Tíminn - 29.07.1962, Page 2
Undanfarnar tvær vikur
hefur vsriS staddur hér á
landi hópur stúdenta, að-
allega norrænna, og hefur
hann ferðazt hér talsvert
um. Ferðin hefur verið á
vegum ferðaþjórvustu stú-
denta á Norðurlöndum
(SSTS), en íslenzkir stúdent-
ar hafa margvísleg sam-
bönd við þá stofnun og
njóta fyrirgreiðslu hennar
í ferðalögum erlendis, þótt
ekki séu þeir beinir aðilar
að samtökunum.
Þessi íerðasamtök stúdenta
gángast á hverju sumri fyrirhóp
ferðum víðs vegar um Evrópu,
en íslandsferð hefur ekki ver-
ið farin á vegum þeirra fyrr en
nú. Ferðaþjónusta stúdenta hér
átti hugmyndina að þessu ferða
lagi og hefur annazt allan und-
irbúning og framkvæmdir hór-
lendis. Standa líkur til að þess-
um ferðum verði haldið áfram
og jafnvel fjölgað eitthvað
næstu sumur, en þessi ferð
núna þykir hafa tekizt afar vel.
Hópurinn kom til Reykjavík
ur með Gullfossi 11. júlí síðast
liðinn. Fyrsta daginn óku þeir
um Reykjavík og nágremni og
Hluti þátttakenda i stúdentaferðinni. Tallð frá vinstri: Tor Leif Andersson, Trelleborg, Anna-Maria
Kerkkonen, Helslngfors; Gunhild Edlund; Lindesberg; Árni Stefánsson, fararstjóri; Gunnel Fredberg,
Stokkhólmi; Chrlstian Holmback, Uppsölum og Anders Johnsson, Lundi.
Suiigu með lögreglunni
og syntu í jökulám
skoðúðíi sig um, en síðan var
haldið í aðalferðalagið, sem lá
um Borgarfjörð og þaðan til
Þingvalla og Laugarvatns, síð-
an var haldið að Gullfossi og
Geysi og þaðan upp í Land-
mannalaugar, þá um Jökuldal
að Eldgjá og komið að Kirkju-
bæjarklaustri og í Núpsstaða-
skóg, síðan farið í Þórsmörk
og gengið á Heklu og svo ekið
um Hveragerði og til Reykja-
víkur. Úr landi hélt hópurinn
svo í gær með Gullfossi. Far-
arstjóri í þessari för var Árni
Stefánsson, skólastjóri á Sel-
fossi.
Við hittum nokkra úr hópn-
um að máli ag loknu ferðalag-
inu vestur í Hafnarhúðum, þar
sem feðralangarnir gistu í
Reykjavík. Þátttakendur í ferð
inni voru alls 15, þar af voru
11 Svíar (9 Svíar sögðu þó sum
ir og tveir Skánverjar), ein
finnsk stúlka, einn Svisslend-
ingur og einn Japani. Við þessa
tölu bættist svo einn fararstjóri
og eldabuska, auk bílstjóra,
svo að alls var í förinni 18
manns.
litir og landsiag
— Þetta hefur verið stórkost
leg ferð, verið eitthvað allt svo
óraunverulegt. Það á við bæði
um litina og landslagið. Þessir
litir minna mann á léleg kvik-
myndatjöld, þ. e. a. s. hefði
maður séð þessa liti á kvik-
mynd, hefði maður haft á orði
að tjöldin væru léleg og ýkt.
Maður hélt stundum, að mann
værj að dreyma. Landslagið er
líka svo ólíkt Svíþjóð, hraunin
eru geysi undarleg og allar and
stæðurnar. Maður hefur ekki
við að taka þvj nýja. Áhrifin
hrúgast saman og maður á eft-
ir að vinna úr þeim.
— Og maður rak sig á ýmis-
legt skrýtið. Það var undarlegt
í fyrsta sinn að aka beint út í
árnar, maður vissi ekki hvaðan
á sig stóð veðrið. Og sums stað
ar fórum við yfir ár á vaði,
jafnvel þótt brú væri alveg við
hliðina. En það hafa eflaust
verið gamlar og veikburða brýr
og þeim ekki treyst til að þera
okkur uppi.
Skandinaviskan
gott mál
— Strax og við komum til
Reykjavíkur uppgötvuðum við
að það var mikið léttara að
gera sig skiljanlegan en við
héldum fyrirfram. Flestir virð-
ast skilja sænsku og geta svar-
að á skandinavisku. Það er
geysigott mál, skandinaviskan,
sem íslendingar tala og miklu
auðskildari fyrir Svía en t. d.
danska. Þá rak maður sig
strax á hjálpsemi og vinsemd,
bæði í verzlunum og annars
staðar og það, þrátt fyrir að
þjórfjárgjöf virðist ekki tiðk-
ast.
— Hvers vegna við fórum í
ferðalagið. Ástæðurnar eru að
sjálfsögðu ýmsar. Komast á
stað, þar sem hægt er að kom-
ast í snertingu við sjálft land-
ið og umhverfið og maður sér
eitthvað annað en túrista. Það
fara geysimargir Svíar til Mall-
orca og þar er hægt að bjarga
sér eins vel með sænsku eins
og heima, og einr er það víðar
í Evrópu. Þar sér maður sjaldn
ast annað en sænska ferða-
menn. — Þá er ísland alltaf dá
lítið freistandi land, það stend
ur eins og einhver ljómi frá
því, einhver sögustemning
Ferðin var líka lögð þanníg
upp, að hún var lokkandi, tæki
færi til að ferðast mikið um
og liggja úti ( tjaldi. Flest í
hópnum voru óvön þessum
ferðamáta, en likaði vei við
hann, þótti hann vera talsvert
ævintýri.
Sungu með
lögreglunni
— í Landmannalaugum hitt-
um við heilan bíl af lögreglu-
þjónum, sem voru þarna í fríi.
Við héldum þar ágæta hátíð
saman. Við sungum með lög-
reglunni, við sungum sænsk
lög, en þeir íslenzk. Japaninn
var oftast forsöngvari hjá okk
ur og söng sænskar þjóðvísur,
og lögregluþj ónarnir sungu ís-
lenzk lög. Svo sungum við öll
saman sama lagið, við sungum
sænskan texta, en þeir íslenzk
an. Það hljómaðj dálitið und-
arlega, en þetta var sem sagt
afar skemmtilegur fundur. Og
íslenzka brennivínið er miklu
betra en það sænska.
— Einhvern tíma í ferðinni
sagði Árni okkur a$ hafa til
baðföt, því að við skyldum kom
ast í bað fljótlega. Þetta var
einhvers staðar uppj í óbyggð-
um og við héldum að hann
væri að ljúga þessu, sáum ekk-
ert nema jökulfljót til annarr-
ar handar. Svo námum við stað
ar á árbakkanum, og við vorum
reiðubúnir að kasta Árna út í
fyrir svikin, en til þess kom
þó ekki, þvi að þarna var sund-
laug ekki nema tuttugu metra
frá. Og við syntum þar í laug-
inni og sumir fóru meira að
segja i ána líka. Einn var svo
harður a?j hann fór fyrst í ána,
en það var þó einkum til að
láta taka af sér mynd.
Fuglar cg þjóSlög.
Hópúrinn er auðvitað dálít-
ið sundurleitur, þarna er fólk
sem leggur stund á ýmsar náms
greinar. Enginn þeirra hefur
þó lagt stund á neina grein.
sem varðár ísland sérstaklega,
þarna er enginn norrænufræð-
ingur og enginn, sem hefur
lært íslenzku og enginn, sem
hefur komig áður til landsins.
Stærðfræðinemar eru einna
fjölmennastir. Einn er fugla-
áhugamaður og kom ekki hvað
sízt með til að athuga fugla-
lífið. Og hann kvaðst ekkj hafa
orðið fyrir vonbrigðum, sá
ýmsar tegundir, sem hann
hafði ekki kynnzt áður, fugla,
sem annaðhvort eru ekki til
á Norðurlöndum eða mjög
sjaldséðir þar. Alls sá hann i
ferðinnj frá því að lagt var af
■stag frá Höfn 19 fuglategundir,
sem hann hafði aldrei séð áður.
Japaninn, sem tók þátt í ferð
inni, heitir Tatsnya Sekine og
er frá Tokyo. Hann starfar sem
aðstoðarkennari í ólífrænni
efnafræði við verkfræðiháskól-
ann í Stokkhólmi og talar prýð
isgóða sænsku. Honum þótti
landslagið ekki eins framandi
og mörgum hinna. Eldfjöllin
og hraunin minna ekki svo lít-
ið á Japan, það er margt líkt
þar og hér. Og við Japanir er-
um mikið gefnir fyrir fisk, eins
og íslendingar. Eg var sá eini,
sem gat borðað harðfisk, við
verkum fisk ekki ósvipað í
Japan. Tatsnya Sekine er mik-
ill áhugamaður um söng og
syngur í kór í Stokkhólmi.
Hann hefur þvj í ferðinnj lagt
sig mjög fram vig að komast
yfir íslenzk þjóðlög, og hefur
hug á því að kynna löndum sín
um norræn þjóðlög, þar á með-
al islenzk.
0g ekki gleyma
kokknum
Við spjöllum góða stund vjð
hópinn og margt ber á góma,
þótt hér sé einungis fás eins
Framhald 'á 15 síðu
Tjöld
2ja og 4ra manna
með föstum og lausum
botn, og rennilás í
dyrum.
TJALDBOTNAR
SVEFNPOKAR
HLÍ FÐARPOKAR
Fæst í kaupfélögum
um land allt
Verksmiðjan MAGNI h.f.
Sími um Hveragerði 22090
Afgreiðslusími 82
FÓTÓFIX-MYNDIR
sssss
Framköllun Kopering
Stórar myndir
Fallegar myndir
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu
FÓTÓFIX Vesturverj Rvk.
Mynd er minning
VARMA
EINANGRUN.
Þ Porgrfmsson & Co.
Gorgartúni 7 Simi 22235
SKIPAUTGCRÐ RIKISiNS
Ms, Herjóifur
fer til Vestmannaeyja og Horna
Ejarðar 1. ágúst. Vörumóttaka
til Hornafjarðar á þriðjudag.
2
T f M I N N laugardagurinn 2? júlt 196».