Tíminn - 16.02.1962, Blaðsíða 15
með kjarnorku
Berlingske Aftenavis telur
sífeilt sterkari líkur til þess,
að molybden verði unniS úr
jörSu á Norðaustur-Grænlandi
með atómorku.
Norræna námufélagið hefur nú
beðið sérfræðinga Kjarnorkumála-
nefndarinnar að gera áætlun um,
hvað það muni kosta að stofna og
reka kjarnorkuver nær því fimm
sinnum stærra en það, sem menn
höfðu áður hugsað sér, til molyb-
denvinnslu í grennd við Meistara-
■vík.
Sú framleiðsla, sem hið nýstofn-
aða námufélag Dana og Ameríku-
manna vonast til að geta komið af
s'tað eftir um það bil tvö ár, verður
í miklu stærri stíl en í fyrstu var
búizt við, og þess vegna verður
atómorkan að vera mun meiri. —
Enn fremur er talið vafasamt,
hvort venjulegt orkuver, þar sem
nota þarf svo mikla orku, sé reis-
andi í þessum eyðilega heimshluta,
þar sem oft er mjög slæm aðstaða
til olíuflutninga vegna ísalaga. —
Hins vegar er örugglega hægt að
reka kjarnorkuver í nokkur ár,
einvörðungu með úraníum, sem ■
flytja má með flugvél.
Ef þessi áætlun verður fram-
kvæmd, verður því fyrsta kjarn-
orkuver Dana reist í nágrenni
Meistaravíkur. Aðils.
Enduryarpsstöð
á Þórshöfn
Sem betur fer er nú svo komið,
að flestir landsmenn búa við góð
eða sæmileg hlustunarskilyrði hjá
ríkisútvarpinu.
Þó er svo, að ‘hér á Þórshöfn og
í nærsveitum eru oft og tíðum
vægast sagt mjög slæm hlustun-
arskilyrði, mér liggur við að
segja engin. Er það afleitt að við
getum ekki heyrt til slíkrar ágæt-
isstofnunar sem Ríkisútvarpið er.
Það er og verður svo snar þáttur
í lífi okkar, ekki sízt þeirra, sem
búa úti á landsbyggðinni, að við
það verður ekki unað, að til þess
heyrist ekki.
Eigi veit ég, hvort þessu máti
hefur verið hreyft opinberlega
fyrr. En ef svo er ekki, þá er
það vissulega tímabært nú.
Eru það vinsamleg tilmæli til
Vilhjálms Þ. Gíslasonar, útvarps-
•stjóra, að hann taki þetta mál í
| sínar hendur nú þegar, því þetta
er mjög aðkallandi.
Þórshöfn 8. 2. 1962
Gísli R. Pétursson.
Sænsk
úrvaisframleiðsla
LEVIN-FRYSTIKISTUR
105 — 250 — 410 lítra.
V.
Samband isl. samvinnufálaga
véladeild.
Frá Alþingi
,'Framhald at 6 siðu)
greiðsla þeirra á frystingarreikn-
ing 1961 nam?
Skúli sagði, að þar sem viðhorf
hefði breytzt nú, væri óhjákvæmi-
legt að framlengja umsóknarfrest-
inn, svo að þeir, sem ekki áttu
kost að sækja í haust, geti einnig
sótt um aðstoð. — Sagði Skúli, að
enginn hefði gert kröfu um, að
lánað væri út á vélar til 20 ára,
heldur 10 ára, og hvers vegna er
ekki hægt að lána bændum út á
vélar til 10 ára eins og útvegs-
cnönnum? — Að bændum gerði
ekert til, hvað vextir væru háir,
vegna þess að þeir kæmu inn í
verðlagsgrundvöllinn, væri firra,
iþví að öll fyrirtæki, hvort sem er
í iðnaði eða sjávarútvegi, njóta
þeirrar aðstöðu að telja vexti til
rekstrargjalda. Landbúnaðurinn
stæði verr að vígi, hvað þetta
snerti, vegna þess að aðeins meðai
skuldir á hvern bónda væru tekn-
ar í verðlagsgrundvöllinn. Sumir
skulduðu mikið og aðrir lítið, og
þeir, sem skulda mikið, fá því ekki
nema hluta af sínum vöxtum reikn
aðan inn í grundvöllinn, en það
væru einmitt þeir, sem skulduðu
cnikið, sem er hér um að ræða.
Ágúst Þorvaldsson sagði að
bændur hefðu orðið fyrir vonbrigð
um, er bráðabirgðalögin skýrðust
og í Ijós kom, að bændum var
ætlaður allt annar og skarðari
hlutur en útvegsmönnuim, og kom
þetta mönnum á óvart eftir fyrir-
heit landbúnað'arráðherra. Ágúst
sagði lausaskuldir bænda aðallega
til orðnar vegna vélakaupa, en þeir
hefðu orðið fyrir miklurn búsifj-
um vegna viðreisnarhækkananna.
Dráttarvél, sem kostaði 50 þús.
1958 kostaði nú á annað hundrað
þús. krónur. í því sambandi minnti
Ágúst á loforð Ingólfs 1959 til
bænda um að dráttarvélar myndu
lækka í verði, þegar búið væri að
afnema Framsóknarskattana. Ág-
úst minnti á, að aðstaða þeirra,
sem búnir væru að gera fram-
kvæmdir og hinna, sem ættu það
eftir, hefði aldrei verið eins ójöfn
og nú. Áður fengu menn lán með
214%—4i/2% vöxtum til 20 eða 25
ára, en nú með 6Y>% vöxtum til
5 til 10 ára skemmri tíma og sam-
tímis og lánskjörin eru gerð þetta
lakari en þau voru, er skellt yfir
tveimur gengisfelli.ngum.
Eysteinn Jónsson minnti á að
Framsóknarmenn hefðu gagnrýnt
bráðabirgðalögin strax og ljóst var,
hve ófullkomin þau voru, en í upp
hafi átti aðeins að afhenda bænd-
um þessi bréf á nþess að gera frek
ari ráðstafanir til að þeir gætu
losnað við þau. Aðalmálgagn ríkis-
stjórnarinnar hefði svarað þessu
með því að segja, að lögin væru
góð og fullkomin. Ef ráðherra
hefði gefið yfirlýsingu um það
strax, að bændum yrði tryggt að
bréfin yrðu gjaldgeng, þá hefði
málið horft öðru vísi við og fleiri
bænd.ur sótt, en ráðherrann gerði
síður en svo nokkuð í þá átt. Það
er ekki fyrr en eftir margra mán-
aða baráttu Framsóknarmanna og
þegar bændur almennt á bænda-
fundum hefðu gengið í málið, að
nokkurt lát kemur á ráðherrann í
mállinu. Hver ætlun ráðherrans
var, sést bezt á því, að við 1. umr.
málsins sagði hann, að vextir
væru fyrst og fremst hafðir svona
háir til þess að bændur gætu sjálf
ir samið um að fá skuldareigend-
ur til að taka við bréfunum. Nú
hafa bréfin að verulegu leyti verið
gerð gjaldgeng í bönkum, og sæist
af þeirri reynslu, sem fengizt hefði
í þessu máli, hversoi skynsamleg
barátta stjórnarandstöðu og góð
saptök geta komið til leiðar, þótt
á brattann sé sótt.
Ingólfur Jónsson sagði það síður
en svo Framsóknarmönnum að
þakka eða bændafundum að samn-
ingar hafa tekizt við seðlabank-
ann — ég hafði alltaf hugsað mér
að láta lögin verða að gagni. Þá
sagði Ingólfur það ósannindi, að
hann hafi nokkru sinni dregið úr
ÁNÆGÐIR MEÐ
EYVIND J0HNS0N
Dönsku blöðin lýsa yfir mik
illi ánægju, vegna þess að
Norðurlandaráð hefur veitf
Eyvind Johnson bókmennta-
verðlaun ráðsins fyrir bók
hans, Hans Nádes Tid. En í
fyrrakvöld var tilkynnt opin-
berlega um úthlutun verð-
launanna,
Blöðin flytja öll langar greinar
um rithöfundarferil Johnsons og
leggja áherzlu á hversu yfirgrips
mikið efnisval hans sé, og sömu-
leiðis hversu fjölhæfur hann sé
sem skáldsagnahöfundur, en það
mun vera ein af ástæðunum til
VÍÐAVANGUR
(Framhald ai 2. síðu).
Danir þurfi ekki að breyta
stjórnarskrá sinni vegna inn-
göngu í Efnahagsbandalagið þá
þá verður alls ekki þar af dreg
in sú ályktun að ísland geti
gerzt aðili án stjórnarskrár-
breytingar. Þvert á aióti virðist
augljóst að stjórnífrskrárbreyt-
ing sé ólijákvæmileg, ef Island
gerist fullgildur aðili Efnaliags-
bandalagsins.“
KEKK0NEN ,
Framhaid al 8 síðu.
legri veröld, sem er hvorki betri
né verri en við sjáum hana á hverj
um degi.
Tillaga Vesturvelda
(Framhald ai l síðu).
um eitthvað, ef Kennedy sýnir, að
honum sé alvara í afvopnunarmál-
unum, með því að hætta við kjarn-
orkutilraunirnar.
Ekki er talið, að Rrústjoff taki
neina endanlega ávkörðun, fyrr
en hann heyrir hljóðið í hlutlausu
ríkjunum, sem taka þátt í afvopn-
unarráðstefnunni, — Brazilíu,
Burma, Indónesiu, Ethiopíu, Ind-
landi, Mexíkó, Egyptalandi og
Svíþjóð. Ef um helmingi þeirra
I finnst rétt, að ríkisleiðtogarnir
1 mæti á afvopnunarráðstefnunni,
|muni Krústjoff fara sjálfur til
Genéve.
hændum að kaupa dráttarvélar,
hvorki 1959 eða annan tíma og
skoraði á Ágúst að standa fyrir
máli sínu á fundum í Suður-
landskjördæmi (Ágúst kvaðst ekki
kvíða því). Ingólfur kveðst aldrei
hafa lofað gulli og grænum skóg-
um heldur yrði þjóðin að taka á
sig óþægindi meðan verið væri að
létta Framsóknarsköttunum af
henni. — Ingólfur sagði engan
vafa leika á því að bændur hefðu
i s-umar lagt í kostnað til að láta
meta eignir sínar og sótt síðan um
lán, þótt ekki hefði verið fyllilega
tryggt að þeir fengju fyrirgreiðslu.
Þeir bændur, sem eklci.höfðu dug
í sér í sumar til að sækja um að-
stoð verða að súpa seyðið af því,
— að framlengja umsóknartímann
mun aðei'ns tefja málið.
Framsóknarvist
í Keflavík
Framsóknarvist verður spiluð
í Ungmennafélagshúsinu i Kefla-
vík í kvöld 16. fcbrúar. Enginn
aðgangseyrir. Góð verðlaun.
þess, að honum voru veitt verð
launin.
Blaðið Information skrifar, aí
fyrstu bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs hafi ráðið launað þann
mann serr. jafnvel sjálf Nóbels-
verðlaunanefndin muni öfunda
það af.
Einnig segir í blaðinu, að John
son eigi ekki einungis heima með
al beztu norrænna rithöfunda sinn
ar samtíðar, heldur megi bera
hann saman við aðra evrópska
rithöfunda, enda þótt hann hafi
ef til vill ekki enn náð slíkri að-
stöðu, en þessi síðasta viðurkenn
ing ætti að veit'a honum hana.
Hér er á ferðinni rithöfundur,
sem skrifar ekki eingöngu út frá
norrænum eða sænskum viðhorf-
um, heldur má segja, að verk hans
næstum án undantekningar, sam-
ræmi evrópsk sjónarmið.
________ — Aðils.
RíkissjóSur greiði...
Framhald af 6. síðu.
tap sjóðanna klippt og skorið.
Ríkissjóður þarf þó ekki að
leggja heildarupphæð gengis-
tapsins út í einu lagi. Hann
getur greitt gengistapið árlega
í réttu hlutfalli við lánin og
gjöld þau, er greiða þarf ár
hvert til hinna erlendu lánar-
drottna.
Mun láta nærri; að hluti rík-
iss'jóðs af árgjöldunum verði ár
hvert:
1. Vegna Ræktunarsjóðs ís-
lands 8.5 tnillj. kr.
2. Vegna Byggingarsjóðs
sveitabæja 2 millj. kr.
Lagt er til, að rikissjóð'ur
greiði sinn hluta árgjaldanna
1960 og 1961 og svo eftirleiðis.
Fjárlög gerðu að vísu ekki ráð
fyrir þessum útgjöldum 1960 og
1961, og þau voru ekki heldur
tekin á fjárlög líðandi árs.
Þessu verð'ur vitanlega ekki
breytt. Hrökkvi tekjuafgangur
þes'sara ára ekki til greiðslu ár-
gjaldanna 1960—1962, benda
flutningsmenn á þann vaxta-
lausa reikning, sem stofnaður
var í nafni ríkissjóðs í Seðla-
bankanum samkv. 5. gr. efna-
hagslaganna frá 19. febr. 1960,
þar sem færa skal gengistöp ým
iss konar, sem ríkissjóður er
ábyrgur fyrir.
Hvers vegna ætti ekki, ef
með þarf, að nota þanp reikn-
ing í þessu sacnbandi?
Samkvæmt efnahagsreikningi
Seðlabankans 31. des. 1960 var
skuld í þessum reikningi, sem
nefndur er þar „Gengisreikn-
ingur ríkissjóðs", kr. 191242
306.53 í lok þess árs. Ýmislegt,
sem greitt hefur verið úr þess
um reikningi, er hliðstætt
gengisimun þeim, sem hækkaði
við gengisfellingamar 1960 og
1961 sikuldir stofnlánasjóða Bún
aðarbankans.
Frá sjónarmiði flutnings-
manna skiptir ekki höfuðmáli,
hvaða greiðsluleiðir kunna að
þykja hentugastar, þegar til
framkvæimda kemur. Aðalatriði
er, að létta verður tafarlaust
fargi gengisfellinganna af Rækt
unarsjóði íslands og Byggingar-
sjóði sveitabæja.
Ástríður Jóhannesdóttir,
prestsekkja,
Eiríksgötu 19, Reykjavík,
andaðist að kvöldi þess 14. febrúar.
Vandamenn.
T í MI N N, föstudagur 16. febrúar 1962.
15