Tíminn - 05.11.1961, Qupperneq 16
383. blaff
Sunnudaginn 5. nóvember 1961
Umræðufundur um
erlent fjármagn
Stúdentafélag Reykjavíkur j
gengst annað kvöld kl. 8.30
fyrir almennum umræðufundi
í Tjarnarcafé um efnið „Er-
lent fjármagn á íslandi".
Framsögumenn verða Alfreð
Gíslason, læknir og alþm. og
Steingrímur Hermannsson,
verkfr., framkv.stj. Rann-
sóknaráðs ríkisins.
Vetrarstarf Stúdentafélag Reykja
víkur er nú að hefjast og efnir fé-
lagið til fyrsta almenna umræðu-
fundarins í kvöld. Efni það'sem til
meðferðar verður tékið er mjög
ofarlega á baugi um þessar mund-
ir- ekki sízt með hliðsjón af hugs-
anlegri aðild íslands að efnahags-
kerfi Vestur-Evrópuríkjanna.
Félagið hefur fengið sem frum-
mælendur tvo þekkta borgara og
þar sem skoðanir manna urn mál-
ið eru mjög skiptar, má telja full-
víst að fundurinn verði fjölmenn-
ur og umræður íjörugar.
Eins og áður segir, hefst fund-
urinn kl. 20.30 í Tjarnarcafé og er
öllum heimill aðgangur, en þeir
sem ekki framvísa síúdentaskír-
teinum, greiða 25.00 í aðgangseyri.
Blómasýningu
Alaska lýkur
Blómasýningu Alaska gróðra-
stöðvarinnar við Miklatorg lýkur í
kvöld klukkan 10. Sýningin hefur
nú staðið undanfarnar tvær vik-
ur við mjög góða aðsókn, enda
enginn aðgangseyrir.
Á sýningunni hefur fólk haft
óvanalegt tækifæri til þess að
kynnast ólíkustu tegundum
gi'ænna og blómstrandi plantna.
Mikill fjöldi blóma hefur selzt, en
jafnóðum hefur verið' fýilt í skörð
in.
Sýningu
Steinþórs
að ljúka
í dag er síðasti
sýningardagur
málverkasýning-
ar Steinþórs Sig-
urðssonar í Lista-
mannaskálanum.
Aðsókn hefur ver
ið góð og yfir 20
myndir hafa selzt,
Sýningunni lýkur
klukkan 10 í
kvöid.
☆
B
Skemmtiþáttur: Hallbjörg Bjarnadóttir
SÖngur: Árni Jónsson
Un
BING
Farmiði
idirlei
1 eö
>rsson
leikari: Skúli Hal
Meðal vinningj
eð Gulifoss! á t. farrými ti!
Kaupmannahafnar cg heim aftur.
Fimm þusund króna vöniávísun.
Útvarpstæki og fleiri úrvaisvínningar.
AÖgöngumiðasala í Edduhúsinu í
ímar 16066 og 12942.
Skemmtinefndin.
NTB—London, 3. nóv.
Margrét prinsessa fæddi son
í dag, og er hann fyrsta barn
hennar. Öll brezka þjóðin
fagnaöi þessari frétt meÖ mik-
illi hrifningu. ’
i Mikill fólksfjöldi hafði safnazt
Isaman fyrir utan Clarenie House,
1 en þar var fyrst skýrt frá fæðing-
I unni. Samtímis var tilkynnt, að
Imóður og barni heilsaðist vel, og
! laust þá mannfjöldinn upp mörg-
jum húrrahrópum.
Hinn nýfæddi sonur fær titilinn
Linley lávarður (greifi), en hann
! varður fimmti til ríkiserfða. Mar-
grét prinses'sa mun sennilega
1 dveljast þrjár vikur í Clarence
House, áður en hún hverfur aftur
heim til Kensington-hallar.
Jarðskjálfti
Jarðfræðistofnunin í Upp-
sölum mældi í morgun skjálfta
bylgjur, sem taldar eru stafa
frá jarðskjálfta í Norður-
Atlantshafi. Bylgjurnar komu
fram kl. hálfátta í morgun
eftir norskum tíma.
4 Hús Almenna bókafélagsins
við Austurstræti hækkar stöð-
ugt, þótt hægt fari. Um dagtnn
var verið að steypa þar, og þá
var þessi krani notaður til þess
að koma steypunni upp á þriðju
hæð. (Ljósmynd TÍMINN GE).
| Fékk far-
I arleyfi
NTB—Stokhólmi, 4. nóv.
Innanríkisráðherra Suður-Afr-
íku, Jan de Klerk, skýrði frá
því í dag, að svertingjaleiðtog-
inn Albert Luthuli fengi leyfi
til að fara til Osló að faka við
Friðarverðlaunum Nóbels
ihinn 10. des. n. k. Hann fær
ieyfi til að dveljast 10 daga í
Noregi með því skilyrði að
koma þá aftur beint heim til
Suður-Afríku. Áður hafði
stjórnin bannað Luthuli að
fara brott frá heimili sínu í
grennd við Durban.
Hins vegar var málaledtan Lut-
hulis um að fá að heímsækja
Tanganyka neitað'. Jan Kiork
sagði, að Luthuli hefði verið veitt
friðarver'ðlaunin af einhverjum
afinarlegum, pólitfskum ástæum.
Hann hefði ekki átt þau skiiin.
Luthuli fékk fréttina um brottfar
arleyfið, er hann sat að snæðingi
ásamt dóttur sinni á hóteli í Duir-
ban, en þangað fékk hann að fara
til að leita lækniis. Hann kvaðst
rnjög glaður yfir að fá að fara
till Osló, og þetta verður fyrsla
ferð hans til Evrópu. August
Schou, forstjóri Nóbelsstofminar-
innar hefur einnig lýst gleði sinni
vegna þess ,að Luthuli hefur nú
fengið leyfi til að taka á móti
verðlaunum sinum.
Akureyri er oröinn meiri umferð
arbær, en marga grunar. Þessi
mynd er fekmn í sumar yfíi-
Hafnarstræti og bílaþröngina
f>ar. (Ljósmynd GPK).
Framsóknarmenn . Munið klúbbfundinn
annað kvöld