Tíminn - 12.08.1961, Side 16
Laugardaginn 12. ágúst 1961.
181. blað.
Grettir f I iótvirk-
ur á Þórshöfn
Þórshöfn, 10.8. — Heyskap
ur gengur mjög erfiðlega, en
enginn verulega góður þurrk-
dagur hefur komið hér á öll-,
um slættinum.
Þurrkflæsur undanfarna daga.
hafa þó bætt úr skák, en sumir
hafa þó fengið rigningu ofan í
flatt. Þeh’, sem hafa súgþurrkun,
eru búnir að hirða talsvert, en
aðrir lítið. Spretta er aftur á móti
góð, en ílla lítur út um seinni
slátt, ef þessu fer fram.
Hér hefur verið saltað í tæpar
300 tunnur og er söltun lokið.
Grettir var að grafa hér í höfninni
um daginn og lauk verkinu hálf-
um mánuði á undan áætlun. Hann
gróf 100 m radíus út frá gömlu
bryggjunni fyrir tveimur kerum.
Annað er búið að steypa hér og
hitt verður steypt næsta sumar.
Trillur i'óa héðan með línu og
stærri bátar með færi. Afli hefur
verið sæmilegur. Engin samkoma
var hér um verzlunarmannahelg-
ina, en leikflokkur Lárusar Páls-
sonar hafði Kiljanskvöld hér á
mánudaginn, og var það ein bezta
skemmtun, sem fólk hér um slóðir
hefur sótt, að flestra dómi.
Sjómarkiö og
Bretland
í tiýhundrað ár á havinum hevði
Bretland eitt harðræðisveldi
rændi, og sakleys verjuleys lond
hertók í blóði og eldi.
Men málleys, tannleys og
klóleys nú
hin bretska ljónin er vorðin,
lamin hon liggur við rivnum
skinni,
men muran er enn sum í forðum:
Tá keisrakrúna Indialands
av hennara hþvdi fall,
hon hertók ístaðin við buldur
og brak,
Rock all, ein lomvig^pall.
Hitt sjómark teir settu í
hvþnnsmanns dyr,
mót smálondum enn teir verja,
at fjálga um sinar veiðutjóvar,
teir royndu á ísland herja.
Men ísland vann sigur í
toskastríðnum,
rak veiðutjóvar frá landi,
tá hildu teir fram í Fþroyum,
tí her
var verjuleyst, ongin vandi.
Vit kunnu ei lata bretar longur
i oss matin úr munninum ræna,
| og grunnsópa hjallin, vit eiga
i á sjónum.
'Nú ræður um mannsevni dana.
Standa vit fþroyinga allir sum ein,
og danir ei okkum svíkja.
Skal bretska ljónin í Fþroyum við
sum um allan heimin víkja.
Pól F.
Úr færeyska blaðinu „Dag-
blaðið.
ilím
i l.w\\
Regn
Eitthvað spillist veðrið í
dag, ef trúa á þessum sjálf
virka á veðurstofunni. Nú
fáum við rigningu öðru
hvoru ofan í kaldann.
Geimskotakapphlaupið
Uppdráttur þessi gerir saman
burð á geimskotum Bandaríkja-
manna og Rússa. Innri hringur-
inn á að tákma yfirborð jarðar-
innar. Ofarlega til vinstri er
sýnt geimskot bandaríska geim-
farans, Grissom, en það var tæp
ir 400 kílómetraf\ Ytri hringur-
inn sýnir hins vegar geimskot
Rússa, þegar Títoff fór 17
hringi umhverfis jörðina.
Greinilegt er, að Bandaríkja-
menn eiga mjög langt í land,
ef þeir ætla að ná Rússum á
sviði geimferða, munurinn á
þessum tveimur geimskotum er
svo gífurlegur. Bandaríkja-
menn hafa samt ekki hug á að
vera eftirbátar Rússa. Hefur
þing þeirra nýlega samþykkt
stóraukna fjárveitingu til geim
rannsókna.
Mörgum mun sjálfsagt finn-
ast þetta kapphlaup stórþjóð-
anna heldur tilgangslítið, þar
sem vísindalegur árangur þess-
arra geimferða sé tiltölulega
lítill, en lilkostnaður ofboðsleg-
ur. Finnst sömu mönnum þá um
leið, að nær væri, að nota pen-
ingana heldur til skóla, sjúkra-
húsa og ýmiss konar menning-
ar- og vísindastarfsemi. En stað-
reynd er, að álit stórþjóðanna
út á við fer mjög eftir því, hve
yel þær standa sig í kapphlaup
inu um stærri og nákvæmari
eldflaugar. Heimspólitíkin er
grimm og gefur engin grið.
Bækur sem
vekja
eftirtekt
I Kvöldvökuútgáfan á Akureyri
hefur í undirbúningi útgáfu
þriggja bóka, sem án efa munu
' vekja mikla eftirtekt. Bækurnar
munu koma út á þessu ári.
Hér er um að ræða endurminn-
ingar Bernharðs Stefánssonar,
fyrrum alþingismanns, ritaðar af
honum sjálfum, Huglækningar,
eftir Ólaf Tryggvason á Akúreyri,
og í þriðja lagi Skáldkonur fyrri
alda eftir Guðrúnu P. Helgadóttur
skólastjóra. Forstjóri Kvöldvöku-
útgáfunnar er Kristján Jónsson
fulltrúi. E.D.
©39
Sýning 45 landa
í Leipzig í hausí
Alþjóðlega kaupstefnan í Leip-
zig verður haldin dagana 3.—10.
september í haust. Ilafa þegar
tilkynnt þar þátttöku sína kaup-
sýslufyrirtæki og utanríkis-sölu-
miðstöðvar frá 45 löndum. Þýzka
alþýðulýðveldið notar stærsta
hluta sýningarsvæðisins, en sam-
tals er sýningarflöturinn 115 þús.
fermetrar.
Sýningar frá Vestur-Evrópu eiu
miklum mun stærri en áður hefur
verið. Er Vestur-Þýzkaland og
Berlín þar fremst í flokki, en
næststærst er sýning Frakklands.
Þá koma Austurríki og Holland,
(Framhaid a la s:f»u>
Skemmtiferð-
in í Borgar-
fjörðinn
Eins og auglýst hefur verið,
verður farið í skemmtiferð frá
Framsóknarhúsinu kl. 9 í fyrra-
málið. Þátttakendur mæti kl,
8,30. Klukkan 10 mínútur fyrir
9 verða allir að vera komnir í
bifreiðarnar.
Fyrst verður stanzað á Þing-
völlum, svo á Kaldadal og því
næst að Húsafelli og Barnafoss-
um. Síðar verður ekið um hinn
blómlega Borgarfjörð.
Þeir, sem eiga ósótta pantaða
farmiða, sæki þá fyrir kl. 6 í
dag í Framsóknarhúsið, uppi
Og þeir, sem hafa orðið síðbún-
ir að panta sér farmiða, geta
fengið þá til kl. 6 á sama stað.
Símar 15564 og 12942.
Ferðanefndin.
Þetta er Garðhús, eitt elzta húsið
í Stokkseyrarkauptúni. Helm að
bænum liggja traðir, eins og þær
fíðkuðust fyrrum við sveitabæi,
ag garðurinn umhverfis blettinn
er hlaðinn úr fjörugrjóti.