Tíminn - 08.06.1962, Qupperneq 13

Tíminn - 08.06.1962, Qupperneq 13
75 ára: Jóhanna Jónsdóttir Flugfélag Reykjavíkur FLJÚGUM TIL Hellissands mánudag. laugardag. Jáhanna Jónsdóttir í Vogum í Kelduhverfi átti 75 ára afmæli 17. desember s.d. Jóhanna er Norður- Þingeyingur í báðar ættir. Hún er fædd í Núpskötlu á Melrakkasléttu og hefur átt heima hér í sýslunni lengst af, en nærri helming ævi sinnar dvalið í Kelduhverfi. Jóhanna hefur verið vinnukona öll sín manndómsár, en oft veitt heimilum forstöðu, þegar fólk hef- ur þurft á hjálp að halda. í æsku naut Jóhanna tilsagnar, sem títt var með unglinga í þá daga. Auk þess var hún einn vetur á kvenna- skóla hjá Jónínu Sigurðardóttur. Af þessu má sjá, að fræðslan var lítil miðað við það, sem æskunni stendur til boða nú. En með góðri greind og lestri bóka hefur hún eignazt notadrjúga þekkingu. Hún er Ijóðelsk og dáir gömlu skáld'.n og sker hólið til þessara vinna sinna ekki við nögl, þegar vel ligg ur á henni. Spakmæli og orðskvið- ur hefur hún á hraðbergi og finn- ur þeim stað í daglegu lífi. Börn og unglingar hænast að henni og greiða henni sögulaun og móður- lega umhyggju, sem hún er rík af, með ævarandi tryggð. Þetta er gamalt vinnukonuævintýri. Marg- endurtekinn þáttur í íslenzku þjóð- lífi. Löng saga og fögur. Jóhanna er félagslynd og glöð á góðri stund. Hún hefur oft'leikið smá- þætti fyrir börn og fullorðna og hefur hæfileika til að tjá sig á því sviði. Hún er ræðin og dagfars- góð, en finnist henni hallað réttu máli, er hún fljót til andsvara og getur þá skollið á blindbylur, en honum slotar með jafnskjótum haetti. Allt verður bjart og engin eftirmál. Sveipinn er gott að var-, ast, það blæs ekki úr honum í bak neinum, því að Jóhanna er hrein- skiptin drengskaparkona. Jóhanna er jafnvíg á utan- sem innanbæjar- verk, enda þaulvön öllu, sem til- heyrir heyskap og fjármennsku. Hún er dýravinur, natin sauðburð- arkona og karlmanns ígildi í göng um og fjárragi. Lét hestinn geysa ■■ mm Bardoi á lausum kili NTB-París, 6. júní. — Skýrt var frá því í París í dag, að Brigitte Bardot og maður he nnar, Jacques Charrier hafi orðið ásátt að sækja um skilnað. Þau giftu sig árið 1959, eftir að hjónaband Bardot og kvik- myndaleikstjórans Roger Vadim hafði farið út um þúfur. þótt mórinn væri krappur og skorn ingar djúpir, en sú gerð móa er einkennandi fyrir heiðalönd okkar Keldhverfinga. Hún er árrisul, þeg ar í stórræði átti að fara, og taldi þá ekki eftir sér sporin eða hand- tökin, því að hún gengur með hús- bóndans áhuga að hverju verki, er hún vinnur. Nú er Jóharina hætt allri erfiðis vinnu og hagræðir einu og öðru innanbæjar eftir því sem þörf ger- ist. Hún á nokkuð fyrir sig að j leggja, því að hún hefur verið svo lánsöm að vera hjá fólki, sem lét sér annt um að hún safnaði í sjóð til elliáranna. En hún hefur líka safnað vandalausu fólki í stóran vinahóp. Þann hæfileika fékk hún í vöggugjöf. Eg'vil svo að endingu þakka Jó- hönnu fyrir alla þá vinsemd, sem hún hefur sýnt mér og syni mín- um og óska henni gæfu og gengis. Laufási 10. 3. 1962 Þórarinn Haraldsson. SKIPAIITGCRÐ RÍKISINS j fer austur til Vopnafjarðar hinn ■ 13. þ.m. Vörumóttak^ í dag til I Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar," Norðfjarðar, Seyð- isfjarðar og Vopnafjarðar. Far- j seðlar seldir á þriðjudag. M.s. Skjaldhreið vestur um land til Isafjarðar, hinn 2. þ.m. Tekið á móti flutn- ingi í dag til Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyr ar, Flateyrar, Suðureyrar og ísafjarðar. Farseðlar seldir ár- degis á laugardag. Bíla- og búvélasalan selur vörubíla: Chevrolet '59, mjög góður bíll. Mercedes Bens '61 hálf frambyggður 1. flokks bíll International '59 með vökvastýri Volvo 55 með vökvastýri Mercedes-Bens '54 Ford '55, Ford '47 Hef kaupendur að öllum gerðum búvéla. vörubif- reiða og fólksbiferiða Bíla-og búvélasalan Eskihlíð B V/Miklatorg, sími 23136 Hólmavíkur, Gjögurs, fimmtudag. Stykkishólms laugardag. Flugfélag Reykjavíkur Sími 20375 TRÚLOFUNAR H R I N G A R ULRICH FALKNER AMTMANNSSTIG 2 Rybvatlnn — Sparneytinn — Sferkur Sársfak/ega byggbur fyrir malarvegi Sveinn Björnsson & Co, Hafnarsfræti 22 ~ Síml 24204^ Til söSu 3ja herb. íbúð við Rauða- læk. Félagsmenn er óska að nota forkaupsrétt að íbúðinni, snúi sér til skrifstofunnar, Hafnar- stræti 8, fyrir 14. júní. B.S.S.R., sími 23873. Trúlofunarhrmgar Fljót afgreiðsla GUOM ÞORSTEINSSON gullsmiður Bankastræti 12. Simi 14007 Sendum gegn póstkröfu. I MELAVÖLLUR í kvöld (föstudag) kl. 8,30 keppa Fram — Valur Dómari: Grétar Norðfjörð. Missið ekki af þessum leik. Málverkasýning Ólafs Túbals verður opnuð boðsgestum kl. 8,30 í kvöld í Listamannaskálanum. Sýningin er opin daglega frá 2—10 e.h. Frá fræðsluráði Reykjavíkur Skólasýning 1862—1962 í Miðbæjarskólanum í Reykjavík verður opin almenningi kl. 20—22 í kvöld. Kennurum sérstaklega boðið að skoða sýninguna kl. 18 í dag. Sýningin verður opin til 20. júní, kl. 14—22 alla daga nema annan dag hvítasunnu kl. 10—22. Aðgangur er ókeypis. UTBOÐ Landssími íslands leitar eftir tilboðum í að byggja birgðaskemmu á lóð símans við Grafarvog við Reykjavík. Útboðslýsing og teikningar verða afhentar gegn 1000 kr. skilatryggingu á skrifstofu Jóns Skúla- sonar, yfirverkfræðings í Landssímahúsinu við Thorvaldsensstræti. Tilboðin verða opnuð á sama stað, mánudaginn 18. júní 1962 kl. 11 f.h. Póst- og símamálastjórnin. Ráðskona Ungur bóndi af vestur- landi óskar eftir ráðs- konu. Má hafa með sér barn. Upplýsingar í síma 34832. Dunlop Ódýrir hjólbarðar Nokkur stykki af ódýrum hjólbörðum til sölu. Stærð 650x16. Iientugir undir jeppa og jeppakerrur. Hjólbarðaverkstæðið Rauðará, Skúlagötu 55. Guðlaugur Einarsson MÁLFLUTNINGSSTOFA Freyjugötu 37, sími 19740 VARMA PLáST EINANGRUN. Þ. Þorgrímsson & Ce. Borgartúni 7. Sími 22235 TÍMINN, föstudaginn 8. júní 1962 13

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.