Tíminn - 08.12.1961, Blaðsíða 6
6
T f W t v iv. föstmla.ff'nn * desember 1961.
Jóhann M. Kristjánsson skrifar rm:
„Caroia“
eftir Joan Grant í þýðingu Steinunnar S. Briem
— í vandaðri útgáfu prentsmííTunnar Leiftur.
Er CAROLA DI LUDOVICI,
laundóttir „FINN GÁLKN SINS“
og fátækrar saumastúlku, — fædd
á ÍTALÍU á sextándu öld —
SEKEETA, prestynja ljónsins og
VÆNGJAÐUR FARAO EGYPTA-
LANDS endurborin, og því
gamall vinur okkar, sem lásum
„Vængjaðan Faraó“ eftir sama
höfund og sama þýðanda, sem út
kom á s.l. ári?
Þessari spurningu verður hver
lesandi að svara fyrir sig, eftir
að hafa lesið báðar þessar bæk-
ur.
„CAROLA“ lýsir litauðugu lífi
stúlku, sem frá bernsku berst við
hungur, pyntingar, sjálfan dauð-
ann og svartasta myrkur blindra
og ofstækisfullra trúarskoðana,
sjálf sökuft um villutrú og galdra.
En í öllu þessu andstreymi slokkn-
ar aldrei dulvituð vissa hennar
um tilgang lífsins, réttlæti og kær
leika Guðs. Fórnfýsi hennar, mildi
og umburðarlyndi — við alla
nema hina grimmu abbadís i
klaustrinu — færa birtu og yl.
hvar sem hún fer. Með hugleiðslu
og í svefni fer hún úr líkaman
um og sækir á hærra vitundarsvia j
margs konar reynslu og þekkingu.;
sem hún að meiru og minna
leyti getur samrýmt vökuvitund;
sinni, en eins og í öllum dulspeki-1
fræðum eru líkamaklæddar verur í
aðeins gervi hins absolúta sjálfs.
Höfundur gefur því stundum
þessu „sjálfi“ orðið, sem talar þá
um Carolu í annarri persónu, og
sem slík sér hún, hvar Carolu hef
ir mistekizt; „ . . . . ég vissi, að
einhversstaðar f þessari þyrpingu
var það ég, sem vissi allt, er Car-
ola þráði að vita . . . . “
„CAROLA" or bitur ádeila á
skinhelgi, vonzku og heimsku
mannanna. Hún er hrópandinn í
eyðimörkinni um hjálp til handa
sjúkuim og þjá'ðUm. Hún talar
hispurslaust um feimnismái kynj-
anna, sem á auglýsingamáli kvik-
myndahúsa mundi heita „óvenju
djörf". Hún er fagur óður til ást-
arinnar, en harmi slegin yfir því
eitri er mennirnir blanda hana.
Hún er hetjan í harmleik grimmra
örlaga, raunsæi á rök lífsins er
hennar styrkur.
Ég gef henni orðið i eftirfarandi
línum:
MÓÐIR CAROLU:
„Til eru þrjár gyðjur, sem all-
ar eru systur. Þær heita Ást, Sorg
og Hatur. Sá, sem aðeins þekkir
JOAN GRANT
Ást, er blessaður. Sá, sem þekkir
Sorg, getur einnig kynnzt Ást,
og þá lætur hann huggast. En sá,
sem velur sér Hatur að félaga til
að verjast Sorg. þannig að hann
sjái ekki ásjónu Ástar, hann deyr
eins og sporðdreki — af völdum
síns eigin eiturs
GLEÐIKONAN LUCIA: „ .
Vændiskonur ættu að vera kaldar
eins og Appenninafjöll á vetrum,
því að skyldi eldur ástarinnar
þíða frosna einangrun þeirra,
munu tár þeirra streyma eins og
ár í vatnavexti á vorin . “
CAROLA VIÐ CARLOS: „
Aðei.ns óréttlætið er grimmt —
og ef við lítum lengra en til ytri
forma veraldlegrar tilveru, sjáum
i vi.ð, að ekkert óréttlæti er til“
Sjáðu, héma er blóð á fingrin-
u.m á mér. þar sem ég stakk mig
á þymi. Á ég að ásaka rósina
fyrir að hegna mér — eða viður-
kenna. að þag var ég sem tók
ógætilega á henni?“..........sama
máli gildir um öll sár, hvort sem
| þau eru hjartasár eða holdleg sár
það erum við sjálf, sem völd er-
um að þeim okkur til ógæfu Er ,
eigi að síðUr er þessi sama ógæfa
fræið, sem korn reynslunnar vex I
af. og úr því korni er hakað hið
lifandi brauð" ,.Ég sé ást
j ina sem stiga, sem nær til eilífð
arinnar: sá, er gengur þann stiga.
! verður að þekkja hverja tröppu
í honum — ef hann hefu.r aldrei
þekkt girndina og sigrazt á henni.
j getur hann ekki hafið sig yfir tak
j markanir holdsins, fágað sál sína
ng'fullknmnað andann “
PETRUCHIO VIÐ CAROLU:
.........Um stundarsakir getum
j við lifað í ljósi annarra. og þá
verður myrkur okkar uppljómað
En Öll verðum við einbvem tíma
ð kveikja okkar eigin loga, við
-erðum að skýla honum með hönd
um okkar. þótt hann kunni að
hrenna holdið. því að geti vindar
eiklyndisins slökkt hann, verður
. hundrað sinnum erfiðara að
tendra hann afturo ‘gn^
'n.ann í fyrsta siiináuofiánllstó 'gíáeð
i- þennan loga. er kannske t.ár
| okkar' og blóð hjartans, en við
I megum ekki vera nízk á hana —
því að þessi logi mun að lokum
lýsa okkur að hliðum himnaríkis.";
RÖDDIN: .. . Þú þekktir ást,;
ósveigjanlega sem sjávarföll, og
sem ströndin skalt þú gleypt
verða í ástríðu dýpri en sjálf haf-
djúpin, og þá mun hann yfirgefa
þig mjúka og óflekkaða til þess
eins að snúa aftur og leita hylli
þinnar.
„Af mætti mínum munt þú aftur
fæð&st til lofs manna. Þú skalt
klæðast fegurðinni sem jasminu-
sveig, og skáldin munu skrifa nýtt
TEINUNN S BRtE/V.
orð á blöð sín, er þeir lofsyngja
yndis-leikann: nafn þitt. Og þú
munt syngja, eins og engin rödd
hefir áður sungið, með öllum
kristalblæbrigðum draumsins “ ^
CAROLA: „Þá sá ég sýn öll:
þau. sem voru é g, eins og mynd-
vefnað úr Ijósgeislum Hann var
ímynd fortíðar minnar, . . Það
var ,ekki Lúsifer, sem ég hafði
séð, heldur é g. Það é g, sem Car-
ola verður að hjálpa til að tor-
tíma“ é g óttans, é g valdagræðg-
innar, é g, sem táknar. gleymsku
hin>s raunverulega é g“.
CAROLA VIÐ CARLOS: . . . .
,,Guð verður aðeins séður í spégli
okkar eigin hjarta, og aðeins í
rödd reynslunnar getum við heyrt
svör Hans við ölum spurning-
um ..... I
CAROLA: „ ; . Ég sá sýn
það é g, sem er É G.“ ....
Þegar þýða á ljóð, kemur fleira
til greina en tungumálakunnátta
ein.
Djúpsæ ljóð verða ekki að skað
lausu flutt af einu tungumáli á
annað. nema af þeim, er sjálfur
gæti náð tilsvarandi dýpt í hlið-
stæð eigin verk.
Sama gildir um þýðingar á dul-
fræðilegum bókum.
Frú Stei.nunni S. Briem hefði
því ekki nægt hið fullkomna vald
er hún hefir yfir enskri tungu,
og óvenju fágaður stíll íslenzks
máls við þýðingar á bókum Joan
Grant — „Vængjaður Farao" og
Carola“ — ef hún hefði eikki
áður sótt í djúp dulinna raka til-
' erunnar þá innri vitund, sem er
frumskilyrði þess að geta skynjað
hið bjarta hljómfall hins æðra
lífs, en þessar bækur báðar eru að
miklu leyti um efni, sem er utan
við þann heim skynjana. er við
iaglega hrærumst í
Hve mikið þær stöllur — Joan
Grant og Steinunn S. Briem — eiga
hvor um si.g í þeim b 1 æ, er einn
megnar að gára dulvitund lesaud-
ans. og ef til vill vekja ferska
vinda úr dámollu andlegs sljó-
leika, skal ósagt hér. en eins og
svifþanin norðurljós — í svölu
og tæru heiði norðursins —
tendra ljósofnum vöfum myrkan
hadd næturi.nnar, eins bregða
leiftrum dulofnir töfrar andlegr-
ar birtu og hreinleika á myrkt og
dapurlegt umhverfi Carolu, eintöl
henuar og samtöl við ýmsar per-
sónur bókarinnar, eins og þau
koma í hendur íslenzkra lesenda
í þýðingu frú Stei.nunnar S. Briem.
Listin að skrifa, er sú, að hægt
sé að „lésa“ meira en það. sem
skrifað er, listin að lesa er sú, að
geta ,,lesið“ það, sem óskrifað er.
Höfuudi og þýðanda,„CAROLU“
hefir tekizt það fyrrnefnda. Það
er lesandans að leita.bess síðara.
Reykjavík 4.12. 1961.
Jóhann M. Kristjánsson. ,
Það er engu líkara en að Tíminn
hafi einhvern sérstakan ýmigust á
Þjóðleikhúsinu, og flest tækifæri
notuð til þess að hnýta í það. Ef
eitthvert leikfélag sýnir leikrit, þá
eru þær sýningar hafnar til skýj-
anna, það eru hinir stóru leiklist-
arviðburðir í sögu þjóðarinnar, og
ekki nóg með það, heldur þarf
endilega að koma því að um leið,
hvað þessar ieikfélagasýningar séu
miklu betri heldur en leiksýning-
ar Þjóðleikhússins. Þegar leik-
gagnrýnandi Tímans skrifaði t. d.
um síðustu leiksýningu Leikfélags
Reykjavíkur, þá dugði ekki minna
en að segja að fagmennirnir í leik-
listinni væru í Iðnó en amatörarn-
ir í Þjóðleikhúsinu.
Nú síðast þegar tilraunaleik-
flokkur, sem kallai sig Grímu,
sýndi leikrit í Tjarnarbíói, notar
annar „spekingurinn" tækifærið til
þess að bera á borð lygar um mig
og stefnu mína í leiklistarmálum.
Þar heldur hann því fram, að ég
hafi lýst yfir algjörri stefnubreyt-
ingu, já, álgjöru skipbroti, að fram-
Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri:
Hvar er menningin
vegis skuli eingöngu sýna kassa-.við Alþýðublaðið í haust. að leik-
stykki, menningin skuli fyrir bí. j húsið ætti í fjárhagslegum örðug-
Nú á ekki lengur að loga á menn- leikum, fyrst og fremst vegna
ingarvitanum, segir greinarhöf- j þess, að allur tilkostnaður hefði
undur, og þess vegna sé það mikið aukizt og allt kaup hækkað mikið,
gleðiefni að um leið ég ég hafi j og aðeins sú kauphækkun. sem lög-
lýst yfir aigerri stefnubreytingu
Þióðleikhússins. „hafi kviknað á
menningarvití í aflóga bíói“. Það
er ánægjulegt að leikararnir í
. Tjarnarbíói nemendurair úr Leik-
jlistarskóla Þjóðleikhússins, skuli
jverða að menningarvita otrax og
þeir koma í þetta aflóga bíó En
j það er leitt. að þeir skuli bara vera
jlélegir amatörar þegar þeir leika
j á sviði Þjóðleikhússins!
Það, sem höfundur umræddrar
greinar notar til þess að snúa út
úr, er það. að ég sagði í viðtali
boðin hafði verið í. sumar. yki út
gjöld leikhússins. um 800 þúsund
kr. á ári og ekki væri hægt að
hækka aðgangseyri, sem þessum
hækkunum öllum næmi. Þá gat ég
þess, að styrkur sá. sem leikhúsið
fengi, væri alltof lítill og ekki
nema einn tíundi af því, sem sam-
bærileg leikhús fengju i nágranna-
löndum vorum á Norðurlöndum.
Þjóðleikhúsinu væri nauðsyn að fá
meiri fjárhagslegan stuðning frá
ríkinu. En ef við fáum engan
stuðning frá því opinbera. neyð-
umst við tij þess að sýna „kassa-
stykki" og hækka aðgangseyri,
hefur blaðið eftir mér.
Um þetta segir þannig í þessu
umrædda viðtali við mig:
„Mér finnst því ekki óeðlilegt,
og ekki nema sjálfsagt, ag hið
opinbera geri það (þ.e.a.s. styrki
leikhúsið meira), vegna þess, að
fjárhagslegir örðugleikar eins og
þessir valda því, í fyrsta lagi, að
ekki er hægt að leggja í ýmislegt,
sem maður vildi gera og krögg-
(Framh á 13. síðu.)
>- N-N-X*X*V*X*V*
•V-XX»VX*X*VX*X
ÞAKKARÁVÖRP
Ég þakka innilega kveðjur, gjafir og aðra vinsemd
á 85 ára afmæli mínu 30. nóvember síðast liðinn.
Ásgeir frá Gottorp.
••VX-X,V.'V.'V.X,-V.-V-X.'V.-\..\ ■v.v x x v. v.N.v x.v.v
Innilegar þakkir til vina og vandamanna sem heiðr-
uðu mig á sextíu ára afmæli mínu 8. nóv. s.l. með
gjöfum, heimsóknum og skeytum.
Hjartans þakkir til ykkar allra
Guðbjörg i Sandfellshaga.
KAPPDRÆTTI H SKÓLÁ ÍSLANDS
Dregið á mánudag í 12. flokki Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
3150 vinningar að fjárhæð 7.890.000 krónur desember-
Ath.: Aðal?krifstofan verður lokuð briðjudagp
HAPPDRÆTTI HJÍCKÓL/I ÍSLANDS
12. fl.
1 á 1.000.000 kr 1.000.000 kr.
1 - 200.000 200.000 i
1 - 100.000 100.000 —
117 - 10.000 .170.000 —
564 - 5.000 ^.820.000 —
1 460 - 1.000 ? 460.000 —
Aukavinningar
2 á 50.000 10.000 kr.
4 - 10.000 40.000 —
4 - 10.000 \ \ 40.000 —
3.150 7.890.000 kr.