Tíminn - 29.09.1961, Qupperneq 5

Tíminn - 29.09.1961, Qupperneq 5
TÍMINN, föstudagiim 29. septembcr 1961. Otgetandl: FRAMSÚKNARFLOKKURINN FramJrvæmdastjóri: Tómas Arnason Rit stjórax Þórarinn Þórarmsson (ábj, Andrés Kristjánsson .lón Helgason FulitrúJ rit stjómar Tómas KarLsson Auglýsinga stjóri EgiD Bjarnason — Skrifstofur t Edduiiúsinu - Simar' 18300- 18305 Augiýsingaslmi 19523 Afgreiðslusimi: 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f - ERLENT YFIRLIT Launamál lækna Það eru slæm tíðindi, að slitnað skuli upp úr samn- ingaviðræðum milli Sjúkrasamlags Reykjavíkur og Læknafélags Reykjavíkur, þar sem afleiðing þess verður sú, að Sjúkrasamlagið hættir að borga alla læknishjálp, sem veitt er utan sjúkrahúsa, og verða þeir, sem leita hennar, að greiða hana samkv. miklu hærri taxta en áður hefur gilt. Þetta getur orðið mörgum þungur baggi til viðbótar öllu öðru, sem „viðreisninV hefur haft í för með sér. Því verra er til þess að vita, að vafalítið hefði mátt ná samkomulagi um mun minni hækkun læknataxta en nú Verður, ef haldið hefði verið með nægum skilningi á þessu máli af hálfu hinna opinberu aðila strax frá upp- hafi. Þar virðist hins vegar hafa verið farið ekki ósvipað að og hjá ríkisstjórninni í afstöðu hennar til verkamanna fyrr á þessu ári, þegar fyrst var sagt, að kaupið mætti ekki hækka neitt, en síðan boðin 3% kauphækkun, þar næst 6%, og síðan samið um 15—20% kauphækkun hjá iðnaðarmönnum og farmönnum, eftir að búið var að sví- virða samvinnufélögin fyrir að hafa samið um 10% kauphækkun hjá verkamönnum. Nú mun læknum hafa verið boðin 13% hækkun taxtans á lokastigi og það á sama tíma og félagsmálaráðherrann, sem er yfirmaður -sjúkrasamlaganna, semur um 27% kauphækkun hjá yfirmönnum á strandferðaskipum og varðskipum ríkis- ins. Þessu undu læknar ekki og svara með 100% hækk- un taxtans, eftir því sem Sjúkrasamlagið segir. Þar er vitanlega of langt gengið, en þannig er það oft, að skiln- ingsleysi og stirfni býður óbilgirninni heim. Ýmsum kann að þykja læknar kröfuharðir og skal ekki dregið úr því. En þess ber vel að gæta, að fáar stéttir hefur ,,viðreisnin“ leikið eins grálega og lækna. Þeir þurfa að stunda langt og dýrt nám erlendis, en kostnaður við það hefur nú margfaldazt. Þeir þurfa að kaupa ýms dýr tæki og sá kostnaöur hefur margfaldazt. Þeir þurfa að hafa bifreið og þar hefur bæði stofnkostn- aður og rekstrarkostnaður margfaldazt á stuttum tíma. Þannig mætti lengi telja. Þess ber svo vel að gæta, að um margt hafa læknar alveg sérstöðu. Þeir hefja ekki starf sitt fyrr en um og yfir þrítugt eftir langt nám, sem oft hefur fylgt meiri eða minni skuldasöfnun. Þeir læknar, sem vinna sér vin- sældir og álit, geta oft orðið tekjuháir, en það kostar þá að vinna tvöfalt og þrefalt dagsverk á við marga þá, sem gegna umsvifaminni störfum. Þeir þurfa að vera reiðu- búnir til starfs jafnt á nótt sem degi. Þess eru alltof mörg dæmi, að slíkir menn hafi fallið frá fyrir aldur fram. Það er því eðlilegt, að þjóðfélagið búi betur að slíkum mönnum en flestum öðrum. Vissulega eru þeir margir, sem læknis hafa leitað, er gera sér ljóst, að góður læknir verður seint full metinn. Það er með þessar staðreyndir í huga, sem vinna ber að því að leysa launamál læknanna. Ekki sízt ber að hafa þetta í huga í sambandi við launamál lækna, sem starfa í þjónustu ríkisins út um landið. Þar verður læknis- skorturinn stöðugt tilfinnanlegri og eiga launakjörin vissulega sinn þátt í því. Ef tekið verður á launamálum lækna með fullum skilningi og það metið til fulls, hve erfitt, vandasamt og ábyrgðarmikið læknisstarfið er, mun vafalaust ekki heldur standa á læknunum að taka tillit til þess, að við búum í fátæku þjóðfélagi og getum því miður ekki veitt afburðamönnum okkar svipuð kjör og stórþjóðirnar. Sleppir Gnrsel völdunum? Þaí getur oltií á úrslitum jiingkosninganna 15. október n.k. VAXANDI athygli beinist nú að þingkosningunum, sem eiga að fara fram í Tyrklandi 15. þ. m., en þær geta skorið úr um það, hvort Tyrkiand verður lýðræðisríki að nýju eða held- ur áfram að búa við einræðis- stjóm. Þessi athyglí hefur auk- izt við aftökurnar, sem nýlega áttu sér stað í Tyrklandi. Eins og menn rekur minni til, gerði tyrkneski herinn stjórnarbyltingu í Tyrklandi i maí í fyrra. Formaður herráðs: ins, Kemal Gursel, hafði for- ustu um byltinguna og varð formaður þeirra byltingar- nefndar hersins, sem síðan hef ur farið með stjórn landsins. í rauninn hefur hann verið ein- ræðisherra síðan. Gursel lýsti strax yfir því, að herinn hefði aðeins gripið í taumana vegna þess, að ríkisstjórnin fylgdi ekki lengur stjórnarskránni og ætlaði sér bersýnilega einræðis vald. Tilgangurinn með bylt- ingunni væri sá að koma í veg fyrir þetta og endurreisa lýðræðisstjórn í landinu að nýju. Efnt yrði því til frjálsra kosninga eins fljótt og hægt væri, og myndi herinn afhenda vald sitt í hendur þeirrar ríkis- stjórnar, sem þingið mynd- aði. í fyrstu virtist það ætlun Gursels að láta kosningar fara fram í fyrrahaust, en það fórst fyrir:®'~og var því borið við, að ekiu Hefði unnizt nægur tími til að ganga flrá nýrri stjórnarskrá og kosningalög- um. Síðan hefur kosningum stöðugt verið frestað, unz það var endanlega ákveðið, að þær færu fram 15. október. í sum- ar fór fram þjóðaratkvæða- greiðsla um hina nýju stjómar- skrá og kosningalöggjöf, og var hún samþýkkt með miklum meirihluta, en þátttakan í at- kvæðagreiðslunni var heldur dræm. ÞEGAR Gursel gekkst fyrir byltingu hersins í maí 1960, mæltist það ekki illa fyrir. Flokkur demokrata var þá bú- inn að fara með stjórn í Tyrk- landi síðan 1950 undir forustu þeirra Bajar forseta og Mend- eres forsætisráðherra. Flokkur demokrata, sem var klofningur úr hinum gamla republikana- flokki Ataturks, sigraði í frjáls- um kosningum 1950 og aftur i næstu kosningum á eftir. Stjórn hans reyndist á margan hátt athafnasöm framan af, en þegar frá leið hneigðist hún meira og meira í einræðisátt og þótti beita ólögum í kosn- ingunum, sem fram fóru þar 1957. Því var jafnvel haldið fram, að hún hefði falsað nið- urstöður þeirra. Eftir þær, beitti stjórnin andstæðinga sína auknu harðræði, jafn- framt því, sem ýmis spilling færðist í aukana. Vorið 1960 benti allt til þess, að stjómin ætlaði að láta til skarar skríða gegn andstæðingum sínum og beita hernum til þess verks. Gursel varaði hins vegar við því, þar sem hernum hefði allt- af verið haldið utan við póli- tískar deilur. Stjórnin lét hann þá taka sér orlof, en Gursel svaraði rétt á eftir með þvl að steypa henni úr stóli. Hann hafði aldrei áður skipt sér af stjórnmálum, en naut mikils KEMAL GURSEL álits í hernum . Hann er 66 ára að aldri. Eitt af fyrstu verkum Gurs- els var að láta hefja mál gegn Bajar forseta, Menderez og ráð heirum hans, flestum þing- mönnum demokrata og ýmsum embættismönnum, alls um 600 manns. Réttarhöld þessi hafa staðið yfir undanfarna mánuði og farið fram í fangabúðum, sem Tyrkir hafa á eyju, sem nefnist Yazzi. Herréttur annað- ist réttarhöldin og féli dómur hans fyrir skömmu síðan. Úr- skurður hans féll á þá leið, að 15 voru dæmdir til dauða, 31 í ævilangt fangeisi og 418 til styttri fangavistar. 128 voru sýknaðir. Ríkisstjórnin breytti síðan 12 dauðadómum í ævi- langt fangelsi, en lét dauða- dóminn yfir Menderes og tveim ur meðráðherrum hans koma til framkvæmda. ÖLL hafa þessi réttarhöld mælzt misjafnlega fyrir, og þó einkum aftökurnar á Menderes og ráðherrum hans. Margar vinveittar ríkisstjórnin vöruðu Gursel við þeim, þar sem þau settu einræðis- og ofbeldissvip á stjórnarfar Tyrklands. Gurs- el sat hins vegar fastur við sinn keip. Rök hans voru þau, að dómarnir og aftökurnar ætlu að vera síðari valdhöfum til aðvörunar. NÆR STRAX eftir aftökurn- ar eða nánar tiltekið á mánu- daginn var, fengu svo flokkar þeir, sem hafa fengið leyfi til framboðs í kosningunum 15. október, að hefja kosningabar- áttuna. Þessir flokkar eru fjór- ir. Enginn flokkur getur tekið þátt í kosningunum, nema stjórnarnefnd hersins leyfi það. Einum flokki hefur verið neitað um leyfið og er for- sendan fyrir því sú, að hann hefur ekk iboðið fram í eins mörgum kjördæmum og tilskil- ið er. Til þess að fá rétt til framboðs, þarf flokkur að bjóða fram í a.m.k. 16 af 76 sýslum Tyrklands. Flokkamir þurfa að fullnægja ýmsum öðrum skilyrðum og kosnin.ga- baráttunni er skorinn allþr'öng- ur stakkur. Erfitt verður því að telja kosningarnar fullkom- lega frjálsar. Hinir fjórir flokkar, sem taka þátt í kosningunum, eru þessir: Republikanar, sem eru hinn gamli flokkur Ataturks og fór með stjórn í Tyrklandi til 1950. Formaður hans er Ismet In- onu, sem tók við stjórn Tyrk- lands af Ataturk og gegndi henni til 1950. Margir telja þennan flokk sigurvænlegan. Þjóðflokkurinn, en hann klofnaði úr demokrataflokki Menderes fyrir nokkrum ár- um og tók þátt I seinustu kosn- ingum. Réttarflokkurinn, sem al- mennt er talinn arftaki demo- krataflokks Menderes, en starf- semi hans hefur verið bönnuð. Flokkur hins nýja Tyrk- lands, en hann er gamalt brot úr demokrata flokknum, klofn- aði úr honum 1955. Líklegt þykir, að Gursel muni láta sér vel líka, ef re- publikanar vinna og hann mun afhenda stjórn þeirra völdin. Fari hins vegar svo, að hinir flokkarnir fái meirihluta sam- anlagt og myndi stjórn, getur innað orðið uppi á teningunum. Það gæti þýtt hið sama og fylg ismenn Ménderes kæmust til valda á ný, og þá gætu Gursel og hershöfðingjarnir, sem hafa fylgt honum, átt á ýmsu von. Margir draga í efa, að herinn muni láta af völdum undir þessum kringumstæðum. EF kosningabaráttan fær að fara fiam með nokkuð eðlileg- um hætti, og þingræðisstjórn verður mynduð í samræmi við úrslit kosninganna, hefur óneit anlega þokað í lýðræðisátt í Tyrklandi, þótt ekki verði hægt að segja, að þar ríki full- komlega vestrænt lýðræði. Við slíku er líka vart að búast, þar sem aðstæður eru slíkar og í Tyrklandi. Miklu skiptir samt, að stefnt sé í rétta átt. Þ.Þ, / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ' ) ) ) ) ) )' ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ( ) ) ) ) ( ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) j ' •’ V.X..V«-V*V»V*V»V*V*V«X»V»Ví,S»V«V*V»V»V»‘V*'V»x.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.