Tíminn - 07.03.1962, Side 5
Skíðalandsgangan 1962
hófst á laugardaginn var við
mikla þátttöku eins og þeg-
ar hefur verið skýrt frá hér
í blaðinu. Þetta er í annað
skipti, sem efnt er til slíkr-
ar göngu, en gengnir eru
fjórir kílómetrar, og skipt-
ir tími ekki máli. Fyrir
fimm árum tóku það marg-
ir íslendingar þátt í skíða-
landsgöngunni, að vega-
lengdin, sem þeir gengu
samsvaraði því, að þeir
hefðu gengið tvívegis um-
hverfis jörðina um mið-
Tölurnar streyma inn. Eitt
hundrað og níu þátttakendur
voru í göngunni við Skíðaskál-
ann í Hveradölum á laugardag
með borgarstjéiann og for-
mann skíðasambandsins í
broddi fylkingar. Daginn eftir,
sunnudag, voru þátttakendur
þar 170. Sá yngsti þeirra var
fimm ára.
Ármenningarnir komu saman
í Jósepsdal á sunnudag, og þar
lagði formaðurinn, Jens Guð-
björnsson, fyrstur af stað. Áð-
ur en sól rann til viðar, voru
þátttakendur orðnir 107 og með
al þeirra var formaður fulltrúa-
ráðs félagsins, Ólafur Þorsteins
son.
Hvasst var í Skálafelli, en
það aftraði ekki konum að taka
þátt í göngunni. Tuttugu og
fimm úr Skíðafélagi kvenna
þreyttu gönguna á laugardag.
Víkinga, Valsmenn og ÍR-
inga vantaði snjó í Sleggju-
beinsskarð, svo að ekki varð af
göngu þar á laugardaginn, en
braut verður lögð þar næstu
daga. Og þannig gengur gangan
fyrir sig um allt land.
Myndirnar hér á síðunni eru
frá opnun göngunnar hér sunn
anlands við Skíðaskálann í
Hveradölum. Á fjórdálka mynd-
inni efst eru nokkrir úr stjórn
skíðasambandsins, skíðaráðs
Reykjavíkur ásamt borgarstjóra
og á tvidálka myndinni til
vinstri er formaður fram-
kvæmdanefndar göngunnar,
Stefán Kristjánsson ásamt fjöl-
skyldu sinni, sem gekk fyrsta
daginn. Til hægri er Áslaug Sig
fúsdóttir, sem lagði blómsveigi
baug. Og nú þegar við
leggjum öðru sinni í skíða-
landsgöngu eru horfur á
því, eftir þátttöku um
fyrstu helgina að dæma, að
vegalengdin, sem nú verði
gengin samsvari fjórum
ferðum umhverfis jörðina.
, , í;
við bautasteina L. H. Miillers
og Kristjáns Skagfjörð, og á
neðstu myndinni eru þátttak-
endur á leið til rásmarksins. —
Einar B. Pálsson er til vinstri
en borgarstjórinn og Gísli Krist
jánsson, í stjórn skíðasambands
ins, á miðri myndinni.
;
;;
U ' g r : . : ':
. ,
•ÍÍSÍHSi-ÍSH"
L A ... H
TÍMINN, miftVikudagnin 7. marz 1962
/
5