Tíminn - 03.10.1961, Síða 11

Tíminn - 03.10.1961, Síða 11
TÍMI.N.N, Þrigjudaginn 3. október 1961. M frá Byggingarsamvinnufélagi Kópavogs. Til sölu er íbúð í raðhúsi við Álfhólsveg, í Kópa- vogi, á vegum félagsins. íbúðin er fullgerð. Þeir félagsmenn, er vilja notfæra sér forkaupsrétt sinn, snúi sér til Grétars Eiríkssonar, Álfhólsvegi 6 A, Kópavogi, sími 19912 fyrir 6. b-m. F. h. BYGGINGASAMVINNUFÉLAGS KÓPAVOGS Grétar Eiríksson. Frá Ritfangaverzlun ísafoldar Vorum að taka upp ÞÝZKAR SKÓLA-TÖSKUR, með vösum framan á. Verðið er mjög lágt. Skólapennar á gömlu verði Mikið úrval af kúlupennum, reiknings- og stíla- bókum. Bæjarins mesta úrval af pennaveskjum og skjala- möppum. RITFANGAVERZLUN ÍSAFOLDAR Bankastræti 8 — Sími 13048 Læknaskipti Þeir samlagsmenn, sem óska að skipta um samlags- lækni frá n. k. áramótum, gefi sig fram í afgreiðslu samlagsins í október mánuði, og hafi með sér sam- lagsbók sína. Listi yfir þá lækna, sem um er að velja, liggur frammi hjá samlaginu. SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR. Blaðburður Tímann vantar ungling eða eidri mann til að bera! blaðið til kaupenda í VESTURBÆNUM. AfgreiSsla TÍMANS. Utboð Tilboð óskast í uppsteypu á undirstöðum og kjall- ara undir byggingu Sparisjóðs Hafnarfjarðar á horni Strandgötu og Linnetsstígs í Hafnarfirði. Útboðsgagna skal vitjað hjá sparisjóðsstjóranum næstu daga milli kl. 11—12 gegn kr. 1.000.00 fekila- tryggingu. Hafnarfirði. 1. okt. 1961. l. Sparisjóður Hafnarfjarðar. „Ég hafði minn eiginn fjallapela“ Hún heitir Hannelore Wagn- er, en sver og sárt við leggur, að hún sé ekkert skyld tón- skáldinu Richard Wagner. Þrisvar hefur hún hlaupið upp og niður Heklu og tyllt tá í all- ar sýslur á íslandi milli þess sem hún hefur hjúkrað sjúk- um og sárum á Heilsuverndar- stöðinni. Um daginn brá hún sér í göngur með Landmönn- um og hoppaði upp um fjöll og firnindi og rann á eftir ám og lömbum yfir stokka og steina í roki, rigningu og sól. — Hvernig stóð á þessu uppá- tæki hjá þér? — Að fara í göngur? — Ég fór austur í fyrra og sá þá leggja af stað í göngur, og ég varð alveg vit- laus í að komast með, og ég ákvað að fara í sumar, hvað sem það kostaði. Svo talaði ég við bóndann í Næfurholti, og þar með var allt klappað og klárt. — Varstu ekki hrædd um, að þú gæfist upp og yrðir rekin heim? — Nei, nei, ég var viss um, að allt gengi vel. Svo voru þetta allt svo góðir kallar. — Hvernig góðir? — Nú bara góðir. Þeir voru ekk- ert að finna að, þótt ég gerði vit- leysur stundum. — Þeir hafa ekkert haft á móti því, að hafa kvenmann með sér? — Þeir vissu nú ekki einu sinni allir, að ég færi með þeim. Ég birt ist bara allt í einu, flestum á óvart. Kannske hefur þeim ekkert litizt á það /yrst. — Ég heyrði sagt, að þú hefðir verið feiknalega dugleg. — Hver skyldj nú hafa skrökvað því að þér? — Ég gerði náttúrlega það, sem ég gat, en ég verð betri næst. — Voru kallarnir ekki kátir? — Þeir voru voða kátir. Þetta eru nú líka fyrstu göngurnar inn á Landmannaafrétt í nítján ár. Það hefur ekkert verið rekið þangað vegna mæðiveikinnar, svo að það var von, að þeir væru kátir. — Varst þú ekki kát líka? — Mér fannst voðalega gaman, og ég myndi fara strax aftur, ef ég gæti, og þetta er svo dásamlega falleg leið, og það er svo gaman að ferðazt á hestum. — Hvað datztu oft af baki? — Ég datt sko aldrei af baki! — Ég er náttúrlega ekki vön hestum, bara skroppið á bak smávegis, en þetta gekk allt vel. — Hafðirðu góða hesta? — Hvernig á ég að geta dæmt um það? — Ég varð að minnsta kosti ekki eftir. — Aðalhestinn minn átti bóndinn i Næfurholti, annars fékk ég hesta hjá hinum og , þessum og þeir voru allir þægir.! Kannske svolítið æstir, ef þeim var kalt á morgnana. — Hvað voru kallarnir margir? — Þeir voru vist einir tuttugu, en það voru ekki allt kallar. — Voruð þið marga daga? — Við vorum níu daga. og það var alltaf vitlaust veður nema tvo daga. Það var bæði rigning og rok, eitt tjaldið fauk og þrjú rifnuðu. Það var bara stærsta tjaldið. sem stóð, og svo fylltust þau stundum af vatni. — Gaztu nokkuð sofið fyrir þess- um haihagangi? — Maður þarf nú ekki mikið að sofa í svona ferðum. Við sváfum ekki nema fimm eða sex tíma á Ég myndi fara strax aftur. sólarhring og fórum alltaf á fætur klukkan 4—5 á morgnana. Við skiptum okkur í fiokka á daginn og leituðum, annars var ég mest með safnið. Við vorum þrjár nætur í Landmannahelli og tvær nætur í Landmannalaugum og söfnuðum fénu þangað. Ég var með í að smala Vondagil. — Fannst þér ekki erfitt að smala? — Nei, nei, það var erfiðast í hrauninu, því að þá hljóp féð í allar áttir og það var erfitt að ná því saman? — Fékkstu ekki reiðsæri? — Ég var svolítið aum fyrsta daginn, en ég sagði þeim ekkert frá því fyrr en þeir spurðu. Þá létu þeir mig hafa annan hnakk með gæru, og eftir það fann ég ekkert til eymsla nema það, að ég æpti mig hása. — Þú hefðir átt að láta hundana um það. — Þeir urðu Iíka hásir, greyin. — Hvað var safnið stórt? — Hjörðin var á þriðja þúsund kindur, og það var ógurlega gam- an að horfa yfir hópinn meðan maður rak þær, en mikið ósköp voru þær orðnar þreyttar síðast. Það var varla hægt að mjaka þeim úr sporunum. — Létu kallarnir þig ekki elda ofan í sig? — Það höfðu allir matarpakka, en þegar við vorum í Landmanna- laugum, var ég eldabuska hjá þeim, lagaði kaffi og svoleiðis. Maður verður að láta sjá, að maður sé kvenmaður. — Þeir hafa auðvitað verið dauð fegnir að hafa þig? — Ég gæti vel trúað, að þeir tækju mig aftur, ef ég bæði þá vel. — Ætlarðu ekki að biðja þá vel næsta sumar? — Ég fæ sennilega ekki frí á þeim tíma, sem göngurnar eru, svo að ég kæmist ekki með þeim. þó að þeir vildu mig. — Höfðu þeir pela með sér? — Jú, jú, þeir höfðu alhr pela, en það sást aldrei á þeim. Þeim þykir bara gaman að dreypa á — Fékkstu að súpa á hjá þeim? — Ég hafði nú minn eiginn fjallapela. Birgir. X • •'V.VN V-N-N- V N*N*N-N-N»N'N.N.N V ■ V- V ■ V ■ V "N.V > Stálbátur til sölu Mótorbáturinn Stígandi VE 77, 73 tonna, er til sölu. Upplýsingar gefur Helgi Bergsveinsson, sími 588, Vestmannaeyjum. vV.N*N*WVVVW>,W'N*VN*N«N'N'N-NNN,N-N'VV.V>

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.