Tíminn - 24.08.1961, Side 1
Aukaþing BSRB
vegna launamála
Þar sem eigi hefur náðst sam-
komulag við' ríkisstjórnina um
launabætur til starfsmanna ríkis-
ins, og vegna nýrra viðhorfa, sem
skapazt hafa í kjaramálum, liefur ,
stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja ákveðið að kalla:
saman auka-bandalagsþing í
nóvembermánuði n. k. til að
ræða launamálin og samningsrétt
armálið.
Síðar verður tilkynnt, hvaða
dag þingið' kemur saman.
Aftur sagt upp
samningum
Á félagsfundum Verkakvennafé-1
lagsins Einingar á Akureyri og
Iðju, félags verksmiðjufólks á Ak-.
ureyri, var samþykkt að segja upp !
samningum þeim við atvinnur'ek-
endur, sem gerðir voru í sumar. |
Samningarnir voru þá gerðir til
íjögurra mánaða, og er þeim nú
sagt upp frá og með fyrsta októ-
ber næstkomandi. Þetta er því í
annað sinn á þessu ári, að þessi
félög segja upp samningum.
Forsetinn
flýgur meö
Loftleiðum
Forseti íslands- fer héðan með
föruneyti 11. sept. n. k. í opinbera
heimsókn til Kanada. Forsetinn
flýgur með Loftleiðavél. Leggja
Loftleiðir lykkju á leið sína til
New York og fljúga frá Reykjavík
kl. 8 f. h. beint til Quebeck og
lenda þar kl. 3 og halda síðan
áfram eftir örstutta viðdvöl til
New York. Loftleiðavél mun svo
sækja forsetann til Montreal 30.
september.
EIRÍKUR RAUDI
KOMINN HEIM
í fyrrinótt kom Eiríkur
rauði, hin nýja flugvél Loft-
leiða til Reykjavíkur. Eiríkur
rauði er fjórða Cloudmaster-
vélin, sem Loftleiðir eignast.
Vélin kom hingað frá Lúxem-
borg á áætlunarflugi. Flug-
stjóri var Dagfinnur Stefáns-
son.
Loftleiðir keyptu vélina af Pan-
American-fiugfélaginu eins 02
Farþegatalan mun komast yfir 50 þúsund
á þessu ári. — Kostakjör boíin á leifönni
Reykjavík—Luxemborg.
hinar vélarnar þrjár. Kaupverð
vélarinnar var 25 milljónir króna,
og er hún búin sams konar tækj-
um og hinar vélarnar þrjár og
tekur 80 farþega. Geta Loftleiðir
nú flutt 1280 farþega yfir Atlants-
hafið á viku hverri.
Eiríkur rauði verður fyrst um
sinn í aukaferðum. en LoftleJðir I
hafa samið um 12—13 slíkar ferðir
í þessum mánuði og þeim næsta.
Þegár þessum aukaferðum lýkur,
verður Eiríkur rauði notaður til
þjálfunar ílugliða. Loftleiðir hafa
nú í þjónustu sinni 15 flugáhafnir,
en þurfa 20, er hin nýja flugvél
hefur verið tekin í fulla notkun.
(Framhald á 2. síðu.)
Hefjast laxveiöar
í Lagarfljóti?
Egilsstöðum, 23. ágúst. —
í sumar hefur veiðzt nokkuð
af laxi í Lagarfljóti, og þykja
það að vonum mikil tíðindi og
góð, þar sem slíkt hefur sára-
sjaldan skeð áður. Fyrir fá-
um dögum fékkst 14 punda
lax ofan við foss, á svokölluð-
um Straumi, og ýmsir hafa
fengið laxa á svipuðum slóð-
um undanfarið.
I fossi þessum er laxastigi, en
hann mun vera heldur lélegur, og
hafa laxar sjaldan gengið upp fyr-
ir fossinn, þótt orðið hafi vart við
þá neðan hans. Eru uppi raddir
um það, að gera þyrfti nýjan laxa-
stiga sem fyrst, ef það gæti orðið
til þess að laxveiði hæfist í fljót-
inu.
í Breiðdalsá hefur áður verið lít
ilsháttar laxveiðj, en í sumar mun
hún vera með langmesta móti. Lízt
veiðimönnum hér eystra vel á laxa
fjölgun þessa, sem vonlegt er.
Frekir með
*• ■ \
dragnótina
Guðmundur Þórarinsson,
Hellu í Gerðum, formaður fé-
lags smábátaeigenda þar,
hringdi til blaðsins í gær og
kvartaði mjög yfir ágangi
dragnótabáta á friðaða svæð-
inu þar úti fyrir og skeyting-
arleysi landhelgisgæzlunnar
um þessi brot.
Friðaða svæðið er tvær mílur
milli Garðsskagavita og Gerða
tangavita.
Guðmundur sagði, að dragnóta
bátur væri að toga alveg upp
undiri bryggju, meðan hann var
að tala í símann. Einnig minntist
hann á þrjá báta, sem hefðu verið
frekir á þessu svæði. — Fleiri
bátar fara hér inn, bara ef þeir
sjá sér færi, sagði Guðmundur.
Þá sagði hann, að óddvitinn á
staðnum hefði margsinnis hringt
í landhelgisgæzluna til að kæra
þessi brot, en með litlum ár-
angri. Flugvél landhelgisgæzlunn-
ar hefði þó komið fyrir hálf.um
mánuð'i til þrem vikum og skrifað
upp a.m.k. þrjá báta. — Annars
sinna þeir okkur lítið, sagði Guð
mundur. — Við vitum eiginlega
ekki hvað við eigum að taka til
bragðs.
Brenndist
Ljósmyndari Tímans tók þessa
mynd niSri við höfn um daginn.
Ungi maðurinn var að hreinsa
möstrin um borð í einum fossin-
um.
Maður að nafni Ómar Guðjóns-
son, var klukkan fimm í gær að
vinna við að logsjóða tank á olíu-
bíl á stöðvum Olíuféla-gsins við
Reykjavíkurfiugvöll. Eitthvað bil
aði við logsuðuna, eldur gaus upp
og framan í Ómar. Brenndist hann
í andliti, þar á meðal í augum.
Hann var fluttur strax á sjúkra-
hús .Rannsókn er ekki lokið.
■mA sH&mpfflföm-.
★★★ Greifinn af St. Kilda, Karl Einarsson Dunganon, lauk íslandsheim-
sókn slnni með því að selja farmiðann sinn með Gullfossi til Kaup-
mannahafnar fyrir danska peninga. Síðan gekk hann um borð
farmiðalaus, og mun hafa farnazt vel. Hann sagði kunningjum
sínum, að það vaeri svo simpelt að ganga með þennan farmiða,
aö hann gaeti ekki fengið sig til þess, og auk þess vaeru dönsku
krónurnar ágaetar tll þess að borga með gasreikninginn, þegar
til Hafnar kæmi.
★★★ íslenzkur trúboði, Þórarinn Magnússon frá Hrútsholti, er nú starf-
andi í Nanortalik á Suður-Grænlandi. Hann fór tll Stokkanessflug-
vallar með fyrsta ferðamannahópnum, er lagði ieið sína til Eiriks-
fjarðar í sumar, og þaðan suður á bóginn sjóleiðis. Þórarinn mun
hafa kynnzt trúboðum frá Nanortalik á mótl hvítasunnumanna
í Vestmannaeyjum í sumar.