Tíminn - 05.11.1961, Blaðsíða 2
2
Tvær nýjar
bækur AB
Út oru komnar hjá Almenna
bókafélaginu tvaar nýjar bækxu-,
NÁTTÚRA ÍSLANDS, scm er al-
hliða lýsing á íslenzkri náttúru
eftir 13 þjóðkunna vísindamenn,
og bókin VÖLUSKRÍN, úrval úr
smásögum og Ijóðum Kristmanns
Guðmundssonar.
Náttúra íslands skiptis't í 14
kafla eða greinar um íslenzka
náttúru, og eru þrettán þeirra að
stofni til fyrirlestrar þeir, sem
höfundarnir fluttu í rikisútvarpið
ó'sunnudögum í fyrravetur.
Efni bókarinnar er sem hér
segir:
Upphaf íslands j og blágrýtis-
myndunin, eftir Trausta Einars'son.
Móbergsmyndunin, eftir Guð-
mund Kjartansson.
Um íslenzka steingervinga, eftir
Jóhannes Áskelsson.
Eldstöðvar og hraun, eftir Sig-
urð Þórarinsson.
Jarðhiti, eftir Jón Jónsson.
Hagnýt jarðefni, eftir Tómas
Tryggvason.
Veðurfar, eftir Jón Eyþórsson.
Jöklar, eftir Jón Eyiþórsson.
Vötn, eftir Sigurjón Rist.
Jarðvegur, eftir Björn Jóhannes-
son.
Sjórinn við ísland, eftir Unn-
stein Stefánsson.
Lífið í sjónum, eftir Ingvar Hall-
grímsson.
Grös og gróður, eftir Eyþór Ein-
arsson.
Dýralíf á landi og í vötnum, eftir
Ingimar Óskarsson.
Fortnálsorð ritar Vilhjálmur Þ.
Gíslason útvarpsstjóri.
Eins og ráða má af efnisskránni,
er bók þessi í hópi merkilegustu
rita, sem samin hafa verið um ís-
lenzka náttúrufræði og auk þess
„fyrsta og eina heldarlýsingin
sem til er á íslenzkri náttúru frá
sjónarmiði nýjustu náttúrufræða",
eins og Vilhjálmur Þ. Gislason seg
ir í formála sínum. Þetta er braut-
ryðjandi verk á sínu sviði og ritað
með hliðsjón af því, að það sé auð-
veldur lestur hverjum íslendingi
sem er.
í bókinni er mikill fjöldi mynda
og korta. Hún er 322 bls. að stærð
og prentuð í prentsmiðjunni Eddu.
Völuskrín er eins og áður segir
úrval af smásögum og Ijóðum
Kristmanns Guðmundssonar. Hef-
ur höfundurinn annazt val efnis-
ins, en formála ritar dr. Gunnar G.
Schram. Er bókin gefin út í til-
efni af sextugsafmæli skáldsins,
sem er hinn 23. okt. s. 1. Hún er
250 bls. að stærð og prentuð í
Borgarprenti.
Verzlunarmeim
mótmæla
Stjóm Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna hefur gert eftir-
farandi samþyikkt:
„Landssamband íslenzkra verzá-
unarmanna mótmælir harðlega
hvers kyns tilraunum meg kjam
orku- og vetaissprengjur í gufu-
hvolfinu vegna þeirrar gífurlegu
hættu, sem iífi og heilsu macina
er af þeiim búin.
LÍV vifl-1 fyrir sitt ieyti leggja
sérstaka áherzlu á mótmæli sín
nú vegna þeirra glæpsamlegu til-
rauna með kjamavopn, sem að
undaniförnu hafa átt sér stað í
Sovétdlkju'num.
Þungri ábyrgð er lýst á hendur
þeim mönnum, sem með slí'ku at-
ferli varpa skugga dauða og tor-
tímingar yfir mannkynið.
Smáorrusta
varS Innl á Laugavegi I gærmorg
un rétt um hádegið. Umferðln
var mikll niður Laugaveginn og
bílarnir komust lítið áfram. Þá
fór svo, að einn bíllinn snerti
þann, sem.fyrir framan var. Snar
aðist þá ökumaður fyrri bílslns
út úr bílnum og bað hinn bless-
aðan um að horfa fram fyrlr sig
við stýrið. Varð þarna orðasenna
á meðan löng bílalestin inn allan
Laugaveginn flautaði og flautaðí.
Loks leystlst umferðarhnúturinn
með þvi, að ökumaður fremri
bílsins snaraði sér inn í bíl slnn
og 6k af stað. bessi smáævintýri
í bæjarumferðinni eru orðin dag-
legt brauð, ef dæma má eftir kon
unnl, sem gengur fram hjá á
gangstéttinni og lítur ekki einu
sinni við. (Ljósmynd Tímlnn GE).
ASalfundur Fulltrúaráðsins
Aðaifundur Fuílfrúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykfavík verður haldinn í Framsóknarhúsinu,
miðvikudginn 8. p. m. kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá:
Venfuieg aóalfundarstörf. — Stjórnin.
Auglýsingasími
TÍMANS
er 19523
Eldur i spóna
geymslu ¥íðis
Klukkan aS ganga þrjú á
föstudaginn varð sprenging í
olíukyntum miðstöðvarkatli í
kjallara trésmiðjunnar Víðis
við Laugaveg. Járnslegin hurð
milli miðstöðvarklefans og
spónageymslunnar stóð opin,
þegar sprengingin varð í katl-
inum. Eldstólpinn frá katlin-
um náði inn um dyrnar og
kveikti þar í skrælþurrum
spónum og sagi, sem var þar í
tonnatali.
/
Sjálfvirkur slökkviútbúnaður er
í miðstöðvarklefanum, og átti
hann að fara í ganig, ef hitastig
yrði láigt. Búnaðúrinn reyndist ó-
virkur.
Allt slötokviliðið var kvatt út
til að berjast við eldinn, sem
gaus út úr spónageymsl'unni um
járnilokur upp í trésmíðas'ali'nn.
Lokurnar lyftust vegna hitans,
jafnvel þótt á þeim væri staðið.
Slökkvi'liðsmenn renndu slöng-
um niður með lokunum og dældu
vatni í spónageymslufna. Tókst
þeim að slökkva eldinn eftir nær
þriggja kluikkustunda viðureign.
S'lökkviliðsmenn og starfsmenn tré
smiðjunnar vöktuðu húsig þar tll
í gærmorgun.
Þann 7. júlí 1957 varð stór-
bruni í trésmiðjunni, og brann þá
af henni risið. Eftir það var húsið
stækkag um eina hæð.
Refur á
Rauðasandi
Patreksfirði — 4. nóv. —
Þesis varg vart á Melanesi á
Rauðasandi fyrir nokkru, að tófa
var að elta kind uppi í fjallinu
ofan við bæinn. Var tæfa búin að
koma kindinni í sjálfheldu. Menn
bragðu þegar við og fóru ag at-
huga þetta. Kibba náðist lifandi,
en þá hafði vinstra eyrað verið
rifið af henni og hún sköddug í
framan. iltur frá bænum smeri sér
þegar að því að elta skolla og
veitti honum eftirför upp á fjall-
ið. Þar missti hann af melrakkan-
um ,en kom í för sinni að flagi,
þar sem sýnilegt var, að rebbi
hefði tekizt á vig kindina. Enn er
lágfóta ekki fundin, og eiga bænd-
ur á þessum slóðum því dýrbítinn
enn yfir höfði sér. SJ.
TÍM.IjNJý.,-„sjmnudagipn,jaó.Vjejtnber JI961,
1200 vinna
á Vellinum
Á Keflavíkurflugvelli starfa
nú um 1200 íslendingar á veg-
um varnarliðsins, en það er
mun minna en oft áður, sam-
kvæmt þeim upplýsingum,
sem blaðið fékk hjá varnar-
máladeild utanríkisráðuneyt-
isins.
Framkvæmdir eru nú litlar á
Keflavíkurflugvelli aðrar en við
hald á mannvirkjum. Á stöðvum
varnarliðsins utan Keflavíkurflug-
vallar eru víðast hvar engar veru-
legar framkvæmdir nema á Stokks-
nesi við Hornafjörð, þar sem er nú
unnið að uppsetningu útvarps-
skerma. f Aðalvík er nú unnið að
því að rífa mannvirki varnatliðs-
ins, en nokkuð er síðan sú stöð var
lögð niður.
*
FÉLAGSMALA
SKÓLi
FRAM
SÓKNAR
FL0KKSINS
Fundur í Félagsmálaskóla Fram-
sóknarflokksins annað kvöld
(mánudag) klukkan 8.30.
EYSTEINN JÓNSSON, formað-
ur þingflokks Framsóknarmanna,
talar um stjómmálastefnur.
Fundurinn verður haldinn í
Edduhúsinu, II hæS og er allt
Framsóknarfólk, eldra sem yngra
velkomið.
Sænskur
styrkur
Dr. Bo Akerrén, héraðslæknir
í Visby á Gotlandi, og kona han5
hafa tilkynmt íslenzkum stjórnai'
vöildum, að þau hafi í hyggju að
bjóða fram árlega nokkra fjár-
upphæð sem ferðastyrk handa ís-
lendingi, er óskar að fara til náms
á Norðurlöndum. Þau hjón komu
til ís'lands á síðast'liðmu ári, og
ákváðu eftir þá för, að sýna í
verki vinarhug sinm tiJ íslenzku
þjóðarinnar með framangreindum
hætti.
Akerrén-ferðastyrkurinn nemur
ag þessu sinni eitt þúsund sænsk
um krónum. Þeir sem kynnu að
valja sækja um hann, skulu senda
umsókn til menntamálaráðuneytis-
ins, Stjórnarráðshúsinu við Lækj-
artorg, fyrir 15. desember n.k. í
umsólcn skai tekið fram, hvaða
nám umsækjandi hyggist stunda
og hvar á Norðurlöndum. Upp-
lýsingar uim náms- og starfsferil
skulu fylgja, svo og staðfest afrit
prófskírteina og meðmæli. Um-
sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Varðberg á Selfossi
Varðberg, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, held-
ur almennan fund í Selfossbíói í kvöld, sunnudag, kl. 8.30.
Umræðuefnið verður ísland og
\ vestræn samvinna. Framsögu-
| menn verða Guðmundur H. Garð- |fp
.irsson, formaður Varðbergs,
Tómas Árnason, lögfræðingur og
Pétur Pétursson, forstjóri. Að
íoknum framsöguræðum verða
frjálsar umræður.
| Einnig verður sýnd kvikmynd með íslenzku tali: Ferð um 1 Berlín. " í,! ft
TÓMAS
GUÐMUNDUR
Memntamálaráðuneytið.
Klúbbfundur Framsóknarmanna
verður haldinn á mánudag, 6. nóvember, klukkan 8,30 síðdegis á
venjulegum stað. Merk mál verða rædd. Framsóknarmenn, mætið
vel og stundvíslega. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Framskónarflokksins í Edduhúsinu. Símar 12942 og 16066.
~ HÁGRENNi
Félag ungra Framsóknarmanna á Akranesi efn.
■ til fundar í Félagsheimili templara föstudaginn
’0 nóv. n. k. kl. 8.30 s. d.
EYSTEINN JÓNSSON, formaður þingflokks
tramsóknarmanna flytur erindi um EFNAHAGS-
3ANDALAGID.
Allt Framsóknarfóik og aðrir, sem hafa áhuga
á málefninu eru velkomnir á fundlnn.
AKRANES v
Framsóknarfélag Akraness heldur skemmtisamkomu f félags.
heimilinu Rein í kvöld kiukkan 8.30. Spiluð verður Framsóknar
vist og dansað. Öllum heimlll aðgangur.