Tíminn - 03.12.1961, Page 5

Tíminn - 03.12.1961, Page 5
I T f MIN N, sun-nudaginn 3. desember 1961 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit. stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit st^órnar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egill Bjamason. — Skrifstofur i Edduhúsinu — Símar: 18300—18305 Aug lýsingasimi: 19523 Afgreiðslusími: 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f. — Áskriftargjald kr 55.00 á mán innanlands. í lausasölu kr 3.00 eintakið HANNES HAFSTEIN - ALDARMINNING - Mbl. tekur undir áróður kommúnista Af hálfu kommúnista hefur lengi verið reynt að túlka þátttöku íslands í Atlantshafsbandalaginu á þann veg að henni fylgdi herseta í landinu Hér í 'blaðinu hefur jafnan verið unnið að því að hnekkja þessari blekkingu. í fyrsta lagi hefur verið sýnt fram á, að ekkert það fylgir þátttöku okkar í Atlantshafs- bandalaginu, sem við getum ekki sjálfir ráðið á hverjum tíma. í öðru lagi hefur verið bent á. að það var skýrlega áréttað af okkur sjálfum og viðurkennt .af bandamönnum okkar, er við gengum í bandalagið, að við myndum ekki leyfa hersetu á friðartímum. í þriðja lagi hefur svo verið sýnt fram á, að varnarsamningurinn, sem var gerður við Eandaríkin vorið 1951, er alveg óháður og aðskilinn frá bandalagssamningnum, eins og sést á því, að hinn síðari gildir til 20 ára, en hinn fyrri er uppsegjanlegur með IV2 árs fyrirvara. Af hálfu annarra þeirra flokka, sem stóðu að þátttök- unni í Nato og varnarsamningnum, hefur umræddum áróðri kommúnista einnig verið mótmælt með þessum rökum þar til nú, að svo kynlega bregður við, að Mbl. tekur alveg undir áróður þeirra. Mbl. reynir nú að halda því fram, að þátttöku í Atlantshafsbandalaginu fylgi, að hér þurfi að vera her allan þann tíma, er við séum i bandalaginu, og kallar það nýja stefnu hjá Framsóknar- mönnum að halda því fram, sem ekki aðeins þeir sjálfir hafa haldið fram allt síðan, að gengið var í Nato, heldur einnig hinh’ flokkarnir, er að aðildinni stóðu. Sjálfur Bjarni Benediktsson staðfesti líka í ræðu sinni í háskólanum í fyrradag, að þessi skoðun væri rétt. Hann sagði orðrétt: \ „Atlantshafsbandalagið er samtök sjálfstæðra og full- valda ríkja. Þau hafa skuldbundið sig til ákveðinnar sam- vinnu um tiltekið árabil, 20 ár. Samkvæmt sjálfum Atl- antshafssamningnum höfum við ekki skuldbundið okkur til að hafa neitt varnarlið í landinu á friðartímum, hvorki okkar eigið né annarra. Uggur vegna versnandi ástands varð til þess, að varnarsamningurinn við Bandaríkin var gerður rúmum tveimur árum eftir að Atlantshafssáttmál- inn hafði verið saminn. Að undangengnu umsömdu sam- ráði getum við með tiltölulega skömmum fresti sjálfir kveðið á um það, að hið erlenda varnarlið skuli hverfa úr landi.“ Hér er það fyllilega staðfest, sem Framsóknarmenn hafa haldið fram og halda fram um þessi mál. Þátttakan í Atlantshafsbandalaginu skuldbindur okkur ekki til þess að hafa hér her. Það er því alveg undir okkur sjálfum komið á hverjum tíma, hvort hér er her eða ekki. Mbl. ætti að hætta að taka undir þann áróður komm- únista, að þátttakan 1 Nato skuldbindi okkur til að hafa hér her, hvort sem við viljum eða ekki. Sjálfur formaður Sjálfstæðisflokksins vitnar þar á móti því. Ormar og víðsýni í háskólaræðu sinni 1. desember kallaði Bjarni Bene- diktsson kommúnista skurðgoðadýrkendur en skurðgoð þeirra væru full af ormum og illum kvikindum. Á Alþingi hefur Bjarni hins vegar nýlega hælt þeim manni sem bezt hefur dýrkað umrædd skurðgoð, fyrir sérstaka við- sýni. Þetta er það, sem kallað er að hafa tungur tvær. Þú álfu vorrar yngsla land, vort cigiS land, vort fósturland. Sem framgjarns unglings höfuS hátt þín hefjast fjöll viS ölduslátt. Þótt þjaki böl meS þungum hramm, þrátt fyrir allt þú skalt — j þú skalt samt fram. I dag er öld liðin, síðan sá at- burður skeði á amtmannssetrinu á Möðruvöllum í Hörgárdal, að drengur fæddist. Slík tíðindi eru ekki ætíð talin mikils vísir, en þó réðu örlög sve, að þarna var á ferð sveinn, er borinn var til óvenjulega stórbrotins hlutverks með þjóð sinni, og þau sköp ætluð að verða hvort tveggja, dáð höfuð- skáld og fyrsti ráðherra og æðsti maður þjóðar sinnar á morgni þjóðfrelsisdags. Hannes Þórður Hafstein fæddist 4. des. 1861. Hann var sonur Pét- urs amtmanns Hafstein, sem kom- inn var af dönskum kaupmönnum, og höfðu föðurfrændur hans haft verzlunar’setur á Hofsósi. Móðir Hannesar var hins vegar af sterk- um íslenzkum ættum, Katrín Kristjana Gunnarsdóttir, prests í Laufási, og því systir Tryggva Gunnarssonar, bankastjóra. Hún var þriðja kona Péturs amtmanns. Þegar Hannes fæddist, hafði fað ir hans verið rúman áratug amt maður á Möðruvöllum. Þar ólst Hannes upp fyrsta áratuginn i stórum systkinahópi. Árið 1870 hvarf Pétur frá amtmannsembætti og ílutti að Skjaldarvík við Eyja- fjörð, óg þar átti Hannes heima unglingsárin. Vandist hann þar sjómennsku, og stóð eftir það jafn- an hugur til sæfara og siglinga, að sögn kunnugra manna. Tólf ára gamall var Hannesi sendur í Latínuskólann. Var hann! bráðger og þá þegar kominn vel á námsbraut, enda sóttist honum nám vel og var oftast efstur í sín- um bekk í skólanum. Þótti kenn- urum skólans, sem þar færi ein- hver hinn efnilegasti piltur, er um sinn hefði gist skóla þeirra. Hannes var fríður sýnum, hár og þrekinn um herðar, vel vax..,n, snemma skáldmæltur, hrókur alls fagnaðar, orti mikið á skólaárum, einkum lofsöngva um lífið, fegurð þess og unaðssemdir, þótti fynd- inn vel og skaut fram meinlegum stökum um félaga sína eða kenn- ara. Björn M. Ólsen, prófessor, lýsir' Hannesi með svofelldum orðum um þær mundir, sem hann lauk prófi úr Latínuskólanum með hárri fyrstu einkunn: „Hann var hár vexti, þrekinn um herðar og miðmjór, dökkur á brún og brá en þó ekki vaxin grön, svipur þó hreinn og heiður, andlitið frítt og reglulegt eins og mótað að rómverskum fegurðar- lögum“. •Nítján ára gamall, árið 1880 hélt Hannes til laganáms í Kaupmanna- höfn. Þá voru umbrotatímar í Danmörku. Brandes var á hátindi og boðaði stjórnmála- og menn- ingarkenningar sínar af alefli. Danskir 1 smábændur voru í upp- reisnarhug og létu ekki standa við orðin ein. Hreyfing Brandesar hreif Hannes, og hann kynntist Brandesi og ýmsum fyrirmönnum hreyfingarinnar. Drachmann þótti þá og djarfast skálda í Dantnörku, og Hannes dáðist að ljóðum hans og varð fyrir greinilegum áhrifum, sem sjá má í ljóðum hans frá þess- um árum. Hannes sinnti laganám- inu lítt framan af, en las því meira skáldskap og orti. Þá gerðist hann og meðútgefandi tímaritsins Verð- andi, svo sem kunnugt er, og þar birtust ýmis Ijóð hans Náðu þau mikilli hylli á íslandi og þóttu ort af glæsileik og þrótti, þótt Verð- andi ætti annars takmörkuðum vin sældpm að fagna og kenningar þær, sem þar voru boðaðar. Einari H. Kvaran, rithöfundi, meðritstjóra Hannesar við Verð- andi þótti svo mjög kveða að þessu unga glæsiskáldi, að hann taldí, að snilld Hannesar hefði haft nokkuð lamandi á'hrif á suma aðra, þeim uxu svo í augum yfirburðir hans, að þeir þorðu vart strengi að hræra. En Hannes naut líka lífsins og æsku sinnar í ríkum mæli á þess- um Hafnarárum, hafði góð fjárráð og gat leitað á náðir Tryggva móð- uibróður síns, sem þá bjó í Höfn, þegar að kreppti í þeim efnum, hann var allra manna glaðvær- astur, fjörugur í vinahópi og flest- um hugljúfi. En námsferill Hannesar varð í litlu frægur. Hann tók þó á sig rögg, þegar leið að lokum garð- vistartíma, rauk svo í próf var'bú- inn og lauk því, þó með annarri einkunn. Kannes réðst þagar heim að námi loknu. Hann var þá þegar þjóðkunnugt og dáð skáld, rúm- lega hálfþrítugur að aldri. Hann hafði fremur hægt um sig næstu árin, var sýslumaður Dalamanna nokkra mánuði og dvaldi á Staðar- felli. síðan málaflutningsmaður við landsyfirréttinn, ritari hjá landshöfðingja, og síðan sýslu- maður ísfirðinga frá vori 1896 og gegndi þvi embætti, unz hann varð ráðherra 1 febr. 1904. Hannes Hafstein lét sig Jitlu skipta á yfirborði stjórn stjórnmál mál fyrstu misserin eftir heim- komuna, en á Þingvallafundinum var hann annar fulltrúi Gull- bringu- og Kjósarsýslu, og með þeim fundi má segja, að þátttaka hans í íslenzkum stjórnmálum hefjist að marki. Svo kyn'lega vill þó til, að það er enginn æsibyr, sem þar fleytir Hannesi fram, heldur verður hann þar til and- spyrnu og stendur nær einn uppi gegn fundarfulltrúum. Til fundar- ins var, sem kunnugt er, boðað til þess að knýja fram kröfu um end- urskoðun stjórnarskrárinnar, er fæli í sér verulegar stjórnarbætur. Hannes inælti gegn þessu og komst þá í fyrsta sinn í kast við Benedikt Sveinsson og Skúla Thor- oddsen, en í síðari stjórnmálaátök- um urðu með þessum mönnum ýmsar greinar. Hannes fór þó gæti- lega á þessum fundum, en fékk þó þegar það orð, að hann mundi nokkuð íhaldssamur, enda var á þeim árum aðeins litið á sjálf- stæðismálin, þegar slíkir dómar voru upp kveðnir. Á þessum árum kvæntist Hannes Ragnheiði Stefánsdóttur, sonardóttur Helga Thordersen biskups. Móðir Ragnheiðar var Sigríður Ólafsdóttir Stephensen, en hún hafði verið áður miðkona Péturs amtmanns á Möðruvöllum, föður Hannesar, en þau skildu eftir skamma sambúð, barnlaus. Þau bjuggu fyrst í Þingholtsstræti 12 í Reykjavík. Þau eignuðust mörg böm, og er margt fólk frá. þeim komið. Á þessum árum, eða fram yfir aldamótin, orti Hannes heldur lítið, og eru engin hinna helztu kvæða hans frá þeim tíma, nema aldamótaljóðin. Hannes bauð sig fyrst fram til þingmennsku í Gullbringu- og Kjósarsýslu, en náði ekki kosn- ingu, en árið 1900 náði hann kosn (Framhald á 12. siðu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.