Tíminn - 07.03.1962, Side 7

Tíminn - 07.03.1962, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkværadastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs ingastjóri: Egill Bjarnason Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu: afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Bankastræti 7 Símar: 18300—18305 Auglýsingasími 19523 Afgreiðslusími 12323. Áskrifta>rgj kr 55 á mán. innani í lausasölu kr. 3 eint — Prentsmiðjan Edda h.f. — Stjórnin á Reykjavík í forustugrein Tímans s.l. sunnudag. var bent á þá staðreynd, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði fullkomlega brugðizt í stjórn sinni á Reykjavíkurbæ. Eftir 4—5 ára- tuga langa stjórn hans á höfuðborginni blasa hvarvetna við sleifarlag og óleyst verkefni. í umræddri grein Tím- ans var m. a. bent á eftirtaldar staðreyndir: „Sæmileg gatnagerð er grundvallarframkvæmd borgar — ekki sízt höfuðborgar. Hvað blasir við í þeim efnum? Algert öngþveiti, og alveg einstakt ófremdar- ástand, sem gerir borgina eins og mann flakandi í sár- um. Engin höfuðborg mun til í sæmilegu menningar- landi án þess að eiga ráðhús — víðast hvar öndvegis- byggingu — og flestar aðrar borgir og bæir í nágranna- löndum eiga sér ráðhús. Úrræðaleysi alveldismannanna í Reykjavik í þessu máli er táknrænt um alla yfirstjórn borgarinnar og löngu orðið sögulegt dómsorð um óhæ*t forystulið. Hvað er borg án framtíðarskipulags? Engir forsjár menn borgar í menningarlandi hafa dirfzt að byggja borg án ýtarlegs framtíðarskipulags. En Reykjavík hef- ur verið látin byggjast í áratugi án þess að miðbærinn hvað þá annað, lyti framtíðarskipulagi, en skipulags- málin hins vegar höfð sem leikknöttur stórbraskar- anna, sem hin einlita stjórn borgarinnar hefur alið undir væng, og beinlínis notuð tii valdtryggingar. Hvað er höfuðborg og megininnflutningsborg í af- skekktu eyríki án mikillar og góðrar hafnar? í áratugi hefur forsjáin í þessum efnum brugðizt, og úrræða leysið eitt blasir við, eins og hver einasti borgari í bær. um veit". Þessa upptalningu hefði að sjálfsögðu mátt hafa miklu lengri. T. d. hefði vel mátt bæta við löngum lista um það sem vangert er á sviði uppeldismálanna. Svo hefur farið, að höfuðmálgagn bæjarstjórnarmeiri- hluta, Morgunblaðið, hefur ekki trevst sér til að mótmæla þessari lýsingu Tímans. í stað þess hefur blaðið upp þann söng í aðalforustugrein sinni í gær, að Tíminn sé að níða Reykjavík. Þannig telur blaðið bersýnilega að Reykjavík og Sjálfstæðisflokkurinn séu eitt. Þegar deilt sé á Sjálf- stæðisflokkinn, þá sé líka verið að deila á Reykjavík. Þjóð- in það er ég, sagði einvaldsherrann forðum daga. Hér er að finna skýringuna á vanstjórn Sjálfstæðis flokksins á Reykjavík. Hann er búinn að stjórna Reykja- vík svo lengi og hefur mætt svo litlu andófi í þeirri stjórn sinni, að hann er farinn að líta á Reykjavík eins og eigp sína, sem hann megi fara með að vild sinni. Reykjavík á að þjóna Sjálfstæðisflokknum, en Sjálfstæðisflokkurinn ekki Reykjavík. Óhæfar götur. löngu úrelt og ónóg höfn skortur á heildarskipulagi og ráðhúsleysið eru nokkui dæmi þess, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur m'eð höndlað Reykjavík meðan hann hefur hagnazt sjálfur. Og svo heldur hann sig geta sloppið undan allri gagn rýni með því að láta blöð sín æpa: Það er verið að níð? Reykjavik. Það er vissulega ekki verið að niða Reykjavík, þegai sagt er frá því, sem miður fer í Revkjavík Þvert á móti er verið að knýja forráðamenn bæjarins til að hætta að líta á Reykjavík sem einkafyrirtæki. sem reynt sé að hafa sem mest upp úr. án þess að hugsa um hag og viðganp borgarinnar að öðru'levti. Þeim Revkvíkingum mun vissu lega fara fjölgandi, er skilja og viðurkenna þetta sjónar mið. dhæfa má aldrei ske Ræða Karls Kristjánssonar í útvarps omræðunum urn sjónvarpsmálið Tillaga sú frá Alþýðubanda- lagsmönnum, sem hér liggur fyr- ir, er krafa um að hæstvirt ríkis- stjórn afturkalli að fullu og öllu leyfi varnarliðsins til sjónvarps- starfsemi. Eg tel óþarflega langt gengið með þeirri kröfu. Eg tel heldur ekki sanngjarnt að banna, að þeir vesalings menn, sem settir eru — vafalaust gegn vilja sínum — í dvöl á Reykjanesgrjótum, fái ekki að stytta sér stundir þar við innilok- að sjónvarp, — okkur að meina- lausu — meðan þeir á annað borð hafa leyfi íslendinga til að dveljast þarna. í nóvember í vetur lögðum við fimm Framsóknarmenn fram á þskj. 161 tillögu um sjónvarps- mál. Sú tillaga hefur enn ekki verið tekin til umræðu, en hún sýnir afstöðu okkar til sjónvarps- málsins á breiðara sviði, og mun ég því áður en ég lýk ræðu minni kynna þá tillögu Fimmföld stækkun En fyrst er að athuga þá furðu legu staðreynd, að ríkisstjórn ís- lands hefur veitt skilmálalaust samþykki sitt til að varnarliðið megi fimmfalda kraft sjónvarps- stöðvar sinnar og hafa útsending una lausbeizlaða. Þegar stöðin væri orðin svo ■sterk er fullyrt af kunnáttumönn um, að nothæft sjónvarp frá henni eigi að geta náð til byggð anna við Faxaflóa og um Suður- land svp vítt og breitt, að á að gizka 6 af hverjum 10 íbúum ísiands, geti þar með fengið að- stöðu til þess að njóta þessarar áhrifaríku erlendu starfsemi Þetta er, fyrir íslenzku þjóð- ma, stórmál, sem Alþingi er sann arlega skylt að láta til sín taka. Hér er ekki um það eitt að ræða, að leyfa varnarliðinu að hafa sjónvarp fyrir sig — eins og 1954, þegar þáverandi ríkis- stjórn veitti samþykki sitt til sjónvarpsstöðvarinnar. sem varn arliðið hefur nú. Þá voru skil- yrði sett, sem áttu að geta tryggt að nothæft sjónvarp frá stöðinni næði aðeins til dvalarsvæðis varn aa'liðsins. Frá þeim skilyrðum mun ég nánar greina síðar. Hið nýja leyfi er aftur á móti um hömlulaust sjónvarp, sem get ur náð til meira en helmings þjóðarinnar. Menn kenna hæstv. utanríkis- ráðherra um þessa miklu yfir sjón. En ég tel ótrúlegt, að ríkis- stjórnin öll eigi ekki um þetta sameiginlega sök. Því verður naumast trúað, að mál sem þetta hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn inni. Auðvitað hefði málið líka átt að leggjast fyrir Alþingi, úr þvi að ríkisstjórnin fann sig of í stöðulitla gagnvart hinu erlenda valdi til þess á eigin spýtur að synja um sjónvarpsleyfið. eða setja fullnægjandi skilmála um takmörkun sjónsviðsins. svo það yrði aðeins varnarliðssvæðið. er sjónvarpið næði til. Þingbundin stjórn tekur séi alltof mikið vald með því að gefa leyfi sem þetta Óveíífulega skjót afgreiðsla ÍA Einhver kann að spyrja: Áttt þá ríkisstjórnin s.l. vor að kalla aukaþing saman til að fjalla um þetta mál? Svarið liggur í augum uppi. Málinu lá alls ekki svq á, að það gæti ekki beðið reglulegs Alþing- is. Þetta er ómótmælanlegt, enda upplýsti yfirmaður varnarliðsins núna fyrir áramótin, eftir því, sem íslenzka útvarpið hermdi, að ekki væri þá farið að vinna að uppsetningu hinnar nýju sjón varpsstöðvar, og ekkert efm til hennar komið til landsins Menn, sem kunnugir þykjast vera þessum málum, segja jafn vel, að varnarliðið hafi enn enga fjárveitingu fengið til þess að setja stöðina upp Ríkisstjórnin virðist hafa at- greitt þetta mál með óvenjulega miklum hraða miðað við það, sem íslenzkir þegnar eiga að venjast. Saga hraðans er á þessa leið: Þriðjudaginn 11. apríl fyrra ár, ritar póst- og símamálastjóri ut- anríkisráðuneytinu bréf og segir, að yfirmaður varnarliðsins hafi „nýlega“ snúið sér til póst- og símamálastjórnarinnar varðandi sjónvarpsstöðina á Keflavíkur- flugvelli, og farið þess á leit, að auka megi útgeislað afl úr 50 W upp í 250 W. Segist póst- og síma málastjóri hafa rætt þetta munn- lega við útvarpsstjóra, sem ekk ert hafi haft við orkubreytinguna að athuga. Spyr póst- og símamálastjóri i bréfinu, hvort ráðherrann telji nokkra annmarka á því, að póst- og símamálastjórnin samiþykki breytinguna. Svo líður bara einn dagur, mið vikudagurinn 12. apríl Hefur sennilega farið í póstferðina með bréfið. En strax fimmtudaginn 13. apr- íl, ritar ráðherrann bréf til póst- og símamálastjóra og segir hikstalaust, að utanríkisráðuneyt ið geti fallizt á breytinguna á sjónvarpsstöðinni. Síðan líður föstudagur, svo og laugardagur, enda skammvinnur skrifstofudagur. Ennv fremur sunnudagur, eins og sjálfsagt er En strax á mánudag 17. apríl rit ar póst- og símamálastjóri yfir- manni varnarliðsins og tilkynnir honum samþykkið, skilmálalaust. eins og sjálfsagðan hlut. Segi menn svo að íslenzka skrif finnskan sé alltaf seinfær og sila leg! Eða að milliríkjamál taki ætíð langan tíma! Þessi gangur málsins sýnir at- hyglisverða mynd af núverandi stjórnarfari gagnvart erlendum aðilum Sú mynd vekur ekki traust Nú verður hins vegar að gera það, sem unnt er, til þess að Bandaríkjamenn noti ekki óða- gots-leyfið á þann hátt, sem skað ar íslenzku þjóðina. KJarni málsins Óþarft er í þessu sambandi að deila um það, hvort sjónvarp sé æskilegt eða ekki Kjarni málsins er, að eriend þjóð hefur fengið leyfi hjá ís- lenzku ríkisstjórninni til að reka sjónvarp fyrir hermenn sína, er dveljast á íslandi, og meirihluti íslendinga a að njóta þess sjón varps með hermönnunum. Sjónvarp er með kostum sínum og gölluih eitt allra áhrifaríkasta uppeldis- og áróðurstæki, sem til er. Háttv 4 þingmaður Vestur- KARL KRISTJÁNSSON iands, Benedikt Gröndal, sagði í vetur í Alþýðublaðinu: „Sjónvarpið er einn bezti pré- dikunarstóll nútimans". Þetta er rétt hjá Benedikt, svona tæki er sjónvarpið. Hins vegar virtist hann vilja í sömu andrá — og vill sennilega enn — réttlæta það, að er'lend þjóð fái að reisa sinn prédikunar stól á íslandi — og prédika yfir íslendingum sem sinnar eigin þjóðar mönnum. Það sannast hér á þessum þingmanni, að ekki er nóg að setja dæmi rétt upp. ef reiknað er skakkt út úr því. Mjög er það eðlilegt, að varn- arliðsmenn vilji fá að hafa sjón- varp meðan þeir dveljast hér, eins og þeir njóta i heimalandi sínu. Þeim þykir daufleg og dægra- löng vistin á Reykjanesskaga. Skiljanlegt er, að Bandaríkja- stjórn vilji láta þá hafa sjónvarp til að stytta þeim stundir — og ekki er ótrúlegt að skemmti- og óramyndir séu þeim valdar meira en í meðallagi til að drepa þeim leiða úr geði En jafn eðlilegt 'og þetta, er éinnig hitt, að Alþingi vilji ekki láta mata íslendinga á slíku sjónvarpi. Kemur þar til metnaö ur fyrir hönd þjóðarinnar, sjálf- stæðisvil.ii og skyldug menning- arvarzla. Blöðin íslenzku hafa i vetur flutt frásagnir manna, sem reynslu hafa af sjónvarpi og segja frá því, hvernig börn og unglingar erlendis hópast að sjónvarpi og sitji þar öllunr stundum. Geta mál nærri, að íslenzk æska mundj iðka þær setur, — hlusta sig, horfa sig og lifa sig út úr þjóðfélagi sínu inn i þjóð- félag prédikunarstólsins, — og bíða tjón á máli sínu og menning arerfðum Hættait af einráðu, er- lendii sfónvarpi Enginn skilji orð mín svo, að ég vilji innilokun íslendinga, svo að þeir verði fyrir sem minnstum áhrifum utan frá Nei. því fer fjarri! Eg vil að þeir viðri sig i vindum allra höfuðátta. en gæti sín fyrir því að fjúka. Eg vil að þeir laugi sig i straumum heims- menningar. en drekki sér þó ekki i þeim, — haldi áfram að vernda tungu sína og sérþjóðlega menn- ingu sina haldi áfram að vera Jslendingar. Þetta gera þeir ekki, ef þeir láta eina erlenda þjóð yfir skyggja sig með sjónvarpi og tal varpi. sem auðvitað fylgir. og ■ h ■of'u TÍMINN, miðVikudaginn 7. marz 1962 7

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.