- ast neðantaldar bækur meðan enn er kostur að fá þær. Kápur sumra bókanna eru ekki vel hreinar. Tónlistin. Sígild bók um tónlist og tónskáld, þýdd af dr. Guð- mundi Finnbogasyni. 190 bls. Ób. kr. 25.00. Darvinskenning, þýdd af dr. Helga Pjeturss, 84 bls. Ób. kr. 10.00. Germania, þýdd af Páli Sveinssyni. 88 bls Ób. kr. 10.00. Um frelsið, e. J. Stuart, þýdd af Jóni Ólafssyni ritstj. 240 bls. Ób. kr. 30.00. Mannfræði e. R. Merritt, þýdd af dr. Guðmundi Finnbogasyni, 192 bls. Ób. kr, 15.00. Býflugur e M. Materlinck, þýdd af Boga Ólafssyni. 222 bls. Ób. kr 25.00. • Æska min, e. Leo Trotski, í þýðingu Karls ísfelds. 190 bls. Ób. kr. 15.00. Æringi. Gamanrit í bundnu og óbundnu máli um stjórnmál og þingmál um aidamótin. 48 bls. Ób. kr. 20.00. Æska Mozart. Heillandi frásaga um æskuár undrabarnsins Moz- arts. 80 bls. Ób. kr. 10.00. Uppsprettulindir. Fyririestrar e. Guðm. Friðjónsson frá Sandi. 90 bls. Ób. kr. 10.00. Um vinda. Alþýðleg veðurfræði, útg. 1882 102 bls. Ób. kr. 25.00. Matur og drykkur, þýð. dr. Björg Þ. Blöndal. 222 bls. Ób. kr. 30.00. Lítil varningsbók, samin af Jóni Sigurðssyni, forseta. Útg. 1861. Fáséð. 150 bls. Ób. kr. 100.00. Páll postuli, e. próf Magnús Jónsson. 316 bls. Ób. kr. 50.00. Galatabréfið. e. próf. Magnús Jónsson. 128 bls. Ib. kr. 40.00. Noregur undir oki nazismans, e. J. S. Worm-Muller. 168 bls. Ób. kr. 20.00. Ferðasaga Árna Magnússonar frá Geitastekk. 200 bls. Ib. kr. 50.00 Ættgengi og kynbætur e. F. K. Ravn. Margar myndir. 118 bls. Ób. kr 20.00. Merkið X við þær bækur sem þér óskið að fá. Skrifið nafn og heimilisfang greinilega. BARNABÆKUR: Rófnagægir. Fræg, þýzk barnasaga. 38 bls., ób. kr. 5.00. Sögurnar hans afa og fleiri ævintýri, e. Sólveigu Eggertz Péturs- dóttur. 88 bls. Ib. kr. 20,00. Rósalind. Skemmtileg og falleg saga fyrir telpur. Með myndum. 48 bls. Ib. kr. 10.00. Piltur eða stúlka. Fjörleg og gamansöm saga fyrir pilta og stúlkur. Með myndum. 170 bls. Ib. kr. 25,00. NAFN ............................... * fldýra bóksalan Box 1%. Reykjavík Eiginmaður minn . Áskell Þortcelsson sem andaðist 5. þ m„ verður jarðsunginn f Hrísey þriðjudaginn 15. þ. m. kl. 2 síðdegis. Lovísa Jónsdóttir Jón Kristinn Gunnarsson, Gunnarshúsi Eyrarbakka andaoisf i Landspítalanum 10. ágúst, Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd systkinanna. Axel Gunnarsson Vlð sendum hugheilar þakkir til a3ra, er auðsýndu okkur sam. úð og hluttekningu vlð andlát og jarðarför móður okkar Kristínar Jónsdóttur, Stóragerði 28. Börnin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.