Tíminn - 01.09.1961, Side 5

Tíminn - 01.09.1961, Side 5
TÍMINN, föstudaginn 1. september 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÚKNARFLOKKURINN FramJrvæmdast.1óri: Tómas Arnason Rit stjórax Þórarinn ÞórarmssoD (áb.j, Andrés Kristjánsson Jón Helgason Fulltrúi rit stjómar: Tómas Karlsson Auglýsinga stjórl: EgiD Bjarnason — Sfcrifstofui I Eddubúsmu — ■ Slmar 18300—18305 Auglýsingasími 19523 Afgreiðslusimi 12323 — PrentsmiðjaD Edda h.f Gamla fólkið fær gengislækkunina eina Einn helzti glæsihnappur ’„viðreisnar“stjórnarinnar var sá, að ellilífeyrir og almannatryggingar hefðu stór- hækkað. Einkum taldi Alþýðuflokkurinn þetta afreksverk mikið, hefur haft það á orði sí og æ síðan og gjarnan eignað sér og viljað réttlæta með því og afsaka þátt- töku í afturhaldssömustu og einræðismestu íhaldsstjórn, sem setið hefur að völdum í landinu á þessari öld. Rétt mun það, að ellilaun hækkuðu lítillega að krónu- tölu, þegar ríkisstjórnin skellti á „viðreisnar“-ráðstöfun- um sínum í fyrravetur, en hún var ekki lengi að taka þær krónur aftur með hinni hendinni, því að dýrtíð og skatt- gjöld tóku þegar slíkum ofvexti, að erfiðara reyndist að lifa af ellilaununum en nokkru sinni fyrr. Sparifé þeirra, sem eitthvað áttu sér til tryggingar, var skert um helm- ing með gengislækkun. Á þessu sumri urðu sem kunnugt er 10—15% al- mennar kauphækkanir í landinu, og ríkisstjórnin notaði þær sem tylliástæðu og skálkaskjól til að fella gengið að nýju um rúmlega 13%. Hvernig skyldi þá hagur gamla fólksins vera eftir þær ráðstafanir? Öldruð hjón hafa nú kr. 2160 á mánuði í ellilaun og einstaklingar helmingi minna. Þetta hrekkur auðvitað hvergi nærri fyrir húsnæði og nauðsynlegustu þurftum eins og allir vita, hvað þá til að greiða vist á elliheimili. Hafi þetta gamla fólk átt einhverjar krónur í banka sér til framfæris, hefur það fé verið skert að sama skapi með gengislækkuninni. Gamla fólkið hefur engar launa- hækkanir fengið, heldur aðeins gengislækkun ríkis- stjórnarinnar, og enn hefur ekkert heyrzt um, að hún ætli að bæta hag þess. Hlutur þessa fólks er nú verri en nokkru sinni fyrr. Ríkisstjórnin hefur séð fyrir því, að þótt þjóðfélagið greiði því hærri krónutölu en áður, er það raunverulega minni hlutur en verið hefur um áratugi vegna stjórnarfarsins í landinu. Ríkisstjórnin hefur lengi hampað því sem skraut- blómi, að ellitryggingar væru nú orðnar eins góðar hér á landi og bezt gerist í öðrum löndum. Svolítið dæmi varpar ljósi á þetta skrum. i Síðustu mánuðina hafa einn eða tveir aldraðir Vestur- íslendingar komið hingað til lands og setzt að á hinum myndarlegu elliheimilum, sem Gísli Sigurbjörnsson rek- ur, og sagt er, að von sé á fleiri á næstunni. Þetta fólk hefur þá sögu að segja, að ellilaun þau, sem það fær í Kanada eða Bandaríkjunum nægi tii þess að greiða vist- gjöldin hér að mestu eða öllu leyti. Það vantar mikið á, að gamla fólkið hér á landi geti þetta með sínum elli- launum núna. Gamla fólkið hér á landi fær aðeins gengislækkun- ina eina, við þær verð- og kaupbreytingar, sem orðið hafa. Það hefur fengið svolítið hærri krónutölu í ellilaun en áður, en ríkisstjórnin tekið af því með hinni hendinni tvöfalda eða þrefalda þá hækkun með tveim gengislækk- unum. Mun varla önnur ríkisstjórn hafa leikið það jafn- grátt. Svipað mun að segja um það fólk. sem nýtur elli- lífeyris samkvæmt sérstökum ákvæðum úr ríkissjóði eða öðrum ríkisstofnunum, að þvi er nú rétt gengislækkunin ein. Þessi hefndarráðstöfun ríkisstjórnarinnar gegn öll- um almenningi bitnar því þyngst á þeim, sem sízt skyldi. ERLENT YFÍRLIT Starfsemi John Birchista Athyglisveríur útdráttur úr skýrslu saksóknarans í Kaliforníu STARFSEMI John Birch-fé- lagsskapaiins í Bandaríkjunum vekur stöðugt meiri og meiri áhyggjur frjálslyndra manna þar í landi. Nýlega befur Ed- mund G. Brown, ríkisstjóri í Kaliforníu, falið saksóknara rík isins, Stanley Mosk, að afla upp lýsinga um starfsemi félagsskap arins og semja skýrslu um hana. Skýrsla þessi hefur nú verið birt opinberlega og verður hér á eftir sagt frá nokkrum atrið- um hennar, byggt á útdrætti, sem hefur birzt í „The New York Times" og fleiri blöðum. — Þeir, sem mynda kjarnann í John Birch-félagsskapnum, eru vellauðugir kaupsýslumenn, uppgjafaherforingjar og eldri konur. Það, sem tengir þetta fólk saman, er óttinn við komm únismann, en kommúnisma virð ist það telja allt það, sem er því andstætt, þótt það eigi ekki neitt skylt við kenningar þeirra Marx, Engels, Lenins og Krust- joffs. Vegna óttans við þennan „kommúnisma“ virðist þetta fólk reiðubúið til að fórna ýms- um dýrmætustu réttindum, sem bandaiískir borgarar njóta nú. Þetta er m. a. fólgið í því að fylgja fyrirmælum stofnanda félagsskapurarins, Rob. Welch, skilyrðislaust. Grundvallarregla félagsskaparins er afar einföld. Við erum á móti öllu, sem kommúnistar eru fylgjandi. í framkvæmd gengur þetta hins vegar miklu lengra. Þá eiu kommúnistar sagðir fylgjandi ýmsu, sem þeir eru raunveru- lega mótfallnir. Það er látið nægja, ef Robert Welch segir, að kommúnistar séu mótfallnir því. Með því er það brenni- merkt. Lítið dæmi um þetta er það, að Welch segir, að Dag Hamm- ai'skjöld sé einn fyrirlitlegasti erindreki kommúnismans, sem fái laun sín borguð úr vasa amerískra skattgreiðenda. Welch hefur verið bent á, að Krustjoff hafi ekki óvirt og of- sótt annan mann meira en Hammarskjöld. Welch hefur svarið á reiðum höndum. Þetta gerir Krustjoff af klókskap til þess að reyna að leyna því, að Hammarskjöld sé raunverulega þjónn hans. KENNING Welchs er sú, að aðalhættan af kommúnismanum sé ekki utan frá, heldur innan frá. Óþarft sé að óttast vopn- aða árás Rússa og hann telur því þátttöku í Atlantshafsbanda laginu og Sameinuðu þjóðunum ekki aðeins þarflausa, heldur hættulega, því að í báðum þess- um samtökum verði Bandaríkja menn fyrir kommúnistískum áhrifum. Meginhættan stafar frá leynikommúnistum í Banda- rikjunum, sem reyna leynt og ljóst að færa þjóðfélagið í kommúnistiska átt. Þess vegna eru margir hinir svonefndu umbótamenn hættulegri en sjálfir kommúnistarnir. Um það er ekki hirt, þótt allt sé fullt af mótsögnum í kenninguin félagsskaparins. ATHYGLISVERT er, að mjög margt er keimlíkt i vinnubrögð- um kommúnista og John Birch félagsskaparins. Nokkur dæm> má nefna til sönnunar: 1. John Birch-félagsskapur inn kappkostar að vekja tor- tryggni gegn valdamönnum Little í The Nashville Tennessean. Ég slcal segja ykkur hvernig á að stjórna! þjóðarinnar og leiðtogum henn ar með röngum sakargiftum og þá ekki sízt þeim, að þeir séu þjónar kommúnista. Ekki sízt hefur forseti hæstaréttar, Warr- en, oiðið fyrir þessum ásökun- um. 2. John Birch-félagsskapur- inn er andvígur aðstoð Banda- ríkjanna við bágstaddar þjóðir, andvígur Sameinuðu þjóðunum, NATO og auknum hernaðarút- gjöldum. , 3. John Birch-félagsskapur- inn er andvígur jafnræði, verk- fallsrétti og trúarbragðafrelsi. Þetta eru kommúnistar einnig, a. m. k. í þeim löndum, þar sem þeir ráða. 4. John Birch-félagsskapur- inn vinnur í fylkingum og sell- um. Hann hefur stofnað ýmiss konar hliðarsamtök- eða dóttur- fyrirtæki til þess að koma ár sinni betur fyrir borð, t. d. hina svonefndu frelsisklúbba (Free- dom Club). 5. John Birch-félagsskapur- inn virðist vera í undirbúningi með að koma sér upp eins kon- ar óaldarliði til þess að eyði- leggja og hleypa upp fundum og samkomum, sem forustu- mönnunum er ekki að skapi. Þetta hefur þegar átt sér stað á nokkrum stöðum í Kaliforníu. 6. John Birch-félagsskapn- um er algerlega stjórnað ofan frá. Hann er byggður upp sem hreinn einræðisfélagsskapur. ,.Foringinn“ og aðstoðarforingj- arnir ráða og liðsmennirnir verða að fylgja í blindni. AF IIÁLFU kommúnista hef- ur -John Birch-félagsskapnum verið nijög vei tekið. Þannig brntist um hann grein 4. apríl síðastl. í The Literary Gazette of Moscow. Þar segir m. a. í lausiegri þýðingu: — Spádómar Lenins eru a? sannast í Bandaríkjunum — Lenin sag,'i. að öfgafyllstu fénd ur kommúni-mans gætu skeifzt svo mikið, að þeir toitryggðu > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > ) > > > > > > > og fordæmdu alla, sem ekki væru þeim sammála. Þannig gætu þeir hjálpað kommúnism- anum og rutt sumum mestu tor- færunum úr vegi hans (hér á Lenin vafalaust við umbótaöfl- in). — Fyrir allmörgum árum vann amerískur öldungadeildar maður, McCarthy að nafni, kommúnismanum mikið gagn með því að setja kommúnista- stimpil á marga þýðingarmestu leiðtoga hins kapitaliska heims. Með þessu veikti hann ekki kommúnistaflokkinn í Banda- ríkjunum, heldur styrkti hann. Nú hefur hin kommúnistiska hreyfing fengið nýjan stuðn- ingsmann. Hann heitir Robert Welch. Þessi fyrrv. sælgætis- framleiðandi gengur jafnvel einu feti lengra. HÉR HAFA verið greind nokkur aðalatriðin úr skýrslu saksóknarans í Kaliforníu um starfsemi John Birch-félagsskap arins. Því má aðeins bæta við, að samkvæmt seinustu fregnum að vestan, virðist félagsskapur- inn vera í uppgangi og ýmsir hinna aftui'haldssamari stjórn- málamanna, eins og Goldwater, láta sér ekki iila líka starfsemi hans. Áhrif iians virðast og gæta í ýmsum vestrænum Iönd- um, þar sem mestu afturhalds- menn reyna nú meira til þess en áður að koma kommúnista- stimpli á andstæðinga sína. Hins vegar má óhætt full- yrða, að þessi félagsskapur er fordæmdur af öllum frjálslynd- um Bandaríkjamönnum og því ætti að mega vænta þess, að fyrr en seinna yrðu örlög hans hin sömu og McCarthyismans. Þetta mun þó ekki verða, nema Bandaríkjamenn séu nógu vel á verði, eins og viðbrögð ríkis- =tjórans í Kaliforníu benda til, oQ eins sé verið á varðbergi i öðrum löndum, þar sem John Birch-isminn skýtur nú greini- lega upp kollinum. Þ. Þ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.