Tíminn - 07.03.1962, Qupperneq 15
FRÁ ÞVÍ AÐ TÆKI ÞESSI VORU
KYNNT Á VINNUSÝNINGU I
REYKJAVÍK í JÚNÍ S. L., HAFA
MARGAR SAMSTÆÐUR VERIÐ
PANTAÐAR HJÁ OSS, BÆÐI TIL
VINNU í SVEITUM OG
KAUPSTÖÐUM
ASSEY
FERGUSON
VINNUTÆKI, sem eru fullkomlega aðhæfð hverf öðru:
SKURÐGRAFA - DRÁTTARVÉL ■ MOKSTURSSKÓFLA
REYNSLAN
hefur sýnt, að MF-skurðgröfusamsfæðan hefur miklu
hlutverki að gegna, vegna mikiila afkasta við gröft
skurða, hvort heldur er í malar- eða moldarjarðvegi,
mokstur og fleira.
Svo haganlega er tækin tengd saman, að aðeins tekur
3—5 mínútur fyrir vanan mann að taka gröfuna frá drátt-
arvélinni.
Vökvastýri á /dráttarvélinni og vökvadæla, sem dælir 15
gallonum á mínútu, tryggja vinnuhraða við hvert verk,
og auðvelda stjórn tækisins.
KYNNIÐ YÐUR ÞÁ
REYNSLU, SEM FENGIN ER.
DRÁTTARVÉLAR H. F.
Keflvíkingar sigruSu
Framhald af bls. 12.
Hinn kunni landsliðsmaður í
handknattleik, Kristjáii Stefáns-
son, náði þarna mjög athyglis-verð-
um árangri og skorti aðeins sek-
úndubrot á Hafnarfjarðarmet Ölafs
Guðmundssonar, sem fyrrum átti
íslandsmet í þessari grein. Krist-
ján er mjög fjölhæfur íþrótta-
maður og hefur auk þess að vera
einn fremsti handknattlciksmaður
landsins náð góðum árangri í
frjálsum íþróttum, einkum þó
spjótkasti.
50 m. baksund konur:
1. Erna G^ðlaugsdóttir, K 43.1
2. Sigrún Sigurðardóttir, H 44.1
3. Stefanía Guðjónsdóttir, K 45.1
4. Guðríður Óskarsdóttir, H 51.5
4x50 m. fjórsund karla:
1. Keflavík 2:17.4
2. Hafnarfjörður 2:24.4
3x50 m. þrísund konur:
1. Keflavík
2. Hafnarfjörður
2:03.7
2:04.0
Keppni í þrísundjmu var mjög
jöfn. Hefðu hafnfirzku stúlkurnar
sigrað í greininni hefði bæjar-
keppnin orðið hnífjöfn að stigum.
Samyrkju hæti?
(Framhald aí 1. síðu).
ur þessa árs yrði ekki betri en und-
anfarinna ára.
Gefinn upp á bátinn
Krústjoff sagði í fyrradag, að
það þyrfti að tvöfalda eða fjór-
falda landbúnaðarframleiðsluna á
næstu árum. Sama dag krafðist
Nikolaj Voronoff róttækrar skipu-
lagsbreytingar á landbúnaðinum.
Það er engin furða, þótt menn bíði
þess með eftirvæntingu, hvort Sov-
étríkin muni gefa samyrkjubúskap
inn upp á bátinn, — því þar með
væri einnig fleira sagt.
Strandamenn
Átthagafélag Strandamanna í Reykjavík, biður
Strandamenn, um sextugt og eldri, að þiggja kaffi
í Skátaheimilinu við Snorrabraut, n. k. sunnudags-
kvöld 11. marz, kl. 8.
Stjórnin.
Frá Alþingi
(Framhald aí ö siðu)
lagi skattverkanna er miklum
meiri hluta sveitaifélaganna gert
stórlega torveldara að hagnýta eins
vel og nú skattframtölin við út-
svarsálagningu. Sjálf skattiagning-
in verður einnig meira af ókunnug-
leika gerð.
Enn fremur er hér um að ræða
samdrátt skattákvörðunarvaldsins.
Flutning þess valds úr ■dreifðum
byggðum umdæmanna á þéttbýl-
asta stað landsins. Lengd leið
strjálbýlismannanna til keisara
skattamálanna.
Einhverja kosti getur skattverka-
breyting þessi haft í för með sér,
— svo er um flestar breytingar,
sem mönnum detta í hug. En enga
breytingu á að gera, nema kostir
fylgi henni meiri en gallar.
Eg tel, að málefni þetta eigi að
hugsa lengur og rækilegar en gert
hefur verið — og fresta á meðan
gjörbreytingum. Legg þess vegna
til á þskj. 342, að felld séu niður
úr frumvarpinu öll fyrirmæli um
skattverkabreytinguna.
VI.
Hér að framan hef ég lýst þeim
tillögum, sem ég flyt út af fyrir
mig við frumvarpið. Afstaða mín
til frumvarpsins í heild fer eftir
því, hvort breytingartillögur mín-
ar verða samþykktar eða ekki.
Alþingi, 5. manz 1962,
Karl Kristjánsson.
Mókolótt,
lítil tík,
hefur horfið frá Breiðabóls-
stað í Ölfusi. Þeir, sem
kynnu að verða hennar var-
ir, vinsamlegast hringi.
Sími um Hveragerði.
pjxsc&fyé
9m w w8m
faa/ ^
Halli og Stína sýna Tvistdans
NONNA
ÚTSALAN
heldur áfram
Drengjajakkaföt
Drengjajakkar
Gallabuxur kr. 125.00
Buxnaefni — Ullarefni
frá kr. 85.00—150.00
Sokkabuxur á fullorðna og
unglinga, kr. 135.00
Drengjapeysur — Bútar
Pilsefni, Moher, kr. 75.00 í
pilsið
Nylonsokkar, saumlausir,
kr. 35.00
Skíðajakkar
Stórkostleg verðlækkun
Vesfurgötu 12 Sími 13570.
Askja
(Framhald af 1. síðu).
hringa siglingu fyrir viku síðan,
var ákveðið að slá tvær flugur í
einu höggi og gera við skemmdirn-
ar um leið oig skipið færi í klössun
þ'á, sem fyrir dyrum stóð, þegar
þær urðu. Óskar A. Gíslason tjáði
blaðinu í gær, að enginn leki hefði
komið að skipinu og skemmdirnar
væru ekki mjög stórvægilegar.
Askja kom tóm heim úr þessum
Skotlandstúr, því að búið var að
leigja hana til flutninga á farmi til
útlanda strax. — Nú er unnið að
4 ára flokkunarviðgerð skipsins,
þar ym það liggur í slipp hér í
Reykjavík, og skipta 4 vélsmiðjur
með sér verki, Stálsmiðjan, Lands-
smiðjan, Hamar og Héðinn. —
Unglingalandsliðið
Framhald af 12. síðu.
Ragnar Jónsson, allir FH, Gunn-
laugur Hjálmarsson, IR, Hermann
Samúelsson, ÍR, Reynir Ólafsson,
Karl Jóhannsson og Sigurður Osk-
arsson, allir KR. A undan þessum
leik fer fram leikur í 4. flokki og
hefst hann kj. 8,15.
Hjartans þakkir til vina og vandamanna, og allra
fjær og nær sem glöddu mig á 75 ára afmælinu
21. febr. s.l. með heimsóknum gjöfum og skeytum,
og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur allar stundir.
Magnús Amgrímsson,
Hólmatungu.
Hjartanlegar þakklr vottum vlð öllum, sem auðsýndu okkur
samúð vlð fráfall og jarðarför elginmanns, föður og fósturföðurs
Péturs Marinós Runólfssonar,
bónda að Efra-Ásl, Hjaltadal
Helga Ásgrlmsdóttlr
Krlstbjörg Pétursdóttlr, Ásdís Pétursdóttir,
Sævar Guðmundsson
TÍMINN, miðvikudaginn 7. marz 1962
15