Tíminn - 23.12.1961, Page 1

Tíminn - 23.12.1961, Page 1
Skákþáttur Friðriks Ólafssonar Bls. 12 Fólk er beðið að afhuga, aS kvöldsími blaðamanna er 1 8303 324. tbl. — Laugardagur 23. desember 1961 — 45. árg. Síldin færir fólki jólaglaðning sem nemur milljónum króna í gær var landað síld fyrir um tvær og hálfa milljón króna í gær var mikill afli hjá síldarskipunum, en ekki var jafn miklu magni síldar land- að þá eins og á fimmtudaginn. Þá var landað 34.745 tunnum á 6 stöðum, en í gær 26.575 á 7 stöðum. Reikna má með, að fyrir bræðslusíidartunnuna fá- ist tæpar 90 krónur, og gerir þá dagsaflinn í gær um tvær og hálfa milljón króna. Líklega hefði verið hægt að veiða meiri síld, en vegna þess, hve allar löndunarstöðvar voru fullar frá deginum áður var ekki hægt að' taka á móti meira síldar- magni. 'Timanum er kunnugt um það, að a. m. k. þrír bátar, Eld- borg, Árni Geir og Auður, hættu veiðum og sneru heim, vegna þess að þeir óttuðust, að hvergi yrði hægt að landa, og liggja yrði með síldina yfir hátíðina. — Hafnar- fjörður lokaðist svo að segja í fyrradag, Keflavík taldi sig ekki geta tekið á móti meiru fyrir jól, Reykjavík gat ekki tekið nema úr Reykjavíkurbátum og árangurinn var sá, að margir bátanna fóru til Vestmannaeyja, en þangað komu í gær tæpar 7000 tunnur síldar. Ca, 12000 í Reykjavík f Hafnarfirði var tekið á móti ca. 1400 tunnum, en það voru slatt- ar úr mörgum bátum, sem komu með frá 80 upp í 150 tunnur hver. Til Reykjavíkur bárust um það bil 12000 tunnur, ca. 2500 til Akra- ness, Keflavík tók á móti nálægt 3000 tunnum, Sandgerði um 700 tunnum og Giindavík 325 tunnum úr einum bát. Mest í bræSslu Mest áf þessari síld var milli-1 síld og stór innan um, og fór að! langmestu leyti í bræðslu. Eitt- hvað mun þó hafa farið til fryst- j ingar í sumum verstöðvunum, en | það var ekkhmikið. Mest af þess-i ari síld veiddist á Skerjadýpi, suð-1 vestur af Eldey, en nokkuð út af Jökli. Fimm milljóna tap Fyrstu fimm daga þessarar viku bárust 93.101 tunna á land í 6 verstöðvum, Grindavík, Sand- gerði, Keflavík, Hafnarfirði, Reykjavík og Akranesi. Auk þess kom einhver síld til Vestmanna- eyja, en ekki er blaðinu kunnugt, (Framhald á 15. síðu). Ný veiðitæki skapa nýja möguleika við síldveiðar Gífurleg síldveiði hefur und- anfarið veriS á Skerjadýpi, suSvestur af Eldey, og undir Jökli. Síldin hefur borizt til allra Faxaflóahafna, og auk þess til Vestmannaeyja, Grindavíkur, Sandgerðis og lítilsháttar á Breiðaf jarðar- hafnir. Samkvæmt upplýsing- um frá Fiskifélaginu í gær höfðu aflast rúmar níutíu og þrjú þúsund tunnur síldar fyrstu fimm daga vikunnar. Þarna er ekki talinn með síld- araflinn í gær, föstudag. Hundrað og átta skip hafa stundað þessar veiðar, sem eru þær mestu er hér hafa þekkzt á þessum árstíma. Hef- ur þessi aflahrota orðið til að veita óhemju fé inn í við- skiptalífið núna rétt fyrir jól- in. Hefur mörgum verið kær- komin þessi jólagjöf Ægis og vonandi að áframhald verði eftir helgidagana, sem nú fará í hönd. Mest af síldinni hefur farið í bræðslu, en tæpar níutíu krónur munu greiddar fyrir tunnuna af bræðslusíld. Nemur því síldarafl- inn þessa fimm daga vikunnar nær átta og hálfri milljón króna. Blaðið hafði tal af Jakob Jak- obssyni, fiskifræðingi, og spurði hann um orsakir þessarar miklu aflahrotu. Hann sagði að afla- brögðin væru nýjum veiðiaðferð- um að þakka eða öllu heldur þeim nýju tækjum, sem beitt væri við veiðarnar i stöðugt ríkara mæli. Sífellt ykist sá fjöldi skipa, sem búinn væri þessum tækjum og kæmi það að sjálfsögðu fram í auknu aflamagni. Þessi nýju tæki jeru fiskisjár og kraftblakkir. í jfyrra voru þrjátíu skip búin.þess- jum tækjum, en í ár eru þau orðin hundrað og segir það rækilega til i6Ín. Mikið magn í Sú síld sem nú veiðist er ung, sagði Jakob, fimm ára og yngri. Það sem veiðist undir Jökli er þriggja til fimm ára, en á Eldeyj- arsvæðinu er síldin enn yngri eða SILD Þessi stúika var aS vinna aS flokkun á síld hjá Bæjarútgerðinni í gær. Hún notar jólafríið sitt tll að1 til þriggja ára, og er ná sér i óvæntar tekjur. Stúlkurnar hjá Bæjarútgerðinni sögðust eyða launum sínum í jólagjafir. Það er skyn j yirði'sTum sterka ^irfUm^væra (Framhald á 15. síðu). samlegt, þegar síldina og jólin bera upp á sama tíma. (Ljósm.: TÍMINN — GE). Unnið dag og nótt í síld

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.