Tíminn - 08.12.1961, Blaðsíða 11
TÍMINN, íöjíadsgjnn
desember
11
um borð í
Flestum líkaði vel viS Juli-
an Harvey. Hann var mynd-
ariegur maður á velli með
liðað hár, 44 ára að aldri.
Hann var orðinn vel þekktur
á höfnunum í Florida, þar
sem hann vann sem skip-
stjóri og stundum sem háseti
á leigusnekkjunum. Hann
var mikill líkamsræktarmað-
i»r og hreystilegur á velli. Og
það sem meira var, hann var
eins hugrakkur og hann leit
út fyrir að vera.
í sextán ár var Harvey í flug-
hernum. Hann flaug til Afríku,
Evrópu og Suðurhafseyjanna í
heimsstyijöldiimi síðari. Hann
gat sér mikla frægð fyrir dugn
JULIAN HARVEY
að og hreysti og hlaut heiðurs-
peninga. En hreystimennið mikla
stytti sér aldur síðast í nóvember
á þessu ári, og sjálfsmorð hans
varð til þess, að ýmislegt áður
óþekkt kom í ljós um fyrra líf
hans.
Einn til frásagnar
í fyrstu virtist sem Harvey
hefði stytt sér aldur vegna
harms. Eiginkona harts, Mary
Dene, 34 ára, fyrrverandi flug-
freyja, sem hann hafði verið gift-
ur í aðeins fjóra mánuði, hafði
farizt fjórum dögum áður, þegar
jkemmtisnekkjan Bluebelle, sem
Harvey stjórnaði, sökk. Julian
Harvey komst í björgunarbál
ásamt René- Duperrault, 7 ára
dreng, sem var einn af farþegun-
um. Þegar þeim var bjargað, var
drengurinn dáinn. Harvey var
því einn til frásagnar um þennan
harmleik.
Snekkjan Bluebelle hafði verið
leigð til viku skemmtisiglingar af
hinum auðuga dr. Arthur Dup-
errault. Auk hans voru með í för-
inn kona hans, Jean, synir þeirra
tveir, Brian, 14 ára, og René og
dóttir þeirra, Terry Jo, 11 ára
gömul. Mary Harvey eldaði mat-
inn og njálpaði eiginmanni sín-
um við sjglinguna. í tvo daga var
snekkjan á hægri siglingu á milli
Bahama-eyjanna. Helginni eyddi
fólkið á Great Abaco-eynni, og
dr. Duperrault hafði orð á því
við mann einn, sem hann hitti
þar, að þetta væri yndis-legasta
leyfi, sem hann hefði nokkurn
tíma átt. Síðan sigldi snekkjan
áleiðis til Florida.
Harvey sagðist svo frá, að um
kl. 11 að morgni, daginn eftir að
þau sigldu af stað til Florida,
hefði komið skyndilega svipti-
vindur, sem braut aðalmastrið,
áður en hann gat fellt seglin.
Mary Harvey og dr. Duperrault
meiddust lítilsháttar, þegar
mas'trið féll. Harvey var aðskil-
inn frá þeim vagna mastursins,
sem lá þvert yfir þilfarið. Þá
brauzt út eldur í snekkjunni, sem
breiddist ört út í áttina til segl-
anna, sem lágu í hrúgij á þilfar-
inu. Harvey setti út björgunar-
bátinn og skipaði, að allir yfir-
gæfu snekkjuna. Síðan steypti
hann sér í sjóinn og synti að
björgunarbátnum, sem rak und-
an. Hann gat náð René, sem flaut
meðvitundarlaus á sjónum í allt-
of stóru björgunarbelti. Af öðr-
um sá hann hvorki tangur né
tötur. Næsta morgun, þegar þeim
væri að sökkva, og hann svaraði
því játandi. Síðan fór hann frá
mér og náði í björgunarbátinn,
og ég sá hann ekki meira, svo að
ég náði mér í lítinn fleka og
komst á hann. Ég sá aldrei neitt
af hinum, enda var þá svo dimmt.
Sjórinn var sléttur. mastrið var
í lagi, og það var engin merki
elds að sjá.
Harvey hafði verið kvæntur
sex sinnum, og þær fyrrverandi
eiginkonur hans, sem enn eru á
lífi, eru allar sammála um það,
að hann hafi verið hégómagjarn
og erfiður eiginmaður. og ást
hans haíi kólnað fljótt.
Fyrsta kona hans sagði: — Ég
fullnægði alls ekki kröfum hans,
og ég held, að það hafi engin
kona getað. Hann var mjög eigin-
gjarn. Hann hafði sífelldar á-
hyggjur út af sjálfum sér.
Þriðja kona hans sagði: — Ég
veit ekki enn, hvers kona ég var.
Það var ekki eins og ég væri
yfirleitt gift. Hann hafði einungis
áhuga á sjálfum sér.
Það kom einnig í ljós, að
Harvéy hafði verið skuldum vaf-
inn, og lánardrottnar hans voru
orðnir óþolinmóðir. Tveim mán-
Danska akademían úthlutaði nýlega bókmenntaverðlaunum sínum, sem
námu að upphæð 50 þúsundum danskra króna. Þau féllu í skaut rit-
höfundurinn Knuth Backer, og sézt hann á myndinn! hér að ofan ásamr
norsku skáldkonunni Karen Blixen, sem óskar honum til hamingju.
var bjargað upp í skip, var dreng-
urinn látinn.
Svo sagði Harvey.
Framdi sjálfsmorð
En þrem dögum síðar barst
sú fregn, að Terry Jo Duperrault
hefði fundizt á litlum fleka, með-
vitundarlaus, þjökuð og hræði-
lega sólbrunnin. Grískt vöruflutn-
ingaskip fann hana. Ef hún kæm-
ist til meðvitundar á ný, yrði hún
annað vitni að harmleiknum.
— Ó, guð minn góður, þ'etta er
dásamlegt, stamaði Harvey, þeg-
ar Jjann heyrði fregnina.
v iífláugo *r^i.útum síðar afsakaði
hann sig rö| fór til gistihúss síns,
þar sem hann skar ?ig á háls með
rakvélarblaði.
Vinir Harvey sögðu, að sjálfs-
morð hans hefði stafað af því, að
hann heíði lifað af of mörg slys
um ævina. Áiið 1949 lifði hann
af bílslys, þegar hann ók bíl sín-
um í gegnum handrið á brú í
Florida og bifreiðin steyptist nið-
ur í fljótið. Önnur kona hans og
móðir hennar fórust. Tvisvar
sinnum hafði hann orðið að
varpa sér í fallhlíf út úr brenn-
andi vélum, og einu sinni hafði
hann sloppið með naumindum
frá nauðlendingu og meiddist þá
svo, að hann varð að hætta í
flughernum. Og þrisvar sinnum í
viðbót haíði Harvey. bjargað líf-
inu naumlega, þegar slys bar að
höndum. Vinir.hans staðhæfðu.
að atvikin með Bluebelle hefðu
orðið taugum hans ofraun.
Að ósk Julian Harvey var líki
ans sökkt í sæ, vöfðu í rauðan
flauelsdúk. Einmitt um sama
Ieyti náði Terry Jo sér svo, að
hún gat talað. Og þá fór sjólfs
morð Harvey að fá aðra þýðingu.
Vitnisburður Terry var algjör
mótsögn við það, sem Harvey
hafði sagt. Kvöldið, sem þessi
hræðilegi atburður átti sér stað,
fór hún og René bróðir hennar
‘:1 klefa sinna um kl. 9.
— 'Skömmu síðar vaknaði ég
/ið óp og hávaða, svo að ég fór
upp til að aðgæta, hvað gengi á.
Þá sá ég móður mína og bróður
liggja .á þilfarinu, og allt flaut í
hlóði. Ég fór til skipstjórans, en
hann skipaði mér að fara niðu
aftur. Skömmu síðar birtist skir
tjórinn i klefanum með riffi!
'endinni, en hann fór aftur. á
þess að gera okkur mein. En þ
ók sjó að flæða inn í klefan:
og þegar hann náði upp að rúm-
inu mínu. fór ég aftur upp á þil
far. Ég varð hvorki vör við föður
minn eða Mary Harvey. Ég
spurði Harvev, hvort snekkjan
Þegar vitnisburður Tefry Jo
hafði verið opinberaður, fór ýmis-
legt fleiia skuggalegt að koma i
ljós í sambandi við Julian
Harvey. Þegar hann komst einn
lífs af úr bifreiðarslysinu. en
kona hans og tengdamóðir
drukknuðu í fljötinu, undruðust
lögreglan, kafarinn, sem rann-
sakaði hinn sokkna bíl og tengda-
faðir Harvey, að HarVey skyldi
komast oskaddaður út úr bílnum
og að hann skyldi ekki reyna
néitt til þess að hjálpa konunum,
sem fórust.
— Bifreiðin var á slíkum
hraða og fallið niður í fljótið það
lágt, að vafasamt er, að nokkur
maður hefði komizt út úr bif-
reiðinni, áður en hún náði vatns-
yfirborðinu, án þess að hann
væri slíku viðbúinn, sagði kafar-
inn.
Þegar grafizt var fyrir um
önnur slys þau, sem Harvey hafði
lent í, kom i ljós, að þar var
einnig eitthvað óhreint á ferð-
inni, enda hafði hann hagnazt á
þeim skaðabótum, sem honum
voru dæmdar vegna þeirra. Hann
hafði einnig hagnazt á skaðabót-
um vegna missis Bluebelle.
TERRY JO DUPERRAULT
uðum áður en Bluebelle fórst,
liftryggði hann Mary Harvey fyr-
ir 20 þúsund dollara.
En að öllum líkindum mun
saga Juiian Harvey aldrei öll
verða kunn, og þá ekki heldur,
það sem skeði um borð í Blue-
belle. Og ef litla stúlkan hefði
ekki bjargazt með svo undursam-
legum hætti, hefði sú saga aldrei
verið einu sinni hálfsögð.
Við birtum nýlega myndir og frásögn af lífinu í „Holubænum" hérna
á síðunnl. Vegna rúmleysis urðum við þá að sleppa þessari skemmti-
iegu mynd.sem birtist nú hér að ofan. Lltla stúlkan vinnur að verk-
efnl sfnu af sýnilegri alvöru.