Tíminn - 29.10.1961, Page 6
TÍMINN, smmudaginn 29. október 19fjj»j
m
Lengst tll vinstri á myndinni sést mynztriS, sem púSarnir þrír eru saumaðir eftir, Takið eftir því, hve þeir eru ólíkir og hve mikiS nemendurnir
geta gert úr mynztrinu, hver á sinn sérstaka hátt.
Nýjung í Irandavinnukennslu
í dag verSur haldin handa-
vinnusýning í gagnfræðaskóla
Austurbæjar á vegum frú Sig-
rúnar Jónsdóttur handavinnu
kennara.
Frú Sigrún Jónsdóttir og dóttir hennar, Sigurborg Ragnarsdóttir, halda á'púðaborðl með llse-saum. (Ljósmyndi
r: Tíminn — GE).
— Handavinna af þessari teg-
und hefur ekki áður þekkzt á ís-
landi, sagði frú Sigrún í viðtali við
blaðið í gær. Þetta er uppfinning
sænsks bstvefnaðarkennara, Ilse
Roempke, sem kennir við listahá-
skóla í Svíþjóð. — Eg er nýkomin
frá Svíþjóð, þar sem ég kynntist
þessu og tók nokkur sýnishorn
með mér i því skyni að kynna
þetta hér heima.
— Hvernig eru þessir munir
unnir og hvað er sérstakt við þá?
— Þetta er aðallega ætlað sem
skólavinna. Hver nemandi fær
pappírsblað, köflótt, f tíglótt eða
með einhverju sérstöku formi.
Síðan á að tengja kaflana saman,
eftir því sem hver vill, og koma
þá fram jafnmörg og ólík mynztur
og nemendurnir eru margir. Síðan
fá allir efni með þessu sama
formi og eiga að sauma eftir því,
sem þeir hafa teiknað. Þá má
nota hvaða útsaum sem vill. Efnið
getur einnig verið mismunandi
dýrt, og er það þá miðað við getu
nemandans.
— Álítið þér þetta heppilegt til
oattur KIRKJUNNAR
Hraöi og hógværö
„Sælir eru hógværir,“
sagði Kristur í Fjallræðu
sinni. Það eru orð, sem
oftar þyrfti að hafa i huga
en nú virðist raunin á hér
í Reykjavík.
Hvarvetna berast fréttir
af slysum og sorgum, vand
ræðum og friðleysi, sem
allt stafar af hraða og til-
litsleysi hins hógværðar-
lausa eða vanstillta. Það
mætti segja, að skortur á
háttvísi og hógværð væri
einn aðaldráttur í ásýnd
aldarfarsins,
Fyrstu dágar vetrarins
eru oftast auðugastir að
alls konar árekstrum hér í
f jölmenninu. Augu o'g hugir
virðast ekki hafa vanizt
myrkri og regni, sem um-
vefur mestan hluta sólar-
hringsins, en hraðinn og
hávaðinn verður að hald-
ast eihs þótt allt sé á kafi
í súld. En aldrei ætti betur
við máltækið forna: „Flýttu
þér hægt“, en einmit.t á
slíkum tímum, þegar fár og
mæða, sorg og slys á miðj-
um vofir vegi.
Og það er viðar en j um-
ferðinni, sem aðgát skvldi
höfð. Heimilin eru einmitt
á þessum tímamótujn líkt
og í uppróti, þar sem eng-
inn hefur tíma til að dvelja
nema rétt meðan verið er
að skipta um föt. hrifsa í
sig matinn eða sofa dúr
seinni part nætur. Og á
þeim stundum vinnst lítiil
tími til viðræðna og gagn-
kvæms skilnings milli
hinna ýmsu aðila fjölskyld
unnar, pabbi þarf að flýta
sér á fundinn, mamma í
saumaklúbbinn eða hár-
greiðslustofuna, sonur og
dóttir í tímakennslu eða
partý að ógleymdum öllum
dansleikjum og „bíóurn",
sem lokka og seiða. Enginn
tími vinnst til viðræðna,
því síður til lestrar eða
bréfaskrifta, enginn tími
til að vera manneskja, sem
hugsar og skilur aðra og
heyrir hjartslátt þeirra.
En einmitt vegna þess get-
ur veturinn orðið svo kald-
ur, að frostið nisti innst
inn að hjartarótum og
skuggarnir hylji birtu bros
anna, áður en varir og
skammdegisnótt ógæfu og
einstæðingsskapar hafi tek
ið öll völd á ævileið. Storm
ur og kuldi hraðahs og
glaumsins hafa farið yfir
sumarlönd gróandi ástúð-
ar og skapað þar vetrar-
veldi sitt Sæla og sólskin
hógværðar og hófstillinffar
er í órafirrð, líkt og vorið
um skamdegiskvöld, þegar
norðangolan nistir inn að
beini. ,
Þannig getur ástandið
orðið á hógværðarsnauðn
heimili, þar sem hraðinn
hefur setzt í öndvegi. En
ekki er betra né indælla
um að litazt í heimi félags-
mála og samfélags stétta
og þjóða, ef hógværðina
vantar. Þar hefur hógværð
arleysið hlotið nafnið
„kalda stríðið", og er þá átt
við helsprengjur haturs og
tortryggni, ótta og angist-
ar, sem sendar eru til að
eitra bæði andrúmsloft og
hugarfar. Og þar hjálpa
dagblöð og stjórnmála-
greinar til að ræna öllu,
sem heitir hógværð og
hjartafriður með taumlaus
um og hraðfara straumi
rógs og ásakana, illkvittni
og ósanninda. Þar er svo
sannarlega eilifur storm-
beljandi þess vetrarkulda,
sem engu eirir. Og vandséð
er, hvorar sprengjurnar eru
eitraðri, þær, sem sprengd-
ar eru í andrúmslofti jarð-
arbúa eða hinar, sem eitra
hugarfar og tilfinningar og
heita blaðagreinar.
Þannig verkar skortur á
hógværð og háttvísi, hvert
sem litið er, og land frels--
is og friðar, sem mannkyn-
ið ætti að erf-a, þokast allt-
af fjær út í ískaldan geim
„kalda stríðsins.“
Þannig verður tilveran i
heimi hraðans og efnis-
hyggjunnar, ef hið eiha
nauðsynlega gleymist, sú
hógværð og hófstilling, sem
heyrir Guðs orð og ýarð-
veitir það. Hlustum við
rétt á röddu sannleikans,
gefum við gaum boðskap
og kenningu meistarans,
sem sagði: Sælir eru hóg-
vEorir, hjartahreinir og
miskunnsamir, sælir eru
friðflytjendur, þá hverfa
áhrif hraðans og hávaðans
og friður og öryggi þoka
brott ótta og neyð veraldar.
Ef við hlustum rétt, er
líkt og mild hönd dragi úr
hraðanum, slysunum fækk
ar, spennan minnkar, allt
fær að eignast sína réttu
stund, við lærum að nota
augnablikið og njóta þess.
Við sjáum bráðlega meira
en yfirborð hlutanna, við
eignumst innsæi og víð-
sýni, sem Kristur lýsir með
orðunum f,þeir munu Guð
sjá.“ Tilveran eignast nýtt
innihald, nýtt yfirbragð
hins góða, sanna og fagra.
Smám saman verða störf-
in auðveldari, við afköstum
meiru án þess að þreytast,
og gjörum þó alltaf betur i
dag en við gjörðum í gær.
Þetta er það, sem Krist-
ur kallar „að erfa landið",
sem er fyrirheit til hinna
hógværu, eignast land lifs-
gleði og starfshamingju.
Það er eins og við höf-
um fundið hrynjandina í
straumi daganna og tim-
ans, komizt í takt við til-
veruna í dansi kynslóð-
anna og svífum áfram án
þreytu, sæl og vonglöð eft-
ir músik frá hjartaslögum
sjálfs alföður lífsins. ,.Sæl-
ir eru hógværir. þeir munu
landið erfa“.
Árélíus Níelsson.
handavinnukennslu í skólum?
— Já, alveg tvímælalaust. Þar
sem nemendurnir teikna mynztrin
sjálfir, er fjölbreytnin geysilega
mikil. Með þessu móti getur sköp-
unarhæfileiki og útsaumskunnátta
nemandans fengið að njóta sín, en
það er talið hafa mikla sálræna
þýðingu. Eins og allir vita, sem
hafa lært handavinnu í skólun-
um hér, er hún ákaflega einhæf.
Hingað til hafa nemendur saumað
eftir mynztrum, sem aðrir hafa
teiknað. Það er ekki vafi á því,
að áhuginn verður meiri, þegar
þeim er sjálfum ætlað að skapa
þetta að mestu leyti. Þannig fær
persónuleiki og sköpunarhæfileiki
hvers og eins að njóta sín, og
sköpunargleðin vgrður meiri.
Mér er sérstök ánægja að því
að kynna þessa nýbreytni hér, því
að ég hef, eins og fleiri handa-
vinnukennarar hér, fundið til
þess, hve útsaumskennslan er ein-
hæf og verður oft leiðinleg til
lengdar.
— Hvemig var þessu tekið f
Svíþjóð?
— Þessi handavinna, sem er
kölluð Ilse-saumur í Svíþjóð, hef-
ur bókstaflega slegið í gegn síðan
hún kom fram 1952. Heilir skólar
hafa komið að skoða og pantað
form til þess að sauma eftir.
Frú Ilse Roempke hefur verið
kennari í rúmlega tuttugu ár. Hún
hefur því mikla reynslu í þessum
efnum og veit, hvað það er nauð-
synlegt, að hugmyndaflug barn-
anna fái að njóta sín. Hún hefur
satt að segja byggt þetta upp á
sálrænan hátt.
— Hafa margir skoðað þessi
sýnishom hjá yður hérna heima?
— Eg hef boðið ýmsum að
skoða þeha og þar á méðal frú
Arnheiði Jónsdóttur námsstjóra.
Henni fannst sjálfsagt áð kynna
þetta fyrir fólki og er hún eigin-
lega hvatamaður að þessari sýn-
ingu. Allir munirnir á þessari
sýningu era verk frú Ilse
Roempke. Eins og þér sjáið eru
þetta allt frá litlum dúkum, sem
ætlazt er til, að yngstu börnin
saumi, upp í stærðar veggteppi.
— Hafið þér í hyggju að kenna
þeim, sem hafa áhuga á þessari
nýbreytni’
— Já, ég ætla að halda nám-
skeið í nóvember og verð fyrst
um sinn til viðtals milli klukkan
10 og 12 fyrir hádegi á heimili
mínu að Háteigsvegi 26. Einnig
býst ég við, að sýningin, sem er
sérstaklega ætluð handavinnu-
kennurum, verði opin almenningi
milli klukkan 5 og 10 í stofu 16.
— Og svo er það aðeins eitt
að lokum. Hvernig imdirtektir
haldið þér að Ilse-saumurfnn fái
á fslandi?
— Ja, það er nú einmitt það,
sem ég er að velta fyrir mér. Það
verður sjálfsagt eins og með aðrar
nýjungar, sem koma hingað, ann-
aðhvort verða þær hvorki fugl né
fiskur eða þær breiðast út eins og
eldur í sinu.
En ég vona sannarlega, að
þessi þarfa nýbreytni hljóti verð-
ugar undirtektir. rag.
Aukaaðilar
NTB—Stokkhólmi 25. okt.
í dag urðu talsverðar umræð-
ur um aðild og afstöðu Svía
til Efnahagsbandalagsins í báð
um deildum sænska þingsins.
Ríkisstjórnin lagði fram greinar
gerð fyrir þeirri ákvörðun sinni,
að leita eftir aukaaðild Svíþjóðar
að bandalaginu. Engir mæltu því
gegn, nema þingmenn kommún-
ista, að Svíar gerðust með ein-
hverjum hætti meðlimir banda-
lagsins, en fram kom gagnrýni
hægri manna og þjóðarflokksins
á stjórnina vegna þess, að hún
skyldi ekki kynna sér sérstaklega
með hvaða skilmálum Svíar gætu
orðið fullgildur meðlimur Efna-
hagsbandalagsins, áður en hún á-
kveða að sækja um aukaaðild.