Tíminn - 29.04.1962, Side 16
Sunnudagur 29. apríl 1962
97. tbl.
46. árg.
CIPUL
ATVINN
Sænskir samyinnu-
menn í kynnisferð
Hér eru nú staddir 12 sænsk-
ir samvinnumenn í kynnisferð,
en þeir eru styrktir til farar-
innar af sænsku samvinnufélög
unum. Svíarnir komu til Reykja
víkur 23. þ.m. Daginn eftir
heimsóttu þeir aðalstöðvar SÍS
og kjörbúðina í Austurstræti,
Háskólann, Alþingishúsið og
Landsbókasafnið. Á miðviku-
daginn fóru Svíarnir til Hveía
gerðfs og að Selfossi, en þaðan
til Þorlákshafnar. Á fimmtudag
inn flugu þeir til Akureyrar og
kynntust starfsemi samvinnu-
manna undir leiðsögn Jakobs
Fríamnnssonar og Amþórs Þor
steinssonar, en flugu aftur til
Reykjavíkur á föstudaginn. í
gær heimsóttu þeir S^ndhöll-
ina, Osta- og smjörsöluna,
Reykjalund, og skoðuðu hita-
veitufranlkvæmdir í Reykjavík.
Um kvöldið var farið á My Fair
Lady sýningu í Þjóðleikhúsinu.
Svíarnir fara til Þingvalla í dag
og skoða Gulfoss og Geysi, ef
veður leyfir. Á mánudaginn
heimsækja þeir Bifröst í Borg-
arfirði, en gista í Borgamesi
og skoða Kaupfélag Borgnes-
inga daginn eftir, en þá verða
þeir einnig viðstaddir skólaslit
í Bifröst. Svíamir fara heim á
miðvikudaginn. — Myndin er
af nokkmm gestanna stöddum
í Hveragerði.
Á ráðstefnu íslenzkra verk-
fræðinga, sem lauk síðdegis í
fyrradag, flutti Steingrímur
Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs ríkisins,
erindi um skipulagningu leitar
að nýjum atvinnugreinum. Tel
ur hann, að skipuleggja beri
leit að nýjum atvinnugreinum
og eflingu þeirra, sem fyrir
eru. En tryggja verður, að
frumkvæðið sé ekki tekið af
einstaklingum og öðrum aðil-
um, heldur þvert á móti ber
að stuðla að því, að sem flest-
ir beiti hugmyndaflugi sínu og
orku í þeim tilgangi að skapa
nýjar atvinugreinar og endur-
bætur.
Eftir hádegi í fyrradag urðu
nokkrar umræður um framsöguer-
indin, og meðál þeirra, sem til
máls tóku, voru Sigurðiir Thorodd-
sen, verkfr., Steingrímur Jónsson,
rafmagnsstjóri, Sveinn Bjömsson,
forstjóri, dr. Gunnar Böðvarsson
'og dr. Benjamín Eiríksson. Síðan
sleit Jakob Gíslason ráðstefnunni
með' stuttri ræðu.
Framkvæmdastofnun
Eitt af verkefnum raunvísinda-
rannsókna er að leita að nýjum at-
vinnugreinum, sérstaklega í sam-
Skátar við e!d, ieik ogsöng
Undanfarin tvö ár hafa skát
arnir í Reykjavík haft þann
sið á, að halda sérstakan skáta
dag, og að þessu sinni verður
hann n.k. sunnudag 29. apríl.
Að gefnu
tilefni
Að gefnu tilefni tilkynnist hér
með, að Kvenfélag Selfoss er ekki
aðili að neinum framboðslista til
sveitarstjórnarkjörs á Selfossi. —
Félagið er ópólitískt og meðlimir
þess úr öllum stjórnmálaflokkum
og gæti þess vegna ekki staðið að
lista með einum flokki eða fleiri.
Það hefur aldrei komið til orða,
hvorki innan stjórnarinnar eða á
félagsfundi, að félagið hefði
minnstu íhlutun um þessar kosn
ingar.
F.h. Kvenfélags Selfoss:
Ólöf Österby, formaður.
Á skátadaginn fara skátarnir í
skrúðgöngu um götur borgarinn-
ar og hafa síðan varðeld, þar sem
sýnt verður skátastarfið eftir vet-
urinn. Á sunnudaginn hefjast há-
tíðahöldin með því að deildir
Skátafélags Reykjavíkur og Kven-
skátafélags Reykjavíkur hafa göng
ur, syugja og fara í leiki, hver í
sínu hverfi.
Eftir hádegi sameinast allar
deildir félaganna við Skátaheim-
ilið við Snorrabraut og kl. 15 hefst
hin fjölmenna skrúðganga skáta
frá Skátaheimilinu. Gengið verður
eftir Flókagötu, Rauðarárstíg, Há-
teigsveg, Nóatún, Stórholt, Lauga-
veg, Bankastræti, Aðalstræti, Tún
götu, Hofsvallagötu, Hringbraut,
Suðurgötu, Skothúsveg, Laufásveg,
Hringbraut, Snorrabraut, Egils-
götu, Barónsstíg og Bergþórugötu,
og þaðan inn á lóð Austurbæjar-
barnaskólans, þar munu skátar
hylla borgarstjórann í Reykjavík,
Geir Haligrímsson, stjórn Banda-
lags íslenzkra skáta og stjórnir
skátafélaganna í Reykjavík. Þá
verða flutt stutt ávörp af borgar-
stjóranum í Reykjavík, Geir Hall-
grímssyni, skátahöfðingjanum Jón
asi B. Jónssyni og félagsforingja
S.F.R. Þór Sandholt.
Um kl. 20 á sunnudagskvöldið
hefst svo varðeldur við Austur-
bæjarskólamn. Þar munu skátar
kveikja eld og sýna síðan leiki og
syngja.
íwrona
bandi við hagnýtingu hvers konar
nátúruauðæfa landsins, og þæi
ber m.a. að skipuleggja með það
í huga. Einnig þarf að tryggja, að
fram fari hagfræðileg og þjóðhags-
leg athugun á hugmyndum um
nýjar atvinnugreinar, og er rétt að
fela það sömu stofnun og annast
gerð framkvæmdaáætlunar. Enn
fremur þyrfti að athuga, hvort
ekki er tiltækilegt að koma á fót
framkvæmdastofnun, sem hafi það
hlutver'k að hætta fjármagni sínu
til framkvæmda á hugmyndum um
nýjar atvinugreinar, eða sjóði, sem
láni fé í þessum sama tilgangi.
Almennan iðnaö fremur
en stóriðju
Sigurður Thoroddsen varaði við
því, að fjársterkum, erlendum
fyrirtækjum yrðu fengin yfirráð
yfir íslenzkum orkulindum, og
Sveinn Björnsson kvað ekki hafa
komið nógu skýrt fram, hver á-
hrif stóriðjan hefði á eldri at-
vinnugreinar í landinu. Benjamín
Eiríksson taldi, að við ættum að
hagnýta orkuna meira til eigin
þarfa en áður.
Steingrímur Jónsson rafmagns-
stjóri lýsti þeiiri skoðun sinni, að
meira væri um Wrt að byggja upp
á íslandj almennan iðnað en orku-
freka stórðju; ekki væri mikilvæg-
ast að koma allri orkunni í lóg.
Stóriðja risi hér aldrei upp nema
með hjálp erlends fjármagns, og
vafasamt væri, að takast mætti að
koma fiamleiðslunni á markað er-
lendis.
Bör junior
í Keflavík
Leikfélagið Stakkur frumsýndi í
gær gamanleikinn Bör Börsson,
en hann er eftir samnefndri sögu
Johans Falkberget, sem Helgi
Hjörvar las upp í útvarpið fyrir
nokkrum árum við miklar vin-
sældir allra hlustenda.
Leikurinn er nú fluttur í ís-
lenzkri þýðingu Sigurðar
Kristjánssonar frá Akureyri, en
þar var hann sýndur 16 sinum sam
fleitt fyrir fullu húsi. Leikurinn
hefur verið sýndur á Siglufirði
a{5 undanförnu og hefur hann
vakið þar fögnuð áhorfenda.
Með aðalhlutverkið, Bör Börs
son fer Sigurjón Hinriksson, en
leikstjórinn Kristján Jónsson úr
Reykjavík.
Ákveðið var að sÝna B°r Börs-
son Jr. í Ungmannafélagshúsinu
Keflavík, þar eð sviðsbúnaður
allur og tjaldaskiftingar eru svo
umfangsmiklar, að nægilegt hús-
rými að tjaldabaki vaj- ekki til
staðar annarsstaðar, ýmsar smá-
HBBSjyy ligAlMHaBBI
lagfæringar verða gerðar til að
lífga upp húsið, stúkað verður af
imeð smekklegum tjöldum milli
aðalsalarins og upphækkunarinn-
ar þar sem kaffiveitingar verða
veitar í hléinu, þá eru og komn-
ir í hiisið smekklegir stálstólar
með svampsetu í stað gömlu tré-
stóla- og bekkjanna, sem enn
munu mörgum í fersku minni.
Leikfélagið Stakkur hóf starf-
semi sína í haust og er þétta ann
að leikritið, sem það tekur til
sýninga. Áður hafði það sýnt
Ólimpíu hlauparann, og þótti
takast vel.
Féíagsmáiaskólisin
FéLagsmálaskóli Framsóknar-
flokksins heldur síðasta fund
sinn á þessum vetri, á mánu-
dagskvöldið kl; 8,30. Frjálsar um-
ræður.
FYRSTi KOSNINGAFÖNDUR B-L
VERÐUR 1 FRAMSÓKNARHÚSINU NÆSTKOMANDI MIÐVIKU
DAGSKVÖLD. - NÁNAR AUGLÝST í ÞRIÐJUDAGSELAi