Tíminn - 03.10.1961, Qupperneq 8
8
TÍMINN, Þriðjudaginn 3. október 1961,
Séð yfir bílahópimt, áður en lagt var af stað.
Flaggið fellur, og R-10701 leggur af stað. Eftir þrjár mínútur fer næsti bfll.
Brúðan fellur, og Pétur Urbancic bremsar harkalega. Honum tókst að forðast „barnið“!
Ingvar Sigmundsson ekur gegnum hliðin.
Og sami maður, Ingvar, nemur staðár við lokamarkið. Myndavélin hefur séð betur en við, hann er ekki
alveg á strikinu. (Ljósm. Tíminn GE)
Það er svo að sjá, sem á|
svæðinu milli Skátaheimilisins
og Heilsuverndarstöðvarinnar;
sé eitthvað mikið að gerast.
Þar er samankominn mikill
fjöldi fólks og ógrynni af bíl-
um. Og það eru svo sem engin
undur, því í dag á að fara fram
keppni 1 góðum akstri, og héð-
an er lagt af stað.
Það er Bindindisfélag ökumanna,
sem fyrir þessari keppni stendur,
og formaður þess, Ásbjörn Stefáns-'
son, gerir okkur í fljótheitum
nokkra grein fyrir keppninni. Við
skulum aðeins líta á það, sem
hann hefur að segja:
30 keppa
Þrjátíu keppa, þó hafa nokkrir
gengið frá, sem voru búnir að láta
skrá sig. Enn fremur létu nokkrir
skrá sig á biðlista, ef pláss kynni
að losna. Bæði félagsmenn BFÖ og
utanfélagsmenn keppa.
Það hefur verið nokkuð um það
spurt, hvers vegna tala keppenda
væri takmörkuð við 30 manns. Því
svara ég á þessa leið:
blíðkast augnaráðið, og enn svar-
ar hann: — Þið fáið ekkert að vita.
Flaggið fellur
f tveim fyrstu bílimum situr
kvenfólk undir stýri. Éinn kepp-
enda er á vörubíl, en allir hinir á
litlum bílum, margir á Volkswag-
en eða litlum Fordum, Opel eða
Moskvits. Meðal áhorfenda eru
margir áhugamenn um bíla, og
Batti rauði fer um víða, gerir að
gamni sínu og brosir breitt.
Nú fara bilarnir að leggja af
stað. Tveir bifreiðaeftirlitsmenn
mæla lengd bílanna, skoða öku-
skirteini og skoðunarvottorð, og
gá að stefnuljósunum til öryggis.
Síðan hverfa þeir inn í bílana, jafn
óðum og þeir afgreiða þá til brott-
ferðar, og ræða við ökumanninn.
Svo stíga þeir út, rásflaggið fell-
ur og ferðin hefst.
Féll á fyrstu þraut
Ásbjörn býður blaðamönnum að
stíga inn í stóran Chevrolet sendi-
ferðabíl, sem hann segir, að hafi
góða sál. Svo leggjum við af stað,
sömu leið og keppnisbílarnir, og
Ásbjörn skýrir fyrir okkur leiðina
og þrautirnar jafn óðum og þær
koma fyrir.
60 gildrur
90 mínútna ferS
Það er ekki gerlegt, að ýmsum
augljósum ástæðum að hefja keppn
ina fyrr en eftir hádegi — og ekki
fyrr en kl. 2. Starfsmenn þurfa að
borða, taka sig til og komast á
varðstað, sumir nokkra vegalengd.
Talið er að það taki um 90 mínútur
að meðaltali fyrir hvern bíl að aka
alla Ieiðina, er reiknað er með öll-
um stönzum vegna ökuþrauta o þ.
h. Væri keppnin látin ganga fram
á kvöld, myndu síðustu bílarnir
lenda í rökkri og væri því um mis-
mun að ræða. *
Skátar leiðsögumenn
Skátar í búningum sínum eru
leiðsögumenn ökumanna. Tók Þór
Sandholt, skátaforingi mjög vel í
það að útvega okkur hjálp þeirra,
sem er mjög mikilvæg. Aðalsteinn
Hallgrímsson er foringi hópsins og
sjálfur leiðsögumaður. Varðstöðv-
ar eru 26. Verðir, með aðstoðar-
mönnum um 90. Ökuþrautir, allt
með talið. 60. Ökuleið ca. 26 km.
Óhugsandi að gera allt rétt
Það má segja, að góðakstur þessi
feli í sér flest það, sem góður öku-
maður þarf að ástunda og kunna,
m. a. kunnáttu í því að aka um
bæinn og utan hans, kröfu um
þekkingu á umferðalögum og
hlýðni við þær reglur, sem settar
eru, aðgát, viðbragðsflýti, skilning
á mögulegum hættum, tillitssemi,
leikni og ökuhæfni á öllum sviðum.
Að komast í gegnum svona keppni
án þess að að verði fundið, tel ég
óhugsandi. Ýmsir standa sig þó
vafalaust vel, því við eigum fjölda
góðra ökumanna. Og einhverjir
verða alltaf óánægðir með eitthvað
í keppninm, telja, að ýmislegt hefi
átt að vera öðruvísi. Hjá því verð-
ur aldrei komizt.“
„Ert þú bílstjóri?"
Það er nóg að gera við undir-
búninginn. Starfslið keppninnar
er önnum kafið við að númera
þátttökubílana og úthluta leiðsögu
mönnum keppenda. Þarna sjáum
við ungling, sem er önnum kafinn
við að skrifa eitthvað niður á
spjald, og notar þak eins bílsins
fyrir skrifborð. — Hvað skrásetur
þú? spyrjum við.
Pilturinn hrekkur við, eins og
hann hafi verið staðinn að ódæði,
og felur í flýti skriftir sínar. —
Ert þú bílstjóri? spyr hann, og lít
ur mig illu grunsemdarauga. —
Nei, blaðamaður, segi ég. Ekki
Hérna er fyrsta þrautin, og á
henni féll ökumaður bílsins okk-
ar. Hann tók ekkj nógu stóra
beygju til hægri, þegar hann
beygði upp á Barónsstíginn fyrir
neðan Heiisuverndarstöðina.
Verðir hér og þar
Svo er farið niður á Laugaveg,
til hægri niður Frakkastíg, —
enda er bannað að beygja til
vinstri_ þar — og niður á Skúla-
götu. Á gatnamótum Laugavegs og
Frakkastígs stendur vörður, hann
hefur gætur á því, hvort ökumenn
beita stefnuljósunum rétt og hvort
þeir nemi staðar við stöðvunar-
merkið hjá Hverfisgötunni, og það
heitir ekki að stöðva bíl, fyrr en
öll hjól standa kyrr. Af Skúlagöt-
unni er beygt upp Klapparstíg og
niður Laugaveg, vörður þar á
horni til þess að fullvissa sig um
notkun stefnuljósa og rétta hægri
beygju, áfram niður Laugaveg jog
Bankastræti og beygt út í Lækjar-
götu. Tveir litlir strákar eru þar
til taks og eiga að flækjast fyrir
keppnisbílum á gangbrautinni yfir
Lækjargötu við ljósin, til þess að
sjá, hvort ökumenn virða rétt gang
enda. f Lækjargötu er líka tíma-
jöfnunarvörður, sem á að jafna
tímann milli bílanna, svo að ekki
komi tveir í einu að sömu þraut.
sem á að koma á óvart.
Svífandi tuskubrúSa
Næst liggur leið keppenda um
Bókhlöðustíg, en af því að við vit-
um af viðbragðsflýtisprófinu þar,
förum við klókindalega út Laufár-
veg og komum aftur að Bókhlöðu-
stígnum eftir Miðstræti. Og við
komum mátulega til þess að sjá.
þegar tuskubrúðu er fleygt fyrir
einn keppenda Við sjáum ekki
betur en henni sé bókstaflega
fleygt á bílinn, en ökumaðurinn
stanzar á augabragði, og bjargar
þar með stórslysi, þótt hann komi
við brúðuna. Sá, sem heldur brúð
unni, stendur í hvarfi bak við hús-
horn, strákur segir honum til, og
þegar keppnisbíll kemur, sleppir
hann brúðunni, sem er fest í
streng, sem liggur yfir götuna, og
hún steypir sér niður eins og
gammur á bráð sína. Við bíðum
eftir næsta bíl, og nú er brúðunm
fleygt miklu fyrr, og ökumaður
kemur ekki við hana. Þá er tommu
stokk brugðið á loft, og fjarlægð-
in milli bíls og brúðu mæld, síðan
haldið áfram. Við höldum líka á-
fram.