Tíminn - 26.11.1961, Qupperneq 13
T,í MIN N, sunnudaginn 26. nóvember 1961.
13
Séra Benjamín og kvæðið
Árið 1936 lét ég frá mér fara pínu-
lítið kvæðakver fyrir áeggjan vina
minna. Því var tekið með miklu um-
burðarlyndi. Meðal annarra, sem
tóku því vel, var þingmaður okkar,
Mýrsýslunga, Bjarni heitinn Ásgeirs
son, mig minnir hann læsi úr því í
útvarpið. Þó að ég styddi hann stund
um' til þingsetu með atkvæði mínu,
þá átti hlýja hans og vinsemd í minn
garð aðrar rætur og betri. Hann var
skáld og smekkmaður og mikill unn-
andi ljóða, þess utan drengur svo
góður, að fágætt var. — Jæja, slepp
um því, — en fyrsta kvæði þessa
kvers hét Til þín Mekka. Það átti
víst að vera til listarinnar sjálfrar,
og til guðs listarinnar, nokkurs kon-
ar inngangskvæði, barmafullt af
barnalegri auðmýkt og einlægni,
vafalaust stórum misheppnað kvæði,
eins og vera mundi um flest mín
ljóð. Skal það sagt án' allrar sjálfs-
meðaumkvunar, — það verður bara
að hafa það.
En í morgun brá mér ekki lítið.
— Sem ég er að fletta Morgunblað-
inu í bezta gæti og kominn að Vett-
vangi dagsins, sem löngum er for-
vitnilegur, þá ber fyrir augu mín
slitur úr þessu kvæðiskorni Og viti
menn! Er ekki séra Benjamínið fyrir
norðan land, sem einu sinni skrifaði
kompánlega um þetta ljóðakver mitt
(eða annað) allt í einu farið að kalla
mig hund og komið í grófasta habít,
einmitt yfir þessum mæðilegu vísum
sveitamannsins, .sem forðum renndi
til listarinnar tárvotum augum sín-
um. Og allt svindlið komið upp!
Kvæðið er um Moskvu! Mikill heljar-
kall er Benjamín að vitsmunum. Var
furða, þó að ég félli í stafi yfir skarp
skyggninni? Hvílíkur skoðari hlut-
anna niður í rætur, hvílíkur listskýr-
andi og bókmenntafrömuður! Við
þessu er ekkert að segja, ég blátt
áfram gefst upp, — og fæ síðan ekki
úr því skorið, hvort Benjamínið er
merkilegra fyrirbæri, það fyrir sunn-
an, eða hitt guðinnblásna fyrir norð-
an land.
Guðmundur Böðvarsson.
■•>.‘V»X»-V-X»X»‘V»X»X»X»V»'\.»'V*'
GÍPSONIT-
ÞILPLÖTUR
fyrirliggjandi, ásamt fylli
og samskeytaborðum.
PÁLL ÞORGEIRSSON
Laugavegi 22.
Vöruafgr. Ármúla 27.
•v»x»vx»x»vx*x*x»v
Fyririiggjandi
EIKARSPÓNN
MAHOGNYSPÓNN
PROFILLKROSSVIÐUR
HARÐVIÐUR
PÁLL ÞORGEIRSSON
Laugavegi 22.
Vöruafgr. Ármúla 27.
íþróttabúningar
með flegnu hálsmáli, fyrir
stúlkur í framhaldsskólum,
á aðeins kr. 96,00.
Fótboltar á íækkuðu verði
væntanlegir næstu daga.
PÓSTSENDUM.
Kjörgarði, Laugavegi 59
Austurstræti 1.
REYKIAVÍ K
AMSTERDAM
LOFTLEIÐIS LANDA MILLI
Trulofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
HALLDOR
Skólavörðustig 2.
v»vv»v»vv»v»v»v»v»v»v»v»>
Æðardúnsængur
Vöggusængur
Æðardúnn
Dúnhelt léreft
Pattons ullargarnið,
Nýkomið. Margir litir.
PÓSTSENDUM.
Vesturg. 12 Sími 13570
Sníðið og saumið
sjálfar eftir
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
Sigurðar Líndals Jóhannessonar,
Uppsölum,
sem andaðist 16. þ. m. fer fram frá Þingeyrarkirkju, miðvikudag-
lnn 29. nóv. Athöfnin hefst að heimili hans, Uppsölum, kl. 11 ár-
degis.
Kristbjörg Kristmundsdóttir
Á °9 börn
000
HBB BETH
0B0 000
ufflJL U IIII
______-.FLJÚGIÐ
MEÐ HINUM NÝJU
HRAÐFLEYGU FLUG
VÉLUM LOFTLEIÐA
DC-6B
Hurðir
Innihurðir
Undir málningu Verð frá 475.75 490.00
Spónlagðar með Eik — — 737.90 760.00
Spónlagðar með Teak — — 835.00 860.00
Spónl. með Maghony — — 606.80 625.00
Einnig innihurðir í körmum iárn>ðar.
Útihurðir
Teak spónlagðar plasteinangraðar
stærðir 90 x 206 cm
— — 81 x 206 cm
Verð frá kr. 2,670,00 án söluskatts
— ------ 2,750,00 með söluskatti
Rúðulistar, Gólflistar, Geirrefti.
b
yggingavorur
h.f.
Laugavegi 178 — Sími 35697.
Kaupfélag Árnesinga.
■* V» V» V» V» V» V* V • >•*
■•vv*w»v»%»v>