Tíminn - 24.08.1961, Side 3
T í M I N N, fimmtudaginn 24. ágúst 1961.
"i
Andstæðir herir í við-
bragðsstöðu við mörkin
Vesturveldin settu her að mörkunum - Austur-Þjóðverjar
juku hömlurnar - Byssuhlaup skriðdrekanna horfast á
NTB—Berlín, 23. ágúst. —
Bandarískt, brezkt og franskt
herlið tók sér í dag stöSu vi8
mörk borgarhlutanna í Berlín
og er viðbúnaður fullkominn
til átaka. Hafa Bandaríkja-
menn skriðdreka með mund-
aðar byssur, og er aðeins mílu
fjórðungur milli þeirra og
Ráðstjórnarskriðdrekanna hin
um megin við' mörkin.
Austur-þýzk stjóraarvöld til-
kynntu í gærkvöldi um nýjar
hömlur á ferðalög milli borgar-
hlutanna, og tók fréttamaður
Lundúnaútvarpsins svo til orða í
gær, að það væri næstum hægt
að finna, hvernig hægt og sígandi
væri reyrt að borginni. Eftir ráð-
stafanir þær, sem austur-þýzka
stjórnin hefur nú gert, ér V-Berlín
einangruð að kalla.
Það voru hernámsstjórar vest-
urveldanna þrír, sem gáfu skip-
anir um, að herlið skyldi taka
sér stöðu til þess að verja V-
Berlín. Frá klukkan 11 í morgun
stóðu hermenn bandamanna vörð
hvarvetna meðfram hverfamörk-
unum, og þeim til stuðnings voru
byssur til að vinna á skriðdrek-
um scttar í skotstöðu við ak-
brautir milli borgarhlutanna,
cinnig var stillt upp brynvörð-
um bifreiðum af fremur léttri
gerð, og á þungum stríðsvögnum
og skriðdrekum beindust lilaup-
in í austurátt. Jafnsnemma tóku
yfirvöhl V-Berlínar undir þessar
aðgerðir með því að setja vörð
við þær sjö umferðaræðar, sem
enn eru opnar eftir hömluaukn-
ingu Austur-Þjóðverja í gær.
Talsmaður borgarstjórnarinnar
sagði, að ætlunarverk varða þess-
ara væri að útiloka óæskilegar
pcrsónur frá því að komast til
Vestur-Berlínar.
Hersýning fyrir austan
Nokkru eftir að bandamenn
hófu varðstöðu við hverfamörkin,
var haldin mikil hersýning. Heima
varnarlið verkamanna og annar
liðssafnaður, sem ekki er þó bein
línis kallaður her, marséraði og
stillti sér upp meðfram Stalin
Allé, þar sem leiðtoginn Walter
Ulbright heilsaði hermönnunum
og verkamönnunum. Liðið bar
riffla, vélbyssur og marghleypur.
Einnig voru þarna brynvarðir bíl-
ar á sveimi.
Vegabréfsskylda
Skipanir hernámsstjóranna um
varðgöngur við mörkin voru bein
svör við hinum nýju hömluregl-
um, sem. A-Þjóðverjar kunngerðu
í nótt og sögðu að myndu gilda
þar til friðarsamningar hefðu
verið gerð.ii: 'rtið Au:itur-Þjýzka-
land. Stöðum þeim, þar sem V-
Berlínarbúar mega fara yfir mörk-
in, hefur verið fækkað í fjóra. Út-
lendingar mega nú oiðið aðeins
fara yfir mörkin í Friedrichs-
strasse, nema sendiráðsstarfsmenn
og hermenn, en fyrir þá er sér-
: stakt hlið, sem engir aðrir nota.
En síðast en ekki sízt hafa Aust-
! ur-Þjóðverjar tilkynnt, að nú fái
engir V-Berlínarbúar að ferðast
austur yfir nema þeir hafi sér-
stakt vegabréf, sem gefið sé út
í ferðaskrifstofu A-Berlínar í V-
I Belín, en á því þarf þó einnig að
I vera samþykki austur-þýzku lög-
' reglunnar. Þessi ferðaskrifstofa A-
Berlínarstjórnar er enn ekki til,
hermdu fréttir í morgun. í til-
kynningu Austur-Þjóðverja í nótt
voru Berlínarbúar varaðir við að
vera á ferli á 100 metra belti sitt
i hvoru megin við mörkin. Á vest-
1 ara 100 metra beltinu, eru nú her-
menn vesturveldanna á sífelldri
varðgöngu.
7 gangar j
Brezkur fótgönguliðsflokkur tók
' sér strax í morgun stöðu við
Brandenborgarhliðið og við hlið
ríkisþinghússins gamla voru settar
upp byssur af þeirri gerð, sem
vinnur á beltum skriðdrekanna.
Bandarískir vigdrekar runnu brátt
í vígstöðu á mörkum bandaríska
hlutans, meðal annars var þar 30
tonna dreki með 90 milliimetra
byssuhlaup, er beindist að Austur-
Berlín. Þeir staðir, þar sem enn
er hægt að komast yfir landamær-
in, eru aðeins sjö: 4 fyrir V-Berl-
ínarbúa, 2 fyrir fólk frá V-Þýzka-
landi og einr, fyrir útlendinga.
V-Berlínarbúar kalla aðvörun-
ina um að koma ekki nær mörk-
unum en 100 metra mestu ó-
svífrii, og borgarstjórnin og her-
námsyfirvöldin segja auðvitað að
hér sé um enn nýtt brot fjór-
veldasamningsins að ræða. Willy
Brandt borgarstjóri sagði í dag,
að vegabréfsskyldan væri sérlega
gróf ráðstöfun, sem í reynd úti-
lokaði Vestur-Berlínarbúa frá að
koma til Austur-Berlínar.
Húkti neðan
í iestarvagni
Hné máttvana á teinana
NTB-Södertalje, Svíþjóð, 23. ág.
Óþekiktur maður, sem menn halda
helzt, að sé föðurlandslaus, land-
flótla Júgóslavi, var í morgun lagð
ur inn á sjúkrahús í sænska bæn-
um Södertalje, skammt sunnan
við Stokkhólm, farinn að kröftum
eftir að hafa ferðazt sem laumu-
farþegi ofan á hjólásum járnbraut
arvagns alla leið frá Hamborg.
Maðurinn lá meðvitundarlítill á
lestarsporinu á stöðinni í Söder-
talje, er Stokkhólmslestin frá
Kaupmannahöfn hélt áfram eftir
skamma viðdvöl. Hefur hann þá
ekki lengur megnað að halda sér
uppi. En vagninn, sem hann faldi
sig neðan undir, er talinn hafa
komið frá Hamborg.
Sovétheriiin í
viðbragðsstöðu
Átti að fara óra-
vegu út í geiminn
- lenti á hringsól um jörðu
NTB—BERLÍN, 23. ágúst. — Aust
ur-þýzki kommúnistaforinginn
Walter Ulbricht, saigði í dag, að
Sovétherinn í landinu liefði verið
í viðbragðsstöðu síðan 13. ágúst,
er hömlur hófust á mörkum hluta
Berlínar. Þessar upplýsingar gaf
Ulbricht í ræðu, scm liann flutti
að lokinni hersýningu á Stalíns-
stræti í Austur-Berlín. Ræðu þess-
ari var sjónvarpað.
Leiðtoginn sagði, að víst skyldi
það takast að halda friðinum, j
enda þótt heimsvaldasinnarnir
gengjust síf.ellt upp í áreitni sinni.
Hindrun áframhaldandi þrælasölu
— en því nafni nefna kommúnista
foringjarnir gjarna fólksflóttann
undan stjórn sinni—með umferðá
hömlunum fyrir 10 dögum, hefði
aðeins verið fyrsta skrefið. Næsta
skrefið væri að undirbúa friðar-
samninga fyrir Þýzkaland.
Hinir hefnigjörnu
Ulbricþt sagði, að viðbúnaður
Sovéthersins og varðstöður austur
þýzkra hermanna, alþýðulögreglu
manna og verkalýðsliðsmanna,
hefðu verið þungt áfall fyrir hina
hefnigjörnu í Bonn. Paul Verner,
formaður kommúnistaflokks Aust
ur-Berlínar talaði einnig á fundi
þessum, og sagði, að flestir verka
lýðsmenn væru nú aftur komnir
til starfa í verksmiðjum sínum.
NTB-Canaveral-höfða, 23. ágúst.
Bandaríkjamenn gerðu í dag til-
raun til þess að senda geimskip í
meira en hálfrar annarrar milljón-
ar kílómetra langa ferð út í himin
geiminn, en fyrirtæki þetta lítur
ekki út fyrir að hafa heppnazt
nema að sumu leyti.
Geimskip þetta, kallað Ranger I,
var sent út með Atlas-Agena burð-
arskeyti frá tilraunastöðinni á
Canaveralhöfða rétt fyrir dagrenn
ingu í morgun. Farið virtist komið
í þá fjarlægð frá jörðu, sem til-
ætlað var áður en kveikt væri á
nýjum flaugum til að bera það
hina löngu vegalengd út í himin-
geiminn. Var það látið sigla áleið-
is eftir sporbaugslaga braut í 14
mínútur áður en kveikt var á skeyt
um þessuni, sem áttu að bera skip-
ið víða út um geim.
50 mínútum eftir skotið til-
kynnti geimferðastjórnin banda-
Sífellt er unnið að því að treysta múra þá, þar sem skiptir austri og vestri í Berlínarborg. Hér sést ung Austur-
Berlínarstúika leggja stein í hleðsluna, éflaust sjálfboðaliði frá ungkommúnistahreyfingunni. Ætli hún sé ekki
sannfærð um, að hún sé að yinna veröldinni gott?
Sýnisbók um
atvinnulífið
Blaðið hefur haft fregnir af því,
að eftivi örfáar vikur sé von á út-
komu stórrar bókar um atvinnu-
líf íslands vorra tíma. Mun bókin
eiga að heita: ísland í dag.
í bókina rita yfir 20 menn, hver
sinn kaflann um atvinnulíf lands-
ins. Meðal höfunda eru taldir
Einar Magnússon menntaskóla-
kennari, Davíð Ólafsson fiskimála '
stjóri, Páll Zóphóníasson alþingis I
maður; Vilhjálmur Þór bankastj., i
Björn Ólafsson stórkaupmaður;1
Erlendur Einarsson forstjóri; Agn
ar K. Hansen flugmálastjóri; dr.
Sigurður Sigurðsso-n landlæknir;
Björn Th. Björnsson listfræðingur ,
og Iíákon Bjarnason skógræktar- j
stjóri.
í bókinni munu einnig vera
myndskreyt.tar frásagnir um starf (
semi og sögu marg^a tuga atvinnu ,
f.yrirtækja. Bókin mun eiga að
vera nokkur hundruð síður að
stærð í stóru *jroti.
ríska, að annað þrep hefði unnið
eins og til var ætlazt, en eftir
þrjár stundir tilkynnti hún, að
geimskipið og flaugin hefð’u
greinilega ckki skilizt hvort frá
öðru, eins og ætlunin var. Þetta
þýðir, að geimskiþið er komið á
braut umhverfis jörðu í staðinn
fyrir langferðina út í geim.
í geimskipinu voru hvorki meira
né minna en 20 þúsund elektrón-
ískir hlutar alls konar mæli- og
rannsóknartækja. í síðari tilraun-
um var ætlunin að setja brúðu í
staðinn fyrir þunga þeirra, og hún
átti svo endanlega að víkja fyrir
manni á leið til tunglsins.
Nýtt kjötverð
Auglýst hefur verið nýtt verð
á kindakjöti, og er það nokkru
lægra en það, sem áður hafði ver
ið auglýst. Samkomulag náðist um
þetta í 6-manna nefndinni. Heild
söluverð á nýslátruðum dilkum
skal vera kr. 36,00 hvert kíló af
kjöti, og er það kr. 2,00 lægra
en áður auglýst verð.
Smásöluverð á súpukjöti hefur
jafnframt verið auglýst kr. 43,75
hvert kíló, og er það kr. 1,75
lægra en áðúr.
Enn fremur má geta þess, að
ákveðið hefur verið verð á nýjum
kartöflum. Er hver 5 kilóa poki
seldur á kr. 23,50 eða kr. 4,60
hvert kíló. Um svipað leyti í fyrra
kostaði kartöflukílóig kr. 3,75.
Hver vill skrifa
sögu Reykja-
víkur?
Blaðið hefur frétt, að útgáfu-
fyrirtæki hér í bæ hafi boðið
Reykjavíkurbæ að gefa út í vand-
aðri útgáfu sögu Reykjavíkur, ef
bæjarráð vildi útvega hæfan mann
í ritun vpksins. Boðið fékk ráðið
fyrir tveimur mánuðum og er mál
ið í athugun.