Tíminn - 14.03.1962, Side 2

Tíminn - 14.03.1962, Side 2
Tveir sniilingar Helena Rubinstein, hin sjötuga ókrýnda drottning í heimi fegurðarlyfjanna, minnist þess oft, þegar hinn frægi málari, Pablo Picasso, ÚR ÖÐRUM LÖNDUM málaði andlitsmynd af henni. Eitt sinn lagði Picasso skyndilega frá sér pensilinn og sagði: — Madame, ég get gíatt yður með því, að það er jafn langt á milli eyrna og augna á okkur báðurn. — Jæja, og hvað gefur það svo til kynna? spurði frúin. Picasso ljómaði: — Madame — að þér eruð snillingur, eins og ég! M.M. svarar Marilyn Monroe barst ný- lega sú fregn, að fyrrverandi eiginmaður hennar, rithöf- undurinn Arthur Miller, hygði nú á nýtt hjónaband með Ingeborg Morath, sem er austurrísk að þjóðerni og ljósmyndari að atvinnu. Marilyn Monroe varð s-tór- hrifin og óskaði þeim allra heilla í samlífinu. — Eg lærði mikið af Art- hur og er þakklát fyrir árin, sem ég átti með honum, seg- ir Marilyn, sem um þessar mundir nýtur lífsins í Mexico City, þar sem hún kynnir sér þjóðlega listsköp- un Mexico-búa af miklum áhuga og kaupir listaverk til heimilis síns. Lengi hafa gengið sögur um það, að Marilyn sé að hugsa um að giftast aftur baseballhetjunni Joe Di- maggio, en hún ber slíkt til baka með einni athugasemd: — Við erum búin að reyna einu sinni ... M.M. var nýlega spurð: — Hvað metið þér mest í fari karlmanns? — Karlmennsku. — Og hverju geðjast yður alls ekki að í fari karl- manns? Þögn. Síðan hikandi: — Ég get nú hreint ekki mun- að eftir neinu í fljótu bragði ... — Hvert af hinum þrem hjónaböndum yðar var ham- ingjusamast? — Tvö þau síðustu. Hvílíkt yfirborS Kvikmyndagagnrýnandi einn sló því föstu nýlega, að Anita Ekberg væri yfirborðs- kennd. Ef til vill. En hví- líkt yfirborð! Ók beint é sjóinn en vöknaði ekki Tæplega sextug hreingern- ingakona í Kaupmannahöfn lenti í furðulegu slysi einn daginn í síðustu viku. Hún ók bifreið sonar síns beina leið í sjóinn um hábjartan dag- inn, sigldi um stund í honum á sjónum og var síðan bjarg- að í land, án þess að hún svo mikið sem vöknaði! Nánar tiltekið bar atvikið til á þessa leið: Hreingerningakonan, Paulina Nielsen að nafni, ætlaði að leggja bílnum, sem hún hafði 'fengið að láni hjá syni sínum, í Havnegade, meðan hún væri við vinnu sína. Þegar hún ætlaði að aka bílnum lítið eitt nær hafnar- bakkanum, ránn fótur hennar af hemlunum yfir á benzíngjöfina, svo að bíllinn tók kipp, þaut af stað og niður í höfnina. Dregin út um gluggann Bíllinn kom niður á þakið, en snerist við og flaut á sjónum í réttri stöðu. Konan, sem fékk taugaáfall, sat hreyfingarlaus á bak við stýrið. Mörg vitni voru að slysinu, og meðal þeirra voru tveir menn, sem voru nýkomnir á bát inn í höfnina til þess að horfa á kafara að störfum þar. Þegar þeir heyrðu skvampið frá bílnum og sáu, hvernig hann flaut á sjón- um, brugðu þeir hart við og sigldu upp að honum. Önnur framrúðan var skrúfuð niður, og annar mannanna æpti til frú Nielsen: — Reynið að koma yður út, kona góð! Frúin svaraði engu og virtist ekki einu sinni heyra orð manns- ins. Hann hafði þá ekki frekari umsvif, enda stór og kraftalegur maður, heldur þreif til konunnar og dró hana út um gluggann og í bátinn. Meðan á þessu stóð fékk hinn maðurinn tíma til þess að koma kaðli utan um stuðarann á bílnum, henda honum upp til á- horfenda, sem safnazt höfðu sam- an uppi á hafnarbakkanum og þar með fcjarga bílnum frá því að sökkva til þotns. Handtaskan flaut líka Einn viðbragðsfljótur áhorf- andi hafði brugðið skjótt við og gert lögreglunni aðvart, og þeg- ar báturinn lagði að hafnarbakk- anum, var sjúkrabíll mættur með lækni og öll hugsanleg hjálpar- tæki, sem til allrar hamingju voru þarflaus í þessu tilfelli. Einnig var mættur kranabíll og kafarar. Þegar mennirnir tveir höfðu skilað konunni upp á hafnarbakk- ann, sigldu þeir í skyndi aftur út að bílnum og gátu bjargað kápu konunnar, sem lá yfir bakið á framsætinu, en náðu ekki að grípa handtösku hennar, sem í voru talsverðir peningar, áður en vatnið byrjaði að þrengja sér inn í bílinn. Kranabíllinn dró svo bíl- inn upp á bakkann, áður en hann hafði sokkið alveg. til botns. Handtaskan fannst von bráðar fljótandi á sjónum, og hafði ekk- ert týnzt úr henni. Konan var flutt á sjúkrahús, en var útskrifuð þaðan eftir skamma viðdvöl. Það getur hún þakkað þessum viðbragðsfljótu og snar- ráðu mönuurn, sem af íilviljun voru staddir svo nálægt Á þessari miklu „vindingsöid" er ekki erfitt aS geta sér til um, hva3 þau eru að aðhafast, skötuhjúin á myndinni þeirri arna, sem eru þau Börge Ralow, fyrrverandi ballettmeistari og sænska söngkonan Lill Babs. Þau eru aöeins að skemmta sér á miili þess sem þau koma fram í danska sjónvarpinu. Og auðvitað eru þau að dansa twist. Ofsatrúarflokkur sprengir rafturn Vancouver, Brezku Kólumbíu, 8. marz (UPI). Fjallalögreglan kanadíska leit- ar nú ákaft manna úr illræmdum ofsatrúarílokki, en þeir eru sak- aðir um að hafa staðið fyrir því að sprengja í loft upp stóran raf- tum. Trúarflokkur sá, er hér um ræðir, kallar sig Syni Doukho- bors, og fluttust meðlimir hans til Kanada um síðustu aldamót frá Rússlandi. í Rússlandi hafði flokkurinn verið mjög illa lið- inn, m. a. vegna andstöðu sinn ar við herþjónustu auk annars. Eftir að fólkið flutti til Kanada neitaði það að semja sig að vestrænum lifnaðarháttum, og varð það orsök margra og mik- illa árekstra. T.d. hafa Synir Doukhobors sprengt upp járn- brautarteio.a, kveikt í húsum og margt fleira. Sprengingarnar um daginn urðu þess valdandi, að raflínur, sem vega 51 smálest, slitnuðu niður og féllu í Kootenay vatn p ið, sem er um 30 km. austan við Nelson, B.C. Mikið lögreglulið dreif þegar að og fundust þá 4 sprengjur, aem ekki höfðu sprungið, en alls er það tjón, sem varð, met- ið á 500 þúsund dollara. Spreng ingarnar urðu aðeins 4 klukku- stundum eftir ag 6 meðlimir trú arflokksins höfðu verið teknir höndum fyrir lögbrot. Yfirvöldin hafa nú heitið 10 þúsund dollara verðlaunum hverjum þeim, sem getur gefið upplýsingar, sem leitt gætu til handtöku skennmdarverkamann- anna. i „Furðulegt fyrirbæri“ Magnús Z. Sigurðsson ritar lan>ga grein í Morgunblaðið í gær, þar sem aðallega er rætt um sölu á íslenzkum fiski og sölustjórastarf Jóns Gunnars- sonar fyrir Sölumiðstöð hrað- frystiliúsanna. Greininni lýkur með eftirfarandi orðum: „Það er næsta furðulegt fyr irbæri, hversu lengi fram- kvæmd J.G. í markaðsmálum hefur liðizt. Undanfarin ár virðist hann hafa verið svo til einráður um sölu helztu út- flutningsvöru íslenzku þjóðar- innar (að sjálfsögðu að undan- skildum útflutningi SÍS). Ár- angurinn kemur nú berlega í Ijós, þegar það er loks komið í hámæli, að frystihúsin innan SH verði að bíða 8—10 mánuði eftir greiðslu fyrir framleiðslu sína og þrátt fyrir það, að ár- ið 1961 var hagstætt markaðs ár fyrir frystan fisk, eins og J.G. sjálfur viðurkennir, liggja enn mikiar birgðir frá fyrra ári óseldar í landinu. Eftir þann árangur, sem sölu starfsemi J.G. liefur borið und anfarin ár, mætti telja eðli- legra, að hann reyndi ekki að kenna öðrum, hvernig á að selja frystan fisk.“ Efnahagsmúr íhaldsins í Degi á Akureyri, sem út kom sl. laugardag er eftirfar- andi smágrein um íhaldsmúr- inn eða auðmúrinn, sem ríkis- stjómin og stuðningsflokkar hennar eru að reisa á fslandi. Greinin hlióðar svo: „Ríkisstjórnin er að reisa mikinn og háan múrvegg, líkt og kommúnistar gerðu í Ber- lín. Ilinn nýi múr á íslandi er þó hvorki úr steini né gadda- vír notaður, heldur er hann byggður úr efnahagsaðgerðum íhaldsins og á að skilja sundur ríka menn og fátæka — vera varnargarður og brjóstvöm liinna ríku. Einar (ríki) Sigurðsson, sem er eignalaus maður í Reykjavík og svo illa stadd- ur. að ríkið h,efur þurft að greiða með honum eins og hverjum öðrum stórómaga, er búinn að kaupa tvo nýlega báta í Vestmannaeyjum og hyggst kaupa þrjá til viðbót- ar þar, af mönnum, sem við- reisnin er að sliga. Hinir ríku skulu verða enn ríkari og hinir fátækari enn fátækari. En þetta kallar íhald ið að treysta efnahagsgrund- völlinn og auka hið frjálsa framtak borgaranna. íhaldið breiðir skrautklæði og auglýsingaskrum yfir múr inn. En þegar vel er að gáð, sést hann hvarvetna í gegn og vekur ugg og ótta almenn- ings.“ Hagsmunamál bænda- sféffarinnar Mbl. segir í gær, að Fram- sóknarmenn séu skammsýnir í bændavináttu sinni vegna þess að Tíminn hefur lýst sig andvíg- an þvi að lagðar verði álögur á bændur til að jafna gengis- töp þau, sem lánasjóðir land- búnaðarins hafa orðið fyrir vegna gengisfellinga núv. ríkis stjórnar. Þar ciga bændur að bera skarðari hlut frá borði en aðrir þjóðfélagsborgarar, því að gengistöp af lánum, 'sem tekin hafa verið til almenningsþarfa, tók ríkisstjórnin á sig, er geng- ið var fellt. Hinn nýi skattur á bændur nemur 1% á allar Framhald á bls. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.