Tíminn - 29.10.1961, Blaðsíða 3
T Í MIN N, sunnudaglnn 29. októbw 1981.
Stærstu eldflaug heimsins
skotið á loft frá Canaveral
Maður tiS tunglsins fyrir 1970?
NTB—Canaveralhöfða 27.
jkt. — í dag skutu Banda-
ríkjamenn á loft frá Canaver-
alhöfða stærstu eldflaug, sem
gerð hefur verið í heiminum
fram að þessu. Hún var af
gerðinni Satúrnus og tvisvar
sinnum öflugri en öflugustu
eldflaugar Sovétríkjanna og
þrisvar sinnum öflugri en aðr-
ar öflugusfu eldflaugar Banda
ríkjamanna. Tilraunin heppn-
aðist í alla staði mjög vel.
Fjöldinn allur af vísindamönn-
um, fréttamönnum og áhugasöm-
um áhorfendum var viðstaddur á
Canaveral. Meðal vísindamann-
anna voru m. a. Verner von Braun
og þýzkættuðu vísindamennirnir
Kurt Debus og Hans Grune, en
þeir hafa öðrum fremur haft for-
ystu um smíði eldflaugarinnar.
Maður til tunglsins
Bandaxikjamenn segja, að með
þessu velheppnaða eldflaugarskoti
hafi mjög stórt skref verið stigið
í þá átt að senda bandarískan
geimfara til tunglsins," og vonast
fyrir lok þessa áratugs. Þessi Sat-
úrnuseldflaug, sem send var á
loft í dag, fór fyrst 150 km hátt,
en sveigði síðan niður á við og
flaug um 300 km leið út yfir Atl-
antshaf og kom niður 11 km frá
þeim stað, þar sem henni var ætl-
að að lenda. Hún er álíka há og
16 hæða hús og hin langdýrasta,
sem hingað til hefur verið smiðuð
í Bandaríkjunum.
Stærð og gcrð
Satúrnuseldflaugin vegur 462
lestir. Aðeins eitt þrep af fjór-
um var notað að þessu sinni, og
talið er, að það muni taka þrjú
ár að fullkomna hana svo, að hún
geti flutt byrðar út í geiminn.
Hún er nefnd C-l, en endurbætt
gerð hennar verður kölluð C-3.
C-1 hefur um það bil tveggja
milljóna punda upphafsþrýsting
og annað Jirepið 90 þúsund punda
þrýsting. Áætlað er, að hún geti
fullbúin flutt um 20 þúsund punda
farm umhverfis jörð eða sem
svarar 8 þúsund purid af rann-
sóknartækjum.
Endurbætta gerðin C-3 á að hafa
3—4 milljón punda upphafsþrýst-
ing, annað þrep hennar 800 þús.
punda þrýsting og hið þriðja 90
þeir til þess, að það geti orðiðþús. punda þrýsting. Hún á að
f gærmorgun kom til nokkurs þjarks viS Tungufoss. Eimskipafélagið hafði
sagt upp einum vinnuflokki á föstudagskvöldið, en vinnuflokkurinn taldi
sig eiga rétt tii þess að Ijúka við að setja í þá lest, er hann hafði unnið
við. Vörurnar voru hins vegar settar á þilfar í gærmorgun af öðrum
vinnuflokki, og þannig lét Tungufoss úr höfn. Myndina tók ijósmyndari
Tímans meðan þjarkað var um þetta atriði í gærmorgun.
geta borið 45 þúsund punda farm
umhverfis jörðu. Ennfremur á
hún að geta flutt Appollo-geim-
skip til mánans og fjölmargar lest-
ir vísindatækja til mánans, Marz
eða Venusar.
Ef allt fer að óskum, mun eld-
flaugin verða látin flytja þriggja
þrepa geimskip umhverfis jörðu
1964—1965.
Hljóp fyrir
bílinn
Laust fyrir klukkan 11 í gær-
morgun varð telpa fyrir bíl á
Miklubraut, skammt fyrir austan
Lídó. Talið er, ag hún hafi verið
að koma úr strætisvagni ,en hún
hljóp fram fyrir strætisvagninn' í
á biðstöð og út á götuna, varð
hún fyrir bfl, se:n var að koma
fram meg strætisvagninum. Hún
kastaðist upp á vélarhlíf bílsins og
féll síðan í götuna.
Telpan hlaut áverka á höfuðið.
Hún var flutt á læknavarðstofuna.
Ekki er fullkunnugt um meiðslin.
Þessi fjölskylda á heima að Ytra-Laugalandi í Eyjafirði. Hjónin heita
Ingibjörg Runólfsdóttir og Jón Ólafsson og börnin Vilberg Rúnar og Vaka.
Ingibjörg á miða nr. 8998 í happdrætti Framsóknarflokksins, en einn af
vinningunum kom einmitt á það númer síðast þegar dregið var. Og nú
getur Ingibjörg boðið bónda sínum i þriggja vikna reisu suður tll Kanari-
eyja og Afriku með nokkurra daga viðdvöl ( London. Vlð óskum þeim
hjartanlega til hamingju. — Næst verður dregið í happdrættinu 3. nóv.
Söguleg atkvæöa-
ílJO'l JglOgfiö .ílzj
greiösla á þingi
Alþýðubandalagið klofnaði í afstöðunni til risakjarn-
orkusprenginga Sovétríkjanna
Sjö nýjar bækur
Atkvæðagreiðslan um þings
ályktunartillöguna um mót-
mæli gegn risakjarnorku-
sprengingu Sovétríkjanna fór
fram á Alþingi kl. 11,10 í
fyrrakvöld og varð allsöguleg.
Alþýðubandalagið kofnaði í
afstöðunni til málsins. Þeir
Finnbogi R. Valdemarsson,
Hannibal Valdemarsson og
Alfreð Gíslason,
greiddu tillögunni atkvæði, en
línukommúnistarnir sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Kommúnistar höfðu borið fram
j breytingatillögu tfl að drepa mót-
j mælunum á dreif, þar sem fyrst
, og fremst var lögð áherzla á að
i mótmæla kjarnorkusprengingum
! anarra ríkja, en siðau tekijj fram
að þetta ætti einnig við risakjarn
orkusprengju Sovétríkjanna.
Þessi tillaga var felld með 45
atkvæðum gegn 10 atkvæðum
kommúnista. Þá báru kommúnist
ar einníg fram svohljóðandi við-
ankatillögu:
„Alþingi lýsir enn fremur yfir
því, að það muni aldrei leyfa stað
setningu neinskonar kjarnavopna
á fslandi né að slíkum vopnum
verði nokkurn tíma beitt frá stöðv
um hér á landi“.
Framsóknarmenn gre.ddu þess
ari tillögu atkvæði, en hún var
felld með 30 atkv. gegn 26.
Tillagan í heild var síðan sam-
þykkt með 49 samhl. atkv., en 7
'íommúnistar sátu hjá. Þeir Finn
bogi R. Valdimarsson, Hannibal
Valdimarsson og Alfreð Gíslason,
greiddu tillögunni atkvæði og
gerðu allir grein fyrir atkvæði
sínu.
Þessi klofningur Alþýðubanda-
lagsins í þessu máli er spegil-
mynd af þeirri upplausn og ringul
reið, sem nú ríkir í þeim herbúð
um og flótta hinna óbreyttu stuðn
ingsmanna Alþýðubandalagsins
frá flokknum, en megn óánægja
ríkir vegna undirlægjuháttar Þjóð
læknir#l viljans Moskvukommúnista, og
' i hve greinilega hefur komið fram
síðustu vikur, ag það eru línu-
kommúnistar, sem tögl og hagldir
hafa í flokknum ,en róttækir lýð-
ræðissinnar fá þar engu ráðið.
Koparmenn
viðurkenna
Koparkallarnir, sem brutust inn
í birgðastöð rafveitunnar við
Elliðaár og síðar inn í skemmur
Hvalstöðvarinnar og stálu feikna
miklu af leiðsluvír á þessum stöð
um, hafa nú viðurkennt samtals
átta innbrot og þjófnaði hér í
Reykjavík og nágrenni bæjarins.
Þeir brutust tvisvar inn í birgða-
stöð rafveitunnar, en þar fyrir
utan hafa þeir viðurkennt sex inn
brot, að innbrotinu í Hvalfirði
meðtöldu. Þeir voru hvarvetna á
höttunum eftir kopar og öðrum
málmum, en einnig stálu þeir hjól
börðum.
Prentsmiðjan Leiftur hefur sent
frá sér 7 nýjar bækur. Eru sex
þeirra unglingabækur, en hin
sjöunda er skáldsaga eftir hlna
þjóðkunnu skáldkonu Guðrúnu
frá Lundi. Nefnist bókin Stýfðar
fjaðrir, og er eins og fyrri bækur
höfundarins, sveitasaga er grein-
ir frá lísbaróttu ólks, ást og örðug
leikum.
Unglingabækurnar eru lestar
framhald bóka eftir vinsæla höf-
unda er útgáfan hefur kynnt les-
endum á undanfömum árum,
enda hefur Leiftur getið sér orð
fyrir skemmtilegar unglingabæk-
ur, eftir kunna höfunda.
Hönnubækurnar þekkja allar
ungar stúlkur. Nýja bókin heitir
Hanna og hvíta kanínan og er hún
11. bókin í þessum söguflokki.
Þá er ný bók um Möttu-Maju,
er heitir Matta Maja í mennta-
skóla og er það 9. bókin um Möttu
Maju.
Duglegi drengurinn Kim er is-
lenzkum unglingum ag góðu kunn-
ur. Nýja sagan um hann heitir
Kim og dularfulla husið. Enn frem
ur getur Leift.ur út nýja sögu um
Bcb Moran og er það 5. bókin
um þannan unga ofurhuga.
Nafnið Róbinson Krúso þekkja
allir. Sagan um hann hefur verið
gefin út mörgum sinnum og alltaf
verið uppáhaldslesefni unglinga,
og er því ekki að undra þótt enn
sé komin ný útgáfa af bókinni.
Að lokum er bók fyrir yngstu
lesenduma, er heitir Fríða, Kútur
og Katta. Falleg saga um litla
telpu, hund og kött.