Tíminn - 16.02.1962, Qupperneq 12
i-
ÍÞRDTTIR
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Afmælisskíðamdt
Í.S.Í. á sunnudag
Skíðamót verður haldið í
tilefni af fimmtíu ára afmæli
íþróttasambands íslands,
sunnudaginn 18/2 1962, við
skíðaskálann í Hveradölum.
Mótið verður sett kl. 2 e. h.,
af form ~nni S.í. Einari B. Páls-
syni, sem flytur ræðu við
þetta tækifæri, síðan hefst
keppni og skráðir eru um 40
þátttakendur á mótið.
Keppendur eru frá Akureyri,
ísafirði, Ólafsfirði, Siglufirði svo
og Reykjayíkurfélögunum fjórum,
Ármanni, Í.R., K.R. og Víking.
Keppt verður í svigi, um silfur-
bikar, sem gefinn er í tilefni dags-
ins. Bi'kar þessi er eignarbikar.
Margir beztu skíðamenn landsins
keppa á onóti þessu og verður
tvímælalaust enjög hörð keppni.
Mótstjóri er Stefán G. Björns-
son, form. Skíðafélags Rvk. og
með honum í mótstjórn eru: Guð-
jón Valgeirss'on, Þórir Jónsson,
Sigurjón Þórðarson, Guðmundur
Magnússon og Ellen Sigihvatsson.
Á meðan á mótinu sí.en-dur, hef-
ur mótstjórnin skrifstofu í her-
bergi nr. 6 í skíðaskálanmn. Það
eru eindregin tilmæli mótstjórnar,
að keppendur og starfsimenn móts-
ins, mæti fyrir kl. 11, f.h. þar sem
nafnakall er ákveðið við skíðaskál-
ann kl. 11.
Vonir standa til að eldri skíða-
menn verði viðstaddir mót þetta.
Eftir keppni verður sameiginleg
kaffidrykkja í skíðaskálanum í
boði Skíðaráðs Reykjavíkur og
gestgjafa skíðaskálans, Óla J. Óla-
sonar, þar mun einnig forseti Í.S.Í.
Benediklt G. Waage, afhenda verð-
laun.
Mótstjórnin vonar að skíðafólk,
eldra sem yngra, fjölmenni á mót
þetta.
Allar upplýsingar um ferðir eru
gefnar hjiá B.S.R., svo og farmiða-
sala.
Firmakeppni í badminton
Firmakeppni í badminton stend
ur nú yfir og taka um 90 fyrir-
tæki þátt í henni. Eins og áður
er keppnin útsláiíiarkeppni og
falla því úr þau firmu, sem tapa
leik. En jafnframt er keppnin með
forgjafarsniði, svo að úrslit leikj
anna eru yfirleitt mjög tvísýn.
Úrslit firmakeppninnar fara
fram í húsi Vals n.k. laugardag,
þann 17. þ. m. Keppa þá til úrslita
þau 16 fyrirtæki, sem þá verða
enn ósigruð.
Keppt er um fagran silfurbikar,
sem Leðurverzlun Magnúsar Víg-
lundssonar gaf, og er það farand-
gripur. En auk hans, hlýtur sú
stofnun, sem sigrar í mótinu, áletr
aðan silfurbikar til eignar, og
einnig hlýtur það fyrirtæki, sem
verður í 2. sæti, eignarbikar.
Keppt er eingöngu í tvíliðaleik,
og má búast við mjög harðri
keppni og jöfnum leikjum í úrslit
unum n.k. laugardag.
Birgir Kjaran for-
maður Olympíunefndar
Á fundi sambandsráðs
íþróttasambands íslands,
þriðjud. 30. jan. 1962 var
gengið frá skipan Ólympíu-
nefndar íslands fyrir það Ól-
ympíutímabil, er nú fer í
hönd (Ólympíuleikana 1964,
sumarolympíuleikarnir verða í
Tókío í Japan, en vetrar-
leikirnir í Innsbruck 1 Austur-
ríki), og er hún þessi:
Benedikt G. Waage, fulltrúi Al-
þjóðaólympíunefndarinnar á ís-
landi.
Gunnar Vagnsson, tilnefndur af
menntamálaráðherra.
Birgir Kjaran, tilnefndur af
sambandsráði ÍSÍ, og til vara Ólaf-
ur Sveinsson.
Gísli Halldórsson, tilnefndur af
sambandsráði ÍSÍ, og til vara Lúð-
vík Þorgeirsson.
Bragi Kristjánsson, tilnefndur
af fráfarandi Ólympíunefnd.
Jens Guðbjörnsson, tilnefndur
af fráfarandi Ólympíunefnd.
Guðmundui Sigurjónsson, til-
nefndur af Frjálsíþróttasambandi
íslands, til vara Brynjólfur Ing-
ólfsson.
Einar B. Pálsson, tilnefndur af
Skíðasambandi islands og til vara
Gísli B. Kristjánsson.
Ragnar Lárusson, tilnefndur af
Knattspyrnusambandi íslands og
til vara Sveinn Zöoga.
Erlingur Pálsson, tilnefndur af
Sundsambanöi islands og til vara
Ragnar Vignir.
Axel Einarsson, tilnefndur af
Handknattleikssambandi islands
og til vara Valgeir Ársælsson.
Matthías Matthíasson, tilnefndur
af Körfuknattleikssambandi is-
lands og til vara Ásgeir Guð-
mundsson.
Iiermann Guðmundsson, til-
nefndur af framkvæmdastjórn ISÍ
og til vara Axel Jónsson.
Guðjón Einarsson, tilnefndur af
framkvæmdastj órn ÍSÍ og til vara
Gunnlaugur J. Briem.
Hannes Þ Sigurðsson, tilnefnd-
ur af framkvæmdastjóm ÍSÍ og til
vara Sveinn Björnsson.
Hin nýskipaða Ólympíunefnd is-
lands hélt fyrsta fund sinn laug-
ard. 10. febr. s.l. og voru þar
kjörnir í framkvæmdanefnd:
Birgir Kjaran, formaður. Gísli
Ifalldórsson, varaformaður. Jens
Guðbjörnsson, gjaldkeri. Bragi
Kristjánsson, ritari. Hermann Guð
mundsson, fundairitari.
Benedikt G. Waage er sjálfskip-
aður í framkvæmdanefndina sem
fulltrúi Alþjóðaólympíunefndar-
innar á islandi.
Góður hagur Skíða-
félags Reykjavíkur
Vörnin hjá KR opnaðist stundum illa í leiknum gegn Víking á mánu-
dagskvcldið — eins og þessi mynd, sem Runólfur tók, sýnir vel. Björn
Kristjánsson er með knöttlnn frír inn á iínu og enginn KR-ingur nálægt.
Aðalfundur Skíðafélags Reykjavík-1
ur var haldinn 7. þ. m. í Skíðaskál
anum í Hveradölum. Fundarstjóri j
var forscti í. S. í., Benedikt G. j
Waagc, en fundarritari Sveinn Ól- j
afsson, forstjóri. Fáliðað var af
hinum yngri skíðamönnum, en
þeir, sem fundinn sátu voru allt
gamalkunnir skíðamenn.
Formaður félagsins skýrði rekst-
ur þess á s.l. starfsári og lýsti um i
Ieið hag þess, sem teljast verður
góður. Brunabótaverð eigna félags
ins er nú nær 2 milljónir króna,
en skuldir rúmlega 100 þúsund.
Var skýrsla formanns mjög ýtar-
leg. Gjöld meðlima og styrktarfé-
laga námu rúmlega 25 þúsund kr.
Þakkar félagið sérstaklega hinn
mikla stuðning styrktarmeðlim-
anna.
Félagið stóð fyrir 2 skíðamótum
A afmælismóti ÍSÍ á þriðju
dagskvöldið' var Guðmundur
Gíslason heiðraður fyrir að
setja 10 íslandsmet á síð-
asta ári — en það er fjórða
árið í röð, sem hann vinnur
til afreksmerkis ÍSÍ. Guð-
mundur er til hægri á mynd
inni, Benedikt G. Waage í
mi&junni, og stjórnar hann
liúrrahrópum áhorfenda, og
til vinstri er Einar Hjartar-
son, dómari.
s.l. vetur, þ.e. hinu fyrsta Miillers
móti, sem fór fram í janúar og
Riedeismótinu, sem fór fram í
aprílbyrjun.
Gjaldkeri lagði fram endurskoð-
aða reikninga, sem samþykktir
voru samhljóða.
Mikið var rætt um það, með
hvaða móti mætti vekja áhuga
skíðamanna fyrir þessu brautryðj
endafélagi, svo að þeir ótilkvaddir
gerðust meðlimir og styrktu þann
ig starfsemi þess, en föstum með-
limum fer stöðugt fækkandi, þótt
þeir séu enn að viðbættum ævifé-
lögum og styrktarfélögum, hátt á
fjórða hundrað.
Verður það að teljast öfug þró
un á sama tíma og vinsældir skíða
skála þess fara stöðugt vaxandi.
I samráði við veitingamanninn
er svo ákveðið, að meðlimir hafa
vissan forgang um gistingu og
greiða enn fremur mun lægra fyr
ir gistingu en utanfélagsmenn.
Fyrir venjulegar helgar hafa
meðlimir forgang, ef gisting er
pöntuð fyrir hádegi á föstudegi.
Fyrir páska ef pantað er 10 dög
um fyrir skírdag og fyrir aðrar
stórhátíðir ef pantað er með viku
fyrirvara. Verðmunur á gistingu
fyrir meðlimi og utanfélagsmenn
er frá 5 til 10 krónur yfir nóttina.
Formaður félagsins var endur-
kjörinn Stefán G. Björnsson, fram
kvæmdarstjóri. Sömuleiðis með-
stjórnendur og endurskoðendur.
Að loknum fundi. þágu fundar-
menn veitingar i boði félagsins.
Eins og vel á við var snjókoma
og skafrenningur á meðan á fund-
inum stóð og ofsaveður á leið i bæ
inn, en af því hafði enginn áhyggj
ur bæði fram farköst og veiting-
við stýrið.
Er mjög vel til fundið að halda
aðalfundi Skíðafélagsins uppi
Skíðaskála, en þar sem félagið býð
ur bæði fram farskost og veíting-
ar, mætti búast við að þeir væru
betur sóttir.
TIMINN, föstudagur 16. febrúar 1962.
\ . .
12