Tíminn - 04.05.1962, Page 4
Þó að vafalaust séu mestu ó-
færurnar milli Hítarár og Haf-
fjarðarár; þessara tveggja laxa-
velda, þá er vegurinn víða far-
inn að svitna, eins og það heitir
á bílstjóramáli. En bílstjórar
nefna það' að vegur svitni, þe‘gar
farið er að sjá á blotann á yfir-
borðinu og þjóðvegurinn er að
fara úr klakaböndum. Svo koma
svartar mjóar sprungur í hart
og slegið slitlagið, og svo dettur
vegurinn niður. Að vegur detti
niður er það á bílstjóramáli,
þegar hjólin á þungu vörubíl-
unum fara að skerast niður úr
efra laginu. Þá myndast hvörf
í veginn og aurvilpur ... svo
loks nýlega, bar það til, að bíl-
stjórar urðu að fara á prófess-
orabuxur sínar og smíða nýtt
orð yfir verstu vilpurnar. Ljóna
gryfjur skyldu þær heita.
Þó manni þyki það ólíklegt,
að Ijón sem félli í stóru gryfj-
una rétt austan við Haffjarðar-
á myndi halda lífi til lengdar,
þá á orðið prýðilega vel við,
enda breiddist það út örara en
vegir svitnuðu í Mýrasýslu og
er þá mikið sagt. Bílarnir börð-
H ust eins og ljón í gryfju; jusu
dökkbrúnni leðjunni með snjó-
dekkjunum eins og í vellandi
hverum og tíu hjóla trukkarnir
nötruðu stafna á milli í kraft-
gírunum. Mýrasýsluvegurinn
var orðinn að tröllaukinni
súkkulaðiverksmiðju með stríðs
afköstum.
Þeir lokuðu fyrir umferðina
með opinberri tilskipan um
helgina. Enda sjálfgert. Dia-
mondinn úr Borgarnesi dró að
vísu Ólafsvíkurrútuna í gegn-
um svöðin, en bilferðir voru
annars nær engar. Menjar mik-
illa átaka lágu á víð og dreif:
brotnir staurar, slitur af köðl-
um möruðu í vilpunum og í
einu hjólfarinu flutu nokkur
hundruð lítrar af mjólk, pg
stakk hvítur mjólkurliturinn í
stúf við' leirbrúnt umhverfið.
Þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst og allt er hey 1
harðindum, stendur þar. A ein-
um stað miklu vestar hafði ein-
hverjum hugkvæmzt að nota
spánnýja tegund af ofaníburði
í ljónagryfju. Miðstöðvarofna.
Þrir laglegustu helluofnar frá
Ofnasmiðjunni skutu upp koll-
inum í einni vilpunni.
Þó að Ofnasmiðjan sé nú af-
Þannig fer í vorveðrinu.
(Ljósm.: H.H.).
I AURBLEYTU
kastamikið fyrirtæki, þá var
ekki að búast við, að hún gæti
lagt til ofaníburð í kílómetra-
vís, og því var það, að víponinn
okkar varð að gera sér það að
góðu að' mala eins og þreyttur
slefbátur gegnum drulluhlössin.
Við og við tók hann þungar
byltur og það urgaði í beittum
tönnunum í lágdrifinu. Á Snæ-
fellsnesi í dag er sá einn ham-
ingjusamur, sem hefur drif á
öllum — og það kemur meira
að segja fyrir, að hann örvæntir
líka.
Það er sennilega eitthvað mis-
lukkað efni í þessum vegi. Of
leirkennt, og vantár gróft undir
lag og svo er hann of lágur,
sagð'i einhver. Annar sagði okk-
ur, að þetta væri af því, að
' jörðin hefði frosið eftir miklar
rigningar. En hvað sem öllu
liður, þá ætluðu Mýramenn að
hafa vaðið fyrir neðan sig, hvað
framhaldið snertir, því þeir
voru byrjaðir að aka möl í
svitaholurnar,, sem voru að
myndast við Langá og þaðan
alla leið yfir í Borgarnes. Það
voru líka síðustu forvöð, því
hann var að byrja að detta
niður.
Gunnar Gunnarsson, frá Sam-
vinnutryggingum', sagði okkur,
að hann hefði nú aldrei séð
svona végi né ekið um þá, en
það væri nú ekki að' marka,
hann hefði ekki byrjað að
keycs bíl fyrr en 1928 — og
svo stakk hann víponinum í
svaðið og eðjan gekk í bull-
kenndri öldu fram fyrir bílinn.
Og áfram komst þessi sterki
bíll, hægt og sígandi.
En eins og svo oft, þá vaknar
spurning. Hvað eru menn eigin-
lega að stinga bílum í Ijóna-
gryfjur, snúa sundur öxla og
mölva jaxla úr tannhjólum?
Vestast á nesinu, Snæfells-
nesi eru miklar útgerðarstöðv-
ar. Hafnir eru slæmar og kaup-
förin geta ekki lagzt þar að
bryggju. Ekki a. i m. k. þau
stærri. Flytja verður mikinn
hluta afurðanna á bílum, í veg
fyrir skip í Reykjavík. Lýsi,
skreið og saltfisk og til baka
hjallaefni og umbúðir. Bænd-
urnir verða að koma mjólkinni
á markað í Borgarnesi og
Reykjavík, menn þurfa að láta
skera sig upp fyrir sunnan,
skólabörn þurfa að komast heim
í vorannirnar og bréfin verða
að komast leið'ar sinnar. Þetta
og ótalmargt annað veldur því,
að jafnvel miðstöðvarofnar
verða ekki lengur munaður,
heldur ofaníburður og fram-
drifið verður meira virði' en
flest annað.
Það munu nú vera veittar
17.000.000.00 króna til viðhalds
þjóðveganna hér á landi. Hætt
er við, að ef vegurinn um Borg-
arnes og Hvalfjörð hættir ekki
hið bráðasta að svitna í vorsól-
inni, að þá eigi þeir á vegamála-
skrifstofunni eftir að svitna svo
um munar. Getum við' ekki gert
eitthvað til að svona nokkuð
endurtaki sig ekki. Getum við
ekki gert vegina okkar eitthvað
betri en þeir eru núna — hæf-
ari til að þola vorið? Getum við
notað annað efni í þá? Það er
sýnilegt, að' um milljónir er að
tefla, bæði í illri meðferð á bíl-
iffl, sóun á vinnu og fjármun-
um, ef byggt verður úr sama
efni í framtíðinni.
Ég lenti á litla bílnum mínum
ofan í einni vilpunni og komst
á kjöl. Þeir slitu af honum stuð-
arana, en upp fór hann. Þó Bogi
minn á verkstæðinu í Borgar-
nesi sé ódýr og vel að sínu kom
inn hefði fimmhundruðkallinn
betur farið í púkk á veginn
milli laxaveldanna miklu, Haf-
fjarð'arár og Hítarár.
Enda tók Gunnar, samvinnu-
tryggingamaður fyrir augun,
þegar mjólkurbílarnir tveir bylt
ust í foraðinu eins og risavaxin
dýr í fjörbrotum, skældust og
skjögruðu. Jafnvel þótt óvíða
aki fimari bílstjórar en á þess-
um vegi, þá.glatast þarna mikil
verðmæti. jg
Góður árangur í Skógar-
skóla
Skógum, 30. apríl.
Kennslu og prófum í yngri deild
um Skógarskóla er nú lokið, og
var árangur prýðilegur. í fyrsta
bekk luku fjórir prófi með ágætis
einkunn og tveir í öðrum bekk,
og er það mjög góður árangur.
Hæstu einkunn í fyrsta bekk
hlaut Þórunn Þórhallsdóttir í
Skógum, 9,35, en i öðrum bekk
Helgi Magnússon, frá Sólheimum
í Landbroti, 9,16. JRHj
Korn í 20 ha.
Eyjafjöllum, 30. apríl.
Á sumardaginn fyrsta sáði Til-
Fréttir frá landsbyggðinni
raunadeild Háskólans korni í til-
raunareiti á Skógarsandi, og um
síðustu helgi sáðu bændur þeir,
sem stofnað hafa kornraektarfélag
undir Eyjafjöllum, korni í 20 ha.
lands á sandinum. Vors er veru-
lega farið að gæta undir Fjöllun
um, tún ag grænka og vorsvipur
kominn á úthaga, og sauðburður
hefst í lok næstu viku.
Kaldur sjór
Neskaupstaður, 27. apríl
Sjór hefur verið algjörlega
dauður fyrir smábáta frá Neskaup
stað síðustu vikur. Hafa bátarnir
farið róður og róður, en afli verið
lítill sem enginn. Er álit manna,
að þetta stafi af þvi, ag sjórinn
er óvenju kaldur. Er nú farið að
hlýna og í gær réru nokkrir bátar
og fengu þá sæmilegan afla.
Aðeihs 6 — 8 bátar eru byrjað
ir róðra, en búizt er við, að þeir
verði um 30, aðallega trillur og
dekkbátar.
Byrjað er að ryðja Oddsskarð,
og vonir standa til, að því verði
lokið á 3 dögum. (Fréttaritari).
Fryst ffyrir Ameríku
Raufarhöfn, 27. apríl
Gott veður hefur verig hér að
undanförnu, og afli fiskibáta ver
ið ágætur síðustu 3 vikur.
Alls munu bátarnir vera um
20, sem róa héðan. þar af 5 — 6
dekkbátar. Hafa þeir fengið frá
5 upp í 8 lestir í róðri, og hefun
þessi fiskur fengizt á handfæri
og í net. Fiskurinn er yfirlcitt
mjög góður.
Nokkur hluti aflans er frystur
fyrir Ameríku-markað, og er von
á Jökulfellinu á næstunni til þess
að taka farm til Ameríku. Einnig
fer nokkuð í skreið, sem síðan
er seld til Afríku og afgangurinn
fer ,í salt.
Hafin er bygging 200 fermetra
fiskhúss fyrir kaupfélagið, en það
sér um alla fiskverkun á Raufar-
höfn.
Vegir eru allir orðnir færir
enda hefur veður verið gott sunn
an gola og blíða. J.
^fíærir vegsr
Ólafsfirði, 27. april
Vorið er komið til Ólafsfjarðar.
Veðráttan hefur verið hlý og mild
síðustu daga, snjóf hefur sigið
töluvert, en ekki hefur verið urp
neina asahláku að ræða. Um síð-
ustu helgi gerði dálítið næturfrost,
en þó ekkert, sem orð er á gerandi.
Vegir eru illfærir eins og er,
enda hefur ekki verið hægt að
ryðja þá, þar eð ýtan bilaði, og
fyrst núna hefur fengizt ýta að láni
og byrjað ér að ryðja.
Aflabrögð hafa verið óvenju rýr
að undanförnu, og aflinn farið nið-
ur í nokkur hundruð kíló í róðri.
Vélbáturinn Anna fór vestur á
Húnaflóa og hefur verið að veið
um þar, og aflað fremur vel. Fyr-
ir páskana lagði hún afla sinn upp
á Skagaströnd, en það sepi hún
fékk í síðasta róðri fyrir páska, 8
lestir, kom hún með til Ólafs-
fjarðar. B.
Sprungnir úi
Reyðarfirði, 26. apríl
Byrjað er að ýta snjó af Odds-
skarði. Allmikill snjór er til fjalla,
þ ’átt fyrir fádæma blíðu undanfarn
ar vikur. Vegir eru flestir illa farn-
ir og með íhlaupum. Viðgerðir eru
að hefjast.
í dag fundust útsprungnir „bell-
esar“ í garði frú Unnar Gunnlaugs-
dóttur, Odda, Reyðarfirði. . M.S.
TÍMINN, föstudaginn 4. maí 1962