Tíminn - 22.08.1961, Side 1
ENGIN SÍLD
Neskaupstað, 21. ágúst. — Engir
bátar hafa komið með sfld hing-
að í dag ,og er ekki annað sýnna,
en síldveiðum sé nú að ljúka. —
Margir bátar eru þegar farnir, en
nokkrir eru hér úti' á höfninni
og bíða veðurs og sfldar, þótt flest
ir hafi Iitla von um veiði.
Tíðarfar hefur verið leiðinlegt
hér undanfarið, dumbungur og
aldrei kyrr sjór. Hefur það einnig
haft sín áhrif á veiðarnar. Flest-
ir eru þeirrar skoðunar, ag síld-
veiðunum ljúki, komi ekki ný |
síldarganga. Um næstu helgi verð,
ur stórstreymi, og munu nokknr ,
bátar ætla að bíða þess og sjá
hvað setu.r.
Smávegis heíur veiðzt af síld 1
mjög djúpt undan landi, og í dag
lóðaði einn bátur á síld undan j
Glettinganesi, en lóðningarnar
voru dreifðar.
Síidarleitarskipið Ægir er hér
í dag að taka vatn og vistir, en
mun svo fara út og leita síldar.
V.S.
Ráðizt á aldraðan
mann I LækjargÖtu
Ráðizt var á aldraðan mann
í Lækjargötunni aðfaranótt
síðastliðins föstudags og voru
þar ungir menn að verki.
Maðurinn, sem er á sjötugs
aldri, var á leið til Reykjavíkur í
Hafnarfjarðarvagninum um klukk-
an hálfeitt, ásamt konu sinni og
dóttur. í vagninum voru tveir ölv-
aðir, ungir menn, innan við tví-
tugt. Voru þeir að abbast upp á
manninn með frekju. Bað maður-
inn bílstjórann að vísa þeim út.
Létu ungu mennirnir þá hótanir
og svívirðingar dynja á mannin-
um, sem lét kyrrt liggja.
Er vagninn var kominn á enda-
stöð sína i Lækjaigötunni og fólk
steig út, héldu ungu mennirnir
áfram að abbast upp á manninn.
Lauk svo, að annar þeirra sló
gamla manninn í andlitið. Fékk
maðurinn áverka í framan, svo og
í fingur.
Lögreglan hefur náð ungu
mönnunum, en sjónarvotta vantar,
sem hafa verið vitni að atburðum
þessum, bæði i strætisvagninum og
á götunni. Eru þeir vinsamlega
beðnir um að hafa samband við
rannsóknarlögregluna.
Hásetahkitunnn
90.000
Akranesi 27. ágúst. — Akra-
nesbátar eru sumir þegar hættir
sfldveiðuni og margir í þann
veginn að hætta. í sumar stund-
uðu átján Akranesbátar síldveið-
ar, þar af níu frá Haraldi Böðv-
arssyni.
Svo sem kunnugt er, hefur síld-
veiði í s-umar verið með albezta
móti, en afli bátanna er þó allmis-
jafn. Af Akranesbátum er Harald-
ur langhæstur, og hefur hann
fengið 17200 mál og tunnur eftir
tveggja mánaða útivist. Hásetahlut
ur á honum eftir þennan tíma er
um 90.000 kr. Haraldur er nýr
bátur og hóf ekki veiðar fyrr en
eftir áramót, en hásetahluturinn á
vertíðinm mun samt hafa verið
krónur
svipaður og síldarhluturinn, svo
að hlutur skipverja er ekki svo
lítill frá því að báturinn hóf
veiðar. Skipstjóri á Haraldi er Ingi
mundur Ingimundarson.
Markaðsmál og
norræn samvinna
Efnahagsmálanefnd Norður-
landaráðs hélt fund I Voksenás-
en við Osló dagana 19 .og 20.
ágúst. Af íslands hálfu sátu fund
inn Sigurður Ingimundarson al-
FramhHlrt a "
Ráöstefna um
★★★
Sagan segir, að forystumaður nazista í Bandaríkjunum, L. Rock-
Dagana 28. og 29. ágúst næst
komandi verður haldin hér á landi
ráðstefna á vegum menntamála-
ráðherra og mun hún fjalla um
raunvísindarannsóknir, nauðsyn
þeirra í nútíma þjóðfélagi og skipu
iag slíkrar starfsemi hér á landi.
Ætlunin er, að fyrirlestrar verði
fluttir um þjóðhagslega og fræði-
lega þýðingu rannsóknarstarfsem-
innar, en eins og kunnugt' er, hafa
orðið slíkar framfarir á sviði vís-
inda og tækni á síðustu árum, að
valdið hefur gerbreytingu á at-
vinnuháttum þjóða. Hraði þessarar
þróunar verður stöðugt meiri og
því æ erfiðara fyrir smáþjóð að
fylgjast með. Annað meginverk-
efni ráðstefnunnar verður því að
kanna á hvern hátt við íslending-
ar eigum að skipuleggja raunvís-
indarannsóknir okikar, með það
fyrir augum að tryggja, að við drög
umst ekki aftur úr og atvinnuveg-
ir okkar og þjóðfélagið allt fái að
njóta framfara í vísindum og tækni
eins og frekast er kostur.
Ráðstefnuna munu sitja tveir er-
lendir gestir, þeir dr. Alexander
(Framhaia a 15. síSuj
★★★
well, sem fyrlr nokkru komsf á fréttasíður heimsblaðanna vegna
viðleitni hans til þess að kynda undir kynþáttahatri þar vestra,
hafi nýlega sótt um vegabréfsáritun til íslands, en verlð neitað
um hana af gildum ástæðum. Rockwell mun áður hafa verið
kvaentur íslenzkri konu, en er skilinn við hana.
Það er í frásögur fært, að stúlka ein, sem handleggsbrotnaði í
Vaglaskógi um verzlunarmannahelgina og var flutt til læknisað-
gerðar í sjúkrahúsið á Akureyri, fór jafnskjótt aftur austur f skóg,
er læknirinn hafði lokið við að setja á hana gipsumbúðlrnar.